Fréttablaðið - 05.08.2005, Síða 52

Fréttablaðið - 05.08.2005, Síða 52
32 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR EKKI MISSA AF… ...tónleikum sænska djassgítar- leikarans Andreas Öberg klukkan 21.30 á Café Rosenberg í Reykjavík í kvöld. ...tónleikum pólska orgelleikar- ans Zygmunt Strzep í Hallgríms- kirkju á morgun klukkan 12.00. ...gleðigöngunni á Hinsegin dögum sem farin verður frá Hlemmi klukkan 15.00 á morgun og endar með skemmtiatriðum á Lækjartorgi. Í tilefni af hundrað ára afmæli Unnar Briem teiknikennara hafa syst- urbörn hennar tínt saman brot af þeim listaverkum sem hún lét eftir sig. Verkin verða til sýnis í list- munasölunni Smíðar og skart á Skólavörðu- stíg 16a frá 5. ágúst. Um er að ræða mál- verk, leirverk, skúlptúra, glerverk og fleiri gerðir listaverka en Unnur var afar fjölhæf á listasvið- inu. „Unnur byrjaði fyrst að blómstra sem listamað- ur eftir að hún hætti að vinna árið 1959 en var aldrei mikið fyrir að selja því að hún tímdi því ekki. Hún tók þátt í einhverjum sýningum en ég veit ekki í hversu miklum mæli það var. Verkin hennar komu í hlut okkar systkinanna þegar móðir okkar dó. Við systurnar litum svo á verkin hennar og átt- uðum okkur á því hversu mikill listamað- ur hún frænka okkar var og fannst tilvalið að halda sýningu á þeim til að minnast þess að það eru hundrað ár síðan hún fæddist,“ segir Hildur Bjarnadótt- ir, sem er einn af skipuleggjendum sýningarinnar en hún er systurdóttir Unnar. Um helgina verður dagskrá síðustu helgar Sumartónleika í Skálholti. Dag- skrá sumarsins hefur tekist vel og hefur nánast verið fullt á hverja ein- ustu tónleika. Um helgina verða flytj- endur í Skálholtskirkju hinn nýstofnaði djúpstrengjahópur Lilja og Skál- holtskvartettinn. Frekari upplýsingar má finna á netsíðunni www.sumartón- leikar.is. menning@frettabladid.is List Unnar Briem! Yfir tuttugu listamenn ætla að framkalla sannkallaða listasprengju á sýningunni Tívolí sem opnar með hátíð á sunnudaginn. Sýningunni er ætlað að rifja upp gleðina sem fylgdi tívolíinu sem var þar í bænum um árabil. Á sunnudaginn klukkan 16.00 opnar samsýning fleiri en tuttugu lista- manna á Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Sýningin ber yfir- skriftina Tívolí og er ætlað að minna á tívolíið sem var í Hvera- gerði á sínum tíma. Hugmyndin er að búa til listasprengju þar sem ægir saman listaverkum, gjörning- um og uppákomum. „Við höfðum lengi verið að velta því fyrir okkur að halda sýningu í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Safnið stendur á móti grunninum þar sem gamla tívolíið stóð. Við fengum því þá hugmynd að kalla sýninguna Tívolí og fá hóp af lista- mönnum til að vinna út frá hug- myndinni um tívolíið í Hveragerði sem lifir í minningu margra sem mikill ævintýrastaður,“ segir Mark- ús Þór Andrésson sem er annar af sýningarstjórum Tívolís. Markús segir að hann og hinn sýningarstjóri Tívolís Þuríður Sig- urðardóttir hafi komið að máli við listamenn á öllum aldri og beðið þá að vinna verk fyrir sýninguna. Elsti listamaðurinn sem tekur þátt í sýn- ingunni er Þorbjörg Pálsdóttir sem er á níræðisaldri en sá yngsti er rétt um tvítugt og nýskriðinn út úr lista- skóla. Meðal þeirra sem taka þátt í sýn- ingunni eru Birgir Andrésson, Egill Sæbjörnsson, Gabríela Friðriks- dóttir, Gjörningaklúbburinn, Mar- grét H. Blöndal, Ragnar Kjartans- son og JBK Ransu. „Við viljum færa gleðina og æv- intýrið aftur til Hveragerðis en þó er ekki svo að einungis minningar um gleði og grín séu tengd gamla tívolíinu því í huga margra var tívolíið hrylllilegur staður. Menn fóru í hringekjuna og ældu úr sér lungunum eða í draugahúsið og urðu svo hræddir að þeir gleyma því aldrei. Þess vegna eru líka hryllileg verk á sýningunni því upp- lifun fólks af tívólíinu var ekki eins- leit,“ segir Markús. Mikið er lagt upp úr opnun sýn- ingarinnar á sunnudaginn en á henni verða mikil hátíðabrigði, gjörningar og alls kyns uppákomur. Sumir listamennirnir taka aðeins þátt í opnuninni og því skorar Mark- ús á fólk að mæta á svæðið á sunnu- daginn og rifja upp gömlu tívolí- stemninguna og um leið að kynna sér samtímalist þar sem áherslan er á myndlist sem sækir innblástur meðal annars í heim afþreyingar og dægurmenningar, leikja, tilrauna og skemmtunar. Sýningin Tívolí stendur yfir í Listasafni Árnesinga í Hveragerði fram til 25. september. ■ Ævintýraheimur Tívolís í Hveragerði GRUNNUR GAMLA TÍVOLÍSINS Þar sem áður var draumastaður íslenskra barna stendur nú hráslagalegur húsgrunn- ur einn eftir. Yfir tuttugu listamenn ætla um helgina að opna samsýningu í Hvera- gerði sem ber heitið Tívolí þar sem ætlað er að rifja upp þessa gömlu góðu tívolí- stemningu sem svo margir muna eftir úr bænum. UNNUR BRIEM Í tilefni af því að hundrað ár eru síð- an Unnur fæddist hafa systurbörn hennar tekið lista- verk hennar saman og eru þau til sýningar í listmuna- sölunni Smíðar og skart á Skólavörðustígi 16a frá og með deginum í dag. Næstu sýningar eru: 5. sýn. laug. 6/8 kl. 14 sæti laus 6. sýn. sun. 7/8 kl. 14 sæti laus 7. sýn. fim. 11/8 kl. 19 sæti laus frá kl. 9.00 til 17.00 alla virka daga. Laugardag 6. ágúst Föstudag 12. ágúst Hjá Máli og menningu kom út í gær bókin Fuglar í náttúru Ís- lands eftir náttúrufræðinginn og náttúruljósmyndarann Guðmund Pál Ólafsson. Í bókinni er lesandinn leiddur inn í heillandi heim íslenskra fugla. Fjallað er um lifnaðarhætti þeirra og lífsskilyrði, sagt frá flugi, fæðuöflun, varpi og uppeldi unga, og lýst kjörlendi þeirra. Hér er í fyrsta sinn fjallað ítar- lega á íslensku um hátterni fugla og þá er brotið blað með skipu- lagðri umfjöllun um sjálfa undir- stöðu allrar fuglaverndar: bú- svæðavernd. Í bókinni er jafn- framt lýst sérhverri tegund ís- lenskra varpfugla í máli og mynd- um, og inn í þá frásögn er fléttað efni úr þjóðtrú og skáldskap. Bókin er prýdd fjölda skýringa- mynda, teikninga og korta, en ekki síst eru ljósmyndir bókarinnar ein- stakar í sinni röð og má fullyrða að aldrei áður hafi birst í einni bók svo margar frábærar ljósmyndir af fuglum í leik og starfi. Bókin tilheyrir rómaðri ritröð Guðmundar Páls Ólafssonar, en aðrar bækur í röðinni eru Perlur í náttúru Íslands, Ströndin í nátt- úru Íslands og Hálendið í náttúru Íslands, en fyrir þá bók hlaut höf- undur Íslensku bókmenntaverð- launin árið 2000. Bókin er 383 blaðsíður í stóru broti og er nú seld tímabundið á sérstöku kynningarverði sem er 17.980 krónur. ■ Fuglar í náttúru Íslands DÍLASKARFAR Þessa mynd má finna í nýrri bók úr ritröð náttúrufræðingsins og náttúru- ljósmyndarans Guðmundar Páls Ólafssonar sem kom út hjá Máli og menningu í gær. MARKÚS ÞÓR ANDRÉSSON Annar af sýningarstjórunum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.