Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 44
29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR32
Í dag eru 32 erlendir leikmenn á
mála hjá þeim tíu liðum sem í
Landsbankadeildinni eru. Sam-
kvæmt útreikningi Fréttablaðsins eru
aðeins tólf þeirra yfir meðalmennsk-
una hafnir og þar með að bæta leik
síns liðs. Um leið og þetta er sann-
arlega sláandi niðurstaða er hún
einnig afskaplega döpur sem slík og
langt frá því að vera viðunandi.
Það þarf ekki að velta lengi fyrir sér
þeim tilgangi sem býr að baki komu
hvers erlends leikmanns. Forsendan
hlýtur að vera sú að viðkomandi
leikmaður bæti leik síns liðs og hafi
eitthvað fram að færa sem er ekki
þegar til staðar hjá innlendum leik-
mönnum félagsins
Oft þegar erlendir leikmenn koma
hingað á sumrin halda þjálfarar og
stjórnarmenn viðkomandi félaga því
fram að þeir séu fengnir til að
styrkja leikmannahópinn. Hinir
sömu lifa í blekkingu - enginn
stjórnarmeðlimur með snefil af við-
skiptaviti borgar erlendum leik-
manni fúlgur fjár til að sitja á bekkn-
um í meirihluta leikja sumarsins.
Leikmenn eru fengnir til að lyfta leik
síns liðs á hærra plan - sem þeir eru
augljóslega ekki að gera miðað við
frammistöðu þeirra flestra í sumar.
Kostnaðurinn á bak við komu
hvers erlends leikmanns er misjafn,
en skiptir í flestum tilvikum hund-
ruðum þúsunda sem deilist í
ferðakostnað, launagreiðslur og
önnur „fríðindi“ sem leikmenn
fá á meðan dvöl þeirra hér á
landi stendur yfir. Flestir - ef
ekki allir - eru þeir hálfatvinnu-
menn sem hafa það almennt
býsna gott, spilandi fótbolta á
Íslandi yfir sumartímann. Ef
marka má frammistöðu þess-
ara leikmanna í sumar hefur
verið um hreina peningasóun
að ræða í flestum tilvikum.
Með þessar sláandi niðurstöður
sem tilgreindar eru í Fréttablaðinu í
dag til hliðsjónar er ekki úr vegi að
rifja upp er ekki úr vegi að rifja upp
þá gömlu tuggu hverjum þessi til-
gangslausi innflutningur erlendra
leikmanna bitnar helst á; nefnilega
hinum fjölmörgu ungu og bráðefni-
legu leikmönnum sem eru þegar til
staðar hjá flest-
um félög-
um. Það
eru þeir
sem líða
fyrir inn-
flutninginn á
erlendu vara-
skeifunum og fá um leið þá tilfinn-
ingu að enginn tilgangur sé með
veru þeirra hjá félaginu og enda
jafnvel á því að hrökklast burtu frá
því á endanum. Allt vegna þess að
erlendir leikmenn virðast njóta frið-
helgi hjá þjálfurum sínum þegar
kemur að því að skilja leikmenn
eftir utan hóps.
Á þessu eru þó undantekningar, sú
nýjasta hjá Þrótti þar sem Atli Eð-
valdsson lét það verða sitt fyrsta
verk hjá liðinu að taka hina erlendu
leikmenn liðsins út úr liðinu. Í kjöl-
farið hefur verið allt annað að sjá
til liðsins, en auðvitað er ekki
hægt að fullyrða um hvort það
hafi eitthvað að gera með fjar-
veru útlendinganna eður ei.
Ég ætla ekki að fara mörgum
orðum um hvernig þessum
fjármunum gæti verið betur
varið í unglingastarf félaga og
við að byggja upp innri starf-
semi félaga - þá umræðu
þekkja allir. Meðfylgandi tölfræði
sýnir hins vegar að sú umræða
á fullan rétt á sér. Tölurnar tala
sínu máli.
Aðeins 37% útlendinga
bæta leik sinna liða
20 af 32 erlendum leikmönnum Landsbankadeildar karla eru me› lakari
me›aleinkunn í einkunnagjöf Fréttabla›sins en li›i› sem fleir spila me› og
eru flví samkvæmt tölfræ›inni ekki a› bæta leik sinna li›a.
FÓTBOLTI Þegar hafa 32 erlendir
leikmenn spilað fyrir liðin tíu í
Landsbankadeild karla og í næstu
umferð bætast væntanlega þrír til
viðbótar því KR og ÍBV eru að fá
til sín nýja leikmenn.
Aldrei hafa fleiri útlendingar
spilað í deildinni og það hafa held-
ur aldrei jafnmargir erlendir leik-
menn liðanna setið á bekknum eða
fyrir utan hóp líkt og í Lands-
bankadeildinni þetta sumarið.
Góð þróun í íslenska boltanum
Frammistaða og fjöldi þess-
arra leikmanna hefur vakið upp
spurningar um hvort þetta sé rétt
þróun fyrir íslenska knattspyrnu.
Þegar tölfræðin er skoðuð út frá
meðaleinkunn leikmanna í ein-
kunnunnagjöf Fréttablaðið í sum-
ar kemur í ljós að aðeins 37% af
þessum erlendu leikmönnum eru
að draga upp meðaleinkunn sinna
liða. Af þessum 12 leikmönnnum
sem eru yfir meðallagi hjá sínum
liðum er tveir nýkomnir (Rune
Lind hjá ÍBV og Kenneth Gustavs-
son hjá Keflavík) og einn farinn
(Brian O’Callaghan hjá Keflavík)
og eftir standa því aðeins níu er-
lendir leikmenn sem tölfræðin
segir að bæti leik sinna liða nú
þegar 12 af 18 umferðum Íslands-
mótsins er lokið.
Bæði liði ÍBV og Grindavíkur
hefur gengið illa að flytja inn leik-
menn í sumar og hjá báðum eru
það fjórir erlendir leikmenn sem
draga niður meðaleinkunn liðsins.
Hjá ÍBV, sem er í 8. sæti deildar-
innar með 10 stig, eru það aðeins
Ian Jeffs og nýi Daninn Rune Lind
sem eru yfir meðaltali liðsins, sem
er samt lakasta meðaleinkunn
allra liðanna í deildinni. Lind á að-
eins einn leik að baki og framlag
hans er því enn ekki fullsannað.
Breyttir tímar í Eyjum
Eyjamenn hafa undanfarin ár
flutt inn sterka erlenda leikmenn
sem hafa hjálpað liðinu mikið en
svo er ekki í ár. Ian Jeffs er
þannig leikmaður sem hefur verið
í Eyjum undanfarin ár og því að
Lind undanskildum er það enginn
erlendur leikmaður sem hefur
unnið sér fast sæti í liðinu.
Hjá Grindavík sem er í neðsta
sæti með 9 stig skiptast erlendu
leikmenn liðsins í tvo hópa. Mark-
vörðurinn Boban Savic og þýski
varnarmaðurinn Mathias Jack
hafa spilað mjög vel í sumar en
hinir fjórir útlendingarnir í liðinu
eru allir að draga niður meðalein-
kunn þess. Nýju mennirnir Robert
Niestroj, Mounir Ahandour og
Michael Zeyer hafa átt misjafna
daga og Paul McShane hefur ekki
leikið jafn vel og undanfarin tíma-
bil. Innflutingur Fylkismanna
hefur líka gengið illa enda eru all-
ir þrír útlendingar liðsins undir
meðaleinkunn leikmanna liðsins.
Svíinn Erik Gustafsson er horfinn
á braut og Danirnir Christian
Christiansen og Peter Tranberg
hafa ekki skilað miklu til liðsins.
Líkt og hjá Grindavík hafa
Keflvíkingar verið misheppnir
með erlenda leikmenn. Brian
O´Callaghan var yfir meðal-
einkunn liðsins áður en að hann
hvarf á braut, nýi maðurinn Kenn-
eth Gustavsson lék mjög vel í sín-
um fyrsta leik á KR-vellinum og
Michael Johansson er rétt undir
meðaleinkunn liðsins. Þeir Bran-
islav Milicevic og Issa Abdulkadir
hafa hins vegar ekki fundið sig.
Erlendir leikmenn Fram, KR
og Þróttar hafa einnig verið mis-
jafnir, margir í vandræðum með
að komast í byrjunarliðið og
sumir oftar en ekki utan leik-
mannahópsins.
FH-ingar sér á báti
Vissulega er málið ekki alveg
svo einfalt og besta dæmið er
kannski hjá toppliði Landsbanka-
deildarinnar þar sem allt liðið er
að spila vel og meðaleinkunn allra
leikmanna er mjög há. Hjá FH er
það því aðeins Allan Borgvardt
sem hífir meðaleinkunn liðsins
upp en landar hans Tommy Niel-
sen og Dennis Siim eru báðir með
meðaleinkunn upp á 6,2 eða betra
og því hefur frábær frammistaða
FH-liðsins í heild mestu áhrifin á
að þeir tveir eru undir meðallagi.
Báðir þessir leikmenn hafa sann-
að mikilvægi sitt með góðri
frammistöðu með liðinu.
Hér til hliðar má síðan finna
lista yfir alla erlendu leikmennina
hjá liðunum tíu í Landsbankadeild
karla 2005 og hvernig þeir koma
út miðað við meðaleinkunn sinna
liða. ooj@frettabladid.is
Landsbankadeild karla:
Tölfræ›i 7. til
12. umfer›ar
Besta frammistaða leikmanna í
einkunnagjöf Fréttablaðsins:
Allan Borgvardt, FH 7,2
Guðmundur Sævarsson, FH 7,2
Björgólfur Takefusa, Fylki 7
Auðun Helgason, FH 7
Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Val 7
Daði Lárusson, FH 6,8
Hafþór Ægir Vilhjálmsson, ÍA 6,8
Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Val 6,8
Igor Pesic, ÍA 6,75
Birkir Kristinsson, ÍBV 6,7
Fjalar Þorgeirsson, Þróttur 6,7
Jónas Guðni Sævarsson, Keflavík 6,7
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, FH 6,6
Guðmundur Benediktsson, Val 6,6
Matthías Guðmundsson, Val 6,6
Baldur Sigurðsson,Keflavík 6,5
Páll Einarsson, Þrótti 6,5
Tryggvi Guðmundsson, FH 6,5
Kjartan Sturluson, Val 6,4
Reynir Leósson, ÍA 6,4
Gunnlaugur Jónsson, ÍA 6,4
Freyr Bjarnason, FH 6,4
Atli Sveinn Þórarinsson, Val 6,4
Viktor Bjarki Arnarson, Fylki 6,3
Valur Fannar Gíslason, Fylki 6,3
Steinþór Gíslason, Val 6,2
Óskar Örn Hauksson, Grindavík 6,2
Ian Jeffs, ÍBV 6,2
Andri Júlíusson, ÍA 6,2
Sinisa Valdimar Kekic, Grindavík 6,2
Stefán Helgi Jónsson, Val 6,2
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 6,17
Atli Jóhannsson, ÍBV 6,17
Bjarni Þórður Halldórsson, Fylki 6
Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík 6
Bjarki Guðmundsson, ÍA 6
Mathias Jack, Grindavík 6
Pálmi Haraldsson, ÍA 6
Eyjólfur Héðinsson, Fylki 6
Ragnar Sigurðsson, Fylki 6
Bjarni Ólafur Eiríksson, Val 6
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, Val 6
Atli Viðar Björnsson, FH 6
Garðar Bergmann Gunnlaugsson, Val 6
Flest mörk leikmanna:
Allan Borgvardt, FH 5
Björgólfur Takefusa, Fylki 4
Hörður Sveinsson, Keflavík 4
Grétar Hjartarson, KR 3
Matthías Guðmundsson, Val 3
Viktor Bjarki Arnarson, Fylki 3
Andri Júlíusson, ÍA 2
Auðun Helgason, FH 2
Christian Christiansen, Fylki 2
Garðar Gunnlaugsson, Val 2
Hafþór Ægir Vilhjálmsson, ÍA 2
Ólafur Páll Snorrason, FH 2
Sinisa Valdimar Kekic, Grindavík 2
Stefán Örn Arnarsson, Keflavík 2
Steingrímur Jóhannesson, ÍBV 2
Tryggvi Guðmundsson, FH 2
BESTA FRAMMISTAÐA LIÐA Í 7.
TIL 12. UMFERÐ:*
1. FH 6,43
2. Valur 6,27
3. ÍA 5,90
4. Keflavík 5,86
5. Fylkir 5,78
6. ÍBV 5,51
7. Grindavík 5,47
8. Þróttur 5,43
9. Fram 5,22
10. KR 5,04
* Meðaleinkunn allra leikmanna
HÆSTA HLUTFALL STIGA Í HÚSI
Í 7. TIL 12. UMFERÐ:
1. FH 100%
2. Valur 80%
3. ÍA 67%
4. Keflavík 50%
5. Fylkir 39%
5. ÍBV 39%
7. KR 33%
7. Grindavík 33%
9. Þróttur R. 28%
10. Fram 17%
FLEST MÖRK AÐ MEÐALTALI Í
7. TIL 12. UMFERÐ:
1. FH 2,60
2. Valur 1,80
3. ÍA 1,40
4. Keflavík 1,83
5. Fylkir 1,83
6. ÍBV 0,83
7. KR 1,50
8. Grindavík 0,80
9. Þróttur R. 0,67
10. Fram 0,67
FÆST MÖRK Á SIG AÐ MEÐAL-
TALI Í 7. TIL 12. UMFERÐ:
1. FH 0,60
2. Valur 0,40
3. ÍA 0,60
4. Keflavík 1,67
5. Fylkir 2,00
6. ÍBV 1,33
7. KR 2,17
8. Grindavík 1,20
9. Þróttur R. 1,17
10. Fram 2,17
Landsbankadeildar karla:
Erlendir leik-
menn í sumar
FRAMMISTAÐA ÚTLENDING-
ANNA HJÁ LIÐUNUM TÍU:
FH
Allan Borgvardt 6,82
Meðaleinkunn FH 6,39
Tommy Nielsen 6,22
Dennis Siim 6,20
ÍBV
Rune Lind 7,00
Ian Jeffs 5,82
Meðaleinkunn ÍBV 5,20
Matthew Platt 4,58
Andrew Sam 4,40
Lewis Doods 4,33
James Robinson
ÍA
Igor Pesic 6,38
Meðaleinkunn ÍA 5,68
FYLKIR
Meðaleinkunn Fylkis 5,93
Erik Gustafsson 5,67
Christian Christiansen 5,14
Peter Tranberg 5,00
KEFLAVÍK
Kenneth Gustafsson 6,00
Brian O´Callaghan 5,75
Meðaleinkunn Keflavíkur 5,70
Michael Johansson 5,63
Branislav Milicevic 5,57
Issa Abdulkadir 4,25
KR
Helmis Matute 6,00
Meðaleinkunn KR 5,44
Rógvi Jacobsen 5,33
GRINDAVÍK
Boban Savic 5,82
Mathias Jack 5,75
Meðaleinkunn Grindavíkur 5,55
Mounir Ahandour 5,54
Robert Niestroj 5,18
Paul McShane 5,09
Michael Zeyer 4,33
FRAM
Hans Mathiesen 5,73
Ross McLynn 5,43
Meðaleinkunn Fram 5,42
Kim Norholt 5,17
Bo Henriksen 3,00
VALUR
Meðaleinkunn Vals 6,40
ÞRÓTTUR
Jozef Maruniak 5,57
Meðaleinkunn Þróttar 5,47
Dusan Jaic 5,20
EINKUNNAGJÖF FRÉTTA-
BLAÐSINS Á BILINU 1 TIL 10:
10 Í heimsklassa
9 Í landsliðsklassa
8 Mjög góður
7 Góður
6 Stóð sig vel
5 Í meðallagi
4 Slakur
3 Lélegur
2 Hörmulegur
1 Grátlegur
TREYSTIR Á ÍSLENSKA LEIKMENN Willum Þór Þórsson er eini þjálfari Landsbanka-
deildarinnar sem hefur al-íslenskt byrjunarlið í öllum ellefu deildarleikjum liðsins í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VIGNIR GUÐJÓNSSON
BLAÐAMAÐUR
UTAN VALLAR
ERLENDIR LEIKMENN Í
LANDSBANKADEILD
KARLA
Stórfelldur innflutningur erlendra varamanna