Tíminn - 30.03.1976, Síða 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 30. marz 1976.
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 19
frá og sýning að hef jast. Mark sá í svip hávaxinn mann
koma inn úr dyrunum og konu á hæla honum — konu sem
enginn gat annað en tekið eftir. Andlit hennar var
óvenjulega fallegt. Já, andlit Venetiu Harlow var eitt af
þeim, sem maður gleymir ekki svo auðveldlega.
Mark heyrði Justin segja hátíðlega: — Verður maður
ekki stoltur af því að vinsælasta kona í París þessa
stundina skuli vera ensk? Hefurðu séð hana dansa,
Myra? Hún er draumur! Hver skyldi þetta vera, sem er
með henni? Myra, hvað er að....líður þér illa?
Brothljóð kvað við og Mark leit á konuna við hlið sér.
Hún stóð eins og stytta og starði yf ir salinn. Glasið hafði
runnið úr hönd hennar og lá mölbrotið við fætur hennar,
en hún hafði ekki tekið eftir því. Það var eins og tóm
hönd hennar héldi ennþá um það.
Mark fylgdi augum hennar, en þau hvíldu ekki á
Venetiu Harlow, heldur manninum við hlið hennar. Myra
Henderson starði á hann, lömuð af undrun, rétt eins og
hún sæi afturgöngu.....
Eða veru, sem vekti minningar frá liðnum tíma........
9. kafli
Svona lagað gerðist blátt áfram ekki! Maður fór ekki
alla leið til Parísar til að forðast mann, og rekast svo á
hann í fyrsta sinn, sem maður fór í veizlu. Það var ekki
hægt að byrja á nýjum kaf la í líf i sínu, f létta við og upp-
götva, að maður var að byrja aftur á því sama.
Ekki það, að Myra og Brent gætu byrjað aftur upp á
nýtt, þau gátu aðeins farið aftur til þeirrar stundar, sem
þau skildu. Það var illa gert af örlögunum að láta þau
hittast aftur.
Þegar versta áfallið var liðið hjá, heyrði Myra rödd
Marks eins og í þoku: — Drekkið þetta....þér haf ið gott
af því. Hann sagði þetta eins og hann væri að gefa henni
lyf. En röddin var ákveðin og hún hlýddi ósjálfrátt. Hún
fann drykkinn svíða í hálsinum og hita sér um allan lík-
amann. Hún seri sér við og leit á Mark og það var eins og
eitthvað af styrk hans færðist yfir til hennar. Henni
fannst hún skyndilega örugg.
— Hvað gerðist? spurði Justin eilítið ringlaður og
gramur. Honum geðjaðist illa að því að vera settur hjá.
— Mig svimaði skyndilega, sagði Myra.....hitinn lík-
lega.
Mark var sammála. — Þessar íbúðir hérna í París eru
svo illa loftræstar. Frænka mín er orðin vön því, en ég
þoli það illa. Loftið hérna er allt of þungt, eigum við ekki
að ganga út á svalirnar um stund?
Henni skildist, að hann opnaði henni undankomuleið.
Haf ði hann getið upp á því rétta — þessi skynsami og ein-
kennilega skilningsríki maður — að einhver hefði komið
inn, sem hún vildi fyrir hvern mún komast hjá því að
hitta?
En einmitt meðan hún stóð þarna og velti fyrir sér,
hvort hún ætti að f lýja eða sigrast á veikleika sínum, leit
Brent á hana. Andartak þekkti hann hana ekki, augna-
ráðið var spyrjandi, eins og hann myndi ekki hvar hann
haf ði séð hana. En svo var eins og hann stif naði og brosið
hvarf af andliti hans.
Þá ákvað Myra sig. Hún ætlaði ekki að stinga af, hún
kerrti hnakkann stolt og tók að ræða við herrana sína,
eins og ekkert hefði í skorizt.
— Ég er sammála þér, Justin, sagði hún. — Ungfrú
Harlow er verulega falleg. Ég hef aldrei séð hana áður,
ekki einu sinni á sviði.
— Hefurðu ekki séð hana dansa? spurði hann undr-
andi. — Þú verður að gera það! Hvar er Estelle? Við
verðum að fara saman í óperuna, ertu ekki sammála
Mark? Það er ógleymanleg reynsla að sjá Venetiu Har-
low dansa.
Silf urgrátt höf uð Estellu kom í Ijós. — Var einhver að
nefna mig?
— Já svaraði Justin. — Myra segist aldrei hafa séð
Venetiu Harlow dansa. Ég sting upp á að það verði lag-
færteins fljóttog hægt er. Eigum við ekki að safna sam-
an svoliflum hóp og fara í óperuna, Estelle?
— Ágæthugmynd, ég skal sjá um það. En leyfið mér að
kynna.... Hún greip um hönd Venetiu og dró hana til
þeirra.
— Ungf rú Harlow má ég kynna doktor Henderson — ég
leyf i mér að kalla hana Myru. Myra, ungf rú Harlow.
Venetia var enn fegurri i nálgæð. Augu hennar voru
stór og I jómandi og skínandi I jóst hárið var bundið í hnút
í hnakkagrófinni. Hún var grönn og stælt, en ótrúlega
glæsileg i hverri minnstu hreyfingu. Myru fannst hún
sjálf þunglamaleg og klunnaleg. Ekki furða þótt Brent
tæki hana fram yfir mig, hugsaði hún ósjálfrátt.
Sér til undrunar fann hún að hönd Marks Lowell studdi
undir olnboga hennar — róandi snerting. Hönd hans
HVELL
G
E
I
R
I
.1 jarð-
námustöð
nokkurri...
Á norðurhluta
Mongo.
- r. •<;
t. . •• .
'es SyndiCdld Inc . 1975 WorlO riQhl
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
Inlll iiifflÍ!
i
ÞRIÐJUDAGUR
30. mars
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dágskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Um dægurlagatexta á ís-
landi, annar þáttur.
Umsjónarmenn: Hjalti Jón
Sveinsson og Sigurjón Sig-
hvatsson.
15.00 Miðdegistónleikar:
Frá Salzburg Mozarte-
u m-h 1 jóm s vei t i n og
Filharmoniusveitin i
Slóvakiu leika. Stjórnend-
ur: Gerhard Wimberger og
Aram Katsjatúrianí.
Einleikarar: Karlheinz
Zöller og Margot Pinter. a.
Flautukonsert i D-dúr
(K314) eftir Mozart. b.
Pianókonsert og „Sverð-
dans” eftir Katsjatúrian.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn Finn-
borg Scheving sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 T.ónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Starfsskilyrði skólanna.
Stefán Briem eðlisfræðing-
ur flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Aö skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 íslensk tónlist.
Flytjendur: Kristján Þ.
Stephensen, Sigurður I.
Snorrason, Einar G. Svein-
björnsson, Þorkell Sigur-
björnsson og Halldór
Haraldsson. a. Sónata fyrir
óbó og klarinettu eftir
Magnús Blöndal Jóhanns-
son. b. Rómansa fyrir fiðlu
og pianó eftir Hallgrim
Helgason. c. Fimm stykki
fyrir pianó eftir Hafliða
Hallgrimsson.
21.50 „Hundsbit” smásaga
eftir Pétur llraunfjöiö Höf-
undur les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusáima (36).
22.25 Kvöldsagan: „Sá svarti
senuþjófur”: Ævisaga
Haralds Björnssonar leik-
ara. Höfundurinn, Njörður
P. Njarðvik byrjar lestur-
inn.
22.40 Harmonikulög Andrew
Walter leikur.
23.00 A hljóðbergi Þýski rit-
höfundurinn Josef Reding
les úr verkum sinum. Hjóð-
ritað á upplestrarkvöldi i
Norræna húsinu 25. þ.m.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
30. mars
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þjóðarskútan. Þáttur
um störf alþingis. Umsjón-
armenn Björn Teitsson og
og Björn Þorsteinsson.
21.20 Ofsi (The Fury) Banda-
rísk biómynd gerð árið 1936.
Leikstjóri Fritz Lang. Aðal-
hlutverk Spencer Tracy og
Sylvia Sidney. Joe Wilson er
á ferðalagi til að hitta
unnustu sina. Hann er tek-
inn fastur i smábæ einum og
sakaður um að hafa átt þátt
i mannráni. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
23.20 Dagskrárlok.