Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 8

Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 8
1Hvað er talið að Íslendingar eyðimiklum peningum í áfengi um verslun- armannahelgina? 2Hvar hafa mótmælendur virkjunar-innar á Kárahnjúkum slegið upp tjaldbúðum? 3Hvar er Halldór Ásgrímsson forsætis-ráðherra í opinberri heimsókn? SVÖRIN ERU Á BLS. 50 VEISTU SVARIÐ? 8 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR Spenna í lofti milli Pólverja og Hvít-Rússa: Pólski sendiherr- ann kalla›ur heim HVÍTA-RÚSSLAND, AP Viðleitni Pól- verja til að ýta undir lýðræði í nágrannaríkinu Hvíta-Rússlandi hafa framkallað æ harðari við- brögð af hálfu stjórnvalda í sovétlýðveldinu fyrrverandi. Þessi núningur náði nýju há- marki í gær er Pólverjar kölluðu sendiherra sinn heim frá hvít- rússnesku höfuðborginni Minsk. „Við kölluðum sendiherra okk- ar í Minsk heim til skrafs og ráðagerða og hann mun ekki snúa aftur fyrr en rætist úr ástandinu og kúguninni linnir,“ tjáði pólski utanríkisráðherrann Adam Rot- feld blaðamönnum í Varsjá. Daginn áður höfðu hvít-rúss- nesk yfirvöld handtekið oddvita pólska minnihlutans í Hvíta- Rússlandi, yfirheyrt og sakað um njósnir og fjárdrátt. Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands sem stýrt hefur landinu frá árinu 1994 og margir saka um einræðistilburði, vill fyrir alla muni hindra að stjórn- arandstöðuöflum í landi hans tak- ist að mynda ámóta öfluga hreyf- ingu og nýlega gerðist bæði í Úkraínu og Georgíu. Í báðum þessum fyrrverandi sovétlýð- veldum komust til valda umbóta- sinnar hliðhollir nánum tengslum við Vesturlönd. - aa Bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar halda kynningarfund um álverið í Straumsvík: Hugsanlega kosi› um stækkun ÁLVER Hafnfirðingar fá hugsan- lega að kjósa um stækkun álvers- ins í Straumsvík á haustmánuð- um, að sögn Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra. „Bæjarráð hefur rætt óform- lega um slíkar kosningar í tengsl- um við kosningarnar um samein- ingu Hafnarfjarðar og Voga hinn 8. október,“ segir Lúðvík en þegar er búið að samþykkja tillögu að deiliskipulagi fyrir álverssvæðið sem nú er í kynningu. Almennur kynningarfundur fyrir íbúa bæjarins verður hald- inn síðari hluta ágústmánaðar. „Þar verður farið yfir áform um stækkun og allar tillögur og áherslur sem þeim tengjast,“ segir Lúðvík. „Í kjölfar þess verð- ur síðan ákveðið hvort farið verð- ur í almennar kosningar um málið en ég tel fulla ástæðu til þess ræða það mál vel.“ Lúðvík segir umræðu um stækkun álversins litla enn sem komið er. „Fólk er margt hvert ekki nógu upplýst um stækkunina og þess vegna er mjög mikilvægt að íbúar fái góðar upplýsingar um hvað málið snýst.“ - ht IRA segist hættur vopna›ri baráttu NORÐUR-ÍRLAND, AP Írski lýðveldis- herinn, IRA, sem drap og limlesti þúsundir manna í 35 ára vopnaðri baráttu gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi, lýsti því yfir í gær að hann væri hættur að beita of- beldi sem pólitísku baráttutæki. Bæði írska og breska stjórnin, sem og ráðamenn víðar um heim, fögn- uðu þessu sem mikilvægum áfanga í átt að varanlegum friði á Norður- Írlandi. Breski forsætisráðherrann Tony Blair sagði yfirlýsinguna „áfanga af fordæmislausri þýðingu“ og írski forsætisráðherrann Bertie Ahern sagði að hún boðaði „endalok IRA sem skæruliðasamtaka“. En stjórnmálamenn í héraði og sumir fréttaskýrendur vöruðu við því að lesa of mikið út úr þessari yf- irlýsingu; IRA hefði áður reynst standa illa við gefin loforð, mörgum spurningum væri ósvarað og IRA- menn hygðust ekki leysa samtökin upp. En þrátt fyrir þessa fyrirvara þykir yfirlýsingin mikill áfangi frá því samtökin lýstu yfir vopnahléi árið 1997. Í yfirlýsingu IRA, sem var dreift á DVD-formi á netinu, segir að öll- um leynilegum hópum samtakanna hafi verið fyrirskipað að losa sig við vopn sín og hætta öllum aðgerðum, frá kl. 16 að staðartíma í gær að telja. „Forysta (samtakanna) hefur formlega fyrirskipað að hinni vopn- uðu baráttu skuli hætt,“ segir þar, en yfirlýsinguna las Seanna Walsh, sá IRA-maður sem lengst hefur set- ið í fangelsi, í 21 ár. „Öllum sjálfboðaliðum hefur verið sagt að leggja aðeins pólitísk- um og lýðræðislegum verkefnum lið og eingöngu með friðsamlegum aðferðum. Sjálfboðaliðar eiga ekki að taka þátt í neinum öðrum aðgerð- um,“ segir í yfirlýsingunni, sem beint er til hinna á að giska 500 til 1.000 meðlima samtakanna. IRA-forystan skorar í yfirlýsing- unni á Breta og hinn Bretlandsholla meirihluta mótmælenda á Norður- Írlandi að viðurkenna þetta útspil hennar sem fullnægjandi til að við- ræður um að koma á samstjórn beggja fylkinga Norður-Íra verði teknar upp að nýju. Slíkar viðræður voru meginmarkmið friðarsamn- inganna frá 1998, sem kenndir eru við föstudaginn langa. audunn@frettabladid.is E N N E M M / S ÍA / N M 16 0 15 HAGKVÆMUR KOSTUR FYRIR GOLFARA GOLFKORT KB BANKA Golfkort KB banka er fullgilt kreditkort sem veitir kylfingum fjölmörg frí›indi sem tengjast golfi og getur flannig spara› fleim umtalsver›ar fjárhæ›ir. Allir geta sótt um Golfkort, hvort sem fleir eru í vi›skiptum vi› KB banka e›a ekki, á golfkort.is, í síma 444 7000 e›a næsta útibúi KB banka. PÓLVERJAR UGGANDI Fólk úr forystu samtaka pólska minnihlutans í Hvíta-Rússlandi stillir sér upp á svölum höfuðstöðva samtakanna í Grodno í gær. Formaður samtakanna var handtekinn á miðvikudag. Í forgrunni er stytta af pólska skáldinu Adam Mickiewicz. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P STRAUMSVÍK Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði skoða nú hvort kjósa eigi um stækkun álversins í Straumsvík í byrjun október. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Rá›amenn Bretlands, Írlands og annarra landa fögnu›u í gær yfirl‡singu sem forysta IRA sendi frá sér um a› samtökin séu hætt allri vopna›ri baráttu. LEGGJA NIÐUR VOPN Mæðgin ganga hjá herskáu veggmálverki í hverfi kaþólskra í Bally- murphy í Belfast í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.