Fréttablaðið - 20.08.2005, Qupperneq 24
24 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Gri›asta›ur
úr jör›u
Vi› Skri›uklaustur er smám saman a› ver›a til ein-
stæ› mynd af íslensku klaustri á sí›mi›öldum. Sú
mynd gæti a› ‡msu leyti gerbreytt hugmyndum
manna um starfsemi klaustra hér á landi á fyrri tí›.
Hallgrímur Helgi Helgason tala›i vi› Steinunni
Kristjánsdóttur fornleifafræ›ing.
Neðan við bæinn Skriðu íFljótsdal hefur síðustusumur verið að opnast ný
sýn á fortíð okkar. Þar hefur al-
þjóðlegur hópur fornleifafræð-
inga undir stjórn dr. Steinunnar
Kristjánsdóttur unnið að því að
grafa upp rústir klausturs sem
hér var stofnsett árið 1493 og
starfaði næstu 50 árin til siða-
skipta en var þá lagt af. Þar sem
menn vissu lengstum ekki betur
en væri slétt tún er að koma í ljós
stærðarinnar miðaldaklaustur;
1200 fermetra kerfi bygginga
með klausturkirkju, vistarverum,
kapellu, matsal og eldhúsi, sjúkra-
húsi og kirkjugarði svo eitthvað
sé nefnt. Þessar byggingar eru
um leið að breyta viðtekinni mynd
af bæði gerð klaustra á Íslandi og
þeirri starfsemi sem þar fór fram.
Hér hefur verið sannkallaður
griðastaður á ólgu- og ófriðartím-
um í sögu þjóðarinnar.
Hin ósýnilega Íslandssaga
„Það hefur verið vani í sagnfræði
okkar til skamms tíma að beina at-
hyglinni helst að höfðingjum og
valdastéttum,“ segir Steinunn.
„Hópar eins og sjúklingar, fátæk-
lingar, smábændur og konur, þeir
hafa hins vegar orðið útundan. Það
hefur ekki þótt svo mikilvægt að
eyða bleki á fátæklingana. Á síðari
árum hafa sjónarmið þó verið að
breytast með tilkomu örsögunnar
og hinnar félagslegu sögu af al-
þýðu landsins. Þá er ekki lengur
verið að rekja sögu „stóratburð-
anna“ heldur skoða aðra þætti og
daglegt líf almennings.“
Klaustur á Íslandi tilheyrðu
ýmist reglu heilags Benedikts eða
Ágústínusar. Ágústínusarklaustrin
voru heldur lausari undan ströngu
bænahaldi og þar gafst meira svig-
rúm til að sinna þáttum eins og að-
hlynnningu sjúkra og fátækra. Þar
var jafnvel stundað skólahald fyr-
ir utanaðkomandi. Á Skriðu-
klaustri var til dæmis slíkt „ytra
skólahald“ áreiðanlega rekið í ein-
hverjum mæli.
Í reglum heilags Benedikts um
klaustur segir að munkar skuli
taka á móti gesti eins og þar væri
Kristur á ferð. Þeir eigi að fagna
honum í allri auðmýkt bæði með
bænum og beina. Sérstaka um-
hyggju skyldi sýna fátæklingum
og pílagrímum því að í þeim öðr-
um fremur væri tekið á móti
Kristi. Þvílíkt viðmót á þrautatím-
um hefur auðvitað dregið að sér
mikinn fjölda þurfandi fólks.
Þegar hefur fundist fjöldi
grafa víðs vegar um klaustur-
svæðið. Mörg beinin eru illa farin
vegna sjúkdóma, beinbrota og
áverka hverskyns og ljóst að ýms-
ir krankleikar og mein hafa hrjáð
viðkomandi. Hér hafa margir
aumir og sárir leitað lækninga og
huggunar. En einnig höfðingjar og
efnafólk sótti í klaustrin. Þetta
var allajafna svonefnt próventu-
fólk. Það lagði klaustrinu til
nokkurn styrk eða próventu og í
staðinn var beðið fyrir því allt til
efsta dags. Síðan fékk það kannski
legstað í klaustrinu sjálfu, jafnvel
í kirkjunni.
Tengd evrópskri hefð
„Þegar rætt hefur verið um
klaustur á Íslandi höfum við haft
tilhneigingu til að sjá fyrir okkur
munka að biðjast fyrir í moldar-
kofum,“ segir Steinunn. „Sú mynd
er dálítið greipt í vitund okkar.
Um leið hefur verið ýtt undir þá
hugmynd að við Íslendingar höf-
um alla tíð verið svo sérstakir, hér
hafi allt verið með öðrum hætti en
annars staðar. En svo kemur bara
allt annað í ljós. Klaustrin voru al-
þjóðlegar stofnanir og reist og
rekin alls staðar eftir nánast sömu
forskrift.“
Steinunn kom að þessu verki
fyrir hvatningu heimamanna. Þá
fýsti að vita hvar klaustrið hefði
staðið, því það var hreint ekki vit-
að með vissu. „Þá töldu menn að
klaustrið hefði staðið ofar í land-
inu, nærri bænum sjálfum. Mig
langaði hins vegar að kanna svæð-
ið fyrir neðan, þar sem gamla
kirkjan stóð áður. Enda eru kirkj-
ur alltaf hluti af evrópskum
klaustrum. Þar var að vísu bara
sléttað tún og engin sýnileg um-
merki klausturs. Við jarðsjár-
rannsóknir þar komu hins vegar
strax í ljós greinilegar bygginga-
rústir á 1200 fermetra svæði rétt
undir yfirborðinu. Við ákváðum
að gera lítinn tilraunaskurð; og þá
reyndust rústirnar liggja ofan á
gjóskulagi frá árinu 1477. Hér var
því gríðarstór bygging frá því
skömmu eftir þann tíma.“
„Síðar fengum við úthlutað úr
Kristnihátíðarsjóði og gátum haf-
ið uppgröft sumarið 2002. Enn var
þó efast um þetta verk og við ef-
uðumst líka um það sjálf. Svo árið
2003 kom kirkjugarðurinn í ljós
og byggingarnar í kring. Árið
2004 var loks engin spurning leng-
ur um að þetta væri klaustrið og
að það hefði gegnt þessu tiltekna
hlutverki.“
Að iðja og biðja
„Hingað til hefur klaustrið verið
talið fámennt, – en nú er spurning
hvort við þurfum að endurskoða
þá hugmynd eins og aðrar ef
marka má stærð og umfang
klaustursins,“ segir Steinunn.
Yfir klaustrinu ríkti príor og síð-
an hafa munkar verið um 6 hverju
sinni. Þá er óljóst um fleiri ábú-
endur; t.d. er ekki að fullu ljóst
hverjir stunduðu lækningarnar.
En þær hafa meðal annars kallað
á sérlega þekkingu á lækningar-
jurtum. Enda heyrði náttúrufræði
til menntun klausturfólks; náttúr-
an var hluti af sköpunarverki
Guðs og öll þrungin merkingu.
„Það er vitað að hér átti sér
stað skipulögð ræktun,“ segir
Steinunn. „Ýmsir hafa haldið því
fram að mikið af jurtum úr ís-
lenskri náttúru séu upprunnar úr
klaustrunum, svo sem kúmen. Við
höfum látið greina frjókorn héðan
bæði fyrir og eftir klausturbygg-
inguna. Á klausturtímanum hófst
greinilega skipulögð ræktun hér,
og þrjár af tíu tegundum sem þá
voru ræktaðar voru ekki til hér á
landi áður. Síðan bendir ýmislegt
til þess að hjúkrun hafi verið
stunduð á þessum stað meira að
segja fyrir tíma klaustursins.
Þessum þætti sögunnar hefur
bara ekkert verið sinnt.“
Fjörbrot kaþólskunnar
En hvers vegna rís klaustur svo
seint á Austurlandi, þegar klaust-
ur í öðrum landsfjórðungum risu
mörg hundruð árum fyrr?
„Ég gæti trúað að ástæður þess
séu margþættar. Ef við horfum á
Ísland þá voru flest klaustrin
stofnuð hér á 12. og 13. öld. Síðan
voru aftur stofnuð klaustur í lok
15. aldar. Hliðstæð þróun var í
öðrum löndum, nema bara svolítið
fyrr; þar risu fyrstu klaustrin á
10., 11. og 12. öld og síðan aftur
rétt fyrir siðaskipti. Þetta gæti
bent til þess að mönnum hafi þótt
ástæða til að styrkja stofnanir
kaþólsku kirkjunnar gegn aðvíf-
andi ógn. Þetta er líkt og með
heiðnina; margar sterkustu minj-
ar um heiðnina eru frá því rétt
fyrir kristnitöku, þegar hún átti
hvað helst í vök að verjast.“
En nú skellur á Pestin síðari í
lok 15. aldar, skömmu áður en
klaustrið hér er stofnað. Getur
það líka hafa ýtt undir stofnun
klaustursins hér?
„Mér finnst það ekki ólíklegt.
Hér á Austurlandi var ekkert
klaustur lengi vel. Ég vil meina að
það hafi hreinlega verið orðin til
þörf á því. Þetta hefur verið afar
stór stofnun og skipt verulegu
máli, a.m.k. hér í fjórðungnum. Við
sjáum það bara á byggingunum,
þær hafa verið einir 1200 fermetr-
ar á tveimur hæðum. Kirkjan sjálf
er a.m.k. nokkur hundruð fermetr-
ar. Kórinn einn er 75 fermetrar.“
Hér hefur auk kirkjunnar ver-
ið kirkjugarður, klausturgarður
með brunni, svefnskálar, matsal-
ur og eldhús. Þar hefur einnig
verið upphitað herbergi sem not-
að var til læknisaðgerða. Enda
hafa fundist þar lækningatól þess
tíma, svokallaðir bíldar til blóð-
töku og glös. Við kór kirkjunnar
hefur síðan að líkingum verið það
sem oft er nefnt parlatorium
(sbr. parler: að tala); sérstakar
vistarverur til samræðna klaust-
urbræðra; en ekki var ætlast til
að menn sætu á skrafi hvar sem
er á slíkum stað.
Kannski skiptir bakgrunnur
fræðimannsins máli
Fornleifauppgröftur er annars
þolinmæðisverk. Er eitthvað sem
rekur Steinunni áfram öðru
fremur við svona verk? Einhver
leiðandi hugsun eða spurning?
„Ég hef bara brennandi áhuga
á þessu. Ég er kannski svona of-
boðslega tengd mínu áhugasviði.
En ég hef tekið eftir því, og
kannski er það að framkallast
betur með þessum póstmódern-
isma og örsögu á síðari árum, að
ég hef sífellt meiri áhuga á því
sem er síður sýnilegt. Ég fékkst
við sambærileg verk í doktors-
verkefninu mínu þar sem ég
kannaði vísbendingar um kristni-
töku almennings í gegnum forn-
leifar. Kristnitakan hefur hingað
til nánast eingöngu verið skoðuð í
gegnum ákveðna valdhafa. Ég
pæli oft í því hvort slík afstaða
tengist bakgrunni þess sem er að
rannsaka.“
„Þessi staður skilur sig ann-
ars frá öðrum þar sem forn-
leifagröftur hefur farið fram
hérlendis vegna þess að hann er
svo afmarkaður,“ segir Steinunn.
„Fornleifagröftur getur oft orðið
eilífðarverkefni. En hér getum
við lokið verkinu af og fengið
grunnupplýsingar sem hægt er
að nota á mörgum stöðum öðr-
um.“
Erlendir starfsmenn verkefn-
isins eru styrktir af Evrópusam-
bandinu. En sá styrkur er skil-
yrtur styrknum frá Kristnihátíð-
arsjóði. Og nú er sá styrkur að
verða uppurinn.
„Á næstu vikum er von á hóp
erlendis frá sem mun ganga frá
svæðinu svo hægt sé að skoða
það. Reistir verða 50 cm háir
veggir og þeir fylltir, sett við-
arkurl í herbergin og svo skilti.
Hins vegar verðum við að skilja
talsverðan hluta svæðisins eftir
ókannaðan. Það er sem sagt ein-
sýnt að hætta verður verkinu
nánast í miðjum klíðum nema
annað komi til.“
„Mér hefur flogið í hug hvort
ekki megi nota hluta fjárins
vegna sölu Landsímans til að efla
rannsóknir á Íslandi, líka rann-
sóknir á íslenskri menningu.
Einnig mætti stofna sérstakan
fyrirtækjasjóð í sama skyni. Því
þetta er nú einu sinni saga okk-
ar,“ segir Steinunn Kristjáns-
dóttir að lokum.
STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR OG RAGNHEIÐUR GLÓ GYLFADÓTTIR yfir einni gröfinni. Beinin bera mörg merki sjúkdóma og
meina og á þessa vantaði bæði allar tennur og fæturna.
UPPDRÁTTUR AÐ ÁGÚSTÍNUSARKLAUSTRI í Utstein í Noregi en klaustrið að Skriðu
er sömu gerðar og það.
Stökktu til
Costa del Sol
24. eða 31. ágúst
frá kr. 29.990
Bjóðum frábært tilboð til Costa del
Sol í ágúst. Njóttu lífsins á þessum
vinsælasta áfangastað Íslendinga í
sólinni. Þú bókar og tryggir þér
síðustu sætin og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú býrð.
29.990 í viku /
39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð. Flug, gisting, skattar
og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð
24. og 31. ágúst í 1 eða 2 vikur.
39.990 í viku /
49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í
herbergi/stúdíó/íbúð. Flug, gisting,
skattar og íslensk fararstjórn. Stökktu
tilboð 24. og 31. ágúst í 1 eða 2 vikur.
Síðustu sætin