Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 51
ann á púlsinum í öllu sem er að
gerast í tísku og láta ekki eitt ein-
asta „trend“ eða „móð“ framhjá
sér fara. Þeir verða að eiga föt
eftir alla flottustu hönnuðina og
verða leiðir á flíkum sínum eftir
örfá skipti. Fólk með fashionorex-
íu er oft á toppi listanna yfir þá
best klæddu en það leggur aldrei
línurnar og tekur engar áhættur.
Þetta fólk eltir tískuna en leiðir
hana ekki, því það klæðist bara
því sem frægir hönnuðir hafa
matreitt fyrir það. Eins og hinn
breski grínisti David Walliams
orðaði það: „David Beckham
tískugoð? Ég held nú ekki. Þetta
er bara maður sem á fullt af nýj-
um fötum en það er ekkert saman-
sem merki á milli þess og að vera
tískufrömuður.“
Tískutímariti Style, sem er
fylgirit Times, smíðaði dæmi fyr-
ir fólk um mörkin á milli fas-
hionorexíu og hinna eðlilegu:
„Þeir sem eru smart ganga í
geggjaða, nýja jakkanum frá
Dolce&Gabbana, þeir sem þjást af
fashoinorexíu ganga í dressi núm-
er fjórtan af Dolce&Gabbana
tískusýningunni.“
Dæmi um fræga einstaklinga sem
þjást af þessari röskun: David og
Victoria Beckham, Jennifer Lopez,
Paris Hilton og Jessica Simpson.
Makeorexía
Þetta er nú á mörkum þess að geta
kallast sjúkdómur en er nokkuð
hvimleið árátta fyrir fórnarlömb
hennar. Einkenni makeorexíu eru
þau að einstaklingnum líður eins
og hann sé nakinn, sé hann ekki
með farðað andlit og honum finnst
hann líta þeim mun betur út sem
magnið er meira. Eins og gefur að
skilja þá leggst makeorexía oftar á
konur.
Nú er mikill munur á konum
sem hafa gaman að förðunarvör-
um og vilja hafa sig til og þeim
sem líða sálarkvalir innan um
annað fólk séu þær ekki stífmál-
aðar.
Oft er gert grín að þessari
förðunarfíkn og tískublöðin bjóða
stundum upp á próf sem bera yfir-
skriftina „Ertu háð förðunarvör-
um?“. Það er þó eingöngu gert til
gamans og engar lausnir veittar
þeim sem eru háðir. Þar er ekkert
rætt um rót vandans sem oftast er
brotið sjálfsálit eða óöryggi. Kon-
um með makeorexíu finnst þær
geta falið sig bak við grímuna sem
farðinn veitir og halda þannig
fjarlægð sinni við umheiminn.
Dæmi um fræga einstaklinga sem
þjást af þessari röskun: Christina
Aguilera, Pamela Anderson og
Jordan.
Fleiri en ein
Oft haldast þessar útlitsraskanir í
hendur og sami einstaklingurinn
getur verið þjáður af mörgum
röskunum í einu.
LAUGARDAGUR 23. júlí 2005 35
Gestamóttaka
á Nesjavölllum
og Hellisheiði
Orkuveitan starfrækir gestamóttöku
á Nesjavöllum (Nesjavallavirkjun)
og í Skíðaskálanum í Hveradölum
(fyrirhuguð Hellisheiðarvirkjun).
Gestamóttaka er opin
á báðum stöðum
mánudaga-laugardaga kl. 9-17
og sunnudaga kl. 13-18.
Allar nánari upplýsingar
í síma 516 6000 og á www.or.is
Aðgangur er ókeypis.
OPIÐ
UM HELGINA
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
2
87
51
06
/2
00
5
JENNIFER LOPEZ Lætur ekkert framhjá
sér fara í tískunni og á því til að yfirkeyra
ansi oft.
PARIS HILTON Með hattinn, sólgleraug-
un, beltið, hringinn og hárlengingarnar.
CHRISTINA AGUILERA
Er eitt skýrasta dæmið um
manneskju með makeor-
exíu. Christina sést aldrei
án þess að vera gríðarlega
mikið máluð og væri
sennilega óþekkjanleg án
alls maskarans,
augnskuggans, meiksins
og kinnalitarins. Hér eru
aðeins nokkrar myndir
sem sýna óhóflega notkun
hennar á förðunarvörum.
DAVID BECKHAM OG VICTORIA AD-AMS Heilbrigð og hamingjusöm. Lífs-gleðin geislar af parinu sem
var nýlega trúlofað.
POSH OG BECKS Með frosin bros á
vörum, töluvert frægari og búin að stofna
Beckham-ættarveldið. Hér eru þau aug-
ljóslega með tanorexíu og fashionorexíu
og einhvern snert af plastorexíu.
KATIE PRICE Var falleg og frískleg ung
stúlka, með krullað og glansandi hár. JORDAN Eins og
Katie Price kallar
sig núna. Lítur
vægast sagt
skelfilega út með
plastorexíu,
makeorexíu og
tanorexíu.tímum æsku- og útlitsdýrkunar