Fréttablaðið - 20.08.2005, Side 18

Fréttablaðið - 20.08.2005, Side 18
18 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR MERKISATBURÐIR 1741 Danski landkönnuðurinn Vitus Bering finnur Alaska. 1898 Veitinga- og gistihúsið Val- höll á Þingvöllum er vígt. 1933 Fyrstu bílferðinni yfir Sprengisand lýkur að Mýri í Bárðardal. 1942 Áhöfn vélbátsins Skaftfell- ings bjargar 52 Þjóðverjum af kafbátnum U-464 sem sökkt hafði verið suður af Hornafirði. 1975 Ómannaða geimfarið Viking 1 leggur af stað í leiðangur til Mars. 1995 Hópur erlendra ferða- manna lendir í hrakningum á Vatnajökli. Átta voru flutt- ir með þyrlu á sjúkrahús vegna ofkælingar. 2000 Tiger Woods verður fyrsti kylfingurinn til þess að sigra á þremur stórmótum á einu ári. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Guðmundar Benediktssonar Dalbæ, Dalvík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dalbæ fyrir góða og hlýlega umönnun, einnig til lækna og hjúkrunarfræðinga á gjörgæslu- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Hermann Guðmundsson Margrét Arnþórsdóttir Ingvar Guðmundsson Sigríður Ólafsdóttir Kolbrún Hilmisdóttir afa- og langafabörn Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, Einar Einarsson frá Bjólu, lést á Grund fimmtudaginn 4. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Bestu þakkir til starfsfólks Grundar og Áss í Hveragerði. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Unnur Einarsdóttir Kristinn Gunnarsson Hafsteinn Einarsson Gíslína Sigurbjartsdóttir og fjölskyldur Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma, Alda Sigurvinsdóttir Barðastöðum 11, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. ágúst. Kristín S. Vilhelmsdóttir Atli Edgarsson Guðmundur J. Vilhelmsson Jóndís Einarsdóttir Ragna G. Vilhelmsdóttir Rudolf K. Rúnarsson Linda B. Vilhelmsdóttir Óskar G. Óskarsson Halldór G. Vilhelmsson Íris Ólafsdóttir Alda Guðlaug, Bryndís Ósk, Ragnar Björn Hanna Liv, Guðný Ása og Vilhelm Frank. Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, Jenný Oddsdóttir Kárastíg 13b, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 18. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Lárus Arnþór Brown Hjalti Már Hjaltason Hjördís Jóna Sigvaldadóttir Guðni Pálmi Oddsson Kolbrún Hansen og frændsystkini. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Skafti Kristjánsson vélstjóri, Heiðargerði 19, Akranesi, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 16. ágúst. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Erna Gréta Ólafsdóttir Kristján Jónsson Lilja Hákonardóttir Sigríður Jónsdóttir Þórir Gunnarsson Óli Þór Jónsson Jóhanna B. Andrésdóttir og afabörn. SIR FRED HOYLE (1915-2001) lést þennan dag. „Geimurinn er alls ekki afskekktur. Hann er aðeins í klukkutíma fjarlægð ef bíllinn gæti keyrt beint upp á við.“ Fred Hoyle var breskur stjarnfræðingur sem þekktur var fyrir óvenju- legar kenningar. Einnig skrifaði hann vísindaskáldsögur. timamot@frettabladid.is www.steinsmidjan.is Fyrir þrjátíu árum lagði hópur átta vaskra félaga í Hjálparsveit skáta í Reykjavík upp í ferð til Evrópu og setti stefnuna á hæsta tind álfunnar Mont Blanc. Með í för var hin 22 ára Ólafía Aðal- steinsdóttir sem varð þar með fyrst íslenskra kvenna til að stíga fæti á topp hæsta fjalls Evrópu. Slíkar ferðir voru fremur óvanalegar á Íslandi árið 1975. „Kærasti minn og mágur höfðu tveimur árum áður farið í fjalla- skóla til Austurríkis og Sviss og komu heim með vitneskju um bún- að og fatnað en það hafði verið stöðnun í þessum málum á Íslandi síðan fyrir miðja öld,“ segir Ólafía þegar hún rifjar upp aðdraganda ferðarinnar. „Maður var allan vet- urinn að safna gjaldeyri og kaupa á svörtu því þá voru gjaldeyris- höft,“ minnist Ólafía sem fór utan með fullar hendur fjár til að versla búnað- inn í ferðina en hann fékkst ekki hér á landi. „ Þ a n n i g vildi til að þetta ár var a l h e i m s m ó t skáta í Noregi og ég fór þangað fyrst. Síðan hitti ég ferðafélaga mína í Kaupmannahöfn,“ segir Ólafía en hópurinn keyrði niður alla Evrópu á tveimur bílaleigubílum. Á leið- inni fóru þau á nokkur lægri fjöll í hæðaraðlögun en Mont Blanc er rúmir 4800 metrar. Það sem kom Ólafíu hvað mest á óvart á leið sinni upp fjallið var sóðaskapurinn. „Ég var miður mín að sjá útganginn,“ segir hún en á stígnum sem lá upp fjallið mátti sjá bæði umbúðir, rusl og manna- skít. Að kvöldi fyrsta dags komu þau að hóteli í 4.500 metra hæð en það er síðasti áfangastaður fyrir loka- gönguna upp á topp. „Maður pant- aði ekki neitt heldur mætti eins og maður ætti heiminn. Þá kom í ljós að það hafði verið óveður á fjall- inu í nokkra daga þannig að skál- inn var sneisafullur af fólki sem beið eftir að komast á fjallið. Okk- ur var nú ekki hent út heldur mátt- um við gista í skógeymslu. Hins vegar urðum við að vakna um þrjúleytið um nóttina þegar göngufólkið vildi endurheimta skóna sína,“ segir Ólafía með bros á vör. Þá fengu þau að liggja í koj- um það sem eftir var nætur en ætlunin var að aðlagast hæðinni í einn dag. „Sumir verða fyrir verri hæðarveiki en aðrir,“ segir Ólafía sem lýsir henni sem ógleði á sál- inni. Þrír úr hópnum voru svo illa haldnir að þeir treystu sér ekki í síðasta áfangann. Stundin á tindinum er Ólafíu ekki sérstaklega minnisstæð. Hins vegar man hún vel eftir þeim gíf- urlegu harðsperrum sem hún fékk í maga og læri við að ganga sama dag niður allt fjallið. „Ég gat sko ekki sest í bíl dagana á eftir. Á þessum árum teygði ekki nokkur maður á,“ segir Ólafía hlæjandi. Ferð þeirra félaga vakti nokkra athygli á Íslandi. „Árið 1975 var ennþá pínulítil hippamenning og okkur fannst þetta ekkert merki- legt,“ minnist Ólafía en blöðin höfðu samband við hana við heim- komuna. „Ég vildi ekki tala við þau, hafði ekki smekk fyrir því þá,“ segir hún kankvís og bætir við að líklega kitli þetta hégóma- girndina meira núna. Mont Blanc virðist hafa eitt- hvert aðdráttarafl á fjölskyldu Ólafíu. „Börnin mín tvö hafa einnig gengið á fjallið,“ segir Ólaf- ía sem tók þá ákvörðun á toppi Mont Blanc að klífa hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro. Það tókst, 27 árum síðar. ÓLAFÍA AÐALSTEINSDÓTTIR: KLEIF MONT BLANC FYRST ÍSLENSKRA KVENNA Gistu í skóskáp á hæsta fjalli Evrópu Á TOPPNUM Ólafía á toppi hæsta fjalls Evrópu. Með henni á myndinni er Jósep Smári Jósepsson sem ákvað að hætta að reykja á toppnum. Reykti sína síðustu sígarettu og drap í henni. ÓLAFÍA AÐALSTEINS- DÓTTIR Útivist er enn eitt aðaláhugamál Ólaf- íu. Hún fór á hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro, fyrir þremur árum. JAR‹ARFARIR 11.00 Sæmundur Árni Hermannsson, Jöklatúni 3, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju. 14.00 Oddný Þorvaldsdóttir, frá Sóma- stöðum, Fáskrúðsfirði, verður jarð- sungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju. ANDLÁT Jóhanna Oddný Guðmundsdóttir Waage lést laugardaginn 6. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Guðmundur Pálsson, Södertalje, Sví- þjóð, andaðist fimmtudaginn 11. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Valgerður Ólöf Adolfsdóttir, til heimilis á hjúkrunarheimilinu Fellsenda, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 14. ágúst. Stefán Gunnarsson, frá Skipanesi, and- aðist á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, miðvikudaginn 17. ágúst. Páll G. Hannesson, fyrrverandi tollfull- trúi, Ægisíðu 86, Reykjavík, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 18. ágúst. Ragnhildur Jónsdóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum Foss- vogi fimmtudaginn 18. ágúst. AFMÆLI Ólafur Egilsson sendiherra er 69 ára. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn er 51 árs. Guðrún María Finnbogadóttir söng- kona er 36 ára. Ívar Ingimarsson knattspyrnumaður er 28 ára. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, Siggeir Ólafsson bifreiðastjóri og sölumaður, Flétturima 36, lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. ágúst. Útförin auglýst síðar. Ester Haraldsdóttir Vignir Þór Siggeirsson Katrín Jónsdóttir Haraldur B. Siggeirsson Margrét Á. Jóhannsdóttir Ólafur Karl Siggeirsson Guðlaug Edda Siggeirsdóttir Helgi Hafþórsson barnabörn og systkini hins látna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.