Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 29
Helga J. Gísladóttir vek-
ur óhjákvæmilega at-
hygli þegar hún brunar
um götur borgarinnar á
græna, gamla sportbíln-
um sínum, Morgan +4
sem er handsmíðaður.
„Ég bjó í Stokkhólmi um
tíma meðan maðurinn
minn var þar við nám og þá
keypti ég þennan bíl. Þetta
var 1970-71,“ segir Helga
Jenný Gísladóttir sem ekur
um stræti á glæsilegum
grænum Morgan +4. Hún
kveðst hafa verið auralítil
á þessum tíma og eignast
bílinn með afborgunum en
á meðan hafi hann staðið
inni í skúr hjá fyrri eig-
anda. „Maðurinn vildi endi-
lega selja mér bílinn en
geymdi hann þar til ég var
búin að borga hann upp.
Það tók sjö mánuði. Hann
keypti sér svo annan fjög-
urra sæta því hann átti orð-
ið fjölskyldu. En við sigld-
um heim með Gullfossi
1971 með okkar græna bíl
og notuðum hann dálítið
fyrst meðan við áttum eng-
an annan,“ segir Helga og
bætir við hlæjandi: „Það er
reyndar frekar erfitt fyrir
mig að keyra hann því ég
er svo stutt í annan endann.
En það hefst nú samt.“
Morganinn er af árgerð
1958. Helga segir hann hafa
verið eins og nýjan þegar
hún fékk hann og þannig sé
hann enn. „Þetta eru bresk-
ir bílar og þeir eru hand-
smíðaðir,“ lýsir hún og
kveðst tvívegis hafa komið
í verksmiðjurnar. Í annað
skiptið bauð hún tveimur
vinum með út sem höfðu
hjálpað henni að gera við.
Ekki veit hún hversu mikið
bíllinn er keyrður en segir
það mjög lítið miðað við
aldur. Hún kveðst hafa haft
bíladellu þegar hún var
yngri en svo sé ekki lengur.
Samt á hún annan sportbíl,
sá er Mercedes Bens og er
notaður til allra snúninga
en Morganinn bara spari.
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
-
9
0
4
0
3
7
9
agstæð sumarhúsalán
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað?
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt sumar-
húsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Lánið
getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til
framkvæmda er lánað allt að 75% af byggingar-
kostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar
nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
www.frjalsi.is
5 ár 18.850 19.100 19.560 19.800
10 ár 10.580 10.850 11.350 11.610
15 ár 7.880 8.170 8.710 8.990
* Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00%
Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
60%veðsetningarhlutfall
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 20. ágúst,
232. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.34 13.31 21.26
AKUREYRI 5.09 13.16 21.20
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Frekar erfitt að ná niður
Helga notar Morganinn bara spari.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Góði Guð, pass-
aðu mömmu og
hafðu líka auga
með pabba!
Mégane coupé cabriolet reynsluekið
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
Meðal ferða Útivistar á næst-
unni er fimm daga gönguferð
um Sveinstind-Skælinga og
áfram Strútsstíg í skálann undir
Strút. Þar má bæði ljúka ferð,
byrja eða taka hvíldardag og
halda svo áfram. Óvenjulegt
sjónarhorn yfir Mælifellssand,
Kaldaklof og Emstrur fæst þeg-
ar farið er upp á jökulsléttu
Mýrdalsjökuls og gengið fyrir
upptök Bláfjallakvíslar og Innri-
Emstruár að Entujökli, sem er
eitt fjölmargra leyndarmála
Fjallabaksins. Eftir að hafa gist
í Botnum verður arkað í Bása.
Leiðarval ræðst af veðri og
áhuga ferðalanga en eitt er víst
að endað verður í grilli og til-
heyrandi afmælisfjöri í Básum.
Önnur ganga er yfir Fimm-
vörðuháls. Þá verður farið um
Drangshlíðardal og upp með
Skógaá að vestan, yfir Fimm-
vörðuháls og um Hvanngil í
Bása. Auk þessa eru bæði
dagsferðir og kvöldferðir í Bása
í tilefni afmælisins. Nánar er
sagt frá ferðunum á www.uti-
vist.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
Afmælisfjör hjá Útivist
ÚTIVIST FAGNAR 30 ÁRA AFMÆLI Í LOK ÞESSA MÁNAÐAR.
Horft af Sveinstindi yfir Langasjó og Fögrufjöll.
M
YN
D
/I
N
G
IB
JÖ
RG
E
IR
ÍK
SD
.
M
YN
D
/S
IG
U
RG
EI
R
SI
G
U
R
JÓ
N
SS
O
N
Hjá Ford í Bandaríkjunum telja
menn að ný 16 milljón dollara
öryggisprófunaraðstaða muni
koma farartækjum tíu mánuð-
um fyrr á vegina. Aðstaðan er
hluti af 65 milljón dollara til-
raun fyrirtækisins til að minnka
útgjöld og laga sig að breyttum
markaði. Nú tekur það Ford um
28 mánuði að setja bifreið á
markað frá því að hönnun er
lokið. Hjá Ford ætla menn að
stytta þennan tíma í 18 mán-
uði um mitt ár 2007. Í nýju að-
stöðunni eru meðal annars til-
raunastofur þar sem verkfræð-
ingar geta prófað hve vel farar-
tækin hindra höfuðmeiðsl.
Forráðamenn Toyota,
stærsta bílafram-
leiðanda Japans,
ætla nánast
að tvöfalda framleiðslugetuna í
verksmiðju sinni í Suður-Afríku
árið 2007. Þessi áætlun er hluti
af stefnumörkun fyrirtækisins til
að stækka við sig erlendis.
Verksmiðjan, sem stjórnað er af
dótturfyrirtækinu Toyota South
Afrika Motors, mun auka af-
kastagetu sína í 200.000 farar-
tæki á ári en getan er nú
110.000 farartæki. Árið 2007 er
búist við að í verksmiðjunni
verði settir saman 120.000
jeppa- og pallbílar. Farartækin
verða flutt á evrópskan markað
þar sem einingasala Toyota
jókst um tíu prósent, upp í
916.000 farartæki, frá árinu
áður.
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
MORGAN +4
Framleiðsluland:
Bretland
Árgerð: 1958
Vél: Standard
Vanguard 200
kúbik
Hestöfl: Um 80
Gírkassi: Jagúar
atvinna@frettabladid.is