Tíminn - 30.03.1976, Side 15
Þriðjudagur 30. marz 1976.
TÍMINN
15
Lokafundur vegna kvenna-
frísins —Kvennasögusafni
afhentar gjafir
Þrjdtíu konur hafa skrdð sig í framhalds-
starfshóp
SJ-Reykjavik. A sunnudag efndu
konur þær sem höfðu forystu um
kvennafri 24. október 1975 til
lokafundar að Hótel Sögu. Tilefni
fundarins var að afhenda
Kvennasögusafni Islands öll skjöl
vegna kvennafrisins ásamt bók-
um með safni blaðaúrklippa með
frásögnum um kvennafridaginn
og tildrög hans. Ennfremur
var forstöðumönnum safnsins
afhent 800 þúsund kr., tekjuaf-
gangur úr fjársöfnun, sem varö
til vegna kvennafrisins.
Þeim Onnu Sigurðardóttur,
Elsu Miu Einarsdóttur og Svan-
laugu Baldursdóttur var þakkað
það frumkvaéöi, sem þær áttu aö
þvi aö halda til haga sögu islenzk-
ra kvenna með stofnun Kvenna-
sögusafns íslands i byrjun
kvennaárs Sameinuðu þjóðanna.
Undirbúningshópur og fram-
kvæmdanefnd um kvennafri telja
æskilegt að fénu, sem safninu var
gefið verði varið til kaupa á nauð-
synlegum tækjum til að hefja
skipulega skráningu safnsins, svo
og til að skrá, svo fljótt sem verða
má þau drög að heimildasafni,
sem Anna Sigurðardóttir gaf
Kvennasögusafni tslands á stofn-
degi þess 1. janúar 1975.
Erna Ragnarsdóttir setti fund-
inn en kynnir var Guðrún
Asmundsdóttir leikari.
A fundinum sagði Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir frá ferð sinni til
Kaupmannahafnar skömmu eftir
kvennafriið, en þar hitti hún með-
al annars islenzkar konur er
héldu fridag i islenzka sendi-
ráðinu og námsmenn i Dan-
mörku. Vilborg Dagbjartsdóttir
flutti minni karla og Guðrún Á.
Simonar óperusöngvari söng
nokkur af lögunum, sem hljóm-
uðu á útifundinum á Lækjartorgi
á kvennafridaginn.
Veitingar á fundinum voru að
ósk önnu Sigurðardóttur veittar
fundargestum úr sjóði fram-
kvæmdanefndarinnar.
Með þessum fundi lauk farsælu
samstarfi um kvennafriið en það
hvildi á samstarfsnefnd skipaðri
fulltrúum nær 50 félagasamtaka,
sem tók til starfa i september sl.
og undirbúningsstarfshópi, sem
tók til starfa i ágúst.
Nær 30konur hafa nú skráð sig i
umræðuhóp um framhaldsstarf
að jafnréttis— og jafnstöðumál-
um og setjast þær fljótlega á rök-
stóla og reifa hugmyndir sinar.
Björg Einarsdóttir afhendir önnu Siguröardóttur og Elsu Miu
Einarsdóttur skjöl, bréf og vinnuskýrslur vegna kvennafrfsins 24.
október sl.
Auglýsing um
aðalskoðun bifreiða
í Húsavík og
Þingeyjarsýslu
Aðalskoðun bifreiða á Ilúsavik og Suður-
Þingeyjarsýslu 1976 er hafin og fer fram á
Húsavik, og skal henni lokið fyrir 30. maí
næstkomandi.
Skoðað er alla virka daga nema laugar-
daga frá kl. 9 /til kl. 16.30.
Við skoðun ber ökumönnum að framvisa
kvittunum fyrir lögboðnum gjöldum bif-
reiðanna, ásamt ökuskirteini. Aðalskoðun
i Norður-Þingeyjarsýslu fer fram i júni og
verður auglýst nánar siðar.
Vanræksla á að færa bifreið til skoðunar á
tilteknum tima, varðar sektum.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu,
Bæjarfógetinn Húsavik.
Sigurður Gizurarson.
Auglýsið í Tímanum
Framkvæmdanefnd og undirbúningsstarfshópur um kvennafri. Sitjandi Bessi Jóhannsdóttir, Elisabet
Gunnarsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Ásdis Guömundsdóttir. Standandi Þuriöur Magnúsdóttir, Aöai-
heiöur Bjarnfreösdóttir, Erna Ragnarsdóttir, Sigriöur Friöriksdóttir, Geröur Steinþórsdóttir, Valborg
Bentsdóttir og Björg Einarsdóttir.
verð
ca. kr.
mmz ■ b_
JÍlDOO,
sem ekki verður
endurtekið-.-
SKODA 10O
-630.000.
til öryrkja ca. kr. 460.000.-
j tilefni af því að 30 ár eru síðan fyrsti
Skodinn kom til iandsins,
hefur verið samið við SKODA
verksmiðjurnar um sérstakt
afmælisverð á takmörkuðu magni
af árgerðum 1976.
5000asti SKODA bíllinn verður
fluttur inn á næstunni.
Hver verður sá heppni?
SKODA 110L
verð ca. kr. 670.000.—
til öryrkja ca. kr. 492.000.—
SKODA 110LS
verð ca. kr. 725.000.—
til öryrkja ca. kr. 538.000.—
SKODA110R Coupé
verð ca. kr. 797.000.—
til öryrkja ca. kr. 600.000.—
TEKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44 - 46 KÓPAVOGI SÍMI 42600
AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ Á AKUREYRI H/F. ÓSEYRI 8.
EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR.