Tíminn - 17.08.1975, Page 11
Sunnudagur 17. ágúst 1975
TÍMINN
11
■&
Þetta var þaö, sem kortiö táknaöi: Sovézk eldflaugastöö á Kúbu. A myndinni sjást tveir skotpallar
(Launch pad with erectors), tankbilar með eldflaugaeldsneyti og annað tilheyrandi.
samtölum Castros við ýmsa
menn — en samtölin gat hún öll
h'eyrt frá orði til orðs i gegn um
vegginn. Þegar hér var komið
sögu, hafði hún náð góðu valdi á
spænskri tungu.
Stjórnaribúðin var þakin vopn-
um og skjölum. Skjölin lágu
hreint út um allt. Castro hafði að
visu skjalaskáp, en hann var
aldrei læstur þrátt fyrir það, að
Castro geymdi i honum helztu
skjöl, kort og mikla peninga. Ég
stal heilmiklu af skjölum úr þess-
um skáp og Castro saknaði þeirra
aldrei.
Frank gaf henni þá fyrirskipun,
að hún skyldi ná öllum þeim
upplýsingum, sem hún mögulega
kæmist yfir. — Og það gerði ég,
segir hún.
Svo veiktist Marie og Frank
skipulagði undankomu hennar úr
einangrun Castros. Tveir
kúbanskir liðsforingjar báru
hana út úr hótelinu meðan Castro
var fjarverandi og komu henni
um borð i flugvél til New York.
Um likt leyti skipulagði Frank
flótta tveggja framámanna i
kúbanska flughernum. Fyrir það
varð hann að flýja Kúbu og setti
hann þá upp stöðvar i Miami og
stjórnaði þaðan njósnurum sinum
á Kúbu.
Þegar Marie var orðin heil
heilsu aftur, fór hún til Franks i
Florida. Þar tók hún að áér starf,
sem þýddi opinn dauðinn fyrir
hana, ef upp kæmist. Snemma árs
fór Castro til Cienega de Zapata
og um leið og hann var farinn frá
Havanna með fylgdarlið sitt, hélt
Marie aftur til höfuðborgar Kúbu.
Hún fór með áætlunarflugvél
kúbanska flugfélagsins og i gervi
bandarisks ferðamanns. í tösk-
unni hafði hún hlaðna skamm-
byssu og Castro-einkennisbúning-
inn sinn.
Hún kom til Havanna nokkrum
timum eftir að Castro yfirgaf
borgina. Bandariskir ferðamenn
voru þá enn vel séðir á Kúbu og
tollverðir gerðu litið af þvi að
leita i farangri þeirra.
Marie komst i gegn um tollinn
óáreitt og siðan tók hún sér her-
bergi á litlu hóteli i miðborginni.
Þaðan hélt hún beinustu leið að
Hilton-hótelinu. Þegar hér var
komið hafði Castro fengið sér hús
i borginni til ibúðar, en hann hafði
stjórnarskrifstofu áfram á
Hilton-hótelinu og þar renndi
Marie i grun, að öll dýrmætustu
skjölin væru geymd.
Stjórnaribúð Castros var
númer 2408 og að henni hafði
Marie lykil, sem kúbanskir flug-
menn höfðu orðið sér úti um.
Enginn leit við Marie, þegar hún
kom inn i hótelið — hún hafði litað
hár sitt og sett upp sólgleraugu. —
Það gengu allir með sólgleraugu,
segir hún. Lika á kvöldin. Marie
gekk beinustu leið að lyftunni og
hélt upp á 24. hæð. Þar var eng-
inn. — Þegar ég var þarna fangi
Castros, var ég ýmist alein i
stjórnaribúðinni i þrúgandi þögn,
eða þá allt var á fleygiferð, þegar
Fidel var inni — með tilheyrandi
hávaða og vindlareyk.
Áður en Fidel fór hafði hann
gefið fyrirskipun um, að enginn
skyldi fara inn i stjórnaribúðina
og það var eins og allir álitu allt
öruggt svo framarlega sem þeir
héldu sig bara einhves staðar
annars staðar en á 24. hæð
Hilton-hótelsins! Marie komst þvi
óséð inn i stjórnaribúðina.
Eins og alltaf lágu skjölin
þarna út um allt: skjalaskápur-
inn opinn upp á gátt. — Það var
engin leið fyrir mig að taka allt
með mér, svo ég tróð inn á mig
eins mörgum skjölum og kortum
og ég gat með góðu móti. Siðan
fór ég sömu leið út aftur, niður á
hótelið mitt, fór þar úr einkennis-
búningnum og i kjól og hélt beina
leið út á flugvöll, þar sem ég tók
fyrstu flugvél til Miami.
Frank tók á móti mér á flug-
vellinum og ég fékk honum allt
sem ég tók úr stjórnaribúð
Castros. Mér var ekki sagt
nákvæmlega, hvaða feng ég hefði
komið með, en mér var sagt, að
leyniþjónustan og rikisstjórnin
væru mjög ánægð með afrakstur
ferðarinnar.
Meðal skjalanna, sem Marie
sótti til Havanna, var staðfræði-
legt kort yfir Kúbu, þar sem
hringar voru dregnir inn á nokkr-
um óræktarsvæðum fjarri byggðu
bóli. Á kortið var einnig éitthvað
skrifað, sem Marie kvaðst ekki
hafa skilið. — Þetta var á fram-
andi tungu, segir hún.Einna helzt
held ég tékknesku.
„Þýðingarmikill
fiindur”
Þremur árum siðar fékk Marie
svo að vita, að þetta kort hefði
verið uppdráttur yfir eld-
flaugastöðvar Sovétmanna á
Kúbu. Hringirnir voru dregnir
um þá staði, þar sem eldflauga-
pallarnir voru reistir 1962. Með
upplýsingum frá njósnurum á
Kúbú, frá kúbönskum flo'tta-
mönnum og myndum, sem
njósnaflugvélar tóku, gat CIA sett
heildarmyndina inn á kortið, sem
Marie tók með sér frá Havanna.
Þetta kort vakti fyrstu grun-
semdirnar um atburðarás, sem
endaði á barmi heimsstyrjaldar.
Einhverra hluta vegna hefur
Castro rennt grun i þátt Marie i
þessu máli. 1 marzmánuði 1960
fékk Marie skeyti, sem sent var
til hennar i ibúð bróður hennar i
New York. Skeytið var frá
Havanna og i þvi stóð: Hringdu i
sima 28607 (sem var einkasimi
Castros) seint i kvöld. Þetta er
mjög áriðandi. Skeytið var undir-
ritað af Yanez, sem Marie vissi
að var Jesus Yanez Pelletier,
einn af (nánustu ráðgjöfum
Castros. 1 fyrstu hugðist Marie
láta skeytið lönd og leið, en for-
vitnin varð yfirsterkari. Hún
minntist ekkert á málið við bróð-
ur sinn, en fór út um kvöldið til að
tala við Havanna frá simstöð ekki
langt frá. Vart var hún komin út
úr húsinu þegar tveir menn gripu
hana. Hún þekkti annan. Það var
Yanez.
— Þeir voru vopnaðir, segir
Marie. Og þeir sögðust ætla með
mig til Kúbu. Yanez sagði að flug-
vél biði tilbúin á flugvellinum.
Þeir börðu mig i andlitið og drógu
mig að bil, sem stóð við gang-
stéttina.
En rétt i þessu augnabliki, kom
annar ibúi hússins út og sá hvað
var að gerast. Koma hans truflaði
Kúbumennina svo mér tókst að
losna frá þeim og hlaupa af stað.
Ég heyrði annan þeirra kalla til
hins, að hann skyldi bara skjóta
mig. En aldrei var skotinu hleypt
af.
Ég hljóp og hljóp og á endanum
hljóp ég beint i flasið á lögreglu-
þjóni.
Lögregluþjónninn fór með
Marie á lögreglustöðina, þarsem
hún sagði sögu sina. Samband var
haft við yfirvöldin og Marie gaf
þeim upp nafnið á hóteli einu,
sem menn' Castro bjuggu venju-
lega á i New York. Lögreglumenn
voru sendir þangað og þar var
Yanez. En hann var með sendi-
ráðsskirteini og þvi var ekki hægt
að handtaka hann. En honum var
sagt að taka sér far með næstu
flugvél til Kúbu.
Þegar Yanez kom aftur til
Havanna, gerði Castro það, sem
lögreglan i New York gat ekki.
Hann lét setja Yanez i fangelsi.
(Þýtt og endursagt)
Meistarasamband byggingamanna, Skip-
holti 70, vantar
skrifstofumann
karl eða konu, til starfa allan eða hálfan
daginn.
Umsóknir sendist til skrifstofu sambands-
ins.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni fyrir
hádegi.
A
Kópavogur —
olíustyrkur
Greiðsla oliustyrks skv. lögum nr. 47/1974,
fyrir timabilið marz/mai 1975, fer fram i
bæjarskrifstofunum á 4. hæð i félags-
heimilinu i Kópavogi.
Styrkurinn greiðist þeim framteljendum
til skatts, sem búið hafa við olluupphitun
ofangreint timabil.
Greiðslum verður hagað þannig:
Til framteljenda hverra nafn byrjar á:
A — D niiövikudaginn 20. ágúst kl. 10.00 — 15.00
E —G fimmtudaginn 21. ágústkl. 10.00 — 15.00
H —J miðvikudaginn 27. ágúst kl. 10.00 — 15.00
K—M fimmtudaginn 28. ágúst kl. 10.00—15.00
N—P þriðjudaginn 2. sept. kl. 10.00—15.00
R — T miðvikudaginn 3. sept. kl. 10.00 — 15.00
U — ö fimmtudaginn 4.sept. kl. 10.00 — 15.00
Framvisa þarf persónuskilrikjum til að fá
styrkinn greiddan.
Bæjarritarinn i Kópavogi.
|2| Fró gagnfræða-
skólum Kópavogs
Loka-innritun og staðfesting fyrri um-
sókna um skólavist næsta vetur I öllum
bekkjum Vighólaskóla og Þinghólsskóla
fer fram i skólunum sem hér segir:
í Vighólaskóla mánudag og þriðjudag 18.
og 19. ágúst kl. 9-2 og 14-17, báða dagana.
í Þinghólsskóla miðvikudaginn 20. ágúst
frá kl. 9-12 og 14-17.
Ef væntanlegir nemendur eða einhverjir I
þeirra stað, staðfesta ekki umsókn á ofan-
greindum timum annað hvort með þvi að
koma i skólann eða hringja I skrifstofu-
sima hans, getur umsækjandi átt þá hættu
að missa af skólavist.
Fræðslustjórinn i Kópavogi.
Verkamenn
Óskum eftir að ráða nokkra menn til
starfa i kersmiðju okkar við áliðjuverið I
Straumsvik.
Ráðning fer fram I september.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri,
simi 52365.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavik og
bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar fyrir 25. ágúst
1975 I pósthólf 244, Hafnarfirði.
íslenzka Álfélagið hf.
Straumsvik.