Fréttablaðið - 29.07.2005, Qupperneq 59
Ég hef verið skotinn í Roisin
Murphy frá því að ég sá mynd af
henni í rauðhettupallíettubúningi á
umslagi plötu númer tvö frá
Moloko. Núna var stúlkan að gefa út
sína fyrstu sólóplötu. Svo er eins og
djassguðinn hafi blessað stúlkuna
með sál Billie Holiday. Þegar hún
syngur kafar hún djúpt inn í mann,
og metur hvort maður sé heil mann-
eskja eða ekki. Sem sagt, yndisleg
kona. Ég ætti kannski að fara að
grafa upp númerið hennar? Hvað
haldið þið?
Það er súrsætt að vita til þess að
Moloko sé jafnvel hætt en á sama
tíma yndislegt að þessi kona gefi að-
dáendum sínum loksins nýja hlið af
sér. Hún vandaði valið vel þegar
kom að því að velja samstarfsfólk,
og sérvitringurinn og rafdjass-
geggjarinn Matthew Herbert sá um
að skapa tónlistina utan um rödd
hennar. Platan er hvergi jafn að-
gengileg og fyrri verk Moloko. Þó
að tónlistin sé alls ekki í ljósára
fjarlægð frá því sem hún hefur gert
áður, er meira rými hér fyrir til-
raunamennsku. Þetta hljómar á
köflum eins og það hefðu vaxið
brjóst á Tom Waits og hann hefði
ákveðið að færa sig meira út í el-
ektróník. Ekki búast við því að ná
þessari plötu við fyrstu hlustun, en
hún á eftir að verðlauna þolinmóða
ríkulega. Lög á borð við Sinking
Feeling, Night of the Dancing
Flame og hið frábæra Ramalama
(bang bang) eru nógu stórkostleg til
þess að færa þessari plötu fjórar
stjörnur. Vel gert Roisin, þú ert
sannur listamaður. Koddu í sleik!
Birgir Örn Steinarsson
„Þetta verða sérstakir tónleikar því
í bland við spánný lög ætlum að
spila lög sem við höfum ekki spilað
í fimm eða sex ár,“ segir Frosti
hljómsveitarmeðlimur Mínuss en
strákarnir halda tónleika á Gaukn-
um í kvöld. „Til að setja meiri þunga
í vinnslu á næstu plötu höfum við
ákveðið að þetta verði síðustu tón-
leikar okkar þar til næsta plata
kemur út. Vonandi getum við staðið
við það en í kvöld komum við til
með að spila efni af Halldór Lax-
ness, Jesus Christ Bobby og Hey
Johnny auk þess að spila nokkur af
fyrstu lögum sem við sömdum og
gáfum aðeins út í nokkrum kynn-
ingareintökum.“
Mínus kom síðast fram er þeir
hituðu upp fyrir tónleika Foo
Fighters í byrjum mánaðarins. „Það
var rosaleg upplifun,“ segir Frosti
sem hefur verið duglegur að sækja
tónleikaviðburði sumarins hér
heima. „Ég fór á Queens of the
Stone Age og skemmti mér þvílíkt
vel en Duran Duran eru bestu tón-
leikar sem ég hef farið á á Íslandi.
Algjört nostalgíutripp.“
Frosti segir Mínusmenn ætla að
dvelja í Reykjavík um verslunar-
mannahelgina og fara á Innipúkann
sem hefst á laugardagskvöld. „Við
ákváðum að halda tónleikana okkar
á Gauknum í kvöld því þá er ekkert
að gerast í bænum. Svo ætlum við
að þyrpast á Innipúkann og ég er
mjög spenntur fyrir því að sjá
hljómsveitina Blonde Readhead.“
Frosti segir Mínusmenn ekki
vera mikið fyrir tjöld og útilegu-
stemningu. „Reyndar spiluðum við
á Þjóðhátíð í fyrra og skemmtum
okkur ótrúlega vel. Enginn okkar
hafði upplifað Þjóðhátíð áður og ég
varð meira að segja eftir í Eyjum
því mér fannst svo gaman. Veðrið
var mjög gott og Egó spilaði svo
þetta gat ekki verið betra.“
Mínusmenn ætla að taka sér
góðan tíma og nostra við næstu
plötu. „Þetta gerist allt í rólegheit-
unum, hægt en örugglega. Við erum
að prófa okkur áfram og tónlistin
breytist alltaf töluvert og þróast
milli platna. Við ætlum að segja
þetta gott af spilamennskunni í bili
svo næsta plata fái alla þá athygli
sem hún þarf.“ ■
Sí›ustu tónleikar Mínus í bili
KRUMMI Mínusmenn verða með tónleika á Gauknum í kvöld og spila nýtt efni í bland
við fyrstu frumsömdu lögin.
Sálarfullur rafdjassgeggjari
ROISIN MURPHY: RUBY BLUE
NIÐURSTAÐA: FYRSTA SÓLÓPLATA
ROISIN MURPHY ER MJÖG LIFANDI OG
FALLEGT VERK.
Angelina Jolie er ekki hætt að
ættleiða börn. Hún ættleiddi ný-
lega stúlkubarn frá Eþíóbíu en nú
virðist hugur hennar stefna til
Rússlands. Ananova.com greinir
frá því að dr. Ron Federici, ætt-
leiðingarsérfræðingur Jolie, hafi
sagt að Angelina sé að leita að
barni og útiloki ekki að Jolie-fjöl-
skyldan stækki enn frekar. „Hún
vill gera það sem er rétt fyrir
þessi börn. Þú þarft ekki að vera
ríkur til þess að ættleiða barn frá
Afríku og þú getur bjargað
mannslífum,“ hefur vefurinn eftir
Federici. ■
Jolie vill ættlei›a fleiri börn
JOLIE OG MADDOX Líklegt þykir að
Maddox eignist enn fleiri systkini en hann
á fyrir litla systur frá Eþíópíu.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Kimono me›
gar›tónleika
Hljómsveitin Kimono, sem gefur á
næstunni út plötuna Arctic Death
Ship, spilar á litlum tónleikum í
garðinum við barinn Sirkus klukk-
an 17.00 á laugardag.
Með í för verður bandaríski
plötusnúðurinn Filastine og hljóm-
sveitin The Heavycoats. Filastine
kemur frá Seattle og spilar hip-
hop takta og blandaða raftónlist.
The Heavycoats á ættir sínar að
rekja til Baltimore og spilar rokk í
anda Interpol og The Killlers.
Enginn aðgangseyrir er á tónleik-
ana. Flóamarkaður Sirkus verður
opinn til klukkan 17.00 og því um
að gera fyrir tónlistaráhugamenn
að slá tvær flugur í einu höggi og
mæta fyrr á staðinn. ■
KIMONO Spilar í garðinum við Sirkus
klukkan 17 á laugardag.