Tíminn - 12.12.1975, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Föstudagur 12. desember 1975.
III
1
SBB
Opnu vagnarnir aftur í notkun
Ferðalangar, sem komu til
Parlsar einhvern tima fyrir
1971 muna eflaust eftir strætis-
vögnum þeirrar frægu heims-
borgar, sem voru opnir að
aftan. Þessir vagnar voru lengi
vel meðal þess skemmtilegasta,
sem hægt var að hugsa sér i
Paris og mörgum þótti óneitan-
lega gaman að aka um götur
borgarinnar standandi á pallin-
um aftast i vögnunum, en þessir
pallar voru óyfirbyggðir. Þeir
voru lika margir, sem höfðu
sérstaklega gaman af þvi að
taka tilhlaup og stökkva upp á
pallinn þótt vagninn væri kom-
inn af stað, og enn aðrir nutu
þess að stökkva ofan af pallin-
um einmitt þar, sem þeir helzt
vildu fara úr vagninum, enda
þótt það væri ekki venjulegur
viðkomustaður vagnsins. En
svo fór, að þessir vagnar týndu
tölunni, þar sem þeir voru taldir
orðnir of gamlir til þess að það
borgaði sig að halda þeim við.
Siðasti vagninn hvarf af götunni
i janúar 1971. En svo gerðist það
i sumar, að einn af nýju vögnun-
um lenti i aftanákeyrslu. Mikið
verk var að lagfæra hann, svo
stakk allt i einu einn viðgerðar-
maðurinn upp á að hann yrði
lagaður og gerður úr garði eins
og gömlu vagnarnir höfðu verið,
opinn að aftan. Það var gert og
gleði Parisar-búa varð mikil
þegar þeir sáu þennan nýja
vagn kominn i gamlan búning.
Nú er meiningin að fleiri slikir
verði teknir I notkun á næstunni.
★ ★
Grace í slagsmálum!
Fyrir nokkru lenti Grace fursta-
frú af Mónakó i útistöðum við
ljósmyndara i Paris. Grace
hefur venjulega verið talin
kunna að koma vel og prúð-
mannlega fram, en það er hægt
að reita bezta fólk til reiði, og
það tókst einmitt ljósmyndar-
anum, sem elt hafði hana á
röndum þar til hún þoldi ekki
meira og sneri sér að honum og
ætlaði að berja hann með hand-
töskunni sinni. Það tókst henni
reyndar ekki, og þessar myndir
tók svo ljósmyndarinn af Grace
á meðan hún var aðkomast inn i
bilinn og úr sjónmáli.
Unga fólkið og gömlu
meistararnir
Rikislistasafnið i Karlsruhe i
Þýzkalandi hélt sina fyrstu
listasýningu, serstaklega ætl-
aða börnum og unglingum árið
1973. Einkunnarorð sýning-
arinnar voru: ,,Unga fólkið
hittirgömlu meistarana — lista-
söfn eru skemmtileg.” Þessi
sýning vakti svo mikla athygli,
og ánægja þeirra sem sáu hana
var svo mikil, að forstöðumaður
safnsins hefur efnt til slikra
sýninga á hverju ári siðan. A
siðasta sumri var svo komið upp
fastri sýningu á vegum safns-
ins, og kallast hún: ,,Þegar
amma var táningur”. Þrennt er
talið hafa gefið þessari sýningu
gildi. Verkin, sem sýnd eru, eru
sérstaklega við hæfi barna og
valin fyrir börn. Leiðsögumenn-
irnir, sem fara með bömunum
um sýninguna hafa gert sér
ljóst, á hvaða aldri skoðendum-
ir eru, og haga sér i samræmi
við það og i þriðja lagi er mál-
verkunum komið fyrir i þeirri
hæð á veggjunum, að auðvelt er
fyrir börnin að skoða þau. Ný
verk eru sett upp á sex mánaða
fresti og um leið eru sendir út
bæklingar fyrir foreldra og
kennara með öllum helztu
upplýsingum varðandi lista-
verkin, sem upp eru komin. Hér
er hópur barna að horfa á eitt
listaverkanna i barnasýningar-
salnum.
DENNI
DÆAAALAUSI
Hann er alls ekkert vondur út I þig
Jói. Þetta eru bara fyrstu
einkenni jólanna.