Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 23. júlí 2005 41 Skáning og nánari upplýsingar í símum 553 2590 og 893 1440. Einnig má senda fyrirspurnir á isaksskoli@isaksskoli.is. Eins árs forskot í lestri og íslensku Markmið skólans er að lestrarkunnátta í lok 6 ára bekkjar sé sambærilegt við það sem aðrir skólar ná í lok 7 ára bekkjar. Enska í öllum bekkjum Enn betri undirbúningur undir frekara nám. Áhersla á heilbrigða lífshætti Skólinn leggur mikið upp úr því að nemendur temji sér holla lífshætti og jákvætt lífsviðhorf. Lífsleikniþjálfun er snar þáttur í skólastarfinu. Vinnufriður í skólastofum Við leggjum áherslu á að kenna nemendum markviss og öguð vinnubrögð. Skráning stendur yfir í Ísaksskóla Átt þú 5-8 ára barn? Skóli Ísaks Jónssonar er lítill og persónulegur skóli sem hefur sérhæft sig í kennslu 5 til 8 ára barna frá árinu 1926. Náttúrulegur hárlitur Í háralitum eru mörg afar sterk efni sem ekki er æskilegt að komist í snertingu við líkamann og nokkur skortur hefur verið á heilsusamleg- um háralitum. Nú er kominn á markaðinn frábær hár- og snyrti- vörulína frá Logona sem er ein- göngu framleidd úr lífrænt ræktuð- um jurtum og inniheldur engin óæskileg efni. Í hárlitunarlínunni frá Logona eru margir litir í boði, litur- inn er einfaldur í notkun og þekur gráu hárin vel. Hárliturinn hlaut tvenn verðlaun á Bio-fach-sýning- unni 2005 í flokki snyrtivara en Bio Fach er fagráðstefna fyrir framleið- endur náttúru- og heilsuvara. Ann- ars vegar var liturinn valinn vara ársins og hins vegar voru veitt verð- laun vegna þróunarvinnu Logona. Vörurnar eru prófaðar af húðsjúk- dómafræðingum sem hafa gefið þeim góð meðmæli. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Sólarvörn fyrir vi›kvæma Stutt er síðan fjallað var um að ýmsar tegundir sólarvarna væru jafnvel hættulegri en áhrifin frá sólarljósi. Environmental Health Perspectives birti vísindagrein um rannsókn á sex sólarvarnar- efnum. Í þeirri rannsókn kom í ljós að þrjú af efnunum: Octyl Methoxycinnamate, Oxybenzone og 4 - M e t h y l - b e n z y l i d i n e Camphor (4- MBC), höfðu hormónatrufl- andi áhrif og gætu því verið skaðleg heilsu fólks. H e i l s u m e r k i ð Sante hefur nú í sölu sólarvörn sem er ein- göngu unnin úr líf- rænum jurtum. Hún veitir náttúrulega vörn gegn UVA og UVB-geisl- um með náttúrulegu steinefnunum Titandioxid og Zinkoxid. Hún hentar fólki með viðkvæma húð einstaklega vel og einnig þeim sem vilja hugsa jafn vel um það sem þeir setja utan á líkaman og ofan í hann. Arnþrúður Dögg starfar „freelance“ við auglýsingar og kvikmyndir. Hún hefur ætíð verið mikil fatakona og er alger- lega óhrædd við að blanda saman alls- konar fötum óháð ráðandi tískustraum- um. Litaglaðari konur er heldur varla hægt að finna norðan Alpafjalla. Spáir þú mikið í tískuna? Já og nei, ég skoða náttúrlega tískublöð og fylgist með götutískunni en þegar kemur að mínum eigin klæðaburði er ég voða mikið í því að drullumalla nógu miklu saman. Tískuslysin eiga það oft til að verða smart ef maður er bara nógu djarfur. Svo finnst mér skemmtilegt að blanda nógu miklum litum saman við þetta allt saman. Uppáhaldshönnuðir? Roberto Cavalli er svalasti hönnuður í öllum alheiminum. Fallegustu litirnir? Ég er voða hrifin af skærum litum, appelsínugulum, bleik- um og öllum litum sem innihalda líf og fjör. Svo er ég mikið í gulli. Hverju ertu mest svag fyrir? Ég er með sólgleraugnahneigð dauðans. Ég á um 15 sólgleraugu en ég er mjög líklega að fara að eignast ein gleraugu í viðbót. Það fer eftir því hvernig mér gengur að bjóða í þau á ebay. Þetta er svona Yoko Ono-gleraugu sem eru alveg að gera sig. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Gull- kjól á ebay sem er í egypskum stíl. Hann er eiginlega geimur, heilt stykki sem er einungis með göt fyrir haus og hendur. Hann flöktir í vindi. Hvað finnst þér mest sjarmerandi í tískunni? Fáklæddar konur. Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir haustið? Ég er eiginlega búin að kaupa mér skvísustæls úlpujakka sem verður ómissandi í hausthretinu. Ég keypti úlpujakkann í Sirkusportinu. Uppáhaldsverslun? Trilogia. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Það er misjafnt, yfirleitt kemst ég upp með frekar lítið. Ég er frú ebay og þar er hægt að finna ýmislegt fyrir lítið. Hvaða flíkar gætir þú ekki verið án? Víðra buxna með síðu klofi sem ég fékk í nýju búðinni í Bankastræti, Nakta ap- anum, sem opnaði í síðustu viku. Uppáhaldsflík? Silkikjóll sem ég keypti í litlu kínabúðinni á Laugavegi, (man ekki hvað hún heitir). Kjóllinn er með þrykktu mynstri og er svo fallegur að ég get haft hann uppi á vegg. Hvert myndir þú fara í verslunar- ferð? Ef ég fengi að velja myndi ég fara til Marokkó. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Það voru mjög undarlegar bux- ur sem voru mjög háar upp í mittið, mjög víðar og með afbökuðu sniði. Þessar buxur notaði ég á einhverju „Gipsy style“ kvöldi. Þær voru mjög skoplegar en ég keypti þær í Kolaport- inu. Nú er ég hins vegar búin að selja þær svo ég vona að þær lifi góðu lífi. SMEKKURINN ARNÞRÚÐUR DÖGG SIGURÐARDÓTTIR FRÚ „FREELANCE“ Er a› bjó›a í ge›veik Yoko Ono gleraugu á ebay
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.