Fréttablaðið - 20.08.2005, Page 8
SAMFÉLAG Tuttugu og tvö prósent Ís-
lendinga vilja ekki búa í næstu
íbúð við múslima, ef marka má
könnun sem IMG Gallup gerði fyr-
ir Rauða kross Íslands um viðhorf
Íslendinga gangvart minnihluta-
hópum.
Í könnuninni kemur fram að
meirihluti Íslendinga telur að inn-
flytjendur hafi haft góð áhrif á
efnahagslífið og svaraði einn af
hverjum fimm svo til að hagur sinn
hefði batnað vegna fjölgunar inn-
flytjenda meðan einn af hverjum
tuttugu hélt hinu gagnstæða fram.
Einar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahússins, segir að mið-
að við þessar tölur séu Íslendingar
jákvæðastir í garð innflytjenda af
íbúum allra Norðurlandanna og þó
víðar væri leitað.
Fram kom á fundi þar sem nið-
urstaðan var kynnt að karlar eru
mótfallnari því en konur að börn
sín giftist útlendingi. Fimmti hver
karlmaður sagðist myndu verða
ósáttur við slíkan ráðahag meðan
helmingi færri konur svöruðu á þá
lund.
Einnig kom fram á fundinum að
einn af hverjum sjö vildi ekki búa í
næstu íbúð við geðfatlaðan einstak-
ling.
Rauði kross Íslands sker nú upp
herör gegn fordómum í garð inn-
flytjenda og annarra minnihluta-
hópa og í þeim tilgangi verður
átaki undir kjörorðunum „Byggj-
um betra samfélag“ ýtt úr vör á
Menningarnótt.
„Það verður poppað og rokkað í
nafni málefnisins um helgina en
þar með er ekki öll sagan sögð því
þetta er verkefni til fjögurra ára,“
segir Konráð Kristjánsson, verk-
efnisstjóri hjá Rauða krossi Ís-
lands. jse@frettabladid.is
DAGUR
SKORDÝRANNA
Orkuveitan efnir til göngu- og fræðsluferðar í
Elliðaárdal undir leiðsögn Guðmundar Halldórssonar,
skordýrafræðings, og Odds Sigurðssonar, jarðfræðings,
í dag laugardaginn 20. ágúst.
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
R
K
2
9
2
7
6
0
8
/2
0
0
5
Gengið verður um dalinn og hugað að þeim smádýrum sem þar
búa. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler.
Farnar verða 3 ferðir undir leiðsögn og hefst fyrsta gangan
kl. 11:00, önnur kl.13:00 og sú þriðja kl. 15:00.
Gangan hefst við Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur
sem er opið öllum til skoðunar, en að lokinni göngu
er boðið upp á svalandi drykki.
Í Rafheimum stendur yfir ljósmyndasýning
Odds Sigurðssonar á skordýrum og verður
hún skoðuð.
8 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
www.icelandair.is/florida
Florida
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair
í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17
og á sunnudögum kl. 10-16).
Flug, gisting og bíll í átta daga
Verð frá 50.490 kr.
Ver› á mann m.v. 2 fullor›na og 2 börn, bíll í B-flokki
15.-23. nóv., 6.-14. des. og 10.-18. jan.
Innifali›: Flug, bíll í 8 daga, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og Icelandair
notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.500 kr.
greiðslu upp í fargjaldið.
AQABA, AP Þremur eldflaugum var
skotið á skotmörk í Jórdaníu og
Ísrael í gær. Ein sprakk rétt hjá
bandarísku herskipi en önnur
hafnaði nærri flugvelli. Einn mað-
ur lést í árásinni.
Eldflaugaárásin í gærmorgun
var gerð frá pakkhúsi í jórdönsku
hafnarborginni Aqaba en hún
stendur við Rauðahafið en þaðan
var þremur Katyusha-eldflaugum
skotið áleiðs. Ein þeirra hafnaði
nærri bandaríska herskipinu USS
Ashland sem lá bundið við bryggju
í borginni en það hafði verið við
heræfingar á flóanum. Jórdanskur
hermaður beið bana þegar
sprengjuhleðsla flaugarinnar
sprakk.
Önnur flaugin lenti nærri
sjúkrahúsi skammt frá vöru-
skemmunni en ekki er vitað hvort
hún hafi valdið manntjóni. Sú
þriðja lenti á leigubíl nærri flug-
vellinum í ísraelsku borginni Eilat,
sem er fimmtán kílómetra frá
Aqaba, en sú flaug sprakk þó ekki.
„Ég heyrði mikinn hávaða og bíll-
inn minn nötraði,“ sagði Meir
Fahran bílstjóri en hann meiddist
lítillega.
Abdullah Azzam herdeildirnar,
samtök tengd al-Kaída, hafa lýst
yfir ábyrgð á tilræðinu en ekki er
vitað hversu áreiðanleg sú yfirlýs-
ing er. Lögreglan leitar nú fjög-
urra manna sem leigðu pakkhúsið.
Þeir eru íraskir og egypskir. - shg
Samtök tengd al-Kaída láta til sín taka í Jórdaníu:
Eldflaugaárás á bandarískt herskip
GÍGUR MYNDAÐIST Hizbollah-samtökin og
palestínskir skæruliðar beittu gjarnan
Katyusha-eldflaugum á árum áður. Þær
voru fyrst smíðaðar á heimsstyrjaldarárun-
um og kölluðu Þjóðverjar þær „stalínska
orgelið“.
Framkvæmdastjóri Alþjóðahúss:
KEMUR EKKI Á ÓVART
KÖNNUN „Þetta
kemur ekki svo
mikið á óvart í ljósi
þeirrar neikvæðu
fjölmiðlaumræðu
sem á sér stað um
múslima en engin
vandræði hafa
komið upp hér á
landi sem gætu skýrt þetta,“ segir
Einar Skúlason, framkvæmdastjóri
Alþjóðahúss, um niðurstöður könn-
unarinnar, í henni kom fram að tutt-
ugu og tvö prósent svarenda vildu
síður búa í næstu íbúð við múslima.
Einar segir að Biskupsstofa og
Alþjóðahús standi að fundum þar
sem fulltrúar frá stærstu trúarhóp-
um landsins ræði um sameiginleg
hagsmunamál og slík umræða sé
líkleg til að eyða fordómum milli
trúarhópa. - jse
EINAR SKÚLASON
Andstaða við að búa nærri geðfötluðum:
ÞURFA REYNSLU HVOR
AF ÖÐRUM
KÖNNUN „Þetta
eru sláandi töl-
ur,“ segir Sigríð-
ur Kristjánsdótt-
ir, framkvæmda-
stjóri Svæðis-
skrifstofu mál-
efna fatlaðra á
Reykjanesi, um
n i ð u r s t ö ð u r
könnunar IMG Gallup sem leiddi
í ljós að einn af hverjum sjö svar-
endum vildi ekki búa í næstu
íbúð við geðfatlaðan einstakling.
„Ég tel að það sé með þessa
fordóma eins og marga að þeir
eru oftast sprottnir af einhverju
sem fólk hefur sjálft ekki reynslu
af en ef þessir tveir hópar, geð-
fatlaðir og aðrir, fengju reynslu
hvor af öðrum tel ég að viðhorf
myndu breytast og umburðar-
lyndi aukast.“ - jse
SIGRÍÐUR
KRISTJÁNSDÓTTIR
Formaður Félags múslima á Íslandi:
ÞARF AÐ EYÐA MISSKILNINGI
KÖNNUN „Þetta er áminning til
okkar að fara að kynna trú okk-
ar og okkur sjálfa fyrir þjóð-
félaginu því það er greinilega
kominn upp mikill misskilning-
ur sem nauðsynlegt er að eyða,“
segir Salmann Tamimi, formað-
ur Félags múslima á Íslandi, um
niðurstöður könnunar IMG
Gallup á viðhorfi Íslendinga til
minnihlutahópa.
„Það eru sláandi tölur að tutt-
ugu og tvö prósent vilji ekki búa
við hlið múslima og ég er undr-
andi á því að Íslendingar, sem
oft státa af því að vera umburð-
arlynd þjóð, hafi svo bara um-
burðarlyndi gagnvart sumum en
ekki öðrum. Hvers konar um-
burðarlyndi er það?“ - jse
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
SALMANN TAMIMI TÖLURNAR ERU
SLÁANDI.
BLAÐAMANNAFUNDUR RAUÐA KROSSINS Konráð Kristinsson, Þórir Guðmundsson og
Sigrún Árnadóttir frá Rauða krossi Íslands og Ásdís Ragnarsdóttir frá IMG Gallup röktu
niðurstöður könnunarinnar á blaðamannafundi á skrifstofu Rauða krossins í gær.
Vilja síst búa
nærri múslima
Múslimar og ge›fatla› fólk eru fleir minnihluta-
hópar sem Íslendingar vilja síst búa í næstu íbú›
vi›. Flestir eru fló jákvæ›ir í gar› útlendinga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.