Fréttablaðið - 29.07.2005, Side 2

Fréttablaðið - 29.07.2005, Side 2
2 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR Vörubílstjórar halda mótmælaáformum sínum til streitu: A›ger›ir gætu hafist kringum hádegi MÓTMÆLI Vörubílstjórar sem hyggjast loka fyrir umferð úr höf- uðborginni í dag ætla ekki að hætta við mótmæli sín þrátt fyrir eindregin tilmæli lögreglu. „Við gætum farið af stað í kringum hádegið,“ sagði Sturla Jónsson, talsmaður þeirra, í gær- kvöldi. „Ég á von á því að fjörutíu til fimmtíu bílar taki þátt, en sjá- um til hvort þeir mæta allir þegar á hólminn er komið.“ Lögreglan í Reykjavík fundaði í fyrrakvöld með helstu forsvars- mönnunum. „Við skýrðum málið vel fyrir þeim og reyndum að tala þá ofan af þessu,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn. Hann segir lögregluna munu beita öll- um tiltækum ráðum. „Aðgerðir af þessu tagi geta haft grafalvarleg- ar afleiðingar og því reynum við að sjálfsögðu að koma í veg fyrir þær.“ Sturla gefur ekki mikið fyrir tal um að slysahætta stafi af upp- átækinu þar sem allar götur verði stoppfullar af bílum. „Ég get ekki séð að neinn geti stundað ofsa- akstur þegar engin akrein er til að aka eftir.“ - grs / - ht Skuldir heimila aukast um fimmtán prósent Skuldir heimilanna námu í árslok 2004 um 760 milljör›um króna og aukast um 15 prósent. Eignaskattur var lag›ur á í sí›asta sinn í ár og nemur 2,8 milljör›um. RÍKISFJÁRMÁL Skuldir heimilanna námu í árslok 2004 um 760 millj- örðum og hafa vaxið um 15,2 pró- sent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í yfirliti fjármálaráðuneytisins um helstu niðurstöður álagningar opin- berra gjalda. Fjármálaráðuneyt- ið birti í gær helstu niðurstöður álagningar einstaklinga og þeirra sem reka fyrirtæki í eigin nafni. Skuldir vegna íbúðakaupa jukust heldur minna eða um 12,6 prósent. Eignaskattur var lagður á í síðasta sinn í ár. Hann nemur alls 2,8 milljörðum króna og hækkar um 30 prósent á milli ára, sem fjármálaráðuneytið segir eink- um skýrast af hækkun á fast- eignamati milli ára. Þá hefur gjaldendum eignaskatts fjölgað um 8,8 prósent og greiða alls 75.600 eignaskatt í ár. Allar tölur um álagningu opin- berra gjalda framteljenda að fyrirtækjum undanskildum liggja nú fyrir en álagning opin- berra gjalda á fyrirtæki liggur fyrir í lok október. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu í gær nemur samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars um 145 milljörðum króna í ár. Framteljendum fjölgar á landinu öllu um 2,1 prósent en 4.772 fleiri einstaklingar telja nú fram en á síðasta ári. Hátekjuskatt greiða 17.456 framteljendur og greiða þeir um 1,4 milljarða króna en enda þótt skatthlutfall hátekjuskattsins hafi verið lækkað frá fyrra álagn- ingarári um eitt prósentustig, nið- ur í 4 prósent, hækkar álagning á þessa gjaldendur um 3,9 prósent. Þá eru greiðendur fjár- magnstekjuskatts tæplega 77 þúsund og fjölgar þeim lítillega á milli ára. Fjármagnstekjur ríkisins eru að helmingi arð- greiðslur, vextir og leigutekjur en einnig söluhagnaður hluta- bréfa en alls telja 11.400 fram slíkar tekjur. hjalmar@frettabladid.is Olíufélögin stefna: Telja sektir ofáætla›ar SAMRÁÐ OLÍUFÉLAGANNA „Skeljung- ur hefur þegar birt stefnu og Olís mun einnig gera það áður en frestur rennur út,“ segir Heimir Örn Herbertsson, héraðsdómslög- maður hjá lögmannsstofunni Lex - Nestor. Frestur til að stefna ríkinu og samkeppnisyfirvöldum fyrir sekt- ir vegna ólöglegs samráðs olíu- félaganna rennur út á morgun. Áður hafði eignarhaldsfélagið Ker, sem á Esso, sent inn stefnu. „Það er samdóma álit olíufélag- anna að ályktanir um meint sam- ráð séu allt of víðtækar og sektir ofáætlaðar. Félögin krefjast þess að sektir verði stórlega lækkaðar eða felldar niður.“ -íös Atvinnuleysi eykst í Svíþjóð: Fer yfir sjö prósent SVÍÞJÓÐ Atvinnuleysi í Svíþjóð fór yfir sjö prósent í júní, sem er tæpu prósenti meira en á sama tíma í fyrra og um tveimur pró- sentum meira en í maí. Hagstofa Svíþjóðar gaf þá skýringu á auknu atvinnuleysi að Svíar hafi nú tekið upp sam- ræmda mæliaðferð Evrópusam- bandsins og nú séu inni í tölunum ungmenni sem leiti að sumar- störfum. Breytingarnar þýða að 40 þús- und manns var bætt í hóp atvinnu- lausra í júní en atvinnulausir voru um 331 þúsund af 4,69 milljónum atvinnubærra. FASTIR ÚTI Í Á Vel gekk að bjarga mönn- unum af þaki bifreiðarinnar. Erlendir feðgar: Bjarga› af flaki bifrei›ar BJÖRGUN Bjarga þurfti feðgum af þaki bifreiðar, sem þeir höfðu fest úti í miðri Skyndidalsá skammt frá Höfn í Hornafirði, um hádeg- isbil í gær. Feðgarnir eru erlendir ferðamenn og höfðu fengið bif- reiðina á bílaleigu. Skyndidalsá rennur úr Jökulsá í Lóni og er hún mjög straumþung þar sem bíllinn festist. Björgunar- sveitarmenn frá Hornafirði voru kallaðir út og komu á öflugum björgunarsveitarbíl til þess að bjarga mönnunum úr ánni. Bif- reiðin var síðan dregin í land og gekk það vel að sögn lögreglu. - ht LÖGREGLUFRÉTTIR ÓK Á BRÚARHANDRIÐ OG STAKK AF Talsverðar skemmdir urðu á brúnni yfir Blöndu á Blönduósi í fyrrakvöld eftir að ekið var á brúarhandriðið með þeim afleið- ingum að plastplötur brotnuðu. Ökumaður hvarf af vettvangi og var í gær enn leitað, að sögn lög- reglu. LÖGREGLA Í EFTIRLITSFLUGI Lögreglan á Hvolsvelli fór í eftir- litsflug yfir hálendið á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, í gær. Eftirlitsflugið er liður í hertri löggæslu á hálendinu sem beinist ekki síst gegn akstri utan vega. Nokkuð hefur verið um að ferðamenn aki utan vega í sumar. Slíkt hefur í för með sér eyði- leggingu á náttúrunni og getur verið hættulegt. Alltaf þægilegt www.ob.is 14 stöðvar! SPURNING DAGSINS Höskuldur, ætlar›u sem sagt a› hætta á toppnum? „Ég tel mig ekki hafa náð hæsta tindi og held áfram að horfa upp fyrir mig.“ Höskuldur Jónsson lætur senn af störfum sem forstjóri ÁTVR. Búist er við að þjóðin drekki 700 þúsund lítra fyrir og um verslunarmannahelgi, sem er met. FRAMTALINU SKILAÐ Skuldir heimilanna aukast mikið á milli ára. SLÖKKVILIÐIÐ Skemmdir urðu á vinnuaðstöðu listamanna þegar eldur kom upp í Dugguvogi 3 á sjötta tímanum í gær. Eldurinn kom upp hjá Verksmiðjunni vinn- andi fólki en eldsupptök eru enn óljós. Margir eru með starfsemi í húsinu og meðal annars eru þar tvær vinnustofur listamanna. Eldurinn var töluverður þegar slökkvilið kom á vettvang en auð- velt var að komast að honum og tók aðeins um hálftíma að ráða niðurlögum hans. Ekki urðu mikl- ar skemmdir af völdum eldsins en mikill reykur var og reyk- skemmdir urðu töluverðar. „Þetta er hrikalegt,“ sagði Elísabet Ásberg skartgripahönn- uður, sem var með aðstöðu við hliðina á Vinnandi fólki. Hún seg- ir að sitt tjón sé verulegt og ein- hver listaverk hafi eyðilagst. „Meðal þess sem skemmdist var ósóttar pantanir.“ Á hæðinni fyrir ofan voru Sig- rún Sigvaldadóttir, grafískur hönnuður, og Birgir Snæbjörn Birgisson myndlistarmaður með vinnustofu, en ekki var búið að fullinnrétta hana og litlar skemmdir urðu þar. - grs Eldsvoði í Dugguvogi í Reykjavík: Skemmdir á vinnua›stö›u listamanna SLÖKKVISTARFIÐ GEKK VEL Aðeins tók um hálftíma að ráða niðurlögum eldsins. UMFERÐARHNÚTUR Búast má við miklum töfum á umferð ef af mótmælum bílstjór- anna verður. LÖGREGLUFRÉTTIR MEÐ HASS Í NORRÆNU Lítilræði af hassi fannst í fórum eins farþega Norrænu, sem kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun. Tekin var skýrsla af manninum, sem er Íslendingur, en að því loknu var honum leyft að fara, að sögn lögreglu. ÞRETTÁN STÖÐVAÐIR Á REYKJA- NESBRAUT Þrettán ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs á Reykjanesbraut í fyrrinótt, að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði. Ökumennirnir keyrðu flestir tutt- ugu til þrjátíu kílómetrum yfir löglegum hámarkshraða. LÖGREGLUFRÉTTIR STÚTUR Í ÍBÚÐARHVERFI Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði mann við Hringbraut fyrir of hraðan akstur í íbúðarhverfi um hálfníuleytið í gærkvöld. Áfeng- islykt var af manninum og var hann fluttur á lögreglustöðina til sýnatöku, grunaður um ölvun- arakstur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.