Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 55

Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 55
39LAUGARDAGUR 23. júlí 2005 SMS LEIKUR Sendu SMS skeytið BTC MGf á númerið 1900 og þú gætir unnið. 9. hver vinnur. Vinningar eru: •Miðar fyrir tvo á Madagascar •SHARK TALE á DVD •SHREK 2 á DVD •Glæsilegur varningur tengdur myndinni t.d flottir bolir •Coca Cola •Og enn meira af DVD og skemmtilegu dóti Frá framleiðendum SKERK 2 & SHARK TALE V in n in g a r v er ð a a fh en d ir h já B T Sm á r a li n d . K ó p a v o g i. M eð þ v í a ð t a k a þ á tt e r tu k o m in n í S M S k lú b b . 14 9 k r / sk ey ti ð . Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 5/7, 11/7, 12/7, 13/7 kl. 14-18 6/7, 7/7, 8/7, 14/7, 15/7, 17/7, 22/7, 28/7 kl. 14-20 10/7, 17/7 kl. 12-18 LOKAÐ 18/7 - 21/7, 23/7-27/7, 29/7-11/8 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu Lau 13/8 kl 14, Su 14/8 kl 14, Lau 20/8 kl 14, Su 21/8 kl 14 ÖRLAGAEGGIN-SÖNGLEIKUR 6. sýning 22/7, 7. sýning 24/7 og lokasýning 28/7 Af því tilefni að tónskáldið, flautu- og píanóleikarinn Árni Björnsson fæddist fyrir 100 árum verða haldnir minningartónleikar í Skúlagarði, Kelduhverfi, á morg- un sunnudag. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum er Karlakórinn Hreimur undir stjórn Robert Faulkner, píanóleik- arinn Aladár Rácz, Lúðrasveit Þingeyinga og Kirkjukór Garðs- kirkju. Einnig koma fram ættingj- ar Árna en dóttursynir Árna, bræðurnir Halli Cauthery, fiðlu- leikari og Gunnar Cauthery, leik- ari, koma til með að skemmta gestum ásamt föður sínum, óbó- leikaranum Andrew Cauthery. Árni Björnsson (1905-1995) var einn af frumkvöðlum íslensks tón- listarlífs. Hann fæddist og ólst upp í Lóni í Kelduhverfi. Tónlistin átti hug hans allan frá unga aldri en á unglingsárunum var Árni þegar farinn að stjórna kórum víða um héraðið. Leiðin lá síðan til Reykjavíkur þar sem hann á árun- um 1930 – 1935 stundaði nám í Tónlistarskólanum í píanóleik, flautuleik, tónfræði og hljóm- fræði. Árni var einn af stofnfélögum Hljómsveitar Reykjavíkur sem var undanfari Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands. Hann vann fyrir sér með kennslu og lék á píanó við ýmis tækifæri og í danshljóm- sveitum. Árni stundaði fram- haldsnám við Royal College of Music í Manchester á árunum 1944 – 1946 og kenndi eftir það við Tónlistarskólann í Reykjavík ásamt því að semja tónlist sem flutt verður á minningartónleik- unum á morgun. Öllum er frjálst að mæta á svæðið og heiðra minningu tón- skáldsins með því að hlýða á tón- leikana sem hefjast klukkan 15.00. ■ EKKI MISSA AF… ...miðaldadeginum á verslunar- staðnum Gásum í Hörgárbyggð norðan Akureyrar milli klukkan 13 og 17 í dag. ...opnun ljósmyndasýningarinn- ar Íslendingar í Listagilinu á Ak- ureyri klukkan 15. ...tríói píanóleikarans Sunnu Gunnlaugsdóttur á Jómfrúnni klukkan 16. Aðgangur er ókeypis. Um helgina verður Bachsveitin í Skálholti ein af flytjendum á þriðju helgi Sumartónleika í Skálhotskirkju. Leiðari Bachsveitarinnar að þessu sinni er Stanley Ritchie en hann er einn af helstu frumkvöðlum heims í flutningi barokktónlistar á uppruna- leg hljóðfæri. Einsöngvarar verða Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson. Fyrstu tónleikarnir í Skálholti verða í dag klukkan 15.00 þar sem flutt verða verk eftir Veracini Schütz og Zelenka og þeir næstu klukkan 17.00 þar sem leikin verða verk eftir Händel. Á morgun verða svo tónleikar klukkan 15.00 þar sem Händel-tón- leikarnir verða endurfluttir og messa klukkan 17.00 þar sem frumfluttur verður sálmurinn Mektugra, maktar drottni í útsetningu Gunnars A. Kristinssonar, staðartónskálds 2005. Frekari upplýsingar um flytjendur og tónleikaröð- ina má finna slóðinni www.sumartonleikar.is. Tónlistarhátíðin á Reykholti fer fram í níunda sinn núna um helgina og er boðið upp á fjölbreytta dagskrá á hátíðinni. Hinn þekkti franski fiðluleik- ari Philippe Graffin er gestur á hátíðinni í ár sem og Brindisi píanótríóið frá Englandi. Þar eru einnig íslensku flytj- endurnir Auður Hafsteinsdóttir, Ásdís Brynjarsdóttir og Bryndís Halla Gylfa- dóttir. Í kvöld eru tónleikar í Reykholts- kirkju þar sem flutt verða verk eftir Haydn, Ravel og Beethoven. menning@frettabladid.is Bachsveitin í Skálholti ! BACHSVEITIN Kemur fram á tónleikum á þriðju tónleikahelgi sum- artónleika í Skálholtskirkju sem fram fer núna um helgina. Minningartónleikar í Kelduhverfi ÁRNI BJÖRNSSON Fjöldi valinkunnra listamanna kemur saman í Kelduhverfi á morgun, sunnudag, til að heiðra ald- arminningu tónskáldsins Árna Björnssonar. Hildur Elín Ólafsdóttir hefur veri› rá›in sem sólódansari vi› ballett- flokk leikhússins í Basel í Sviss. Hildur fékk fljálf- un í klassískum ballett í Hollandi og hefur sí›- astli›in sex ár dansa› í ballettperlum á bor› vi› Svanavatni› og fiyrnirós me› óperunni í Düsseldorf. „Ég fékk stöðuna í Basel núna í vor eftir inntökupróf. Ég sagði upp hjá óperunni í Düsseldorf því mér fannst vera kominn tími til að gera eitthvað nýtt. Eftir þessi sex ár í Düsseldorf var ég búin að dansa í öllum klassísku verkunum og vildi prófa mig áfram í nútíma- dansinum,“ segir Hildur Elín Ólafsdóttir dansari. Hún tók þátt í þrjátíu mismunandi uppfærslum með Rínaróperunni í Düsseldorf og ferðaðist með ballettflokknum á listahátíðir í Þýskalandi, Sviss, Portúgal og nú síðast Kína, þar sem hún var með sólóhlutverk. Leikhúsið í Basel er af svipaðri stærðargráðu og Rínaróperan, en danshópurinn er minni, sem gefur fleirum tækifæri til að dansa sóló- hlutverk. „Ég er mjög ánægð með að fara til Basel. Þar er aðeins öðruvísi dansstíll og mig hefur alltaf langað til að vinna með Ric- hard Wherlock, sem er listrænn stjórnandi flokksins,“ segir Hild- ur. Wherlock er þekktur danshöf- undur víða um heim og hefur meðal annars sett upp verk með Íslenska dansflokknum í Borgar- leikhúsinu. „Það er meiri nútíma- dans hjá Wherlock en hann heldur í klassíkina líka. Hann gerir enn verk á táskóm en hann er með sinn eigin stíl,“ segir Hildur. Fleiri þekktir danshöfundar eiga verk á efnisskránni, þar á meðal Jiri Kylian. „Þegar ég var í Hollandi var ég undir áhrifum frá Jiri Kylian, dansstjóra NDT (Nederlands Dans Theater). Mig hefur alltaf dreymt um að vinna með honum og það lítur út fyrir að það gerist núna,“ segir Hildur. Hildur byrjaði ung að árum í Ballettskóla Guðbjargar Björg- vins á Seltjarnarnesi og tíu ára gömul fór hún í Listdansskóla Ís- lands. Hún fór sextán ára til Hollands og lauk dansnámi frá Konunglegu listaakademíunni í Haag á þremur árum. „Þetta er ofsalega mikið líkamlegt álag og andlegt álag líka, maður er alltaf að læra ný verk og þarf að vera tilbúinn að taka að sér verk með engum fyrirvara ef einhver meið- ist. Maður er að vinna mikið á kvöldin og borða seint. Fólk hefur þá hugmynd að ballerínur borði ekki neitt en brennslan er það mikil að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Ég þarf á orkunni að halda,“ segir Hildur, en á efnis- skránni fyrir næsta ár eru 104 sýningar. ■ Sólódansari í Sviss HILDUR ÓLAFSDÓTTIR „Ég er ofsalega sátt við hlutskipti mitt og vona að ég geti haldið áfram að dansa sem lengst,“ segir Hildur, en hún er núna í sumarfríi á Ís- landi. Um helgina verður nýsjálenski orgelleikarinn Nigel Potts gestur tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju. Hann leikur í dag klukkan 12 og á morg- un klukkan 20. Potts flytur afar fjölbreytt efni á tónleikunum á sunnudagskvöld og valin verk á hádegistónleikun- um á laugardag, meðal annars verk eftir þrjá af helstu organistum Par- ísarborgar á síð- ari hluta 19. aldar; Gigout, Dubois og Guillmant. ■ ■ ■ TÓNLEIKAR  12.00 Nýsjálenski orgelleikarinn Nigel Potts heldur tónleika í Hallgrímskirkju. Potts leikur meðal annars verk eftir þrjá af helstu organistum Parísarborgar á síðari hluta 19. aldar, Gigout, Dubois og Guillmant.  15.00 Bachsveitin í Skálholti heldur tónleika í Skálholtskirkju ásamt einsöngvurum Guðrúnu Jó- hönnu Ólafsdóttur og Ágústi Ólafssyni Leiðari Bachsveitarinnar að þessu sinni er Stanley Ritchie. Flutt verður efnisskrá undir yfir- skriftinni Gullöldin í Dresden en þá munu hljóma verk eftir tón- skáldin Veracini, Schütz og Zel- enka.  16.00 Tríó píanóleikarans Sunnu Gunnlaugsdóttur á Jóm- frúnni. Auk Sunnu skipa tríóið bandaríski trommuleikarinn Scott McLemore og norski bassaleikarinn Eivind Opsvik, en hann kemur hingað til lands í boði norska sendiráðsins. Leikin verður tónlist eftitr meðlimi tríósins, í bland við eldra efni. Aðgangur er ókeypis.  17.00 Bachsveitin í Skálholti heldur tónleika í Skálholtskirkju ásamt einsöngvurum Guðrúnu Jó- hönnu Ólafsdóttur og Ágústi Ólafssyni. Leiðari Bachsveitarinnar að þessu sinni er Stanley Ritchie. Flutt verða verk eftir Handel.  21.00 Sumartónleikar við Mý- vatn, í Reykjahlíðarkirkju. Stefan Barcsay gitarleikari frá Augsburg Þýskalandi leikur fjölbreytta tón- list eftir Villa Lobos, Tarrega, Brouwer og Sor. ■ ■ OPNANIR  14.00 Eríkur Arnar Magnússon opnar myndlistarsýningu á Café Karólínu í Listagilinu á Akureyri.  15.00 Sýningin Íslendingar opn- ar í Listagilinu á Akureyri. Um er að ræða sýningu sem byggð er á samnefndri bók með myndum eftir Sigurgeir Sigurjónsson og texta eftir Unni Jökulsdóttur. Sama sýning naut gríðarlegra vin- sælda á Austurvelli í Reykjavík á síðasta ári. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. NIGEL POTTS Nýsjálenski organist- inn leikur á tónleik- um í Hallgrímskirkju um helgina. Potts í Hallgrímskirkju

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.