Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 22
Mig rak í rogastans þegar ég las
grein í Fréttblaðinu föstudaginn
29. júní sl. undir fyrirsögninni „Er
Garðasókn í gíslingu?“. Ég varð
kjaftstopp. Þvílíkar og aðrar eins
rangfærslur hefi ég aldrei áður
séð. Hvernig hægt er að setja
svona pistil saman er fjarri
mínum skilningi. Áður hafa ýms-
ar greinar birst frá svokölluðum
stuðningsmönnum sr. Hans Mark-
úsar Hafsteinssonar, sóknar-
prests í Garðasókn, og eru með
endemum, en þessi síðasta slær
öll met.
Þetta er allt ein sorgarsaga.
Í umræðu stuðningsmanna sr.
Hans Markúsar Hafsteinssonar er
sannleikanum snúið við. Staðreynd
málsins er sú að það var sóknar-
presturinn, sr. Hans Markús Haf-
steinsson, sem kærði samstarfs-
fólk sitt og það var hann, sem
krafðist þess að djákninn yrði rek-
inn þegar djákninn kallaði á hjálp
og bað sóknarnefndina um aðstoð,
eftir að sóknarpresturinn hafði ít-
rekað hindrað djáknann í störfum
sínum og gripið fram fyrir hend-
urnar á djáknanum. Sóknarnefnd,
prófastur Kjalarnesprófastsdæm-
is og Biskup Íslands hafa allir ít-
rekað reynt sættir, sem sr. Hans
Markús Hafsteinsson hefur í hvert
sinn hafnað.
Allir aðilar, sem að málinu hafa
komið, hafa komist að sömu
niðurstöðu, sem er að vandinn
liggi hjá sr. Hans Markúsi Haf-
steinssyni. Hann virðist ekki sjá
galla í eigin ranni. Allir sem hafa
komið að málinu, eru sammála því
að eina lausn málsins sé sú að sr.
Hans Markús Hafsteinsson verði
færður til í starfi. Ef um einelti er
að ræða þá er það einelti af hálfu
sr. Hans Markúsar Hafsteinsson-
ar á hendur samstarfsfóki sínu.
Það er hreint með ólíkindum
hvernig sannleikanum er snúið
við í þessu máli öllu. Hafi allir
skömm af, sem með framferði
sínu eru að kljúfa Garðasöfnuð í
herðar niður og eyðileggja safn-
aðarstarfið með slíku framferði.
Þessu máli öllu hefði verið hægt
að ljúka fyrir löngu síðan, ef um
eðlilegt samstarf og samvinnu úr
hendi sóknarprestsins hefði verið
að ræða.
Það kann ekki góðri lukku að
stýra að setja ávallt eigin hags-
muni í forgang og koma ekki auga
á galla í eigin fari og slá stöðugt á
útrétta sáttarhönd. Ég ítreka það
og fullyrði, í ljósi þess að ég þekki
málið frá fyrstu hendi, að allir,
sem að málinu komu, vildu sættir
og að því yrði lokið á eðlilegan
hátt. Sóknarpresturinn sr. Hans
Markús Hafsteinsson neitaði öll-
um sáttum og handleiðslu og
kærði samstarfsfólk sitt. Það var
sr. Hans Markús Hafsteinsson,
sem kærði samstarfsfólk sitt til
úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar
þegar Biskup Íslands var að vinna
að lausn málsins og hafði boðið
honum tilfærslu í starfi. Það var
sr. Hans Markús Hafsteinsson,
sem kærði málið áfram til áfrýj-
unarnefndar þjóðkirkjunnar þeg-
ar úrskurðarnefndin hafði komist
að þeirri niðurstöðu að leggja til
við Biskup Íslands, að sr. Hans
Markús Hafsteinsson yrði færður
til í starfi. Þegar áfrýjunarnefnd
þjóðkirkunnar kvað upp sinn úr-
skurð um að sr. Hans Markús Haf-
steinsson skyldi færður til í
starfi, þá neitar hann enn og kær-
ir málið nú til íslenskra dómstóla.
Mér er það gjörsamlega hulin
ráðgáta hvernig sr. Hans Markús
Hafsteinsson ætlar að starfa, sem
sóknarprestur, áfram í Garða-
sókn, eftir allt það sem á undan
hefur gengið. Ástæðan fyrir að
aðalsafnaðarfundur var ekki hald-
inn í mars var, að í samráði við
Biskup var ákveðið að ljúka til-
færslu sr. Hans Markúsar Haf-
steinssonar og ljúka öllu því máli
áður en fundurinn yrði haldinn.
Það var ekkert verið að fela. Það
er engum haldið í gíslingu. Það er
ekki um neina geðþóttaákvörðun
að ræða. Allt er unnið samkvæmt
réttum lands og kirkjulögum og
langlundargeð sóknarnefndar og
allra aðila sem að málinu koma
hefur verið teygt til hins ýtrasta.
Svo svarið við spurningunni „Er
Garðasókn í gíslingu?“ er jú ef til
vill en ekki af þeim sem greinar-
höfundar gefa í skyn heldur sr.
Hans Markúsi Hafsteinssyni og
stöku stuðningsmanni hans, sem
eru á villigötum.
Höfundur er gjaldkeri
sóknarnefndar.
5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR22
HELGI K. HJÁLMSSON
SKRIFAR UM DEILUR Í GARÐASÓKN
Orku- og vatnsöflun auk veitu-
starfsemi er og verður grunn-
starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur
(OR). Í því felst öflun raforku,
heits og kalds vatns til heimila og
fyrirtækja. En undir veituhlutann
fellur lagning og rekstur vatns- og
rafmagnslagna, gagnaveitu og á
næstunni fráveitu. Það er stefna
OR eins og margoft hefur komið
fram að tryggja eigendum sínum,
það er almenningi á eigendasvæði
sínu, þjónustu fyrirtækisins á
sem hagkvæmustu verði.
Orkuveita Reykjavíkur er í al-
mannaeigu, Reykjavíkurborg á
93,539%, Akranesbær 5,525%,
Borgarbyggð 0,761% og Borgar-
fjarðarsveit 0,172%. Engar fyrir-
ætlanir eru um að einkavæða fyr-
irtækið. Gagnaveita er í nútíma-
þjóðfélagi ein af grunnveitum
samfélaga og ætti því að vera í al-
mannaeigu. Aðgangur að hag-
kvæmri gagnaveitu er samfélagi
nútímans mjög nauðsynlegur og
getur skipt sköpum um sam-
keppnishæfni einstaklinga, fyrir-
tækja og þjóða.
Framkvæmdarlega og rekstr-
arlega fer rekstur gagnaveitu
mjög vel saman við aðra veitu-
starfsemi, mikil samlegðaráhrif
eru af lagningu ljósleiðara sam-
fara öðrum veitulögnum hvort
sem um er að ræða nýlagnir eða
lagnir vegna viðhalds. Rekstur
rafmagnslagna og ljósleiðara er
heldur ekki svo ólíkur, annars
vegar fer um leiðslurnar rafmagn
og hinsvegar upplýsingar.
Rétt eins og OR selur ekki
eldavélar og þurrkara mun OR
ekki selja efni inn á ljósleiðarann,
heldur selja smásöluaðilum að-
gang að kerfinu, síma og netfyrir-
tækjum, sjónvarpsstöðvum og
hverjum þeim öðrum sem vilja
selja þjónustu sína í gegnum ljós-
leiðara.
Ef menn eru á annað borð á því
að gagnaveita samræmist starfs-
sviði OR, vaknar spurningin um
það hvort ljósleiðari sé heppileg-
asta form slíkrar gagnaveitu. Vís-
indum fleygir fram og einhverjir
kunna að óttast að tæknin úreldist
fljótt. Ljósleiðari hefur gríðarlega
flutningsgetu auk þess sem upp-
lýsingar berast þar á hraða ljóss-
ins og hraði ljóssins er mesti hraði
sem við þekkjum. Þörfin fyrir
bandbreidd er sívaxandi og til
dæmis er reiknað með að hvert
heimili fái 100 MB tengingu með
ljósleiðara Orkuveitunnar.
Eina fyrirtækið á Íslandi annað
en OR sem hefur lagt út í lagningu
ljósleiðara í verulegum mæli er
Síminn. Eins og allur almenningur
veit er Síminn á flestum ef ekki
öllum sviðum í samkeppni við þá
smásöluaðila sem hugsanlega
vildu kaupa sig inn á gagnaveitu
um ljósleiðara. Síminn rekur
símaþjónustu, Síminn rekur inter-
netþjónustu, Síminn rekur breið-
bandið og Síminn á stóran hlut í
Skjá einum.
Af þessum sökum finnst mér
ljóst að OR sé mun betur til þess
fallin en Síminn að reka grunnnet
sem allir hafa jafnan aðgang að og
viðskiptavinir geta treyst.
Nú liggur það fyrir að búið er að
selja Símann með öllum grunnkerf-
um fyrir 66,7 milljarða króna og er
fyrirtækið eftir það einkarekið
fyrirtæki. Eigendurnir þurfa að fá
arð af þessari miklu fjárbindingu
sinni og því má búast við að arð-
semiskrafa af gagnaveitu þeirra
verði hærri en hjá fyrirtæki sem er
í eigu almennings.
OR hefur sýnt það og sannað
með lágu verði á rafmagni og
heitu og köldu vatni til almennings
að fyrirtækið tekur þá stefnu sína
mjög alvarlega að selja á sem hag-
stæðustum kjörum til almennings.
Verð á þessari þjónustu er eitt það
lægsta sem gerist í heiminum á
þjónustusvæði OR. Það sama
verður ekki sagt um símakostnað,
sérstaklega ekki þegar Landssím-
inn sat einn að framboði á þeirri
þjónustu. Þess ber þó að geta að
við eigum alveg eftir að sjá hvern-
ig nýir eigendur Símans munu
standa sig í þessum efnum og vona
ég svo sannalega að von sé á verð-
lækkunum á þjónustu Símans.
Gagnrýnisraddir hafa verið
uppi um að óhagkvæmt sé að bæði
þessi fyrirtæki standi í lagningu
ljósleiðara. Auðvitað má halda því
fram um alla skapaða hluti að hag-
kvæmast sé að samnýta allt. Hafa
bara eitt af öllu, eitt flugfélag, eitt
skipafélag, eitt dagblað, einn flokk
og einn ljósleiðara. Slíkar hug-
myndir hafa þó fram til þessa verið
á hröðu undanhaldi. Mér er því
ekki ljóst hvaðan þessi ótti við sam-
keppni á þessu sviði er sprottinn.
Ég tel OR mjög vel í stakk búna
að mæta ljósleiðarasamkeppni frá
Símanum og að þeir sem vilja
selja þjónustu sína í gegnum ljós-
leiðara muni líta hýru auga til OR
sem ekki er í samkeppni við við-
skiptavini sína í smásölu líkt og
Síminn er.
OR á í dag ljósleiðaragrunnnet
í borginni sem nýtist stærri fyrir-
tækjum, stjórnsýslustofnunum,
heilbrigðis- og menntastofnunum
í borginni og reyndar í öðrum
sveitarfélögum líka. Þar sem ljós-
leiðari OR hefur staðið til boða
hefur verð á gagnaflutningi til
fyrirtækja og stofnana lækkað
verulega og er margfalt ódýrari í
dag en hann var fyrir tilkomu
ljósleiðara OR. Þá er engin spurn-
ing að tilkoma ódýrari leiðar til
mikilla gagnaflutninga hefur
hraðað allri framþróun á þjónustu
eins og hýsingu, sjálfsafgreiðslu
yfir internetið ofl. Jafnframt
hefur OR lagt ljósleiðara í ný-
byggingarhverfi borgarinnar og
gert samninga við Seltjarnarnes-
bæ og Akranesbæ um lagningu
ljósleiðara í þeim bæjarfélögum.
Nú í haust verður svo Fossvogur-
inn ljósleiðaravæddur og munu
önnur eldri íbúahverfi borgarinn-
ar fylgja í kjölfarið. ■
Heppileg samkeppni
SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR
VARAFORMAÐUR STJÓRNAR OR
UMRÆÐAN
LJÓSLEIÐARA-
VÆÐING
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
8
1
5
Grímsævintýri
Hátíð í Grímsnes- og Grafningshreppi laugardaginn 6. ágúst
Hátíð á Borg hefst kl. 13.00 – aðgangur ókeypis.
Uppsveitarvíkingurinn 2005
Sterkustu menn landsins takast á.
Tombóla, hoppukastali og útimarkaður
með handverki, grænmeti o.fl.
„Matur og menning“ í Þrastalundi.
Tveggja rétta helgartilboð í tilefni Grímsævintýris.
Myndlist og tónlist á laugardagskvöldi.
Ferðaþjónustan á Minniborg er með kynningu
á fyrsta Skógarþorpinu – spennandi viðbót við
gistimöguleika í Grímsnesi.
Allir velkomnir á staðinn kl. 14.00-18.00
Kaffi, heimabakaðar kökur
og myndlistarsýning sveitunga
á Gömlu Borg.
Írafossvirkjun
Opið hús frá kl. 10.00-12.00.
Gestum boðið að skoða virkjunina undir
leiðsögn starfsmanna.
Ljósafosstöð
„Ár og kýr“ Jóns Eiríkssonar komnar suður.
365 kúamyndir sem hlotið hafa verðskuldaða
athygli.
„Oft er í holti heyrandi nær“
Ljósmyndasýning Guðmundar frá Efri-Brú.
Mér er fla› gjörsamlega
hulin rá›gáta hvernig sr.
Hans Markús Hafsteinsson
ætlar a› starfa, sem sóknar-
prestur, áfram í Gar›asókn,
eftir allt fla› sem á undan
hefur gengi›.
Rangfærslur í skrifum um
prestamál Gar›asóknar
Spurning ítreku›
Arna Schram, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, fer þá bil-
legu leið í svari við spurningu
minni hér í Fréttablaðinu að láta
eins og spurningin hafi snúist um
nafn- og myndbirtingar í fjöl-
miðlum. Og það þótt ég hafi tekið
sérstaklega fram að spurningin
snerist EKKI um það. Spurningin
snerist einfaldlega um hvort það
væri skoðun formannsins að úr-
skurðir og/eða álit einhverra „þar
til bærra yfirvalda“ ættu að hafa
áhrif á hvernig blaðamenn haga
störfum sínum. Því hún hafði í að
minnsta kosti tvígang tekið svo
til orða.
Fyrst þegar hún sagði að fjöl-
miðlar ættu ekki að birta nöfn sak-
aðra manna fyrr en „þar til bær
yfirvöld“ væru búin að segja sína
skoðun á því hvort þeir væru sekir
eða ekki. Og síðan er hún sagði
það „ekki við hæfi“ að hún segði
skoðun sína á álitamáli varðandi
störf blaðamanna fyrst málið væri
– að sögn – komið í hendur „þar til
bærra dómsvalda“.
Mér finnst einfaldlega brýnt að
frétta um skoðun formanns Blaða-
mannafélagsins á þessu mikils-
verða atriði. Fyrst svar fékkst
ekki ítreka ég spurninguna. ■
ILLUGI JÖKULSSON
ÚTVARPSSTJÓRI TALSTÖÐVARINNAR
UMRÆÐAN
FJÖLMIÐLAR