Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 52
40 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Næstu sýningar eru:
5. sýn. laug. 6/8 kl. 14 sæti laus
6. sýn. sun. 7/8 kl. 14 sæti laus
7. sýn. fim. 11/8 kl. 19 sæti laus
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
5/7, 11/7, 12/7, 13/7 kl. 14-18 6/7, 7/7, 8/7, 14/7, 15/7, 17/7, 22/7, 28/7 kl. 14-20
10/7, 17/7 kl. 12-18 LOKAÐ 18/7 - 21/7, 23/7-27/7, 29/7-11/8
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu
Lau 13/8 kl 14, Su 14/8 kl 14, Lau 20/8 kl 14, Su 21/8 kl 14
Barnaplatan Villikettirnir er kom-
in út. Höfundur flestra laganna og
einn flytjenda er Freyr Eyjólfs-
son en um undirleik sér að mestu
hljómsveitin Buff. Raddir sínar
ljá plötunni einnig þær Margrét
Eir og Andrea Gylfadóttir auk
Péturs „Jesús“ Guðmundssonar.
Höfundur textanna og nokk-
urra laga á plötunni er Davíð Þór
Jónsson. „Þessi hugmynd fæddist
um svipað leyti og hugmyndin að
ljóðabókinni minni sem kom út í
fyrra. En þetta er allt annað
konsept,“ segir Davíð Þór. „Við
Freyr byrjuðum að fíflast saman
og smám saman fæddist þessi
hugmynd. Okkur hefur alltaf lík-
að vel að vinna saman þannig að
við ákváðum að rugla saman reyt-
um og búa til plötu,“ segir Davíð
og greinir nánar frá verkefninu:
„Villikettirnir er fimm manna
hljómsveit sem er starfandi í
Reykjavík. Þetta er þeirra músík
og þeir syngja um líf sitt og það
hvernig heimurinn horfir við
þeim út frá sjónarhóli villikattar-
ins. Þarna eru sum lög þar sem
þeir eru bara að fíflast og leika
sér eins og rokkhljómsveitir gera
svo oft,“ segir Davíð.
Hann segir það fjarskalega
skemmtilegt að semja fyrir börn.
„Fullorðið fólk er oft búið að
þvæla hlutina svo fyrir sér og það
þarf allt að vera svo djúpt og
lúmskt. Börnin vita hvað þau vilja
og skammast sín ekkert fyrir að
hafa einfaldan smekk og börnum
finnst ekkert verra að það sé smá
húmor í hlutunum líka.“
Svo gæti farið að bók um Villi-
kettina komi út fyrir jólin en það á
eftir að koma betur í ljós. „Villi-
kettirnir eru svo spennandi týpur
og hafa frá svo mörgu að segja.
Það er áhugi fyrir því að plötunni
verði fylgt eftir með bók þar sem
Villikettirnir segja sína sögu í
Reykjavík,“ segir Davíð, sem
hefur í mörgu að snúast um þess-
ar myndir. Í þessari viku verður
tekin upp önnur plata með textum
eftir hann sem nefnist Angur-
kvæði með hljómsveitinni Sviðin
jörð. Um er að ræða kántríplötu
með sorglegum textum fyrir full-
orðið fólk. Í hljómsveitinni eru
meðal annars þeir Freyr Eyjólfs-
son og Magnús Eyjólfsson úr
Þokkabót og Brimkló.
Einnig hefur Davíð unnið
mikið við þýðingar, meðal annars
fyrir Þjóðleikhúsið. Þar er næst á
dagskrá þýðing hans á Túskild-
ingsóperunni við tónlist eftir Kurt
Weil. Um helgina ætlar Davíð
aftur á móti að slappa af eins og
svo margir aðrir Íslendingar og
fara með fjölskylduna út úr
bænum, láta sólina sleikja sig og
jafnvel grilla lambakjöt.
freyr@frettabladid.is
„Við stofnuðum hljómsveitina í
fyrra því okkur langaði til að sjá
hvort stelpur gætu ekki líka stofn-
að hljómsveit,“ segir Valdís Ýr,
gítarleikari rokkhljómsveitarinn-
ar Hálsull, en stofnendur Háls-
ullar voru auk Valdísar þær Aníta
Björk bassaleikari, Tinna
trommuleikari, Maríanna gítar-
leikari og söngkonan Ingibjörg.
„Við kunnum ekki á nein hljóð-
færi þegar við byrjum en höfum
prófað okkur áfram og þróað
okkur í gegnum tónlistarforrit.
Tvær okkar eru meira að segja
farnar í tónlistarskóla núna til að
læra á gítar.“
Uppátæki stelpnanna hefur
greinilega heppnast því þær voru
valdar til að spila á Þjóðhátíð í
Eyjum í ár. „Við spiluðum á Sam-
fés í vetur og fórum svo til Eyja í
janúar til að spila á tónlistarhátíð-
inni Allra veðra von. Á hátíðinni
var ein hljómsveit valin til að fá
tíma í hljóðveri en okkar hljóm-
sveit var valin til að spila á Þjóð-
hátíð í Eyjum. Reyndar stakk
trommuleikarinn Tinna okkur af
til útlanda í sumar og því auglýst-
um við eftir trommuleikara á net-
inu til að spila með okkur í Eyjum.
Við réðum trommuleikara sem
heitir Biggi og vinur okkar Björg-
vin syngur með okkur eitt lag svo
það eru ekki lengur bara stelpur í
hljómsveitinni.“
En hvernig skyldi nafngiftin
Hálsull hafa komið til? „Það var
nú bara þannig að á fyrsta fundin-
um ákváðum við að finna nafn á
hljómsveitina. Við ætluðum að
fletta upp í orðabók til að finna
eitthvað skemmtilegt nafn en á
heimili vinkonu okkar var bara til
ensk orðabók. Eftir svolítla leit
fundum við orðaskýringuna, the
wool in the neck of a sheep, sem
við þýddum sem Hálsull. Svo fór
vinkona okkar til Afríku og komst
að því í teppabúð þar á slóðum að
hálsull er besta og dýrasta ullin.
Afrískur sölumaður útskýrði
fyrir henni að það væri vegna
þess að hálsull á kindum og
kameldýrum er mýkri og sterkari
en á öðrum líkamshlutum.“
Stelpurnar eru að vonum
spenntar að koma fram á Þjóð-
hátíð. „Við spilum á sunnudeginum
á Brekkusöngssvæðinu að því að
ég best veit og við hlökkum rosa-
lega til,“ segir Valdís að lokum. ■
HÁLSULL Rokkhljómsveitin spilar á Þjóðhátíð í Eyjum á sunnudaginn
Stelpur geta líka stofnað hljómsveit
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Frá sjónarhóli villikattarins
DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON Barnaplatan Villikettir er komin út og fjallar um fimm villiketti í
Reykjavík sem spila saman í rokkhljómsveit.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N