Fréttablaðið - 20.08.2005, Qupperneq 30
Bifreiðaskoðun
Bíla þarf að fara reglulega með í skoðun og segir síðasti stafurinn í bílnúmerinu
til um hvaða mánuð ársins á að skoða bílinn. Ef meira en þrír mánuðir eru
liðnir frá því að skoða átti bílinn getur lögregla sektað eigandann.[ ]
REYNSLUAKSTUR
Partur–Spyrnan–Lyftarar
Eldshöfða 10
s. 585 2500 og 567 8757
TRIO
G O L F H J Ó L
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
Capri-stemning á götum Reykjavíkur
Mégane CC Cabriolet er glæsilegur, líka áður en blæjan hefur verið tekin niður. Í raun sést ekki að um blæjubíl sé að ræða.
Mégane Coupé Cabriolet er
óneitanlega bíll sem vekur at-
hygli, í það minnsta sé honum
ekið með blæjuna niðri. Hann
er straumlínulagaður og
sportlegur eins og hæfir bíl af
þessari gerð.
Mégane Coupé Cabriolet lítur í
fljótu bragði út eins og sportlegur
tveggja dyra bíll. Í raun er ekkert
sem gefur til kynna að á ferðinni
sé blæjubíll. Hins vegar hverfur
toppur bílsins, sem að stærstum
hluta er gler, ofan í skottið eins og
hendi sé veifað, á aðeins 22 sek-
úndum, sé ýtt á einn takka. Skott-
ið fer þó ekki allt undir þennan
búnað því plastþynna afmarkar
plássið sem nota má undir farang-
ur þótt blæjan eigi að komast nið-
ur. Standi ekki til að taka niður
blæjuna gengur plastþynnan inn í
stokk og skottið getur nýst til fulls
undir farangur.
Blæjubíll og Ísland gæti hljóm-
að illsamræmanlegt en eins og Mé-
gane CC er byggður gengur þetta
fullkomlega upp. Það er nefnilega
ekki bara að utan sem ekkert gefur
til kynna að um blæjubíl sé að
ræða, sé toppurinn uppi. Þá er bíll-
inn algerlega þéttur og í engu frá-
brugðinn venjulegum sportlegum
bíl. Annað sem hlýtur að teljast
kostur í íslenskri veðráttu er að
unnt er að hafa hliðarrúðurnar
uppi þótt þakið sé niðri og þær má
taka upp og niður með einum takka
í miðjustokknum við hliðina á þeim
sem ýtt er á til að taka niður topp-
inn. Rúðurnar veita þannig skjól
gegn vindi sem stundum fylgir sól-
ríkum dögum.
Mégane CC er fulltrúi Mégane-
fjölskyldunnar og ber þess merki á
allan hátt. Sætin eru þægileg og
halda vel utan um bílstjóra og far-
þega, aðgengi að mælum og hnöpp-
um er notendavænt og útlitið nú-
tímalegt og skemmtilegt. Geymslu-
hólf eru líka aðall þessara bíla og
standa fáar tegundir þeim á sporði
í fjölda og stærð þeirra. Loks er að
geta öryggismála en bíllinn er bú-
inn ESP-stöðugleikastýringu og
sex loftpúðum, svo eitthvað sé
nefnt, og Mégane-línan hefur kom-
ið afar vel út úr öryggisprófunum
upp á síðkastið.
Mégane Coupé Cabriolet er í
boði með 1600 og 2000 bensínvél-
um og 1900 dísilvél. Reynsluekið
var bíl með 1600 en undirrituð tel-
ur að bílinn klæði líklega betur
2000 vél. Blæjubíll af þessari
stærðargráðu má vera snarpari
en þessi bíll getur orðið með 1600
vél. steinunn@frettabladid.is
Harley-Davidson eigendur verða á Aust-
urvelli til klukkan 17 í dag.
Kringum Tjörnina á
Harley-Davidson
HARLEY-DAVIDSON-EIGENDUR Á ÍS-
LANDI BJÓÐA FÓLKI Á RÚNTINN Í
DAG.
Hefur þig alltaf langað til að þeysa
um borgina á Harley-Davidson-mót-
orhjóli? Í dag ætla Harley-Davidson-
eigendur á Íslandi að bjóða þeim
sem leggja leið sína í miðbæinn að
stökkva á bak og skella sér á rúntinn.
Einn rúntur aftan á Harley hjóli hring-
inn í kringum Tjörnina kostar 500
krónur. Öll innkoma rennur til lang-
veika barna. Lagt er af stað frá Aust-
urvelli en þar bíða kapparnir með
hjólin sín til klukkan 17 í dag.
Umhverfi bílstjórans er aðgengilegt, stíl-
hreint og nokkuð smart eins og alltaf
þegar Renault á í hlut.
Blæjubíllinn myndar skemmtilega and-
stæðu við rigninguna í Heiðmörk.
Toppur bílsins hverfur ofan í skottið eins
og hendi sé veifað.
Baksvipurinn er sportlegur þegar búið er
að taka niður blæjuna.
MEGANE CC
1600 vél 115 hö
Dynamique Comfort-útgáfa með svörtu
áklæði og innréttingu með burstuðu
stáli, samlitum hliðarspeglum, krómuð-
um hurðaropnurum, leðurklæddu stýri,
gírhnúð og gírpoka og 16“ Nervastella-
álfelgum.
Verð: kr. 2.470.000
Sjálfskipting kostar 150.000 krónur