Fréttablaðið - 25.10.2005, Síða 75
ÞRIÐJUDAGUR 25. október 2005
V
in
n
in
g
a
r
v
e
r
ð
a
a
f
h
e
n
d
ir
h
já
B
T
Sm
á
r
a
li
n
d
.K
ó
p
a
v
o
g
i.
9
9
k
r
SM
Si
ð
.M
e
ð
þ
v
í
a
ð
t
a
k
a
þ
á
t
t
e
r
t
u
k
o
m
in
n
í
SM
S
k
lú
b
b
.
HEimsfrumsýning
28 • 10 • 05
Sendu SMS skeytið
JA ZBV
á númerið 1900 og
þú gætir unnið.
11. hver vinnur.
Þú getur unnið:
Miða á myndina fyrir 2
Tölvuleiki
DVD myndir & Coke
v
FÓTBOLTI Arnar Jón Sigurgeirs-
son, sem í mörg ár lék með
knattspyrnuliði KR, er nú kom-
inn á ról á nýjan leik en hann
þurfti að hætta að leika knatt-
spyrnu fyrir um ári síðan þegar
hjartagalli kom í ljós í læknis-
rannsókn. Samningur Arnars
við KR var að renna út á svip-
uðum tíma þannig að hann ákvað
að einbeita sér að því að ná sér
góðum. „Það var ekkert annað í
stöðunni fyrir mig en að hætta
að spila. Það lá fyrir að ég þurfti
að fara í hjartaþræðingu. En
hún dróst á langinn og ég fór
ekki í hana fyrr en í júní á þessu
ári. Aðgerðin gekk vel og nú er
ég bara að vinna að því að kom-
ast í form og fer líklega að spila
aftur á næstunni.“
Arnar Jón, sem er 27 ára gam-
all, var einn af lykilmönnum KR
á sínum tíma og varð í tvígang
Íslandsmeistari með liðinu.
Hann er nú samningslaus og
vonast til þess að verða kominn
á fulla ferð innan tíðar. „Þessa
dagana er ég bara að skokka og
reyna byggja upp þol. Ég veit að
ég er velkominn á æfingar hjá
KR en ég hef annars ekkert velt
því fyrir mér með hvaða félagi
ég mun leika. Það verður bara
að koma í ljós.“
- mh
Arnar Jón Sigurgeirsson tilbúinn að leika á nýjan leik:
Kominn á ról eftir þræðingu
FÓTBOLTI Það kom berlega í ljós í
gær hversu sterkur leikmanna-
hópurinn hjá Chelsea er um þess-
ar mundir þegar franska tímartið
France Football birti lista yfir þá
fimmtíu leikmenn sem til grei-
na koma sem knattspyrnumenn
Evrópu fyrir árið 2005. Chelsea
á sjö leikmenn á listanum en þeir
eru Frank Lampard, John Terry,
Claude Makalele, Petr Cech, Mick-
ael Essien, Didier Drogba og Arjen
Robben.
Manchester United á fjóra
leikmenn á listanum, þá Park Ji-
sung, Ruud van Nistelrooy, Wayne
Rooney og Cristiano Ronaldo. Evr-
ópumeistarar Liverpool eiga þrjá
fulltrúa, Jamie Carragher, Steven
Gerrard og Luis Garcia, en aðeins
einn leikmaður er tilnefndur úr liði
Arsenal og er það Thierry Henry.
Eins og venjulega á Real Madr-
id fjölda fulltrúa á listanum en
þeir eru sex að þessu sinni, Bras-
ilíumennirnir Ronaldo, Robinho
og Roberto Carlos, auk Zinedine
Zidane, Raúl Gonzalez og David
Beckham.
Flestir knattspyrnuspekingar
eru á því að Ronaldinho verði fyrir
valinu en hann hefur stýrt sóknar-
leik bæði Brasilíumanna og Bar-
celona af mikilli snilld. Auk þess
þykja ensku landsliðsmennirnir
John Terry og Steven Gerrard lík-
legir til þess að vera ofarlega á list-
anum. - mh
Listi yfir leikmenn sem til greina koma sem knattspyrnumenn Evrópu:
Sjö leikmenn Chelsea á listanum
ARNAR JÓN SIGURGEIRSSON Arnar lék með
KR í gegnum alla yngri flokka og á að baki
marga leiki fyrir ungmennalandslið Íslands.
LEIKMENNIRNIR SEM ERU
TILNEFNDIR ERU EFTIRFARANDI:
• Adriano Inter, • Michael Ballack Bayern
Munchen • David Beckham Real Madr-
id • Gianluigi Buffon Juventus • Mauro
Camoranesi Juventus • Fabio Cannavaro
Juventus • Jamie Carragher Liverpool •
Petr Cech Chelsea • Gregory Coupet Lyon
• Deco Barcelona • Dida AC Milan • Didi-
er Drogba Chelsea • Emerson Juventus •
Mickael Essien Chelsea • Samuel Eto‘o
Barcelona • Luis Figo Inter • Diego Forlan
Villarreal • Luis Garcia Liverpool • Steven
Gerrard Liverpool • Thierry Henry Arsenal
• Zlatan Ibrahimovic Juventus • Juninho
Lyon • Kaká AC Milan • Frank Lampard
Chelsea • Roy Makaay Bayern München •
Claude Makalele Chelsea • Paolo Mald-
ini AC Milan • Pavel Nedved Juventus •
Michael Owen Newcastle United • Park
Ji-sung Manchester United • Andrea Pirlo
AC Milan • Raúl Real Madrid • Juan Roman
Riquelme Villarreal • Arjen Robben Chel-
sea • Roberto Carlos Real Madrid • Robin-
ho Real Madrid • Ronaldinho Barcelona
• Ronaldo Real Madrid • Cristiano Ron-
aldo Manchester United • Wayne Rooney
Manchester United • Andriy Shevchenko
AC Milan • John Terry Chelsea • Lilian Thu-
ram Juventus • David Trezeguet Juventus •
Mark van Bommel Barcelona • Ruud van
Nistelrooy Manchester United • Patrick
Vieira Juventus • Xavi Barcelona og Zine-
dine Zidane Real Madrid.
RONALDINHO SKÝTUR AÐ MARKI Ronaldinho þykir líklegastur
til að verða fyrir valinu að þessu sinni en Úkraínumaðurinn
Andriy Shevchenko vann verðlaunin í fyrra.
FÓTBOLTI Juventus vann um helg-
ina sínn áttunda leik í röð í ítölsku
deildinni. Liðið jafnaði um leið met
sem það átti sjálft en Juventus er
eina félagið í ítalska boltanum sem
hefur unnið átta leiki í röð.
Það hefur félagið gert tvisv-
ar áður, fyrst leiktíðina 1930/31
og síðan leiktíðina 1985/86. Juve
hefur líka afrekað að vinna sjö
leiki í röð líkt og AC Milan og
Inter. - hbg
Ítalski boltinn:
Juventus jafn-
aði eigið met
BESTIR Leikmenn Juve fagna hér áttunda
sigrinum í röð í ítölsku úrvalsdeildinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ásgeir Elíasson mun i
dag skrifa undir þjálfarasamning
við 1. deildarlið Fram en Ásgeir
þjálfaði liðið á sínum tíma með
glæstum árangri, Hann tekur við
starfinu af Ólafi H. Kristjánssyni.
Leit Framara að nýjum þjálf-
ara hefur tekið nokkurn tíma en
hlutirnir gengu hratt fyrir sig
með Ásgeiri í gær. Stjórn Fram
hitti Ásgeir að máli seinnipartinn
í gær og Ásgeir yfirgaf fundinn
með samningstilboð í höndun-
um. Þegar Fréttablaðið heyrði
í Ásgeiri í gærkvöldi var hann
nýkominn heim og var að klára að
fara yfir samninginn. Hann átti
ekki von á öðru en að svara honum
með jákvæðu svari.
„Mér líst ágætlega á samning-
inn og geri ekki ráð fyrir öðru en
að svara tilboðinu játandi,“ sagði
Ásgeir sem væntanlega tilkynnti
stjórn félagsins um ákvörðun
sína seint í gærkvöldi eða eftir að
Fréttablaðið fór í prentun.
- hbg
Þjálfaraleit 1. deildarliðs Fram loks á enda:
Ásgeir tekur við Fram
ÁSGEIR ELÍASSON Sést hér í Fram-úlpunnni
í leik gegn Víkingi 1999.