Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 44
Tölvu- og símasambandslaus að grilla
Sævar Finnbogason, auglýsingamaður, söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni
Stingandi strá, myndi vilja fara í vesturátt um draumahelgina sína. „Ég myndi
vilja fá að ráða veðrinu líka, hafa sólskin og 18-20 gráðu hita, sem eru kjörað-
stæður fyrir mann eins og mig. Svo væri lykilatriði að fara á einhvern stað þar
sem er ekkert tölvusamband eða símasamband því ég hef tilhneigingu til að
fara að vinna ef ég kemst í þessi tæki. Ég þarf að hafa vit fyrir sjálfum mér.
Mest myndi mig langa til að komast á Vestfirðina því það er ýmislegt sem ég
þarf að gera þar. Ég þarf að keyra Dýrafjörðinn og fyrir hornið þar, ævintýraleg-
an veg sem ég hef ætlað mér að aka í nokkur ár. Vegurinn hangir utan í fjallinu
og er mjög spennandi. Svo þyrfti ég líka að ganga upp á svo sem eins og eitt
fjall og grilla. Mikið. Mér finnst gaman að grilla og enn þá meira gaman að
borða grillmat. Ég veit ekki hvort það sést á mér en ein helsta nautnin í mínu
lífi er að borða góðan mat. Ég tek með mér fjölskylduna, konuna og krakkana
tvo, það er ekkert varið í ferðalag án þess að þau séu með.“
Sævar Finnbogason
vildi vera símasambandslaus í faðmi fjölskyldunnar og grilla á Vestfjörðum.
DRAUMAHELGIN
Öldungadeild MH
Ný stundatafla
Innritun lýkur í dag 20 ágúst
kl. 10 – 14
Einnig eru unnt að innrita sig
á vefnum
www.mh.is
TILBOÐSVIKA
11.-18. MARS
10-40% afsláttur af öllum vörum
að auki 5% staðgreiðsluafsláttur
ÓKEYPIS NAFNGYLLING
FYLGIR ATSON-LEÐURVÖRUM
Leðuriðjan ehf.
Brautarholti 4, 105 Rvk.
S: 561 0060 • atson@atson.is
Opið: mán.-fös. 10-18
TILBOÐSDAGAR
22. ÁGÚST - 2. SEPTEMBER