Fréttablaðið - 02.10.2005, Qupperneq 14
Kári á Rógvi er varafor-
ma›ur stjórnarskrár-
nefndar Færeyja sem
vinnur a› samningu fær-
eyskrar stjórnarskrár.
Hann saknar samrá›s vi›
Íslendinga um stjórnar-
skrármál, en hann telur
frændfljó›irnar eiga
margt sameiginlegt í
fleim efnum.
Svo vill til, að á sama tíma og Ís-
lendingar eru að vinna að endur-
skoðun sinnar stjórnarskrár eru
Færeyingar að semja sér stjórnar-
skrá og Grænlendingar að endur-
skoða sitt ígildi stjórnarskrár,
heimastjórnarlögin.
Kári á Rógvi er varaformaður
færeysku stjórnarskrárnefndarinn-
ar, sem undanfarin tvö ár hefur
unnið að samningu stjórnarskrár
fyrir Færeyjar. Kári er í doktors-
námi í stjórnskipunarrétti við Há-
skóla Íslands, en lögfræðimenntun
sína hefur hann áður sótt til Kaup-
mannahafnar og Aberdeen í
Skotlandi. Hann flutti í vikunni er-
indi við Háskólann á Akureyri um
drögin sem fyrir liggja að fær-
eyskri stjórnarskrá.
Í samtali við Fréttablaðið segist
Kári sakna þess að grannþjóðirnar
hafi með sér meira samráð um
stjórnarskrármál. „Við deilum allir
sömu dönsku hugtakaarfleifðinni í
stjórnlagarétti,“ bendir Kári á. Það
gæti því að hans mati gagnast öllum
– Íslendingum, Færeyingum og
Grænlendingum – að koma sér upp
fastmótaðra samráði á þessu sviði.
„Ef til vill eru Íslendingar að
gleyma því
að Ísland
var, þar til
fyrir tiltölu-
l e g a
skömmu, í
n á n u m
tengslum við
annað land,“
segir hann
sem tilgátu
um orsakirn-
ar fyrir því
að Íslending-
ar hafi sýnt
því sem verið er að hugsa um
stjórnarskrármál hjá næstu ná-
grönnum okkar eins lítinn áhuga og
raun ber vitni. Kári bendir á að fær-
eyska stjórnarskrárnefndin hafi
lagt sig eftir því að kynnast því
hvað Íslendingar væru að hugsa um
þessi mál en sér virtist áhuginn ekki
vera eins mikill á hinn veginn. Að
vísu hafi íslenzkir fræðimenn, svo
sem Eiríkur Tómasson og Sigurður
Líndal, mætt á ráðstefnu sem fær-
eyska stjórnarskrárnefndin hélt er
hún hóf sitt starf árið 2003, en eng-
inn fulltrúi í sjálfri stjórnarskrár-
nefndinni hefði gert það.
Að mati Kára eru viðfangsefnin
þó svo áþekk að samráð ætti að
vera öllum í hag. Til dæmis séu
stjórnlagaleg vandamál varðandi
milliríkjatengsl ekki aðeins eitt-
hvað sem Færeyingar séu að kljást
við vegna sambandsins við Dan-
mörku, heldur valdi alþjóðavæðing
nútímans, EES-samstarfið, aðild að
Mannréttindadómstól Evrópu og
fleira því að Íslendingar komist
ekki hjá því að finna einnig lausnir
á slíkum vandamálum til að þeirra
stjórnarskrá standist kröfur tím-
ans.
Kári segir vinnu færeysku
stjórnarskrárnefndarinnar hafa
gengið mjög vel. Nær einstök
pólitísk samstaða ríki þvert á alla
flokka um starf hennar, en eins og
kunnugt er greinir Færeyinga til
dæmis mjög á um hvernig sam-
bandinu við Danmörku skuli hátt-
að. Allir séu sammála um að í þessu
sögulega plaggi sé fest á blað það
sem allir geti verið sammála um
varðandi stjórnskipun eyjanna, svo
sem að þær séu land og Færeying-
ar þjóð í þjóðréttarlegum skilningi.
Að sögn Kára er stefnt að því að
leggja stjórnarskrárdrögin fyrir
Lögþingið í lok næsta árs, en svo
vill til að á sama tíma er stefnt að
því að íslenska stjórnarskrár-
nefndin leggi fram sitt frumvarp
að breytingum á stjórnarskránni.
Kári segir færeysku nefndina
munu standa fyrir annarri opinni
ráðstefnu um stjórnarskrána á
komandi ári og vonast til að Íslend-
ingar láti sjá sig þar.
Í þeim drögum sem þegar liggja
fyrir að hinni nýju stjórnarskrá
Færeyja er kveðið á um að eyjarn-
ar geti verið í ríkjasambandi við
annað eða önnur lönd. „Þetta er
hins vegar almennt orðað, ekki
bundið við Danmörku,“ bendir
Kári á. Með því að orða þetta svona
geti bæði sjálfstæðis- og sam-
bandssinnar stutt stjórnarskrána.
„Fræðilega gætum við samkvæmt
þessu valið að ganga í ríkjasam-
band við Ísland,“ bætir Kári við.
Til að færeyska stjórnarskráin
gangi í gildi þarf hún að hljóta sam-
þykki Lögþingsins tvisvar (með
kosningum á milli, rétt eins og gild-
ir um breytingar á íslensku stjórn-
arskránni) og auk þess er stefnt að
því að haldin verið þjóðaratkvæða-
greiðsla um hana.
audunn@frettabladid.is
14 2. október 2005 SUNNUDAGUR
Færeyingar eru að semja sér stjórnarskrá.
Er þeir hófu það starf tóku þeir ákvörðun
um að byrja svo að segja með hreint
borð, sem þýðir í reynd: Þeir vildu ekki
láta danskar stjórnskipunarréttarhefðir
setja starfinu skorður. Varafor-
maður færeysku stjórnarskrár-
nefndarinnar, Kári á Rógvi,
orðaði þetta viðhorf nefnd-
armanna í erindi sem hann
hélt um efnið við Háskólann
á Akureyri í vor með enska
orðatiltækinu „anything
goes“ – allt er leyfilegt. Eins
og sjá má af þeim drögum sem nú
liggja fyrir að færeyskri stjórnar-
skrá (sjá: http://www.grund-
log.fo/uploads/Fyrra%20flagdagsálit.pdf) hef-
ur þessi nálgun að verkefninu skilað athyglis-
verðum afrakstri. Þessi afrakstur færeysku
stjórnarskrársmíðinnar vekur menn til um-
hugsunar um þá staðreynd að íslenska stjórn-
arskráin er að grunni til erfðagóss
frá þeirri tíð er Ísland var hluti af
danska konungsríkinu, rétt eins og
Færeyjar eru ennþá. Það má jafn-
vel ganga svo langt að segja að
það eina sem er íslenskt við
stjórnarskrána eru þær breyting-
ar sem gerðar hafa verið á henni
síðan árið 1920, en þær breyt-
ingar takmarkast við aðra kafla
en þá sem varða sjálfan grund-
völl stjórnskipunarinnar.
Sjálfvaldar skorður
Bjarni Benediktsson, nýr varaformaður íslensku
stjórnarskrárnefndarinnar, telur brýnast að
breyta fyrstu tveimur köflum stjórnarskrárinnar,
sem varla hefur nokkuð verið breytt frá upphafi,
það er frá því við þáðum stjórnarskrána að gjöf
frá Dönum og skiptum síðan við lýðveldisstofn-
un ákvæðum hennar um konunginn út fyrir
ákvæði um forsetann. Þetta „danska erfðagóss“
setur stjórnarskrárendurskoðunarstarfi Íslend-
inga skorður. En það er sjálfvalið. Bjarni tekur
fram í viðtali hér á síðunni að mikilvægt sé að
breytingar á stjórnarskránni séu ekki of örar.
Danska erfðagóssið mun því væntanlega um
alllanga hríð enn setja mark sitt á íslenska
stjórnarskrárhefð.
-aa
Bjarni Benediktsson, þingmað-ur Sjálfstæðisflokks, gengurfullur tilhlökkunar til nefnd-
arstarfsins og er ánægður með að fá
að taka þátt í því. Hann þarf hins
vegar að vinna upp þann tíma sem
þegar hefur farið til starfsins. „Ég
þarf að átta mig á hvað þegar hefur
verið gert, kalla eftir gögnum og svo
framvegis. Upplýsingar og sjónar-
mið eiga eflaust eftir að hafa áhrif á
skoðanir mínar og bæði styrkja mig
í þeirri trú sem ég hef á ákveðnum
atriðum og eins fá mig til að hugsa
aðra hluti upp á nýtt.“
Bjarni þekkir stjórnarskrána
mæta vel, hann er lærður lögfræð-
ingur, hefur verið formaður alls-
herjarnefndar Alþingis og setið í
sérnefnd um stjórnarskrármál.
Hann telur fyrst og fremst nauðsyn-
legt að breyta fyrstu tveimur köfl-
um stjórnarskrárinnar – köflunum
sem lúta að stjórnskipan ríkisins.
„Ég tel að þá þurfi að færa til nú-
tímalegra horfs enda hafa þeir
aldrei verið endurskoðaðir. Þar
koma helst til álita atriði sem talin
eru vera gildandi stjórnskipunar-
réttur en ekki er fjallað um í stjórn-
arskránni,“ segir hann og nefnir
sem dæmi hlutverk forseta við
stjórnarmyndanir. „Þá er mjög tak-
markað fjallað um þingræðisregl-
una og í raun er bara gefið til kynna
að hún sé til staðar.“
Umdeildasta grein stjórnar-
skrárinnar er líkast til sú 26. þar
sem fjallað er um synjunarvald for-
seta á samþykktum lögum. Bjarni
telur nauðsynlegt að breyta henni.
„Það er algjörlega óviðunandi að það
ríki jafn mikil óvissa og ég tel vera
um túlkun þessarar greinar og get
vel séð fyrir mér að hún verði leyst
af hólmi með reglum um þjóðarat-
kvæðagreiðslu í ákveðnum tilvik-
um.“ Hann segist geta hugsað sér að
tiltekinn fjöldi kosningabærra
manna geti farið fram á að mál sem
þingið hefur afgreitt séu borin und-
ir þjóðaratkvæði og til álita komi að
setja skilyrði um lágmarksþátttöku í
slíkri atkvæðagreiðslu. „Ég tel að
þessu verði að skapa tiltölulega
þröng skilyrði því þingið er jú einu
sinni þjóðkjörið og alla jafna hefur
það verið gert með þátttöku mikils
meirihluta þjóðarinnar.“
Í stjórnarskrárnefnd sitja full-
trúar allra flokka sem sæti eiga á Al-
þingi og er kunnara en frá þurfi að
segja að ekki ríkir alltaf samstaða
um mál meðal svo ólíks fólks. Bjarni
gerir sér ekki grein fyrir hvort lík-
legt sé að eining verði um öll mál.
„Það eru eflaust ólík sjónarmið um
mörg atriði en hvaða áhrif það hefur
á endanlega niðurstöðu er ekki gott
að segja. Nefndin þarf að fá tíma til
að vinna úr þessu verkefni en ég
segi fyrir mína parta að ég er ekki
óhagganlegur í öllu því sem ég hef
um stjórnarskrána að segja og fer
inn í nefndina til að vona að starfið
gagnist til að upplýsa og fræða. Lagt
er upp með að skapa umræðuvett-
vang um fjölmörg atriði og menn
koma til með að verða margs vísari.
Það gagnast svo vonandi til þess að
hugsanlega fái menn sameiginlega
sýn á atriði sem þeir voru ekki sam-
mála um í upphafi.“
Eins og áður sagði leggur Bjarni
helsta áherslu á endurskoðun fyrsta
og annars kafla stjórnarskrárinnar
og segir ekki mikla þörf á að taka
upp mannréttindakaflann þar sem
hann sé tiltölulega nýlega endur-
skoðaður. Hann telur jafnframt mik-
ilvægt að breytingar á stjórnar-
skránni séu ekki of örar. „Það á ekki
að breyta stjórnarskrá ótt og títt.
Dómstólanir verða að fá tíma til að
móta framkvæmd á grundvelli nýj-
ustu reglna og ég held að sá tími sé
alls ekki liðinn hvað varðar mann-
réttindakaflann.“
bjorn@frettabladid.is
Stjórnarskrá
Færeyja
Úr drögum að stjórnarskrá fyrir
Færeyjar (á frummálinu):
„Stjórnarskipan Føroya
Formæli
Vit, fólkið í Føroyum, samtykkja
hesa stjórnarskipan okkara. Hon er
grundarlag undir stýri okkara og
tann fyriskipan, ið skal tryggja
frælsi, trygd og trivnað okkara.
Vit bygdu hetta landið í fornari tíð
og skipaðu okkum við tingi, lógum
og rættindum.
Vit hava hildið ting til henda dag og
skipað okkum eftir fólksins tørvi
um landið alt.
Føroyar hava í sáttmála viðurkent
felagsskap við onnur lond. Ongin
sáttmáli kann tó sløkkja sjálvræði
landsins. Landsins egnu lógir og av-
gerðir eru bert tær, sum framdar
eru á rættan hátt í landinum sjálv-
um eftir fólksins vilja.
Føroyar verða skipaðar eftir nútíðar
tørvi á siðaarv okkara við valdsbýti,
løgræði og rættindum.“
Færeyska stjórnarskráin:
Megin-
markmi›
Samkvæmt samantekt Kára á
Rógvi og ritara færeysku
stjórnarskrárnefndarinnar,
Bárðar Larsen, eru megin-
markmiðin með samningu
stjórnarskrárinnar þessi (á
frummálinu):
„a) At endurskapa okkum
sum samfelag við at taka sam-
anum, útdýpa og menna elli-
gomlu virði okkara.
b) At skapa eina tjóðskap-
arliga semju um at lýsa av
nýggjum stovnar landsins.
Skipan og stovnar verða við
hesum endurnýggjað í styrki
og undirtøku, tá fólkið eftir til-
mæli frá umboðum sínum sam-
tykkir nýorðaðu skipanina.
c) At skapa eina tjóðskap-
arliga semju um at lýsa av
nýggjum landsins støðu í sam-
veldi við onnur lond.
d) At laga eina stýrisskipan,
har vøldini verða stovnað ella
staðfest og skipað mótvegis
hvørjum øðrum.
e) At staðfesta tey rættindi,
fólkið longu hevur og menna
tey víðari og útdýpa tey.“ ■
STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS
Endursko›u›
XIV. HLUTI
Spurningum, ábendingum
og hugmyndum um efni á
stjórnarskrársí›u Fréttabla›sins
er unnt a› koma á framfæri
í tölvupósti.
NETFANGIÐ ER:
stjornarskra@frettabladid.is
BJARNI BENEDIKTSSON Segir algjörlega
óviðunandi að óvissa ríki um túlkun 26.
greinar stjórnarskrárinnar – greinarinnar
sem kveður á um synjunarvald forseta á
samþykktum lögum Alþingis.
fijó›aratkvæ›agrei›slur
koma vel til greina
Bjarni Benediktsson hefur teki› sæti Geirs H. Haarde í stjórnarskrárnefnd. Hann telur mesta flörf á breyting-
um á fleim köflum stjórnarskrárinnar sem lúta a› stjórnskipan ríkisins.
Samlei› Íslendinga og Færeyinga
Danska arfleif›in og samlei›in me› Færeyingum
FRÁ ÞÓRSHÖFN Stjórnarráðsbyggingar Færeyja á Þinganesi í Þórshöfn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
KÁRI Á RÓGVI
Varaformaður stjórnar-
skrárnefndar Færeyja.