Tíminn - 11.04.1976, Page 12
T2
TÍMINN
Suanudagur 11. aprll 1976.
Brosandi farþegar á leið í páskaferö til Sólarlanda. 1 baksýn er farkosturinn óþreyjufulli og rykkir i
tauinana?Svona þota tekur 126 manns i sæti og flýgur með þá á örfáum klukkustundum burt úr frosti og
kulda i hið eilifa sólskin suðlægra landa.
PÁSKAR H
OG ÞAR
ALLSSTA
Verzlunarmannahelgin hefur
stundum veriö nefnd „mesta
feröahelgi ársins”, og er það lik-
lega með rcttu. Þó má gera ráö
fyrir að páskahelgin sé ekki siður
timi feröalaga, þvi margir nota
sér þessa fridagaröð til þess að
skreppa úr bænum, úr landinu,
eða þó ekki væri nema út úr
húsinu: menn leita allavega frá
sinu hversdagslega umstangi og
umhverfi.
Nokkur breyting hefur orðið á
páskaferðum manna, þótt sumar
hafi verið með hefðbundnu sniði i
mörg ár, eins og páskaferðir
Ferðafélags tslands og úlfars
Jacobsens. Hinar miklu skiða-
ferðir Eimskipafélags tslands,
sem sendi Gullfoss vestur á ísa-
fjörð um páskana, hafa verið af-
lagðar, og sömuieiðis fjölmennar
páskaferðir á skiði, sem margir
fóru með Skipaútgerð rikisins,
þegar það félag réð yfir
hraðskreiðum farþegaskipum
með þrem farrýmum og gull-
brydduðum offiserum.
Við skyndikönnun, eins og það
heitir á seðlabankamáli, kemur i
ljós, að mjög mikið verður að
þessu sinni um ferðalög bæði til
útlanda og innanlands. Okkur var
sagt, að mikið yrði ferðazt með
áætlunarbifreiðum, og innan-
landsflugið verður mikið lika, að
sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða. Þá
verður mjög mikið um utan-
landsferðir, bæði á vegum félaga,
t.d. efna Framsóknarfélögin til
ferðar, bæði til Vinarborgar
einsog i fyrra, og starfandi ferða-
skrifstofur eru flestar með eina
eða fleiri páskaferðir.
Maria Garöarsdóttir hjá Ferðafélagi tslands.
En vikjum nú (yrst að
innanlandsferðum.
Samkvæmt upplýsingum
Ferðafélags tslands, en þar hitt-
um við að máli Mariu Garðars-
dóttur. Hún sagði okkur að
Ferðafélagið færi i Þórsmörk um
helgina. Hér er um tvær ferðir að
ræð i: Fimm daga ferð, sem hefst
á skirdag. Gist verður i skála
Ferðafélagsins i Langadal. Þá er
einnig fyrirhuguð þriggja daga
ferð á sömu stóðir, og gist verður
á sama stað. Úr báðum þessum
ferðum kemur fólk heim á annan i
páskum, mánudag.
Maria kvað þessar ferðir i
Þórsmörk vera farnar árlega og
margir sagði hún að færu oftar en
einu sinni með féiaginu á þessar
slóðir. Fjörutiu manns, eða þar
um bil, hefðu þegar boðað þátt-
töku sina i þessum ferðum, en
hinsvegar væri of snemmt nú að
segja, hver endanleg tala yrði.
Þetta væri dálitið misjafnt frá ári
til árs. Það þarf ekki að taka það
fram, að þessi ferð er farin á hóp-
ferðabilum.
Skrifstofur Feröafélags tslands
eru að öldugötu 3.
Auður Jakobsen og Njáll Slmonarson hjá Úlfari Jakobsen.
Safariferð i Öræfin
Ferðaskrifstofa Úlfars Jacobs-
ens fer með hóp manna i öræfa-
ferð.Fariðverðurá tveim bilum i
öræfasveit, og verður þetta 40-60
manna hópur, ef að likum lætur,
mest útlendingar. Þetta er hin
hefðbundna páskaferð hjá nkkur,
sagði sá sem við okkur talaði.
Lagt verður af stað á skirdags-
morgun og komið heim aftur á
annan páskadag.
Fyrstu nóttina verður gist á
Kirkjubæjarklaustri, siðan i
Öræfum næstu tvær nætur, og svo
aftur eina nótt á Kirkjubæjar-
klaustri.
Úlfar Jacobsen er með skrif-
stofu að Austurstræti 9.
Friða Ingvarsdóttir hjá Ferðamiðstöðinni.
4
Útivist
fjalls og fjöxu
Einar Guðjohnsen, fram-
kvæmdastjóri Útivistar, sagði
fimm daga ferð á Snæfellsnes
vera stóru ferðina hjá þeim á
þessum páskum. Það verður eina
langferðin, sagði hann. Gist verð-
ur f félagsheimilinu á Lýsuhóli i
Staðarsveit og ekið þaðan og
gengið um. Um þrjátiu manns
hafa tilkynnt þátttöku i þessari
ferð, en fleiri munu bætast i hóp-
inn innan skamms, að sögn
Einars.
Farið verður frá Reykjavik á
skirdagsmorgun og komið aftur
um kvöldmatarleytið á annan i
páskum.+
— Þá verðum við með styttri
ferðir alla dagana sagði Einar. —
Við breytum svolitið út af
auglýstri áætlun.
A skirdag er ráðgert að fara i
fjörugöngu upp i Hvalfjörð: ef til
vill á kræklingafjörur lika. Á
föstudaginn langa er ráðgert að
fara stutta fjörugöngu um Foss-
vog, sem er mjög athyglisverð
ganga, sem allir geta tekið þátt i.
A laugardag verður fjöruganga
á Álftanes. A páskadag er ráðgert
að ganga á Æsustaðafjall og
Helgafell. Þetta eru mjög léttar
göngur, en gera þó sitt gagn.
Á annan páskadag verður farið
i Búrfellsgjá og gengið á Búrfell.
Skrifstofur Útivistar eru i
Lækjargötu 6, Reykjavik.
4
Ferðamiðstöðin á
Costa Blanca
Friðjón Sæmundsson hjá
Ferðamiðstöðinni, Aðalstræti,
sagði að þeirra páskaferð væri til
Costa Blanca, Benidorm. — Við
fljúgum með.þotu frá Flugfélagi
íslands og bjóðum 126 sæti. Þau
eru flest þegar seld. /
Lagt er af stað i ferðina 9. april.
Þetta er 17 daga ferð, en aðeins
sex af þessum dögum eru vinnu-
dagar, svo að það eyðist ekki
mikið af sumarleyfinu þótt farið
sé i svona ferðalag. Fólkið kemur
heim aftur 25. april, sem er
sunnudagur.
Auk þess er sérstök ferð til
Túnis. 1 henni taka þátt_ tiu
manns, og er hópurinn þegar
lagður af stað. Svo verður eitt-
hvaðaf fólki frá okkur iLundúna-
og Kaupmannahafnarferðum,
sem eru vinsælar páskaferðir
sagði Friðjón Sæmundsson að
lokum.