Fréttablaðið - 29.07.2005, Side 24
Bankastjóri á biðilsbuxum
Forsvarsmenn bankanna ættu að geta farið kátir í
helgarútilegu um verslunarmannahelgina, enda
rekstrarárangur þeirra allra með miklum ágætum. KB
banki sló met Burðaráss hvað varðar hagnað á fyrstu
sex mánuðum ársins með 24,7 milljarða hagnaði.
Met Burðaráss á einum ársfjórðungi stendur þó
óhaggað. KB banki hefur verið að auka
markaðshlutdeild sína innanlands og
sagði Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
bankans, á kynningarfundi að þegar
litið væri til markaðshlutdeildarinnar
ætti bankinn nú bara eftir að taka
fram úr einum. Þrátt fyrir gott
uppgjör hækkuðu bréf bank-
ans ekki mjög mikið enda
mikið af bréfum á innlend-
um markaði. Hreiðar Már
hefur að undanförnu verið
að kynna bankann fyrir
erlendum fjárfestum og
bjóst við að mikill tími myndi fara í slíkt á haustmán-
uðum. Hann sagði erfitt að fjármagna áframhaldandi
vöxt bankans með því að sækja fé á innlendan mark-
að og því væri verkefnið að fá erlenda fjárfesta að
bankanum. Biðilsbuxurnar verða því aðalklæðnaður
forstjórans á næstunni.
Vösunum snúið
Þrátt fyrir spennuþrungið andrúmsloft þegar tilboð í
Símann voru opnuð göntuðust menn aðeins með til-
boðin. Tilboð hópsins sem Atorka fór fyrir var
54.674.780.332 krónur. Höfðu menn það á orði að
tilboðið liti út eins og menn hefðu snúið við öllum
vösum til að finna síðustu krónurnar í tilboðið. Tilboð
Burðarásshópsins var hins vegar sléttir 60 milljarð-
ar, enda aðstandendur svo fjáðir að ekki þarf að
leita að klinki á þeim bænum. Höfðu menn samt
að orði að tilboðið liti út eins og að menn hefðu
aldrei gert skattskýrslu. Vísasta leiðin til að
skattayfirvöld heimti gögn um frádráttarliði á
skattskýrslu er að talan sé grunsamlega slétt.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.303,86
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 472
Velta: 3.956 milljónir
+0,39%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Krónan veiktist um 0,62 pró-
sent í gær og er það talið tengjast
sölu Símans. Á gjaldeyrismarkaði
töldu menn í gær að innstreymi
erlends lánsfjár vegna kaupanna
yrði minna eftir að í ljós kom að
hópur leiddur af Exista átti hæsta
boð í Símann.
Talsverður bati varð á rekstri
Flögu á öðrum ársfjórðungi, mið-
að við sama tímabil í fyrra. Unnið
er að breytingum á stjórnun og
rekstri félagsins og segja forsvars-
menn þess að þrátt fyrir að þegar
megi greina nokkurn árangur af
því starfi sé niðurstaðan nú ekki
til marks um þann árangur sem
stefnt er að. Hagnaður félagsins
var 50 þúsund dollarar eða 3,2
milljónir króna, en töluvert tap var
á sama tímabili í fyrra.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
fór yfir 4.300 stig í gær og hefur
aldrei verið hærri.
24 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,60 +0,48% ... Bakkavör
38,70 +0,26%... Burðarás 16,40 +0,61%... FL Group 14,60 +0,69% ...
Flaga 4,72 +0,00% ...HB Grandi 8,50 +0,00% ... Íslandsbanki 13,95 -
0,71% ... Jarðboranir 21,60 +0,00% ... KB banki 559,00 +0,54% ... Kögun
58,50 +0,17% ... Landsbankinn 19,00 +1,60% ... Marel 58,40 +0,00% ...
SÍF 4,83 +0,00 ...Straumur 12,50 -0,79% ... Össur 85,50 +3,64%
Össur +3,64%
Og Vodafone +1,91%
Landsbankinn +1,60%
Straumur -0,79%
Íslandsbanki -0,71%
Mosaic Fashions -0,38%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
SUNNUMÖRK 2
810 HVERAGERÐI
SÍMI 483 3206
Í VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI SUNNUMÖRK VIÐ ÞJÓÐVEG NR. 1
OPNUNARTÍMI
MÁNUD. - FIMMTUD...........
FÖSTUDAGA......................
LAUGARDAGA...................
11:00 - 18:30
11:00 - 19:30
12:00 - 16:00
ALVÖRU HUMAR
& ANNAÐ GIRNILEGT FISKMETI
BEINT Á GRILLIÐ
ERTU Á LEIÐINNI AUSTUR FYRIR FJALL
Í BÚSTAÐINN EÐA ÚTILEGUNA?
Hópur fjárfesta undir stjórn
Exista kaupir Símann fyrir
66,7 milljarða króna. Enginn
erlendur fjárfestir skilaði
inn tilboði. KB banki ætlar
að selja sinn hlut til al-
mennings en ekki hefur
verið upplýst hvenær af því
verður. Kaupendur benda
líka á að þátttaka lífeyris-
sjóða tryggi aðkomu fjölda
fólks að Símanum.
„Það gat hvað sem er gerst en við
erum mjög sannfærð um að það
sem við buðum er rétt og sann-
gjarnt verð fyrir fyrirtækið,“
segir Erlendur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Exista.
Hópur sem Exista tilheyrir
ásamt KB banka, nokkrum líf-
eyrissjóðum, MP Fjárfestingar-
banka og Skúla Þorvaldssyni,
buðu hæsta verð í Símann, 66,7
milljarða króna. Er það um tíu
prósentum hærra verð en það
sem Burðarásshópurinn bauð,
sem hljóðaði upp á slétta sextíu
milljarða. Lægst var tilboð At-
orku Group og fleiri, upp á tæpa
55 milljarða.
Exista er fjárfestingarfélag
sem Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir, kenndir við Bakkavör,
stjórna.
Erlendur sagði ekki tímabært
að fjalla um breytingar á rekstri
Símans fyrr en hópurinn tekur
við stjórn fyrirtækisins. Jón
Sveinsson, formaður einkavæð-
ingarnefndar, segir að það eigi
ekki að taka langan tíma. Stefnt
sé að undirritun kaupsamnings á
föstudaginn eftir viku. Þá þurfi
Samkeppniseftirlitið að sam-
þykkja kaupin. Eftir það stað-
greiða fjárfestarnir Símann og
fá lyklana að fyrirtækinu af-
henta.
Aðspurður um fjármögnun
kaupanna segir Erlendur veru-
legan hluta vera greiddan með
eigin fé. Það þýðir að kaupend-
urnir ætli ekki að fjármagna öll
kaupin með lánsfé. Hann vill þó
ekki tilgreina nákvæmlega hlut-
föllin þarna á milli.
Sextán erlendir fjárfestar
skoðuðu rekstur Símans en
enginn þeirra skilaði inn bind-
andi tilboði. Jón Sveinsson segir
að erlendu aðilarnir hafi fljótt
skynjað að íslensku félögin væru
tilbúin að greiða hátt verð fyrir
fyrirtækið. Þeir hafi ef til vill
ekki verið tilbúnir að kosta háum
fjárhæðum í tilboðsvinnu. Þá
gæti það hafa haft áhrif að fyrir-
tækið væri lítið í alþjóðlegum
samanburði og reglur um há-
markshlut hvers bjóðanda gætu
hafa fælt menn frá. Hann er hins
vegar mjög ánægður með það
verð sem kom upp úr síðasta um-
slaginu við opnun tilboða.
Eitt af skilyrðum einkavæð-
ingarnefndar var að selja þrjátíu
prósent til almennings. Verður
það hlutur KB banka sem verður
seldur en Erlendur vildi ekki
gefa upp hvenær það yrði. Það
verður að gerast fyrir árslok
2007, um leið og búið á að vera að
skrá Símann á aðallista Kaup-
hallarinnar.
bjorgvin@frettabladid.is
70 prósent af tekjum bank-
ans koma frá útlöndum.
KB banki hagnaðist um 25 millj-
arða á fyrstu sex mánuðum árs-
ins og hefur bankinn aldrei skil-
að jafn miklum hagnaði. Hagnað-
ur á hlut á fyrstu sex mánuðum
ársins var 37,9 samanborið við
35,7 krónur á hlut allt árið í
fyrra.
Vaxtatekjur bankans tvöföld-
uðust frá sama tíma árið 2004.
Hreinar þóknanatekjur jukust
mikið milli ára og námu rúmum
níu milljörðum á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Aukningin skýrist
að mestu leyti af miklum vexti í
þóknanatekjum hjá Fyrirtækja-
ráðgjöf.
Gengishagnaður bankans á
fyrstu sex mánuðum ársins nam
18,5 milljörðum króna og nam
gengishagnaður 40 prósentum af
tekjum tímabilsins.
Heildareignir bankans voru
1.900 milljarðar í lok júní en með
kaupunum á Singer & Friedland-
er eru eignir bankans meiri en
2.200 milljónir króna. - dh
Tryggingamiðstöðin (TM) hagnað-
ist um 1.449 milljónir króna á öðr-
um ársfjórðungi. Það er sexfalt
meiri hagnaður en á sama tímabili
í fyrra. Afkoman er heldur undir
spám greiningardeildanna, sem
höfðu spáð hagnaði á bilinu 1,5-
2,0 milljörðum. Samanlagður
hagnaður á fyrri hluta ársins var
því um 2,9 milljarðar króna.
Enn er það góður árangur á
fjármálamörkuðum sem skýrir
afkomu TM en þó hefur vátrygg-
ingarstarfsemin verið að rétta úr
kútnum. Eigin iðgjöld drógust
saman um tíu prósent en fjárfest-
ingatekjur jukust um nærri tvö
hundruð prósent. Bæði tjóna- og
rekstrarkostnaður dragst saman
frá fyrra ári. Hagnaður, sem varð
á vátryggingarstarfseminni á
fjórðungnum, nær ekki að vega
upp tapið sem varð á tryggingar-
hlutanum á fyrsta ársfjórðungi.
Heildareignir TM aukast um
fimmtán prósent og eru um 23
milljarðar króna. Eigið fé var yfir
ellefu milljarðar króna. - eþa
Afkoma undir
væntingum
AFKOMA TM Á ÖÐRUM
ÁRSFJÓRÐUNGI
- í milljónum króna
Hagnaður 1.449
Spá Íslandsbanka 1.506
Spá KB banka 2.000
Spá Landsbankans 1.660
HAGNAÐUR STÓREYKST TM hagnaðist
um 1.449 milljónir á öðrum ársfjórðungi,
sem var rétt undir spám markaðsaðila.
Hagnaður TM sexfaldast
milli ára. Vátryggingarstarf-
semin enn í járnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
KB banki hagnast um 25 milljar›a
HAGNAÐURINN ÚTSKÝRÐUR Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka.
AFKOMA KB BANKA Á ÖÐRUM
ÁRSFJÓRÐUNGI
- í milljónum króna
Spá Íslandsbanka 11.495
Spá Landsbankans 11.265
Hagnaður 13.673
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
„Rétt og sanngjarnt verð fyrir fyrirtækið“
KAUPENDUR SÍMANS
Hér að neðan gefur að líta hversu stór-
an hlut hver aðili innan fjárfestahópsins
kaupir í Símanum. Að hámarki má einn
aðili eða tengdir aðilar eiga 45 prósent í
fyrirtækinu eftir að það er selt. Í sviga er
sú upphæð sem hver fjárfestir þarf að
reiða fram vegna kaupanna.
Félag Eignarhlutur
Exista ehf. 45%
(30 milljarðar kr.)
Kaupþing banki hf. 30%
(20 milljarðar kr.)
Lífeyrissjóður verslunarmanna 8,25%
(5,5 milljarðar kr.)
Gildi - lífeyrissjóður 8,25%
(5,5 milljarðar kr.)
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 2,25%
(1,5 milljarðar kr.)
Samvinnulífeyrissjóðurinn 2,25%
(1,5 milljarðar kr.)
MP Fjárfestingarbanki hf. 2%
(1,3 milljarðar kr.)
Imis ehf. (Skúli Þorvaldsson) 2%
(1,3 milljarðar kr.)
FJÁRFESTAR FAGNA ÞEGAR TILBOÐ ERU LJÓS Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Gildis, Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, og Erlendur Hjalta-
son, framkvæmdastjóri Exista, takast í hendur eftir að ljóst er að þeirra hópur kaupir Sím-
ann. Á bak við þá er Jakob Möller hæstaréttarlögmaður, sem var einkavæðingarnefnd til
ráðgjafar í söluferlinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA