Fréttablaðið - 23.07.2005, Page 48
32 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Ískuldi úti - ekkert vandamál,
best einangruðu hjólhýsin á markaðnum,
vatnshiti í gólfi (parket) - Alde 3000 hitun
SÝNING UM HELGINA að Súðarvogi 9
Laugardag og sunnudag kl. 10 - 18
Fákanes ehf - Sími 892 8030 - www.hjolhysi.is
Sænsku lúxus hjólhýsin
Skandinavískur klassi
Gerð 560 CTH - Verð 2.850.000
Innifaldir aukahlutir: Stór sóllúga, ísskápur með frysti,
örbylgjuofn, ytra geymsluhólf, útvarp/fjarstýring/CD/MP3
Lengd á húsi: 5.71m - Breidd: 2.54m
Polar 730 CTH Polar 680 CTH Polar 620 CTH Polar 590 CTH Polar 560 CTH Polar 520 CTH
Kr. 2.850.000Kr. 3.950.000 Kr. 3.750.000 Kr. 3.500.000 Kr. 3.100.000 Kr. 2.695.000
Fegurðin hefur alltaf verið tilstaðar á Þorvaldseyri endatrónir Eyjafjallajökull yfir
fjöllum og kórónar landslagið. En
fyrir níutíu og níu árum þegar
Ólafur Pálsson, afi nafna hans
Eggertssonar, keypti jörðina þá
virtist hún ekki svo gjöful enda gat
Svaðbælisá farið yfir alla eyri svo
jörðin var nær óhæf til ræktunar.
Ólafur lét hendur standa fram úr
ermum og reisti varnargarða með
fram ánni og hóf virkjun við
Koltungufoss árið 1928 og síðan þá
hefur smjör dropið af hverju strái.
Kýrnar fá hveiti
Á Þorvaldseyri eru einu hveiti-
akrarnir á landinu en þeir eru um
það bil tveir hektarar og vonast
Ólafur til að uppskera fjögur til
fimm tonn af hveiti í haust. „Ég
hef ræktað hveiti í fjögur ár,“ seg-
ir Ólafur meðan hann veður um
akurinn. „Það er bara svo gaman
að prófa og sjá hvað náttúran get-
ur gefið af sér á þessum stað. Við
höfum svo bakað úr þessu hveiti
og það voru bara hinar bestu af-
urðir sem komu út úr því en aðal-
lega fer hveitið í dýrafóður.
Þannig að hveitið fer nú aðallega í
kýrnar en aldrei að vita hvort
maður þrói hveitiræktunina til
manneldis.
Svo er ég með 30 hektara af
kornökrum hér þannig að við höf-
um vel í þessar sextíu kýr okkar
hér og getum jafnframt selt
heilmikið af þessu til annara
bænda.“
Kornræktun hefur verið stund-
uð á Þorvaldseyri frá árinu 1960
en Eggert Ólafsson, faðir Ólafs,
var einn af brautryðjendum í
þeim efnum á landinu.
Suðrænt loftslag
Það virðist vera annað loftslag á
Þorvaldseyri en annars staðar á
Íslandi. Í það minnsta voru kýrnar
þar komnar út á græn tún í endað-
an apríl í ár. „Hér skýlir jökullinn
okkur fyrir norðanáttinni og svo
er sjaldan frost í jörðu og hún
kemur oftast vel undan vetri,“
segir Ólafur til útskýringar á
þessu fyrirbæri. „Ekki nóg með
það heldur eru vínberin nokkuð
vel á veg komin og ég er farinn að
leggja mér eitt og eitt til munns
þótt vínberjauppskera sé ekki
fyrr en í september.“ Þessu til
staðfestingar leiðir Ólafur blaða-
mann í lítið gróðurhús sitt og býð-
ur honum vínber.
Rafstöð og hitaveita
Fyrir fimm árum endurgerði
Ólafur rafstöðina sem afi hans
hafði komið upp árið 1928. „Ég
nota gömlu túrbínunar en allur
rafbúnaður er nýr. Með þessu
móti náum við að framleiða sext-
án kílóvött á klukkutíma og það
dugar okkur nema á helstu álags-
tímum. Ég er tengdur við lands-
kerfið þannig að þegar ég hef af-
gangs rafmagn get ég selt það inn
á það kerfi en þegar ég hef ekki
nóg kaupi ég rafmagn með sama
hætti.“
Rafstöðin er í Koltungugili en
þar er jafnframt unaðsreitur fjöl-
skyldunnar á Þorvaldseyri enda
afar hlýtt þar og veðursælt. Fjöl-
skyldan hefur gróðursett fjöl-
margar trjáplöntur í fögru gilinu.
Árið 1989 ákvað Ólafur svo að
láta á grunsemdir sínar reyna um
það að heitt vatn væri að finna í
iðrum jarðar á Þorvaldseyri.
Hann lét bora þúsund metra holu
og nú bunar úr henni heitt vatn
sem iljar og þvær ábúendur jarð-
arinnar. „Það var alltaf vitað að
heitt vatn væri hinum megin við
fjallið og ég hafði einfaldlega þá
trú að heita vatnið væri hérna
megin líka,“ segir Ólafur, um
þessa ákvörðun sem mörgum
þótti djörf á sínum tíma.
Ferðamenn við túnfótinn
Við innkeyrsluna að Þorvalds-
eyri er útsýnisplan og mikið um
að rútur fullar af erlendum
ferðamönnum stoppi þar við og
líti inn dalinn sem Eyjafjallajök-
ull kórónar með reisn. „Hérna
sér maður ferðamennina virða
þetta fyrir sér og jafnvel með
myndavél eða kíki. Fyrir stuttu
sá ég hérna einar sex rútur á
planinu.“
Ólafur segir vel koma til
greina að nýta sér ferðamanna-
strauminn til að kynna afurðir af
bænum. „Það er aldrei að vita
nema maður geti boðið þeim ost af
kúnum hérna á brauði úr Þor-
valdseyrarhveiti. Best væri þó ef
ég gæti boðið þeim upp á viskí úr
Þorvaldseyrarbiggi,“ segir korn-
bóndinn kankvís og stingur
hveitistrái í munnvikið. ■
Bærinn fiorvaldseyri er í einni af sy›stu og ve›ur-
mildustu sveitum landsins. Umhverfi› er eins og í
draumaheimi enda stoppa fjölmargir fer›amenn vi›
túnfótinn til a› berja sveitina augum. Jón Sigur›ur
Eyjólfsson tók hús á Ólafi Eggertssyni bónda á
fiorvaldseyri og komst a› flví a› bærinn er eins og af
annarri veröld, jafnvel fyrir flá sem komast inn fyrir
túnfótinn.
KOLTUNGUVIRKJUN Koltunguvirkjun sem sér Þorvaldseyringum fyrir rafmagni er stað-
sett í unaðsreit fjölskyldunnar og þar hafa þau verið iðin við að gróðursetja trjáplöntum.
Koltungufoss sér svo um að úða gróðurinn auk þess sem hann knýr fram raforkuna.
VÍNBERJARÆKTUN Vínberin að Þorvaldseyri eru mörg hver orðin það þroskuð að þau bragðast afbragðs vel þó uppskeran eigi ekki að
vera fyrr en í september.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Sveit af ö›rum
heimi