Fréttablaðið - 02.10.2005, Page 58
FÓTBOLTI Það er ekki hægt að segja
að keppnistímabilið hafi byrjað
vel hjá Eiði Smára Guðjohnsen.
Hann hefur þurft að glíma við
sýkingu í hálsi sem hélt honum
frá keppni og svo handarbrotnaði
hann á æfingu fyrir skemmstu en
lætur sig þó hafa það að spila með
umbúðir. „Tímabilið hefði alveg
mátt byrja betur. Ég veiktist eftir
að nokkrir leikir voru búnir af
tímabilinu. Ég fann fyrst fyrir
veikindunum í landsleiknum hér
heima gegn Króatíu en hélt að
þetta væri ekkert alvarlegt og fór
með landsliðinu til Búlgaríu. Þar
var ég eiginlega orðinn hálfslapp-
ur en spilaði þó leikinn. Svona eft-
ir á að hyggja þá var ekki skyn-
samlegt af mér að leika í seinni
hálfleik þar sem ég var í raun orð-
inn fárveikur. Læknar hér hjá
Chelsea sögðu mér að það hefði
getað verið hættulegt að reyna
mikið á mig með þessa sýkingu
þannig að ég þakka nú fyrir að
þetta fór ekki verr.“
Veikindin héldu Eiði Smára frá
æfingum og keppni í á aðra viku
en um leið og hann var að komast
í gott form á nýjan leik handar-
brotnaði hann. „Eftir að ég jafnaði
mig af veikindunum handarbrotn-
aði ég á æfingu. Ég ákvað þó að
spila með gifsið í leiknum gegn
Aston Villa og það gekk ágætlega
þannig að vonandi á þetta ekki eft-
ir að há mér mikið.“
Essien er liðsfélagi, ekki mótherji
Á sama tíma og Eiður Smári
var að jafna sig af veikindunum
hefur nýr leikmaður, Mikael
Essien, farið mikinn hjá Chelsea
og sýnt allar sínar bestu hliðar í
hlutverki miðjumanns. Essien
kostaði um þrjá milljarða íslenska
króna þegar hann kom til liðsins
frá franska liðinu Lyon. Eiður tel-
ur að koma hans ógni stöðu sinni
hjá félaginu ekkert sérstaklega.
„Essien er góður leikmaður, ein-
staklega kraftmikill, líkamlega
sterkur og skilar varnarvinnunni
vel. Ég lít ekki svo á að hann sé að
halda mér út úr liðinu. Hann er
einn af fjölmörgum frábærum
leikmönnum hjá Chelsea sem
berjast um stöðu í liðinu. Hann
hefur fengið að spila mikið að
undanförnu sem er eðlilegt því
hann þarf að aðlagast leik okkar á
skömmum tíma.“
Það má með sanni segja að Eið-
ur hafi oft lent í þeirri stöðu að
þurfa að berjast við heimsklassa
leikmenn um stöðu og á árum sín-
um hjá Chelsea hefur honum
alltaf tekist að vinna sér sæti í lið-
inu með góðri frammistöðu. En er
samkeppnin um sæti í liðinu harð-
ari nú en hún hefur áður verið?
„Nei. Staða mín hjá Chelsea er
ekkert verri en áður. Þolinmæði
er gríðarlega mikilvæg þegar
margir góðir leikmenn berjast um
sæti í byrjunarliðinu og þess
vegna mun ég bíða þangað til ég
fæ mitt tækifæri og ætla að
standa mig vel þegar kallið kem-
ur. Ég er þannig gerður að ég
eflist til muna við allt mótlæti og
þegar á reynir þá held ég að mín-
ir bestu leikir með Chelsea hafi
oft verið þegar mest liggur við.
Allar hindranir eru til þess að yf-
irstíga þær en ekki til þess að
forða sér undan þeim. Þess vegna
finnst mér það alltaf vera ánægju-
efni þegar Chelsea fær góða leik-
menn til félagsins. Það ógnar
minni stöðu ekkert frekar en ann-
ara leikmanna.“
Chelsea langt frá sínu besta
Þrátt fyrir töluverða yfirburði
Chelsea í upphafi deildarkeppnar-
innar á Englandi telur Eiður
Smári liðið ekki vera búið að ná
fram sínu besta. „Það hefur vant-
að aðeins meiri sköpun í sóknar-
leik okkar það sem af er. Spilið
hefur verið svolítið stirt en ég er
sannfærður um að það á eftir að
breytast, eftir því sem lengra líð-
ur á tímabilið. Ég hef verið svolít-
ið mikið inn og út úr liðinu en ég
veit að ég mun fá mín tækifæri.
Ég verð að nýta þau vel og tryggja
mér sæti í liðinu.“
Áhorfendur andstæðinga Chel-
sea hafa mikið sungið um það
hversu leiðinlegan fótbolta liðið
hefur leikið síðan Portúgalinn
José Mourinho tók við stjórnar-
taumunum hjá félaginu. Eiður
hlær þegar minnst er á þetta og
segir svona lagað ekki hafa nein
áhrif á leikmenn Chelsea. „Ég hef
nú ekki lagt það í vana minn að
hlusta á áhorfendur andstæðinga
okkar hingað til. En ég get ekki
með neinu móti ímyndað mér að
við séum með leiðinlegasta liðið í
deildinni. En það er allt reynt til
þess að koma okkur úr jafnvægi.“
Þarf að fá að spila meira
Eiður Smári æfir vel þessa
dagana en segist þó eiga enn eftir
að komast í sitt besta form.
„Ég hef nú ekki spilað nógu
mikið til þess að láta reyna á það
hvort ég er í mínu besta formi. Ég
æfi alltaf aukalega meðan ég er
ekki að spila leikina og reyni
þannig að vera tilbúinn til þess að
koma inn í liðið með stuttum
fyrirvara, en ég hugsa að ef ég
myndi spila þrjá til fjóra leiki í
röð þá væri ég kominn í mitt besta
form.“ Eiður ítrekar jafnframt að
hann búi að mikilvægri reynslu
síðan hann þurfti að ganga í gegn-
um erfið meiðsli sem unglingur,
sem héldu honum frá æfingum og
keppni í tvö ár.
„Ástæðan fyrir því að ég þoli
álag vel er meðal annars sú að ég
kynntist erfiðum meiðslum á
besta aldri þegar ég var að vaxa
mikið og byggja upp vöðva og gat
ekkert verið í fótbolta í tvö ár.
Hugsanlega hefði ég orðið kraft-
meiri og hraðari leikmaður en ég
er núna, en þessi tími kenndi mér
margt og líklega er ég mun sterk-
ari á andlega sviðinu núna heldur
en ég hefði annars verið.“
Dreymir um að komast á stórmót
Það má heyra það á Eiði Smára
að hann er bjartsýnn á gott gengi
íslenska landsliðsins í framtíð-
inni. Sérstaklega er það mikill
kraftur í yngstu leikmönnum liðs-
ins sem gefur tilfefni til bjartsýni.
„Mér finnst hafa verið batamerki
á leik okkar í síðustu landsleikj-
um. Grétar Rafn Steinsson hefur
staðið sig frábærlega og á eflaust
eftir að ná góðum árangri í fram-
tíðinni, og það sama á við um aðra
leikmenn, eins og Gunnar Heiðar
Þorvaldsson. Þetta eru efnilegir
strákar sem koma til með vera
lykilmenn landsliðsins á næstu
árum og það er draumurinn að
komast með landsliðinu í úrslita-
keppni stórmóts.“
Betri en Ronaldinho?
Eiður Smári hefur í tvígang
verið nálægt því að komast í úr-
slitaleik meistaradeildar Evrópu
og hefur leikið gegn mörgum af
bestu leikmönnum heims. Hann
er fljótur til svars þegar hann er
inntur eftir því hver sé eftir-
minnilegasti andstæðingurinn.
„Ronaldinho alveg klárlega. Hann
er með ótrúlega góða boltatækni
og hefur að auki framúrskarandi
góðan leikskilning. En annars fer
öll orkan hjá manni í það að ein-
beita sér að leiknum og því fer oft
framhjá mér hvaða andstæðingar
eru bestir. En elsti sonur minn,
Sveinn Aron sem er sjö ára, var
nú samt sannfærður um að ég
væri betri en Ronaldinho af því að
mér tókst að skora gegn
Barcelona. Þannig að það er gott
að vita til þess að það er einn í
heiminum sem telur mig bestan.“
magnush@frettabladid.is
„Sta›a mín hjá Chelsea er ekk-
ert verri en á›ur. fiolinmæ›i er
grí›arlega mikilvæg flegar
margir gó›ir leikmenn berjast
um sæti í byrjunarli›inu.“
2. október 2005 SUNNUDAGUR26
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
Línur eru teknar a› sk‡rast í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu og er greinilegt a› Chelsea ætlar sér
ekki a› láta meistaratitilinn af hendi baráttulaust.
Ei›ur Smári Gu›johnsen hefur ekki leiki› miki›
me› li›inu fla› sem af er vegna veikinda og
mei›sla en hann er nú farinn a› láta a› sér kve›a á
n‡jan leik. Magnús Halldórsson ræddi vi› Ei›
Smára um stö›u hans hjá félaginu nú flegar nokkr-
ir af eftirsóttustu knattspyrnumönnum heims hafa
veri› keyptir til félagsins enn eitt ári›.
„En elsti sonur minn, Sveinn
Aron sem er sjö ára, var nú
samt sannfær›ur um a› ég
væri betri en Ronaldinho af
flví a› mér tókst a› skora gegn
Barcelona. fiannig a› fla› er
gott a› vita til fless a› fla› er
einn í heiminum sem telur
mig bestan.“
GETUR YFIRSTIGIÐ
ALLAR HINDRANIR
EIÐUR SMÁRI Á FULLRI FERÐ Keppnistímabilið hefur ekki byrjað eins vel og Eiður Smári
hefði viljað en hann er staðráðinn í því að láta mikið að sér kveða þegar hann fær tæki-
færi með liði Chelsea. GETTYIMAGES
EIÐUR SMÁRI MEÐ GIFSIÐ Hér sést Eiður
Smári í leik gegn Aston Villa á dögunum
en hann lék með gifs á hægri hendi eftir
að hafa handarbrotnað á æfingu.
GETTYIMAGES