Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 50
34 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
SENU
ER Í FULLUM GANGI
FRÍR ÍS
Á AKTU TAKTU
FYRIR ALLA SEM MÆTA Á LAGERSÖLUNA!
TÓNLIST
TÖLVULEIKIR
DVD
FYLLTU Á SAFNIÐ FYRIR SMÁAURA
299kr 499kr
699kr 999kr
OPIÐ 11-20
ALLA DAGA
LAGERSALA SENU FELLSMÚLA 28
(gamla World Class húsinu)
„Það var bara hringt í mig og mér
leist svo vel á starfið að ég ákvað
að slá til,“ segir fjölmiðlakonan
Lóa Pind Aldísardóttir en hún hef-
ur tekið við nýju starfi á Talstöð-
inni í fréttatengda þjóðmálaþætt-
inum Allt og sumt. „Ég tek við af
Helgu Völu Helgadóttur en hún
ætlar að setjast á skólabekk í Há-
skólanum í Reykjavík. Leikkonan
er nú að fara að læra lögfræði,“
segir Lóa en hún á tíu ára reynslu
af frétta- og blaðamennsku að
baki. Lóa hefur verið í fæðingar-
orlofi síðastliðið ár en áður en hún
fór í orlof gegndi hún starfi rit-
stjóra tímaritsins Hús og hýbýli í
þrjú ár. „Ég var búin með minn
tíma í þeim geira og er mjög
ánægð að vera að fara að takast á
við nýja hluti,“ segir Lóa en hún
stýrir þættinum í samstarfi við
Hallgrím Thorsteinsson og Helga
Seljan. „Ég verð líka að viður-
kenna að ég hef meiri áhuga á
þjóðmálunum en sófum og eld-
húsinnréttingum.“
Lóa hóf störf á Talstöðinni á
mánudaginn. „Ég hef ekki tekið
þátt í umræðum í beinni útvarps-
útsendingu áður og þarf að venj-
ast því að geta brugðist skjótt
við,“ en útvarpsmiðillinn er fyrr-
um ritstýrunni þó ekki algjörlega
framandi. „Ég vann einu sinni í
hálft ár sem fréttamaður á Rás 1.
Þar var maður stundum í beinni
en alltaf með texta á blaði fyrir
framan sig sem maður var búinn
að undirbúa vel. Það verður því ný
reynsla að vera með þriggja tíma
þátt sem byggist bæði á pistlum
og svo viðtölum og umræðum þar
sem allt getur gerst. ■
fijó›mál frekar en innréttingar
LÓA PIND ALDÍSARDÓTTIR
Fyrrverandi ritstýra Húsa og Hýbýla tekur
nú við af Helgu Völu Helgadóttur í Allt og
Sumt á Talstöðinni.
„Já, það er ekkert skrítið að allt
hafi þurrkast út af diktafóninum
þínum eftir að við höfðum rætt
um þessi draugamál áðan. Ég þori
ekki fyrir mitt litla líf að minnast
á draugana aftur,“ segir Benedikt
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Draugasetursins á Stokks-
eyri, eftir að fyrra samtal hans
við blaðamann þurrkaðist út af
upptökutæki hins síðarnefnda.
„Það er alls ekki þorandi að tala
um þessa hluti.“
Samtalið fjallaði um heljarinn-
ar draugasýningu sem Drauga-
setrið á Stokkseyri stendur fyrir í
dag í gamla Morgunblaðshúsinu,
húsi Tryggingamiðstöðvarinnar,
Aðalstræti 6, og hefst hún klukk-
an 13. „Þarna verða allir fræg-
ustu og merkustu draugar Ís-
landssögunnar, svo sem Djákninn
á Myrká og ýmsir mórar og skott-
ur.“
Hús Tryggingamiðstöðvarinn-
ar hefur verið klætt í draugabún-
ing af þessu tilefni og er ekki loku
fyrir það skotið að stemningin í
húsinu verði öll hin skelfilegasta í
dag því Þór Vigfússon, stjórnar-
formaður Draugasetursins, segir
að draugar séu ákaflega félags-
lyndar verur sem finnist gaman
að láta á sér kræla í mannfögnuð-
um. Í dag er einmitt Menning-
arnótt og ætti miðbærinn því að
verða stútfullur af fólki.
„Það væri undarlegt ef draug-
arnir fylgdu okkur ekki til
Reykjavíkur á laugardaginn því
mér fylgir oft einhver móri sem
hefur svo gott lag á því að stríða
mér. Það hefur til dæmis oft gerst
að þegar ég stíg inn í bankann
minn á Selfossi fara allar snúr-
urnar í húsinu úr sambandi. Þá
segir afgreiðslufólkið við mig að
þetta sé mér að kenna því ég hafi
tekið drauginn minn með mér.
Það er svo komið að afgreiðslu-
fólkið er farið að segja hvert við
annað þegar ég kem í bankann:
Vistið allt því Þór er að koma!“
segir Þór.
„Það verða vaktir upp draugar
og svo verða þeir kveðnir niður
aftur, í það minnsta á ég von á því
að Tryggingamiðstöðin muni
tryggja að svo verði því ekki vilja
menn hafa drauga á sveimi í hús-
inu sínu. Ég veit ekki til þess að
þarna hafi nokkru sinni verið
draugur en miðað við öll þau skrif
sem þarna hafa farið fram í gegn-
um tíðina kæmi það mér ekkert á
óvart.“
Prestlærður maður frá Sel-
fossi, Kristinn Á. Friðfinnsson,
mun taka þátt í uppákomunni og
mun hann leika forföður sinn,
séra Tómas í Villingaholti, sem
uppi var um 1800. Tómas þessi
var fenginn til að ráða niðurlög-
um uppvaknings erlends bakara
sem jarðaður var í kikjugarðinum
í Villingaholti eftir að skip sem
hann var farþegi á sökk í miklu
mannskaðaveðri úti fyrir strönd-
um Suðurlands og verður uppá-
koman byggð upp á þeirri sögu,
sem til er í mörgum myndum á
Suðurlandi. „Það má segja að það
sé hlutverk okkar prestanna að
kveða niður drauga í lifanda lífi
og því er þetta vel. Almúgamönn-
um á Suðurlandi tókst ekki að
kveða niður draug bakarans og
því var séra Tómas kallaður til og
eins er um mig núna, “ segir
Kristinn.
Draugagangurinn í húsi
Tryggingamiðstöðvarinnar mun
standa til klukkan 21 í kvöld og
kannski enn lengur ef ekki tekst
að bæla myrkraöflin niður með
guðsorði og góðri trú. ■
Draugar kveðnir niður í
gamla Morgunblaðshúsinu
DRAUGAGANGUR Í GAMLA MORGUNBLAÐSHÚSINU Draugasetrið á Stokkseyri stendur fyrir óhugnalegri galdrasýningu í húsi
Tryggingamiðstöðvarinnar í Aðalstræti í dag í tilefni Menningarnætur.