Tíminn - 07.03.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 07.03.1976, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Sunnudagur 7. marz 1976. Sunnudagur 7. marz 1976. TÍMINN 17 MAÐUR ER NEFNDUR Gisli Al- bertsson. Hann er Skagfiröingur að uppruna, en hefur lengi átt heima i Reykjavik og i Borgar- firði hinum syðra. Viö skulum byrja á byrjuninni og heyra hvað Gisli hefur um æskustöðvar sinar að segja. ,,Hann gekk um gólf og orti....” — llvar i Skagafirði var það, sem þú sást fyrst dagsins ljós? — Ég fæddist að Flugumýrar- hvammi i Blönduhlið undir lok nitjándu aldarinnar, eða nánar til tekið 19. desember 1899. Foreldr- ar minir hétu Albert Jónsson og Stefania Pétursdóttir. — Þú hefur auðvitað alizt upp við öll venjulegsveitastörf eins og önnur sveitabörn? — Já, ekki þarf að efa það. Ég var vist ekki gamall, þegar ég byrjaði aö hjálpa til, eftir þvi sem ég gat. En eins og gefur að skilja eru fyrstu minningar minar þó ekki bundnar vinnu. Ég held, að ein elzta minning sem ég á, sé bundin gestkomu. Ég sat uppi i baðstofunni heima, og það var kominn gestur. Það var karlmað- urm og mér finnst i endurminn- ingunni að hann hafi verið orðinn gamall. Hann gekk um gólf og orti eina visu i hverri ferð, en Val- týr bróðir minn skrifaði visurnar upp, jafnóðum og gesturinn fór meö þær. Þarna var þá kominn Simon Dalaskáld. Ekki man ég glöggt eftir likamsvexti Dala- skáldsins, en andlitið finnst mér að hafi veriö likt þeim myndum, sem ég hef siðan séð af Simoni. Simon mun hafa komið talsvert oft til foreldra minna, en lfklega hefur þetta verið með seinni ferð- um hans þangað, ef ekki hin sið- asta. En móðir hans var lengi hjá foreldrum minum og dó þar. Ég man ekkert eftir henni, þvi að hún var dáin fyrir mitt minni, en lik- legt þykir mér að vera hennar hjá foreldrum minum hafi stuðlað að ferðum Simonar þangað. Þetta fólk var gætt hátt vísi og virðingu fyrir skoðunum náungans — Hvernig eru búskaparskil- yrðin þar sem þú ólst upp? — Jörðin er ekki stór, en ágæt- lega grasgefin, bæöi tún og engj- ar. Búið var ekki stórt og fram- kvæmdir ekki neitt likar þvi sem seinna varð isveitum landsins, en þó man ég að gerðar voru sléttur með handverkfærum einsog lengi tiðkaðist. Sjálfsagt myndi ungu fólki nú þykja það fábreytilegt lif, sem við lifðum, sveitakrakkarnir á þessum árum, enda er það mála sannast, að ekki var mikið um að vera. Heimilislif foreldra minna var friðsælt. Mér hefur oft orðið hugsað til þess eftir að ég varð fullorðinn, að ég minnist þess ekki að hafa nokkru sinni heyrt talað um stjórnmál á æskuheimili minu, hvað þá að deilt hafi verið um slika hluti. Þetta kann að þykja undarlegt, og enginn þarf að halda, að vel upplýst sveitafólk á íslandi hafi ekki haft sinar skoðanir á þjóðmálum á morgni þessarar aldar, þegar sjálf- stæðisbaráttan var að ná há- marki. — Þar nægir að minna á Uppkastið fræga árið 1908. — En um þessi efni var ekki talað. Mér er nær að halda, að fólkið sem ég umgekkst i æsku hafi verið gætt háttvisi og virðingu fyrir skoðun- um náungans i rikara mæli en al- mennt gerist nú á dögum. — Svo við höldum áfram að taia um hinn ytri hag: Manstu eftir fráfærum? — Já, ég sat yfir kviaám, en ekki þótti mér það skemmtilegt verk. Ég vildi heldur slá, enda hefur mér alltaf þótt gaman að heyskap. — Manstu, hve margt var i kvi- um hjá föður þinum? — Um þetta leyti voru fráfærur sem óðast að leggjast niður, margar ærnar gengu með dilk. Þetta eina sumar sem ég passaöi kviaærnar voru þær á milli tutt- ugu og þrjátiu. Það voru gifurleg búdrýgindi að sauðamjólkinni og ágætur matur, bæði hún sjálf og það sem úr henni var unnið. Hæfileikar, sem ekki fengu að njóta sin — Þú minntist áðan á Simon Dalaskáld. Manstu ekki cftir l'leiri einstaklingum, sem þú veittir sérstaka athygli? — Jú, mér er sérstaklega i minni maður sem hét Jón, og var kallaður Jón dagbók. En viður- nefnið mun hann hafa fengiö af þvi, að hann hélt feiknalanga dagbók. Hann ferðaðist um, og Gisli Albertsson. — Timamynd Gunnar. var oft með bækur, sem hann reyndi að selja. Hann gisti alltaf hjá foreldrum minum, og i hvert skipti las hann heila sögu á kvöldi til þess að skemmta heimilisfólk- inu. Mun hann sjálfur hafa litið svo á, að með þvi væri hann búinn að. greiða gistinguna. En vitan- lega datt foreldrum minum aldrei i hug að krefja hann um borgun i neinni mynd. Slikt var ekki siður á þeim árum. Jón las ljómandi vei, og fólk hafði ánægju af að hlusta á hann. En hann gerði meira en að lesa sögur. Hann skrifaði lika sjálfur langa skáld- sögu. Hún hét Hinn hviti hrafn. Ekki vil ég dæma um listrænt gildi hennar, og aldrei mun hún hafa komið út. E.ina visu kann ég eftir Jón „dagbók”, og hún sýnir, að hann gat vel komiö fyrir sig orði. Areiðanlega hefur lestrar og skriftarárátta Jóns stafað af þvi, að hann hefur verið gæddur hæfileikum i þá átt, þótt þeir næðu hvorki að þroskast né njóta sin við þær aðstæður sem lifið bauð honum. Visan er svona: Þessistafur styður afar mikið. Minnkar þrautir máttur hans mjög um brautir Isalands. Ekki var Jón með öllu laus við að vera sérkennilegur i háttum. Hann gekk jafnan með húfu eina mikla, og sá var siður kvenfólks- ins á bæjum þar sem hann kom, að skreyta húfuna með alls konar glingri. Þetta þótti Jóni hin mesta sæmd og vildi ekki skilja húfuna við sig, svo miklar mætur hafði hann á henni, eftir að kollurinn var allur orðinn þéttsetinn hinu fáránlegasta skrauti. Eyvindarkofaver. Daufleg hefur vistin vcriö i þessu hreysi, þcgar stórhriðar vetrarins buldu á þaki og veggjum, en sumarfegurö öræfanna er lika mikil. — Var ekki litið um slikan lúx- us sem skemmtiferðalög, þegar þú varst að alast upp? — Jú, það var nú vist. Ég man samt, að þegar ég var um tiu ára aldur fékk ég að fara út á Sauðár- krók og horfa á iþróttamót sem haldið var þar. Það var i fyrsta skipti, sem ég var við- staddur slika skemmtan, en ekki i siðasta skiptið, þviaðiþróttir áttu eftir að skipa mikið rúm i' h'fi minu siðar. Sama er að segja um ferðalög. Þessi kaupstaöaferö min var hvorki löng né viðburöa- rik, en við getum sagt, að hún hafi verið visir að öðru meira. Ég hef ferðazt mikið siðan. Fluttist suður i Borgar- fjörð og gerðist iþrótta- maður — Ilvenær hleyptir þú svo heimdraganum og hélzt út i ver- öldina? — Ég fluttist suður i Borgar- fjörð árið 1917 og átti þar heima til ársins 1951. Mestan hluta þess tima átti ég heima á Hesti, hjá bróður minum, séra Eiriki Albertssyni, sem þjónaði Hest- þingum frá 1917—1944 og bjó jafn- framt á Hesti öll embættisár sín þar. — Þú hefúr þá kynnzt félags- og menningarlifi Borgfirðinga vel, fyrst þú varst þar svona lengi? — Ég var i ungmennafélaginu Dagrenningu i Lundarreykjadal, og það var, held ég, orsök þess að égbyrjaði aðtaka þátt i iþróttum. Ég var kominnum þritugt, þegar . mér datt fyrst i hug að keppa, og það var i raun og veru tilviljun, að ég leiddist út i þetta. — Hvaöa grein iþrótta var það, sem þú stundaðir? — Ég keppti i hlaupum fyrir ungmennafélagið Dagrenningu. Ég sagði „hlaupum”, þvi að þar lagði ég stund á fleira en eitt, þóttallt heyrði það undir svokolí uð langhlaup. Keppendur voru allir úr Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu. Ég keppti i viðavangs- hlaupi og varð fyrstur i þrjú skipti eða svo. Vegurinn, sem valinn var, var ákaflega misjafn og viða vondur, bæði brattur og grýttur, svo þetta var svo sem ekki neitt sældarbrauð. — Þú hefur saint haldiö áfram aö æfa þig og keppa? — Já, ekki vantaði áhugann. Ég kom fyrst til Reykjavikur i þvi skyni að keppa i viðavangshlaupi árið 1933. En það fór ekki eins vel og æskilegt hefði verið, og hygg ég að það hafi mest verið sjálfum mér aö kenna. Ég fór alltof hratt af stað og var orðinn illa haldinn, þegar liða tók á keppnina. Þegar ég átti aðeins eftir tvo metra i mark, datt ég, og á meðan fóru tveir fram úr mér. Ég varð þriðji i röðinni, en hefði áreiðanlega getað náð betri árangri. Þórsmörk, fallegt landsvæði og afar sérkennilegt, enda eftirlæti ferðamanna. skynsamlegas ta sem ég hef gert um dagana” — Rætt við Gísla Albertsson um ferðalög, i íþróttir og sitthvað fleira „Pað er með því haldið fram, en ég legg litinn trúnað á slikt, enda væri það til- efnislaust að þvi er Þórsmörk varðar, þvi að þar hef ég aldrei orðið var við neitt óeðlilegt. — Hefur þú unnið mikið á veg- um Ferðafélagsins? — Ég hef unnið fyrir félagið á sumrin siðan 1970, og verið á ýmsum stöðum: Þórsmörk, Landmannalaugim og i Nýjadal. Á siðastnefnda staðnum var byggður stór skáli og geymsla, þótt annar skáli væri þar fyrir. Það var mikil vinna við þessa ný- byggingu, og ég var þar lengi. — Var ekki einmanalegt að vera þarna innfrá? ---- Það var oft gestkvæmt. Ferðahópar komu og félagar hjálpuðu okkur við byggingar- vinnuna. Þetta var auðvitað ákaf- iega gaman, bæði að sjá kunnug andlit, og svo hitt, að eiga von á hjáipa daginn eftir, en venjulega komu gestirnir ekki fyrr en undir kvöld, eða jafnvel eftir að komið var fram á nótt. — Kunnir þú ekki lifinu vel, þarna inni i fjallafrelsinu? — Það er gott loft þar, enda svaf ég vel þarna innfrá, einkum fyrra sumariðsem ég var þar. öll tilbreyting er holl, og ekki sizt sú að yfirgefa bæjarysinn og dvelj- ast úti i náttúrunni, helzt inni i ó- byggðum sumaríangt. Menn endurnærast á sál og likama við það. Kofarústir Fjalla-Ey vindar — Hefur þú ekki stundum kom- ið á slóðir útilegumanna, þegar „Skagafjörður I skinandi sól", sagði útlendur kvenrithöfundur að væri fegursta sjón sem hún hefði séð á tslandi. Það blómlega hérað hefur einnig skinið við sólu, þegar þessi mynd var tekin af Glaumbæ 1 Skagafiröi og umhverfi hans. — Ljósm.: Páll Jónsson. — Þetta er allt svo ólikt, að það er i raun og veru ekki hægt að bera það samán. Tækninni hefur fleygt gifurlega fram og aðbúnað- ur allur er orðinn óþekkjanlegur hjá þvi' sem áður var. Framfar- irnar eru miklar á mörgum svið- um, en sumt kann ég illa við. Það er kannski af þvi að ég er orðinn of gamall. Það hefði þótt skrýtið þegar ég var ungur, að keppendur bæru auglýsingaspjöld. En kannski þarf þetta að vera svona, — ég veit það ekki. Á öræfum — En fleira hefur þú gert en að stunda búskap og iþróttir. Ertu ekki lika mikill ferðamaður? — Mikill? Það fer nú eftir þvi, hvernig á það er litið. Ég fluttist til Reykjavikur árið 1951. Fyrstu árineftir að ég var setztur þar að, fór ég litið, en svo hafði ég sem betur fór vit á þvi að ganga i Ferðafélag Islands. Það er með þvi skynsamlegasta sem ég hef gert um dagana. Siðan hef ég ferðazt um mestan hluta Islands ogkomiðiallarsýslurlandsins að Austur-Skaftafellssýslu einni undanskilinni. Og til Vestmanna- eyja hef ég ekki komið, Aftur á móti hef ég komið til Grimseyjar, en var óheppinn með veður. Það var dumbungsveður og kalt, hit- inn ekki nema þrjú stig, þótt að sumarlagi væri. — Nú kemur vandasöm spurn- ing: Hvar hefur þér fundizt fall- egast á islaiuli? — Þessu svara ég með þvi að taka mér i munn orð frægrar skáldkonu, Sigrid Unset. Hún var hér á ferð fyrir áratugum siðan, og var aö þvi spurð, hvað hún hefði séð fallegast i ferðinni. „Skagafjörð i skinandi sól,” svar- aði hin erlenda skáldkona. Og þetta ætti ég ekki siður að geta sagt, sem lifði þar bernskuvor mitt og á þaðan óteljandi sól- skinsminningar. Fallegast þykir mér alltaf að horfa á héraðið ofan af Vatnsskarði, en hitt er alveg rétt, að viða i Skagafirði er útsýn hvorki sérlega fjölbreytt né til- komumikil. Viða annars staðar er miklu meiri fjölbreytni i lands- lagi, og þarf þá jafnvel ekki að taka dæmi af þeim stööum sem frægastir eru, eins og Asbyrgi, Hólmatungúr, Þórsmörk og Landmannalaugar, eða inn hjá Nýjadal, þar sem ég er orðinn vel kunnugur. — Hefur þú oft veriö i Þórs- mörk? — Já, margoft. Ég hef unnið þar fyrir Ferðafélag tslands og oft verið nokkrar vikur þar innfrá i einu. Það eru orðnir margir mánuðir, sem ég hef dvalizt i Þórsmörk, samanlagt. — Er ekki reimt þar? — Ekki hef ég orðið þess var. Ég veit, að þessu hafa ýmsir Sæluhúsin tvö hjá Nýjadal. Þarna vann Gisli Albertsson I tvö sumur og undi sér vel i öræfaloftinu. þú hefur verið á ferð um óbyggð- irnar? — Jú, auðvitað hefur það hent, en það sannar ekki að mikið hafi verið um útilegumenn á íslandi, Ekki er þó hægt að afneita Fjalla-Eyvindi, þvi að um hann eru margar og traustar heimildir. Og vafalaust eru hann og Halla ekki einu manneskjurnar, sem freistuðu þess að lifa lifinu á heið- um uppi, þegar vegir hins borg- aralega samfélags höfðu af ein- hverjum ástæðum lokazt þeim. Já, á Hveravöllum hafa menn hafzt við, það er bersýnilegt, þótt hvorki séu mannvistarminjarnar stórar né fyrirferðarmiklar, enda ekki þess aö vænta. Flestir kannast viðEyvindarver á Sprengisandi. Þar hafa útlag- arnir byggt hús sitt úti i flóa og tekið vatnið upp um gólfið. Að þvi hefur verið mikið hagræði, þegar stórviðri geisuðu á hálendinu dögum og jafnvel vikum saman, en annars má nærri geta, að ekki hafa þessar vesalings manneskj- ur veriö öfundsverðar af vistinni. Þó þykir mér ekki óliklegt, að sæmilegt hafi verið til matfanga, þvi að talsvert mikið er af fugli þarna innfrá, og þó senniléga meira fyrr á öldum en nú er. Þá hefur bæði verið hægt að veiða þegar þeir voru i sárum og i snör- ur á öðrum timum ársins. Siðast en ekki sizt má svo nefna afrétt- arféð á sumrin það hafa öræfabú- arnir áreiðanlega notfært sér eftir þvi sem til náðist, þvi frekur er hver til fjörsins. Sagt er að Halla, kona Fjalla-Eyvindar hafi sagt: „Fag- urt er á fjöllunum núna”. Sama fannst mér, þegar ég kom fyrst á þessar útilegumannaslóðir, og enn finnst mér þar stórlega fag- urt, hversu oft sem ég kem þar. Segja má, að náttúrufegurð verði ekki i askana látin, en liklegt finnst mér þó, að hún hafi heillað útlagana, og verið þeim talsverð raunabót. Það er ekki amalegt að hafa sjálfan Hofsjökul beint á móti bæjardyrum sinum, og svona nærri. Þær ferðir gleymast ekki — Manstu ekki einhverja ferðasögu, sem þér er sérlega hugstæö? — Þær eru svo margar, að ég veit varla hverja ég á helzt að taka, — mér finnst þá næstum einsog ég sé að gera öllum hinum skemmtilegu ferðunum rangt til! Það var til dæmis ákaflega gam- an, þegar ég fór með sex fóstrum norður i land i stórum bil frá Ferðafélaginu. Við komumst alla leið austur að Jökulsá, austur að Hljóðaklettum og skoðuðum Jökulsárgljúfur. Það var mikið sungið i ferðinni þeirri. Við vor- um rúma viku i ferðinni, gistum hjá Hljóðaklettum. Svo er mér lika i minni önnur ferð norður i iand. Þá var Oskar Halldórsson lektor með okkur. Hann sat fremst i bilnum og tal- aði við okkur i gegnum hljóönem- ann. Minnisstæðast alls er mér, þegar hann fór með Hvarf séra Odds frá Miklabæ eftir Einar Benediktsson. Ég hef aldrei, fyrr né siðar, heyrt slikan flutning á þvi kvæði. — Ef til vill hefur þetta kvæði snortið mig með öðrum hætti en suma ferðafélaga mina vegna þess, að ég er vel kunnugur á þeim slóðum sem þar er fjallað um. Ég átti heima á Miklabæ i þrjú ár, og hef bæði komið á tóft- arbrotið, þar sem Solveig endaði ævi sina og lika séð pyttinn, þar sem sagt var að draugurinn hefði drekkt presti. — Vel á minnzt: Iivaö heldur þú, sem Skagfirðingur, að hafi oröið af séra Oddi? — Það er ekki gott að segja. Fyrir nokkrum áratugum var bóndi i Skagafirði að byggja hest- hús, og fann þá beinagrind af manni. Enginn veit af hveijum hún var. Menn hafa verið að týn- ast á öllum öldum, án þess að uppvist hafi orðið um afdrif þeirra. Mér þykir sennilegt, að eitthvað likt hafi gerzt með séra Odd og er að gerast enn þann dag i dag. — Við förum nú aö slá botninn i þetta, Gisli, en að lokum langar mig að spyrja þig: Hvað hefur þér þótt skemmtilegast um dag- ana? — Nú þykist ég vita að þú hald in að ég muni svara: „iþróttir" eða „ferðalög”, en ég ætla hvor- ugt þetta að nefna. Ég er ekki i neinum vafa um að það sem mér hefur þótt skemmtilegast alls sem ég hef gert um dagana er heyskapur, þegar tið er hagstæð og grasspretta góð. —VS. Landmannalaugar hafa lengi veriö eftirsóttar af feröafólki, og þaö svo mjög, að gæta veröur fyllstu varúðar,að gróðri þar verði ekki ofboðiö með átroðningi manna og öku- tækja. En þar er gott að vera, náttúrufegurö mikil og vatniö alveg mátulega volgt til þess aö baöa sig i þvi. — Ljósm. Páll Jónsson. bjóst enginn við neinu af mér, sem ekki var heldur von, þegar litiö var til þéss, hvernig mér hafði gengiðað undanförnu. Eftir tvo hringifór/ hann fram úr mér, enégfylgdi honum eftir, og á þvi gekk allan timann. Þegar sjö hundruð metrar voru eftir i mark, tók ég endasprettinn en það hefðí égekki átt að gera fyrr en svolitið seinna. Hann dró aðeins á mig siðast en svo fóru leikar, að ég var sjö tiundu hlutum úr sekúndu á undan honum i mark. Þau úrslit komu flestum á óvart, þvi að Karl var ágætur hlaupari. Metið, sem hann hafði sett árið áður en þetta gerðist, stóð i átján ár, að rnig minnir. ,,Þá hæst fram fer....” — Ilvað voru þetta mörg ár, sem þú stundaðir iþróttir reglu- lega? — Þau urðu færri en ég hefði viljað. Ég byrjaði 1930 og hélt þvi stöðugt áfram til 1935. en þá veiktist ég al kighósta og varð að hætta. Mér finnst að vorið 1935 seinasta vorið sem ég gat stundað iþróttir, hafi verið bezti timi minn á þessu sviði, — að þá hafi mér verið léttast um. Þá hljóp ég tutt- ugu kilómetra vegalengd annað hvert kvöld, eftir að vinnu lauk, án þess að finna til þreytu. Fyrsta kvoldið fékk ég strengi i kálfana, eftir það, og var ég þó orðinn 36 ára. Það má þvi líklega segja um mig að ég hafi hætt leiknum, þegar hann fór hæst. — Ilvernig finnst þér iþróttalif nútimans, þegar þú berð það saman við þaö sem þú þekktir, þegar. þú varst ungur? yT ~ -st — Ekki hefur þú látið svona slysni draga úr þér kjarkinn: — Það var ekki ein ástæða til þess, enda kunni ég illa þessum leikslokum. Ég fór aftur til Reykjavikur um sumarið og keppti á alhliðamótinu. En mér gekk illa fyrst, einkum i fimmtán hundruð metra hlaupinu, enda var það alltof stutt fyrir mig, þvi að i eðli minu var ég ekki neinn spretthlaupari. i fimm kilómetra hlaupinu stóð ég mig betur, en þá var mikill kuldi og hvassviðri, sem átti afar illa við mig pg gerði arangur minn mun lakarien þurft hefði að vera. Tveim dögum seinna keppti ég i tiu kilómetra hlaupi og fékk á móti mér þáver- andi methafa i þeirri grein, Karl frá Vestmannaeyjum. Auövitað Viðavangshiaupið 1935. Sigurveg- arinn, Gisli Albertsson, kemur að markinu. Þetta ár keppti GIsli fimm sinnum og varð fyrstur i mark i öli skiptin. {

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.