Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 2
2 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Þúsundir lögreglumanna eru enn á götum úti til að verja íbúa bresku höfuðborgarinnar:
Al-Kaída hótar frekari árásum í Lundúnum
LONDON, AP Mikill viðbúnaður var
hjá lögreglunni á lestarstöðum í
Lundúnum í gær í kjölfar þess að
frekari árásum hafði verið hótað.
Fjórar vikur eru liðnar síðan 52
létust í sjálfsmorðssprengingum í
lestum og strætisvagni í
Lundúnum.
Næstráðandi al-Kaída, Ayman
al-Zawahri, hótaði í gær frekari
árásum í Lundúnum í ávarpi sem
birt var á sjónvarpsstöðinni Al-
Jazeera. Þá fagnaði hann árásinni
fyrir fjórum vikum og sagði Tony
Blair forsætisráðherra bera
ábyrgðina, vegna þátttöku Breta í
innrásinni í Írak. Al-Zawahri tók
ekki fram hvort hann bæri ábyrgð
á sjálfsmorðsárásunum í júlí. Þá
sagði hann að tugþúsundir banda-
rískra hermanna myndu láta lífið
í Írak.
Þrátt fyrir þessar hótanir og
áberandi vopnaða lögreglumenn í
miðborg London ferðuðust íbúar
borgarinnar um eins og ekkert
væri. Robert Allen, sem var að
bíða eftir lestinni á King's Cross
lestarstöðinni, sagðist þó vera
svolítið óöruggur. Hann fylgdist
betur með fólki sem væri í lest-
inni til að sjá hvað það væru að
gera. ■
Djöfulleg breyting
fyrir gamla fólki›
SAMGÖNGUR „Þetta er djöfulleg
breyting fyrir gamla fólkið,“ segir
Eggert Magnússon, íbúi í Árbæ, um
breytt leiðakerfi Strætó bs.
Eggert beið eftir strætisvagni í
Rofabæ þegar Fréttablaðið hitti
hann. Hann er níræður og segist
vera algjörlega háður strætisvögn-
unum til að komast leiðar sinnar.
„Þetta nýja kerfi er svo margfalt
verra heldur en það sem var áður,
sérstaklega fyrir gamla fólkið,“
segir hann.
Samkvæmt gamla leiðarkerfinu
voru vagnar 10 og 11 hringleiðir um
Árbæjarhverfi sem tengdu saman
Selás og Breiðholt og enduðu á
Hlemmi. Leið 110 tók Selásbrautina,
Rofabæ, Bæjarháls, Ártúnsholt,
Miklubraut, Hringbraut, Háskólann
og endaði á Lækjartorgi. Með nýja
kerfinu voru þessar leiðir lagðar
niður en í staðinn kom leið 25 sem
fer um Rofabæ í Norðlingaholt og
leið 5 sem fer frá Selási um Bæjar-
háls niður Vesturlandsveg, Miklu-
braut, Hringbraut niður í
Lækjargötu og þaðan upp á Hlemm.
„Áður gat ég tekið vagninn í Ár-
tún og þaðan gengu vagnar í allar
áttir,“ segir Eggert. „Nú þarf ég að
fara á skiptistöð, þar sem ég þarf að
klifra þrjá stiga til að komast í
vagninn niður í bæ. Ég sé ekki
hvernig gamla fólkið og aðrir sem
eru með skerta hreyfigetu eiga að
komast þetta, sérstaklega eftir að
fer að snjóa og svell sest í stigana.
Ég kemst til að mynda ekki niður á
Landspítala né í Skeifuna lengur.“
Á næstu biðstöð í Rofabænum
beið Aðalsteinn Guðmundsson.
Hann er líka óánægður með nýja
leiðakerfið.
„Ég er búinn að bíða hér í kort-
er,“ segir hann. „Ég hefði heldur átt
að labba þetta. Það var að öllu leyti
miklu þægilegra að hafa gamla
kerfið, bæði styttra á biðstöðina og
svo þurfti ég ekki að ganga eins
langt til að komast í vinnu og úr. Það
finnst öllum í mínum kunningjahópi
þetta alveg fáránlegar breytingar
því við notum ekki strætó nema af
því að við þurfum þess.“
jss@frettabladid.is
Árásin í London:
Heimatilbúnar
sprengjur
NEW YORK, AP Þeir sem stóðu að
sjálfsmorðssprengingunum í
London fyrir fjórum vikum notuð-
ust við heimatilbúið sprengiefni,
eftir því sem lögreglan í New
York-borg segir. Lögreglustjórinn
í New York sagði þetta á fundi í
gær með háttsettum aðilum í við-
skiptalífinu. Þar kom fram að í
fyrstu hefði verið talið að sprengi-
efnin sem notast var við hefðu
verið svipuð þeim sem notuð eru í
hernum. „Það er líklegra að þess-
ir hryðjuverkamenn hafi farið í
byggingavöruverslun eða apó-
tek,“ sagði lögreglustjórinn.
Einnig kom fram að sprengj-
urnar hefðu verið fluttar í drykkj-
arkæli frá Leeds til London og að
farsímar hefðu líklega verið not-
aðir til að virkja sprengjurnar. ■
Danmörk:
fi‡skir fer›a-
menn drukkna
DANMÖRK, AP Tveir þýskir ferða-
menn drukknuðu í gær, eftir að
fimm meðlimir sömu fjölskyldu
lentu í erfiðleikum vegna undir-
öldu þar sem þeir voru að synda í
Norðursjónum við strendur Jót-
lands.
Móðirin í fjölskyldunni er enn
í lífshættu á sjúkrahúsi en tvö
börn hennar, 10 og 16 ára, lifðu
einnig af. Hin látnu eru sögð vera
fjölskyldufaðirinn og amman en
nöfn þeirra hafa ekki verið gefin
upp. Slysið átti sér stað í
Nymindegab, sem er 230 kíló-
metrum vestan við Kaupmanna-
höfn. ■
Alltaf hagstætt
www.ob.is
14 stöðvar!
SPURNING DAGSINS
Magnús Tumi, skiptir stær›in
máli?
„Stundum og stundum ekki.“
Magnús Tumi Guðmundsson er formaður Jökla-
rannsóknafélags Íslands. Í gær var tilkynnt að
Hvannadalshnúkur er 2.110 metrar á hæð en
ekki 2.119 eins og talið var.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SAMGÖNGUR Lúðvík Bergvinsson,
forseti bæjarstjórnar Vestmanna-
eyjabæjar, útilokar ekki að bær-
inn bjóði í rekstur Vestmanna-
eyjaferju. Enn hafa þó engar
ákvarðanir verið teknar í þeim
efnum að hans sögn en málið
verður skoðað.
Vegagerðin hefur boðið út
rekstur ferjunnar árin 2006 til
2010 og gerir ráð fyrir að ferð-
um verði fjölgað í þrettán á
viku milli lands og Eyja.
Núgildandi sumaráætl-
un gerir ráð fyrir þrettán
ferðum á viku en færri
ferðir hafa verið farnar yfir
vetrartímann.
„Verið er að auka og bæta
samgöngur til Vestmanna-
eyja og við erum ánægð
með það,“ segir Lúðvík en árleg-
um ferðum verður fjölgað úr 660
til 670 á ári í rúmlega sjö hund-
ruð. „Þetta er skref í rétta átt,“
segir hann.
Samskip hafa
séð um rekst-
ur Herjólfs
síðastliðin
ár og ætla
að skila inn tilboði fyrir áfram-
haldandi rekstur, að sögn Önnu
Guðnýjar Aradóttur, markaðs-
stjóra Samskipa. „Við erum mjög
ánægð með hvernig tekist
hefur til með reksturinn
og höfum átt gott samstarf
við Vestmannaeyinga,“ segir
hún. - ht
Vestmannaeyingar vilja fjölga ferðum Herjólfs:
Bærinn gæti bo›i› í reksturinn
HERJÓLFUR Samskip hafa séð um rekstur ferjunnar undanfarin ár og sækjast eftir að gera það
áfram. Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar hafa ekki ákveðið hvort boðið verði í reksturinn.
Geimferjan Discovery:
Frekari vi›ger›-
ir ekki nau›syn
HOUSTON, AP Ákveðið hefur verið
að ekki sé nauðsynlegt að fara út
í enn eina geimgönguna til að
gera við hitateppi, undir glugga
flugstjórnanda geimferjunnar
Discovery, sem rifnaði þegar
flauginni var skotið frá jörðu.
Sérfræðingar NASA tilkynntu
áhöfn geimferjunnar þetta í gær.
Á miðvikudag var tækifærið
notað til að kanna hvort hitatepp-
ið krefðist viðgerða þegar gert
var við hitahlíf undir geim-
ferjunni og voru myndir af
skemmdunum sendar til jarðar.
„Við höfum góðar fréttir,“
sagði stjórnstöðin í Houston,
þegar sérfræðingar NASA voru
búnir að kanna myndirnar í
þaula. „Þetta verður ekkert
vandamál.“ Áhöfin um borð
fagnaði þessum fréttum, en
áætlað er að geimferjan snúi
aftur til jarðar snemma á mánu-
dagsmorgun. ■
VOPNAÐIR LÖGREGLUMENN Í LONDON
Fjöldi vopnaðra lögreglumanna vaktaði
helstu lestarstöðvar Lundúna í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Ellilífeyrisflegi í Árbæ segir a› me› n‡ju lei›akerfi Strætó bs. sé í raun búi› a›
gera mörgum ófært a› taka strætisvagn fla›an og ni›ur í bæ. Hann segir fletta
einkum bitna á gamla fólkinu og fólki me› skerta hreyfigetu.
SKIPTISTÖÐIN Klífa þarf brattar tröppur til að komast á skiptistöðina við Vesturlandsveg.
EGGERT MAGNÚSSON „Það er búið að
gera þessar leiðir úr Árbænum ófærar fyrir
marga.“
AÐALSTEINN GUÐMUNDSSON „Það finnst
öllum fáránlegt að þurfa nú að labba
meira og bíða lengur.“
SJÚKRAFLUG
SJÓMAÐUR DATT ÚR STIGA Þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-LIF,
sótti slasaðan mann um borð í
togarann Akureyrina í fyrra-
kvöld, þar sem skipið var við
veiðar á Halamiðum, 50 sjómílur
norðvestur af Ísafirði. Eftir að
læknir hafði fengið nánari upp-
lýsingar um ástand mannsins,
sem datt úr stiga, var ákveðið að
sækja hann með þyrlu og var
hann fluttur á Landspítala - há-
skólasjúkrahús.
ÓHULTIR EFTIR BÍLVELTU Enginn
slasaðist þegar bíll valt seinni-
partinn í gær á Vatnsfjarðarnesi í
Ísafjarðardjúpi. Tveir voru í bíln-
um og voru þeir báðir fluttir á
sjúkrahús á Ísafirði, en fengu að
fara heim eftir læknisskoðun.