Tíminn - 12.12.1975, Qupperneq 16

Tíminn - 12.12.1975, Qupperneq 16
16 Föstudagur 12. desember 1975. LÖ GREGL UHA TARINNI 90 Ed McBain gildru... í sömu andrá var aðaldyrunum sparkað upp með látum og offorsi. Á þeirri stundu upphófst einnig allsherjar ruglingur, fát og óðagot. Fortíð, nútíð og framtið lentu í einni bendu. I tíu ofboðslegar- sekúndur hefði mátt ætla, að verið væri að sýna sjö kvikmyndir á sama kvikmynda- tjaldinu. Löngu síðar gat Carella ekki einu sinni fengið fram í hug sér neina heillega mynd af atburðunum. At- burðarásin var allt of hröð og lukkan lygileg. Þeir Willis komu raunar lítið við sögu. Fyrst af öllu varð Carella það deginum Ijósara, að öll atburðarásin kom honum og Willis í opna skjöldu. Þeir voru með öllu óviðbúnir. Carella spratt upp af stólnum og kollvarpaði honum. Hann öskraði: — Hal, bak við þig... og greip til skammbyssunnar. Jafnvel mitt í þessari hröðu atburðarás var hann sér þess fyllilega meðvitandi að allt kom þeim í opna skjöldu. Þeir störðu i kaldmyrkvuð hlaup tveggja kraftmikilla skammbyssa og áttu þess mesta von að vera skotnir til bana í þeim sporum sem þeim stóðu. Hann heyrði annan mannanna hrópa — Löggan....og báðir lyftu þeir skammbyssun- um sinum í skotstöðu. Á sekúndubroti fylltist hugur hans af sundurslitnum hugsanabrotum, sem öll áttu að vera hans síðasta tilhugsun í þessu líf i. Willis spratt á fætur eins og stálf jöður og skellti mylluborðinu um koll um leið og hann þreif til skammbyssunnar. Mitt í þeirri hringiðu dró Jói gamli skraddari skyndilega til hliðar tjaldið, sem aðskildi bakherbergið frá búðinni. á samri stundu var aðaldyrunum sparkað upp með firnagangi... Jói gamli skraddari sagði síðar að hann hefði hlaupið aftur í búðina til að kanna hverju þessi hávaði sætti. Hann svipti til hliðar tjaldinu, sem skildi að herbergin tvö. Um leið snarsneri hann sér við og sá það sem Carella sá milljónum augnablika síðar — þrjá menn sem stóðu við aðaldyr búðar hans, og allir héldu þeir á skammbyss- um..... La Bresca og Calucci hljóta að hafa séð það sama þeg- ar tjaldinu var svipt f rá og við blöstu aðaldyrnar. Og þótt þeir haf i gert sér Ijóst að þeir komu lögreglumönnunum í bakherberginu i opna skjöldu, þá varð þeim samstundis Ijós sú hætta sem stafaði af þessum þremur viðbótarlög- regluþjónum, sem stóðu við aðaldyrnar. Sérhver þeirra hélt á skammbyssu og morðsvipurinn í andlitum þeirra leyndi sér ekki. Mennirnir þrír voru ekki lögregluþjónar, en þeir La Bresca og Calucci gátu auðvitað ekki vitað Þýðandi Haraldur Blöndal ---- ■ það. Lögregluvarðstjórinn í aðaldyrunum hrópaði — LÖGGAN......En þeir héldu að þeir La Bresca og Calucci væru lögreglumenn og hrópaði Buck þetta því sem að- vörun til félaga sinna. En þeir La Bresca og Calucci héldu hins vegar að með þessu væru þremenningarn- ir að tilkynna komu sína. Þeir hófu þess vegna harða skothríð. Mennirnir þrír við aðaldyrnar héldu sig horf ast i augu við lögreglugildru og þrælvopnaða lögreglusveit. Þess vegna hóf u þeir nærri samstundis heiftúðuga skot- hríð. Jói gamli skraddari sá sína sæng útbreidda og kast- aði sér f rávita afskelf ingu á gólf ið. Þeir Carella og Will- is sáu óðar að hér var á ferð skotbardagi, sem var þeim með öllu óviðkomandi en mjög hagstæður engu að síður. Þeir reyndu því að þrýsta sér upp að veggnum. Wiilis varð fótaskortur á einu peðinu á gólfinu og skall mar- flatur. Byssukúlurnar þutu hvæsandi rétt við hársvörð- inn á honum í fallinu. Carella var nú búinn að ná byssu sinni og mundaði hana. Hann miðaði í átt að aðaldyrun- um, sökum þess að hann hafði náð að virða allvel fyrir sér einn hinna þriggja manna, sem þar stóðu og skutu af ákafa inn í innra herbergið. Maður þessi var að vísu ekki með heyrnartækið sitt í eyranu, en hann var hávaxinn og Ijóshærður. Carella þekkti hann samstundis. Hann mið- aði af ró og vandvirkni. Byssan kipptist svolítið til um leið og hann hleypti af. Hann sá heyrnardaufa manninn grípa um öxl sér og hrasa. Svo skrönglaðist hann í átt að aðaldyrunum, sem stóðu opnar. Einhver rak upp óp að baki Carella, hann sneri sér við og sá La Bresca falla yfir pressuvélina.- Blóðgusurnar slettust á ítróðið á pressuvélinni. Enn heyrðust fjórir skothvellir í litlu skraddarabúðinni og einhver stundi — síðan enn fleiri skot. Willis var risinn á fætur og skaut. Um stund hvarf allt í reyk, þungan reyk, sem var eins og í þéttum lögum í andrúmsloftinu og þefillur mjög. Þá heyrðu þeir til Jóa skraddara, sem lá marf latur á gólf inu og baðst hl jóðlega fyrir á ítölsku. — Út á götu, hrópaði Carella og stökk yfir afgreiðslu- borðið, er skipti verzluninni. En honum varð fótaskort- ur í blóðpolli við pressuvélina og náði aðeins með naumindum jafnvæginu og hljóp yfirhafnarlaus út í snjóinn. Hvergi sást nokkur sála. Kuldinn var nístandi bitur. Hann var berhentur og eftir skamma stund var engu lík- ara en holdið á hægri hönd hans væri frosið fast við byssustálið. Svolítill blóðtaumur rann frá aðaldyrum HV?LL G E I R I Þiö ættuð að íela þá áður en óþokkar Mings finna það. Föstudagur 12. desember 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00 Morgunbæn kl. 7.55. Morgunst. barnanna kl. 8.45. Helga Stephensen les „Svanina” ævintýri eftir H. C. Andersen i þýðingu Stein- grims Thorsteinssonar. Sögulok (4) Tilkynningar kl. 9.30 Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriða. Spjallað við bændur kl. 10.05. Úr hand- raðanum kl. 10.25: Sverrir Kjartansson sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00 Christian Ferras og Pierre Barbizet leika Sónötu fyrir fiðlu og pianó „Myndrænar etýður” op. 39 eftir Rachmaninoff. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Fingramál” eftir Joanne Greenberg. Bryndis Vig- lundsdóttir les þýðingu sina (14) 15.00 Miðdegistónleikar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir) 16.20 Popphom 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Drengurinn i guilbuxun- um” eftir Max Lundgren. Olga Guðrún Arnadóttir les þýðingu sina (12) 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynnngar. 19.45 Dagiegt mál Guðni Kolbeinsson flytur þáttinn. 19.50. Þingsjá.Umsjón: Kári Jónasson. 20.10 Sinfóniuhljómsveit Isl leikur i útvarpssal. 21.05 „Litil stúlka á kvennaári” smásaga eftir Jennu og Hreiðar Stefáns- son. Jenna Jensdóttir les. 21.35 Brunavarnir fyrir al- menning. Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri flytur erindi. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Dvöl. Þáttur um bókmenntir. Umsjón: Gylfi Gröndal. 22.50 Afangar.Tónlistarþáttur i umsjá Ásmundar Jóns- sonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.40 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Föstudagur 12. desember 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 20.40 Kastljós. Þáttur um inn- lend málefni. Umsjónar- maður Guðjón Einarsson. 21.45 Innsta eðlið. Norskur skemmtiþáttur. Harald Heide Steen yngri bregður sér I ýmis gervi og kemur fram I stuttum atriðum. Einnig syngur hann nokkur létt lög. Þýðandi Jón O. Ed- wald. (Nordvision-Norska sjónvarpið). 22.05 Tökubarnið. (The Unfor- given) Bandarisk biómynd frá árinu 1960. Leikstjóri er John Huston, en aðalhlut- verk leika Audrey Hepburn, Burt Lancaster, Audie Murphy og Charles Bick- ford. Fjölskylda nokkur tek- ur litla indiánastúlku i fóst- ur. Þegar hún er gjafvaxta, vill þjóðflokkur hennar fá hana aftur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 00.10 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.