Tíminn - 11.04.1976, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 11. aprll 1976.
Menntamálaráðherra og lög- Rikharður Reynisson, Sólveig
reglustjóri i hópi verðlaunahaf- Rósa ólafsdóttir og Sigurður
anna. Guðmundsson.
A þessari mynd eru, talið frá
vinstri: Jón Garðar og Petra B.
Arnadóttir, og standa þau að
sjálfsögðu hvort hjá sinni teikn-
ingu, eins og öll hin börnin. A
myndina vantar Rögnu Sigur- A
laugu Ragnarsdóttur úr Barna-
skóla Akureyrar, en hennar 1
teikning er sú, sem er lengst til N
hægri á myndinni.
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra skpðar
cina gjafabókina.
■BF** f5
'W ' ^ 4? |
Mjög góð
þátttaka var
í teikni-
myndasam-
keppni
skólabarna
Texti: VS. Myndlir:. Róbert
Hinn 10. janúar siðast liðinn
efndu menntamálaráðuneytið og
umferðarráð til teiknimynda-
samkeppni niu ára skólabarna.
Tilgangurinn var að örva
nemendur til þess að ihuga
vandamál sin i umferðinni, og
rifja um leið upp þá fræðsiu, sem
þau höfðu fengið. Verkefnin, sem
börnin áttu að glima við, voru::
1) Leiðin i skólann, 2) hjálpsemi
við aldraða, 3) sendiferð.
Þátttaka i keppninni var mjög
góð. Alls bárust 769 myndir frá 56
skólum á landinu. Dómnefnd
skipuðu: Þórir Sigurðsson náms-
stjóri, Borghildur óskarsdóttir
myndlistarkennari og Árni Þór
Eymundsson upplýsingafulltrúi.
Verðlaun i keppninni voru
hvorki meira né minna en tólf, og
var þeim úthlutað i Ráðherra-
bústaðnum við Tjarnargötu á
miðvikudag, að viðstöddum
menntamálaráðherra, lögreglu-
stjóranum i Reykjavik, fulltrúum
og blaðamönnum.
Menntamálaráöherra,
Vilhjálmur Hjálmarsson, bauð
gesti velkomna og ávarpaði siðan
börnin sérstaklega. Hann gat
þess, hversu örstutt er I raun og
veru siðan bilar fóru að flytjast til
Islands, og skýrði siðan á ljósan
og mjög skemmtilegan hátt fyrir
börnunum muninn á vanda
manns, sem ekur bil á fáförnum
og ófullkomnum vegi i upphafi
bilaaldar og þess, sem þarf að
koma sjálfum sér og bil sinum
heilu og höldnu i gegnum mann-
haf og umferðaröngþveiti nútima
þéttbýlis.
Að loknu ávarpi menntamálaráð-
herra gengu gestir ásamt verð-
launahöfum inn i stofu, þar sem
teikningunum hafði verið komið
fyrir á veggjum, og voru nú af-
hent verðlaun. Það gerði Guð-
mundur Þorsteinsson kennari,
starfsmaður umferðarráðs, en
hann er raunar námsstjóri
umferðarfræðslunnar i landinu.
Að lokum flutti Guðmundur
Magnússon, skólastjóri Breið-
holtsskóla, þakkarávarp.
Fyrstu verðlaun voru reiðhjól,
sem Fálkinn h.f. gaf, og hlaut það
Aðalheiður Diego Hjálmars-
dóttir, Efstasundi 20, Reykjavik.
Hún stundar nám i Fossvogssk.
önnur verðlaun voru iþrótta-
búningur frá Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar: hann hlaut
Kári Heiðdal, Urðarbakka 32,
nemandi i Breiðholtsskóla, og
þriðju til tólftu verðlaun voru
bækur frá bókaforlaginu örn og
örlygur. Það var bókin Handan
við sjóndeildarhring, i bóka-
flokknum Lönd og landkönnun.
Þessa bók hlutu eftirtaldir
nemendur: Birgitta Guðmunds-
dóttir Kópavogsskóla, Guðný
Hafdis Hill úr Sandgeröisskóla,
Jens Reynir, Breiðagerðisskóla,
Jón Garðar, Æfinga- og tilrauna-
skóla K.H.Í., Petra B. Arnadóttir,
Vogaskóla, Ragna Sigurlaug
Ragnarsdóttir, Barnaskóla Akur-
eyrar, Rikharöur Reynisson,
Breiöholtsskóla, Siguröur
Guðmundsson, Sandgerðisskóla,
Sólveig Rósa ólafsdóttir,
Æfinga— og tilraunaskóla
Kennaraháskóla Islands, og Una
Margrét Jónsdóttir, Vestur-
bæjarskóla.
—VS.
Vilhjálmur Kári Heiðdal tekur víft iþróítáliíiníngnum