Tíminn - 30.03.1976, Síða 23

Tíminn - 30.03.1976, Síða 23
Þriðjudagur 30. marz 1976. TÍMINN 23 Viðtalstímar alþingismanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokksi Sverrir Bergmann, varaþingmaður, og Guðmundur G. Þórar- insson, varaborgarfulltrúi verða til viðtals laugardaginn 3. april á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstig 18, frá kl. 10 til 12. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Fundur verður að Rauðarárstig 18 fimmtudaginn 1. april n.k. kl. 20,30. Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri, ræðir um stjórnar- skrána. Takið kaffibrúsann með. SHrtrnin Kópavogur Félag ungra Framsóknarmanna i Kópavogi heldur almennan fund i Félagsheimili Kópavogs miðvikudaginn 31. marz kl. 20,30. Rætt verður um Félagsmálastofnun Kópavogs. Frummælandi Baldvin Erlingsson. Pétur Einarsson formaður tómstundaráðs mætir á fundinn. Stjórnin. Rangæingar — Framsóknarvist F'ramsóknarfélag Rangárvallasýslu heldur 4. og siðasta spila- kvöldið að þessu sinni i félagsheimilinu Hvoli Hvolsvélli, sunnu- daginn 4. april kl. 9. Ingvar Gislason alþingismaður flytur ávarp. Ýmis skemmtiatriði. Fjölmennið á lokakeppnina. Stjórnin. Opið hús Framsóknarfélögin i Kópavogi munu framvegis hafa opið hús að Neðstutröð 4 mánudaga kl. 5 til 7. Þar verða til viðtals ýmsir forystumenn félaganna og fulltrúar flokksins i nefndum bæjar- ins. Stjórnin. Ellefu fórust Reuter, Caracas. — Ellefu manns létu lifið og þrjátiu slösuðust þegar langferðabif- reið, full af farþegum, lenti út af veginum eftir árekstur við flutningabifreið. Arekstur þessi átti sér stað skammt frá höfuðborg Venezuela i gærdag. O íþróttir Hart Lane — vann stórsigur (5:0) yfir lélegu United-liði. Birming- ham, Wolves eða Burnley verða samferða United-liðinu niður i 2. deild. Sunderland vann góðan sigur (3:0) yfir Dýrlingunum frá Southampton i 2. deildarkeppn- inni. Roy Greenwood, sem Sunderland keypti frá Hull skoraði 2 mörk og Mel Holden, sem Sunderland keypti frá Preston á 100 þús. pund, skoraði eitt mark. Bristol City er nær öruggt um að komast upp i 1. deild — Sunderland, Bolton og West Bromwich Albion, berjast um hin tvö fyrstu deildar- sætin, sem losna. Alþingi samlegum grundvelli og þvi verði hraðað sem mest má vera og koma hér á breytingum. Ekkert athyglisvert ákvæði Ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum. þegar hæstvirtur fjármálaráðherra taldi, að það væru mörg athyglisverð ákvæði i þessari þingsályktunartillögu. Að minum dómi er ekkert athyglis- vert ákvæði i þessari þingsálykt- unartillögu, og ég vænti þess, að sú endurskoðun, sem fram fer, taki ekki mið af henni. Hann gat þess, að stefna Sjálfstæðisflokks- ins hafi verið sú að ekki yrði lagður skattur á almennar launa- tekiur, og það er stefna út af fyrir sig, og ég býst ekki við þvi, að tekjuskattur af svokölluðum al- mennum launatekjum nú sé ýkja mikill. Persónufrádrátturinn er orðinn það mikill, að tekjuskattur á almennar launatekjur er tiltölu- lega mjög litill. En hins vegar fannst mér koma fram i hans orð- um, að það væri ekki stefna flokksins að leggja niður tekju- skattskerfið, og ég fagna þvi og vænti þess, að við þaö verði stað-' ið, að Sjálfstæðisflokkurinn a.m.k. berjist ekki fyrir jafnfrá- leitri hugmynd. Hann gat þess, að afstaða launþegasamtakanna hefði breytzt á undanförnum ár- um, þ.e.a.s. að launþegasamtökin hefðu lagt mun meiri áherzlu á beina skatta, en viljáð draga úr ó- beinum sköttum. En hver er á- stæðan fyrir þessari afstöðu? Er hún ekki einmitt sú, að forystu- menn launþegasamtakanna hafa talið það vonlaust mál að berjast fyrir auknum skattjöfnuði. Þeir hafa gert það i mörgum tilfellum á undanförnum árum. En ég verð að segja það sem mina skoð- un, að ég tel, að launþegasamtök- in eigi að þrýsta mun meira á, að það verði komið á auknum skatt- jöfnuði, og leggja minni áherzlu á það að leggja tekjuskattskerfið niður, sem ég efast nú raunar um að sé stefna launþegasamtak- anna. Tekjuskatturinn var lækk- aður mikið 1974 i sambandi við kjarasamninga, eða um rúm 40%. Hann var lækkaður enn á ný á sl. Drukknaði í Hafnarfjarðarhöfn ári. Ég tel, að það hafi verið mis- ráðið að gera það, og menn hafa ekki alveg gert sér grein fyrir þvi, sem sóttu það mál sem fastast, hvað hefur tekið við. Menn verða að skilja, að það er til litils að leggja niður kerfi, sem er gallað, og breyta sköttunum þannig, að þeir fari inn i kerfi, sem er engu siður gallað og kannski miklu gallaðra og verra heldur en hitt. Söluskatturinn eykur aðstöðumun landsmanna Áhrif söluskattsins eru marg- visleg. Það má t.d. færa sönnur að þvi, að söluskatturinn hefur orðið þess valdandi, að aðstöðu- munur fólksins i landinu hefur orðið mun meiri. Söluskatturinn leggst þyngra á þá, sem úti á landi búa og þurfa að kaupa yfir- leitt dýrari þjónustu heldur en þeir, sem búa hér á höfuð borgarsgvæðinu. Þeir þurfa að kaupa dýrari simaþjónustu, þeir þurfa að borga flutningskostnað og fleira svipaðs eðlis, sem þýðir, að þetta fólk þarf að borga meiri söluskatt, og þar með er ójöfn- uður kominn á vegna siaukinnar eða sifellt hækkandi söluskatts. Einnig er það ljóst, að ungt fólk verður meira fyrir barðinu á söluskatti heldur en þeir, sem eru búnir að koma sér fyrir og eru orðnir ráðsettir. Maður, sem byggir hús i fyrsta skipti nú, þarf að greiða mun meiri söluskatt heldur en maðurinn, sem byggði hús fyrir 20 árum, og maður, sem kaupir heimilistæki og húsgögn þarf að greiða mun meiri sölu- skatt af þessari þjónustu eða þessum vörum heldur en maður- inn, sem gerði slikt fyrir 10-20 árum, en fyrir 20 árum var sölu- skatturinn ekki til. Menn verða einnig að gera sér grein fyrir þvi, að aukin skattheimta af þessu tagi kemur mismunandi niður á kynslóðunum, meðan áhrifa þess- ara hækkana gætir. Ég tel i sjálfu sér ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál. Ég vænti þess, að lögð verði á það öll áherzla að hraða endur- skoðun skattkerfisins og það verði undirstrikað, af Alþingi Is- lendinga, að tekjuskattskerfið og tekjuskátturinn verði ekki lagður niður, þvi að það er gifurlegur jöfnuður, sem felst i tekjuskatts- kerfinu, jöfnuður, sem ég sé ekki, að hægt sé að koma á á annan hátt með góðu móti, og ég trúi þvi vart, að Alþýðuflokkurinn ætli að berjast harðri baráttu fyrir þess- ari stefnu, a.m.k. ekki ef sá flokk- ur ætlar að kalla sig jafnaðar- mannaflokk.” Gsai-Reykjavik — í gærmorgun drukknaði 46 ára gamall maður skammt fyrir utan höfnina I Hafnarfirði. Maðurinn hét Hilm- ar Þórarinsson, til heimilis að Urðarstig 5 i Hafnarfirði. Hilmar var einhleypur, en bjó hjá for- eldrum sinum. Hilmar heitinn fór á opinni smátrillu frá Hafnarfirði ein- hvern tima á timabilinu milli kl . 6 og 8 i gærmorgun og fannst trillan mannlaus úti fyrir höfninni siðar um morguninn. Maðurinn sem sá mannlausu trilluna sá nokkru siðar lik Hilmars i sjón- um. Taliðer að Hilmar hafi hrasað i bátnum og fallið útbyrðis. Jörð í Rangárvallasýslu Til sölu er jörð i Þykkvabæ. Hefur að mestu verið notuð til kartöfluræktar. Útsæði og vélar geta fylgt. Fasteignir s.f. Austurvegi 22, Selfossi. Simi 1884, eftir hádegi. Iðnaðarbanki íslands h.f. Arður til hluthafa Samkvæmt ákvörðun aðalfundar hinn 27. marz sl., greiðir bankinn 13% arð til hluthafa fyrir árið 1975. Arðurinn er greiddur i aðalbank- anum og útibúum hans gegn fram- vlsun arðmiða merktum 1975. Athygli skal vakin á þvi, að réttur til arðs fellur niður, ef arðs er ekki vitjað innan þriggja ára frá gjald- daga, samkv. 5. gr. samþykkta bankans. Reykjavik, 29. marz 1976. f Iðnaðarbanki íslands hf. Járnabindingamenn Við óskum eftir að ráða nokkra járnabindingamenn, sem hafi a.m.k. 2ja ára reynslu í slíku starfi. Skriflegar umsóknir séu sendar á skrifstofu vora í Reykjavík, Suðurlandsbraut 12, þar sem greint sé frá reynslu umsækjanda, og tilgreint hjá hvaða vinnu- veitanda viðkomandi hafi unnið við járnabindingar. ENERGOPROJEKT Sigölduvirkjun

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.