Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 64

Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Besti ferðafélaginn Ferðataskan í sumar Léttur öllari Mótmælendur Nú spyrst það um heimsbyggð-ina að Jane gamla Fonda ætli að leggja upp í ferð um hana Amer- íku til þess að mótmæla innrásinni í Írak og þenja sig eins og hún gerði þegar hún var upp á sitt besta í Víetnamstríðinu hér um árið. Og maður spyr: Hvar var hún eiginlega þegar ráðist var inn í landið? Hvers vegna missti hún af því? Hverju ætlar hún að áorka núna? Dettur henni í hug að strákarnir í Hvíta húsinu skammist sín eins og rass- skelltir smápiltar og segi sínum her að hætta að skjóta? Hvert er mark- mið hennar? VISSULEGA vorum við heimsbú- ar engan veginn á eitt sáttir um ágæti þess að menn væru að ryðj- ast með heilu herina inn í Írak á sínum tíma og botnum ekkert í því hvað tefur þá þar; hvers vegna þeir hafi ekki hunskast aftur heim til sín. Við höfum rifist andskotann ráðalausan um það hvort þetta stríð eigi að vera, eða ekki vera. Niður- staða engin. ÞAÐ er eins og með Kárahnjúka- mótmælendurna. Drösla skyndilega útileigugræjunum sínum á fjöll til þess að hengja sig utan á vinnuvél- ar. Hvað héldu þeir að myndi ger- ast? Vinnuvélarnar myndu brotna undan þunga þeirra? Valdakarlar hjá Impregilo myndu bugast, biðja fasta áskrifendur að mótmælum á Íslandi að fyrirgefa sér, kaupa skóflu og byrja að moka öllu til baka, planta smáblómum í ferska auðnina og blístra á fugla um að snúa aftur? Hvert var markmið þeirra? ÞAÐ dugðu engin mótmæli þegar ráðist var inn í Írak. Yfirvöld höfðu ekki áhuga á að hlusta. Það dugðu engin mótmæli þegar farið var að grafa í sundur Kárahnjúka. Yfir- völd höfðu ekki áhuga á að hlusta. En heyrnarlaus yfirvöld eða skeyt- ingarlaus um afstöðu og vilja kjós- enda sinna eru ekkert nýtt fyrir- bæri í honum heimi, sem er svo sannarlega alvarlegt mál. HINS vegar er það ekki eins alvar- legt mál og heimska þeirra kjós- enda sem eru á móti en kjósa aftur yfir sig yfirvaldið sem gefur kúk og kanil í vilja meirihluta þjóðar- innar - samkvæmt skoðanakönnun- um. Slíkir kjósendur eru verri en yfirvaldið sem þeir kjósa yfir sig, vegna þess að þeir eru að svíkja sig sjálfa. Þeir eiga ekki betra yfirvald skilið. SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR BAKÞANKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.