Fréttablaðið - 20.08.2005, Page 65
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2005
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3
110 Reykjavík
Sími: 591 9000
www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Salou
Súpersól 26. ágúst og 2. sept.
Frá kr. 24.995
Síðustu sætin
Terra Nova býður síðustu sætin til Salou í
ágúst ótrúlegum kjörum. Salou er
fallegur bær á Costa Dorada ströndinni,
sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura,
glæsilegasti skemmtigarður Spánar.
Salou skartar stórkostlegum ströndum,
fjölbreyttri afþreyingu og litríku næturlífi.
Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Kr. 24.995 í 5 daga /
34.990 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
Súpersól tilboð, 26. ágúst og 2. sept. í 5
eða 12 daga.
Kr. 34.995 í 5 daga /
44.990 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna.
Súpersól tilboð, 26. ágúst í 5 eða 12 daga.
Bandaríski gamanleikarinn Rob
Schneider er væntanlegur til
landsins næstkomandi þriðjudag
til að kynna gamanmyndina Deuce
Bigalow European Gigolo.
Schneider verður viðstaddur
boðsýningu á vegum FM957 á mið-
vikudagskvöldið í Smárabíói og að
sýningunni lokinni ætlar hann að
skemmta sér í eftirpartíi á
skemmtistað í miðborginni. Síðan
ætlar hann að skoða helstu ferða-
mannastaði, slappa af í Bláa lóninu
og kynna sér næturlíf borgarinnar
áður en hann kveður land og þjóð.
Deuce Bigalow European
Gigolo verður frumsýnd föstudag-
inn 9. september í Smárabíói,
Regnboganum og Borgarbíói Akur-
eyri. ■
Nýr íslenskur veruleikaþáttur
verður frumsýndur á sjónvarps-
stöðinni Sirkus á næstu mánuðum.
Verður hann sýndur á fimmtudags-
kvöldum klukkan 22.00.
Tökur á þættinum, sem hefjast
von bráðar, fara mestmegnis fram
í útlöndum og mun þetta verða
veruleikaþáttur af gerð sem hefur
aldrei áður sést á Íslandi. Tölverð-
ur fjöldi Íslendinga verður í
þættinum, sem verður í ætt við
hinn gríðarvinsæla Survivor.
Alls verða níu íslenskir þættir
sýndir á Sirkus í vetur. Eins og
Fréttablaðið greindi frá síðastlið-
inn sunnudag sjá þau Vala Matt og
Hálfdán Steinþórsson um hönnun-
ar- og lífsstílsþáttinn Veggfóður
sem hefst 29. ágúst. Kvöldþáttur
Guðmundar Steingrímssonar mun
halda áfram auk þess sem frétta-
þátturinn Sirkus RVK verður á
dagskrá frá mánudegi til fimmtu-
dags. Um verður að ræða stutt
innskot þar sem kynnt verður
hvaða afþreying er í boði fyrir
Reykvíkinga og nærsveitamenn
þá vikuna.
Idol Extra færist frá Popptíví
yfir á Sirkus en þar verður fylgst
með Idol-keppninni á bak við
tjöldin, auk þess sem Súpersport
verður á dagskrá. Þar kynnir
Bjarni Bærings jaðaríþróttir í
stuttum þáttum. ■
Scnheider kemur á flri›judag
ROB SCHNEIDER Gamanleikarinn er á leiðinni til Íslands til að kynna sína nýjustu kvik-
mynd.
Tökur á veruleika-
flætti a› hefjast
SURVIVOR Íslenskur veruleikaþáttur í anda Survivor verður sýndur á Sirkus á næstunni.