Fréttablaðið - 05.08.2005, Page 50

Fréttablaðið - 05.08.2005, Page 50
5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Landslagið væri lít- ils virði ef það héti ekki neitt sagði skáldið. Mér fannst lítið til í þessu hér í eina tíð, það var mér nóg að horfa út um bílgluggann og horfa á fjöllin úr fjarlægð og dást að firnindunum, stöku sinnum leggjast í mosató. En svo fór ég í mína fyrstu fjall- göngu og þá varð ekki aftur snúið. Ekki dugði að vita að ég hefði geng- ið á eitthvert fjall fyrir norðan. Nei, nafnið á fjallinu var nauðsynlegt að þekkja. Eftir því sem fleiri fjöll hafa verið gengin hefur örnefna- þekking aukist. Fyrst þótti mér nóg að vita nafnið á fjallinu sem var undir fót. Nú þykir mér ferðin ekki fullkomnuð nema gott kort sé með í för til að hægt sé að átta sig á því er við blasir á tindinum. Ekki spillir fyrir að betri helm- ingurinn er mikill kortafíkill, les kort eins og aðrir lesa spennusögur og því góður leiðsögumaður um leyndardóma landsins. Það má með sanni segja að mikið vatn sé runnið til sjávar síðan móðir mín reyndi að benda mér á helstu kennileiti á ferðalögum um landið en fékk eng- ar undirtektir frá dóttur sinni, sem var annaðhvort sofandi eða of niðursokkin í gæðabókmenntir á borð við Ísfólkið til að meðtaka upp- lýsingarnar. Á síðasta ferðalagi fjölskyldunn- ar um fjallabak var landið að sjálf- sögðu skoðað með hjálp korta og ör- nefni fest við fjöll. Gjátindur leit þá svona út, Uxatindar blöstu við og yfir öllu gnæfði Sveinstindur. Ekki var hægt að sleppa því að ganga á hann, enda ekki ský á himni. Útsýn- ið sem við blasti var frábært og al- deilis hægt að stúdera landið, jökla, tinda og vötn. Í dagslok var svo slegið upp tjöldum við Langasjó, við vorum ein í heiminum. Stöku steinn hrundi að vísu niður úr Sveinstindi. Verk trölla héldum við, þar til fréttir af jarðhræringum á þessum slóðum bárust nokkrum dögum síðar. Og þá var aldeilis gaman að hlusta á Ómar Ragnars- son flytja fréttir frá rótum Sveinstinds og geta sagt, sjáið tind- inn, þarna fór ég. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SIGRÍÐUR B. TÓMASDÓTTIR TEKUR LANDAKORT MEÐ Í FERÐALAGIÐ. Sjáið tindinnNýjasta æðið! Engin trygging nauðsynleg – flokkast sem reiðhjól. Notist á gangstéttum. Engin aldurstakmörk Munið eftir hjálmunum! Salan er hafin! Sími: 869 0898 Scooterhjól með mótor í fyrsta sinn á Íslandi! Baugur kaupir í Köben Danir ánægðir með íslensku innrásina Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Skattaðu!Bíí bíí bííí Boppa díí dú bopp bí dittí dittí wah wah Hæ, Pondus! Hver ert þú? Já, það er nú orðið langt síðan síðast! Hver ert þú? Hver ert þú? Hver ert þú? Hver ert þú? Mjög langt síðan, já! Langt síðan.... Hver ert þú? Hver ert þú? Hver ert þú? Hver ert þú? Hann hlýtur að hafa haldið að ég væri eitthvað sljór! Ég átti að skila kveðju frá honum! Til mín? Kannski! Hver veit? Viltu fá íþróttasíð- urnar? Neih.....ég ætla bara að tékka á tölvu- póstinum mínum. Síðan hvenær hafa þeir borið út tölvupóstinn á sunnudögum? M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.