Tíminn - 30.03.1976, Blaðsíða 20

Tíminn - 30.03.1976, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Þri&judagur 30. marz 1976. Sigurður meistari SIGUHÐUR T. Sigurðsson, fim- leikamaðurinn snjaiii úr KR varð fimleikameistari lslands i 3ja sinn — liann vann yfirburða- sigur á meistaramótinu. Ung og efnileg stúlka úr Björk frá Hafnarfirði, Karolina Guð- mundsdóttir, varð íslands- meistari kvenna. Ragnhildur meistari RAGNHILDUR Pálsdóttir úr KR varð öruggur sigurvegari i kvennaflokki i Viðavangshlaupi tslands, Ragnhildur hefur verið ósigrandi i hlaupinu undanfarin ár. FH-ingurinn Sigurður P. Sigmundsson varð meistari i karlaflokki. Elzti keppandi i hlaupinu var Stefán i Vorsbæ — 62 ára — og hljóp hann léttilega. Akureyr- ar stúlkur meistarar ÞORSLIÐIÐ frá Akureyri tryggði sér lslandsmeistara- titilinn i körfuknattleik kvenna, þegar Akureyrarstúlkurnar lögðu F ram og 1R að velli um helgina betta er annað stór- mótið, sem bórsliðið vinnur sigur i — það varð bikarmeist- ari i fyrra. Víkingur meistari VÍKINGSSTÚLKURNAR uröu tslandsmeistarar i blaki á Húsa- vík um helgina, en þar kepptu þær ásamt slúlkum úr brótti og HSb til úrslita. IS-liðið sigursæla hefur nú þegar tryggt sér meistaratitilinn með sigri i 1. deildar keppni karla. SIGURBERGUR SIGSTEINSSON....skoraði mörg falleg mörk, eftir að hann hafði brotist I gegnum varnarvegg Kanadamanna — og sloppið inn úr honum. Tvöfaldur sigur — hjó karlalandsliðinu, sem glímdi við frumstæða Kanadamenn, sem voru oft á tíðum eins og Kanadamenn voru léttir andstæöingar fyrir karla- landsliðiö okkar í hand- knattleik, sem lagöi Kanadamenn tvisvar sinn- um aö velli um helgina — f yrst 23:19 á laugardaginn, i lélegum og daufum leik villimenn í vörn og siðan 22:11 á sunnudag- inn. Strákarnir okkar þurftu ekki aö taka á hon- um stóra sínum — Kanada- menn voru eins og börn í höndunum á þeim og léku oft á tíðum eins og byrjendur. Varnarleikur þeirra var mjög frumstæður — þeir börðu gróflega frá sér og voru oft á tið- um eins og villimenn. Kanada- menn eiga langt i land i hand- knattleiksiþróttinni og átti islenzka landsliðið með réttu að vinna þá með miklu stærri mun — ef leikmenn liðsins hefðu haldið rétt á spilunum. Guðjón Magnússon og Sigur- bergur Sigsteinsson komust bezt frá leikjunum, en annars var varnarleikurinn aðalsmerkið hjá islenzka liðinu. ISLAND—Kanada. 23:19 (13:11) — Guðjón 5, Ólafur Einarsson 4, Jón Karlsson 4, Friðrik 3, Hörður 2, Sigurbergur 2, Árni 2 og Bjarni 1. ISLAND—Kanada. 22:11 (10:4) — Guðjón 4, Jón 4, Árni 3, Ólafur 3, Bjarni 3, Sigurbergur 2, Pétur 1, Hörður 1 og Friðrik 1. iBlikarnir sigruðu BLIKARNIR unnu góðan sigur (2:1) I '.eik gegn Keflvikingum i Litlu-bikarkeppninni, þegar lið þeirra mættust i Keflavik á laugardaginn. Markaskorararnir Hinrik bórhallsson og Ólafur Friðriksson skoruðu mörk Breiðabliks-liðsins, en Guðjón Guðjónsson skoraði mark Keflvikinga. Blikarnir voru betri aðilinn i leiknum — fljótir og léttleikandi. þeir léku þunga Keflvikinga oft grátt, og sigur þeirra var fyllilega verðskuldaður. Framarar mæta FH GÖMLU keppinautarnir Fram og FH leiða saman hesta sína i 8-liða úrslitum bikarkeppninnar i hand- knattleik í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 20.15. bessi lið mætast i 8-liða úr- slitunum: Fram — FH Víkingur — Grótta Valur — Fylkir KR — ÍR Tveir siðastnefnd iflleikirnir fara fram i Laugardalshöllinui á mið- vikudagskvöldið. Brotið gróflega á Jóhönnu Halldórsdóttur á linunni — og vítakast dæmt. — skoraði bróðurpartinn af mörkum kvennalandsliðsins, sem sigraði og gerði jafntefli við Kanada ARNbRÚÐUR Karlsdóttir, handknattleiksstúlkan snjalla úr Fram, lék aðalhlutverkiö hjá kvennalandsliðinu, sem vann sigur (14:13) og gerði jafntefli (12:12) við Kanada um helgina. Arnþrúður var hreint óstöðv- andi i leikjunum — hún skoraði 6 mörk i jafnteflisleiknum og 7 mörk i sigurleiknum. Þrátt fyrir sterkan varnarleik Kanadastúlknanna, réðu þær ekki við þann mikla kraft, sem Arnþrúður hefur til að bera. Islenzku stúlkurnar voru með pálmann i höndunum i fyrri leiknum — höfðu 12:10 rétt fyrir leikslok, en Kanada náði að jafna. Aftur á móti varð breyting á í siðari leiknum — sigurinn blasti við Kanada rétt fyrir leikslok, þar sem kanadiska liðiö haföi yfir 13:10, en islenzku stúlkurn- ar jöfnuðu 13:13 og skoruðu sigurmarkið (14:13) rétt fyrir ieikslok. bær sem skoruðu mörk Islands i leikjunum, voru: ISLAND—KANADA..................................... — Arnþrúður 6, Oddný 2, Erla 2 og Guðrún 2. ISLAND—KANADA..................................... — Arnþrúður 7, Erla 2, Margrét 2, Jóhanna, Hansina og Öddný eitt hvor.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.