Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 21

Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 21
Mótmæli flutningabílstjóra á föstudaginn (þó vitanlega ekki allra flutningabílstjóra) voru al- veg svakalega sniðug. Þeir mót- mæltu hækkun á olíugjaldi með því að eyða olíu, en mótmælin gengu út á það eins og kunnugt er að aka löturhægt um miklar um- ferðargötur í Reykjavík og þá einkum þær leiðir sem íbúar borg- arinnar notuðu til að aka út úr bænum á leið á útihátíðir eða eitt- hvert annað sem þeir kusu að halda um verzlunarmannahelgina. Mótmælin voru því ekki bara þannig úr garði gerð að þau bitn- uðu á almennum borgurum, sem ekkert höfðu til saka unnið, heldur má gera ráð fyrir að þau hafi haf- izt með því að mótmælendurnir fylltu á olíutanka flutningabifreiða sinna. Ýmsar yfirlýsingar tals- manns mótmælendanna í fjölmiðl- um voru síðan oftar en ekki væg- ast sagt stórundarlegar. Allt frá því að gera því skóna að fjármála- ráðherra hefði skipað fulltrúum mótmælendanna að koma til fund- ar við sig (síðar kom í ljós að mót- mælendur höfðu sjálfir óskað eftir fundi með ráðherra en síðan af- þakkað hann) yfir í að segja að það yrði bara að hafa það ef mótmælin leiddu til þess að slys yrðu á fólki eða einhvers þaðan af verra. Sagði talsmaðurinn í sjónvarpsfréttum að slys yrðu í umferðinni og ef fólk vildi forðast þau ætti það að halda sig í rúminu. Svona lagað nær auðvitað engri átt. Það gildir einfaldlega það sama um þessi mótmæli eins og þau við Kárahnjúkavirkjun og önnur slík að það er í góðu lagi að fólk mótmæli svo lengi sem það er gert á friðsaman og lýðræðis- legan hátt og án þess að saklaust fólk verði fyrir barðinu á þeim. Hvort sem um er að ræða fólk á leiðinni í sumarfrí eða fólk sem er að sinna vinnunni sinni. Annað er auðvitað ekkert annað en ofbeldi sem er ekki bara algerlega óásættanlegt heldur líka afskap- lega ólíklegt til að vekja samúð almennings með umræddum aðgerðum. ■ 21FÖSTUDAGUR 5. ágúst 2005 SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoðanasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Rit- stjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. HJÖRTUR J. GUÐMUNDSSON SAGNFRÆÐINEMI UMRÆÐAN MÓTMÆLI FLUTNINGABÍLSTJÓRA Mótmæli látin bitna á almenningi Arna Schram, blaðamaður á Morgunblaðinu og nýr formaður Blaðamannafélags Íslands, svarar Illuga Jökulssyni stuttlega í grein- arkorni í Fréttablaðinu laugardag- inn 30. júlí. Illugi hafði spurt Örnu hvort skoðun hennar sé sú að fjöl- miðlar eigi ekki að fjalla um sak- borninga í dómsmálum fyrr en „þar til bær yfirvöld“ hefðu kveð- ið upp sinn dóm. Arna segir svo vera: „Já, skoð- un mín er óbreytt. Fjölmiðlar eiga að fara varlega í mynd- og nafn- birtingum eða að kveða upp „dóma“ um fólk áður en sekt þess er sönnuð fyrir dómstólum, það er þar til bærum yfirvöldum. Fjöl- miðlar eiga að taka tillit til meðal annars laga, dóma og almennings- álits.“ Við þetta er ýmislegt að athuga. Ekki verður betur séð en Arna telji fjölmiðla eins konar hluta dóms- og refsikerfisins. Að vísu ekki til þess bærir en engu síður á valdi þeirra að kveða upp „dóma“. Fjöl- miðlar hafa ekkert slíkt umboð. Vont er ef almenningur telur þetta viðhorf ríkjandi meðal blaða- manna. Og verra ef blaðamenn ganga um með slíka óra í kollinum. Enda heldur þetta sjónarmið engu vatni og brýtur til dæmis algerlega í bága við það sem stundum er sagt á tyllidögum að fjölmiðlar eigi að veita hinu opinbera aðhald. Mynd- og nafnbirting jafngildir á engan hátt dómsorði. Hæpið er að vísa til einhvers óskilgreinds hóps sem enginn veit hver er og segja: Fólkið er búið að dæma! Enginn kannast við að geta ekki farið með þessar upplýsingar en ýmsir virð- ast þó ætla náunganum blinda dómhörku. Fjölmiðlar eiga ekki að taka til- lit til laga, dóma og því síður ein- hvers sem Arna kallar almenn- ingsálits umfram aðra þætti þjóð- lífsins. Starf blaðamanna gengur fyrst og fremst út á að safna upplýsing- um og miðla til almennings. Þeir sem starfa við þetta fag og vilja skammta lesendum/áhorfend- um/hlustendum upplýsingar með tilliti til þess hvort þeir hafi gott af því að vita þetta og hitt eru á villigötum. Í undirbúningi er nýtt fjöl- miðlafrumvarp. Ekki hafa verið færð nein rök fyrir nauðsyn þess heldur byggir tilurðin á þeim mis- skilningi stjórnmálamanna að fjölmiðlar séu stjórnvaldstæki. Stjórnarandstaðan fær að vera með núna og því má búast við að frumvarpið, sem byggir á mein- gölluðum forsendum, fljúgi í gegnum þingið. Persónuvernd sendi nýverið frá sér óumbeðið álit og vekur upp hauslausan draug sem er Karólínu-dómurinn frægi. Hér er verið að véla um af- stæð hugtök á borð við „almanna- persónur“ - það er hver er nógu frægur til að um hann sé fjallað! Eða hvort þessi frétt eða hin á er- indi við almenning. Hver er „til þess bær“ að kveða úr um það? Að nýr formaður BÍ sé, að því er virðist, sáttur við þessa þróun veldur mér sem félaga í Blaða- mannafélaginu áhyggjum. Höfundur er félagi í Blaða- mannafélagi Íslands. Fjölmi›lar eru ekki hluti dóms- og refsikerfis JAKOB BJARNAR GRÉTARSSON BLAÐAMAÐUR UMRÆÐAN FJÖLMIÐLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.