Tíminn - 11.04.1976, Síða 30
30
TÍMINN
Sunnudagur IX. apríl 1976.
um). Athygli vekur, að þrjú af
sjö lögum plötunnar eru
„funky” og mér vitandi hefur
Santana ekki áður farið inn á þá
braut.
Hin lög plötunnar eru svo i
gamla góða Santana-stilnum,
létt og melódisk — og ekki má
gleyma hinum frábæru gitar-
sólóum Carlos Santana, sem
sýna að honum hefur i engu far-
ið aftur siðan á „gullaldarárun-
um”.
Þegar litið er á plötuna i heild
verður að segjast að hún
stendúr beztu plötum Santana
nokkuð að baki, en ef hljóm-
sveitin heldur áfram á sömu
braut, má teljast nokkuð öruggt,
að þeir endurheimti aftur þá
miklu viðurkenningu, sem þeir
nutu hér fyrr á árum.
Beztu lög:
Gitano
Dance Sister Dance (Baila Mi
Hermana)
Europa (Erth’s Cry Heaven’s
Smile)
SÞS
Santana — Amigos
PC 33576 — Columbia/FACO
★ ★ ★ ★
ALLLANGT er um liðið frá þvi
hljómsveitin Santana gaf út
siðústu plötu sina, eða u.þ.b. eitt
og hálft ár. Það kom þvi eflaut
engum á óvart, er þessi nýja
plata kom á markaðinn nýverið
— en þeini mun meira kemur
efni plötunnar á óvart!
Allar likur benda til þess að
tónlist hljómsveitarinnar
Santana sé að breytast enn einu
sinni — og nú verði horfið aftur
til þeirrar tónlistar, sem hljóm-
sveitin varð fræg fyrir i upphafi.
Eins og kunnugt er, hefur
Santana eingöngu fengizt við
þunga og þróaða tónlist siðustu
árin, en nú á sem sagt að byrja
upp á nýtt — og mynd af plötu-
umslagi ofarlega á hægra horni
plötuumslags þessarar plötu
rennir stoðum undir það, en það
er mynd af fyrstu plötu
Santana.
Lögin á þessari nýju plötu,
sem ber nafnið Amigos, eru öll
eftir meölimi hljómsveitarinn-
ar, þar af tvö eftir höfuðpaurinn
sjálfan, Carlos Santana. (Mynd-
in hér vinstra megin er af hon-
W'ings — Speed of Sound
Capitol SW’-l 1525/FACO
★ ★ ★ +
KNGINN af Bitlunum hefur
verið jafn iðinn viö plötuútgáfu
og Paul McCartney — og enginn
Bitlanna hefur gefið út jafn mis-
góðar plötur frá því leiöir þeirra
-.kildu. Kftir að Bitlatimabilinu
lauk seudi Paul frá sér plötur,
sem varla voru i meðallagi góð-
ar, og lyrstu plöturnar með
hljómávcitinni Wings voru einn-
ig lítið merkilegar.
Með útkomu plötunnar Red
Rose Speedway varð mikil
breyting á — og gamlir Bitlaað-
dáendur þekktu þar aftur þenn-
aneina sanna McCartney. Plötu
þessari fylgdi hann eftir með
tveimur stórgóðum plötum,
Band on the Run, og Venus and
Mars — og sérstaklega er þó
fyrrnefnda platan sérstaklega
góð.
Þaö er þvi eðlilegt að popp-
unnendur séu farnir að gera
talsvert miklar kröfur um gæði,
þegar PíRil á hlut að má'li, þar
sem tvær áiðustu plöturnar voru
mjög góðaT. En Paul Mc-
Cartney stendur ekki undir
þessum kröfum —-og nýútkomin
plata Wings er rétt i meðallagi
góð.
Þessi nýja plata, Speed of
Sound, hefur þó einn stóran kost
fram yfir fyrri plötur Wings. Nú
fær hijómsveitin i heild að njóta
sin, ekki bara Paul. Allir hljóm-
sveitarmenn syngja sólósöng og
tvö laganna eru ekki eftir Paul,
þar af annað af tveimur beztu
lögum plötunnar.
Speed of Sound er mjög
melódisk og létt plata, þar sem
einfaldar og auðgripnar laglin-
ur eru i miklum meirihluta.
Sumum kann eflaust að finnast
þetta stór og mikill kostur — en
frá minu sjónarmiði er þetta
afturför hjá Paul. Hann hefur
sýnt. að hann getur betur og það
miklu betur.
Beztu lög:
Time to Hide (Denny Laine)
syngur sjálfur
Must Do Something About It
(McCartney) Joe English,
trommuleikari syngur. G.S.
EAGLES eru án efa vinsælasta
country-rokk hljómsveitin, er
uppi hefur verið. Astæðan fyrir
þvi er fyrst og fremst sú, að þeir
eru auðvitaö þrælgóðir og höfðu
heppnina með sér. Þeir byrjuðu
á hárréttum tima, þegar aðrar
hljómsveitir eins og Byrds,
Poco, Burritos og Dillards höfðu
plægt það vel fyrir þá akurinn,
að þeir féllu i réttan farveg á
réttum tima. Þó svo að Eagles
hafi náð þessum vinsældum er
af og frá að segja að þeir séu
bezta country-rokk hljómsveitin
— þar vantar mikið upp á.
Eagles Greatest Hits er yfirlit
yfir feril hljómsveitarinnar frá
1971 til 1975. A plötunni eru
mörg afburðalög eins og lögin
af fyrstu tveim. plötunum
„Eagles” og „Desperado” en
„Despcrado” er ein af minum
15 allra tima beztu plötum, og
ætti enginn Eagles aðdáandi að
vera án hennar.
Eagles Greatest Hits er gott
yfirlit yfir feril þeirra og tilvalin
handa þeim sem vilja kynnast
Eagles.
Beztu lög:
„Take it Easy”
„Tequila Sunrise”
„Peaceful Easy Feeling”
„Best Of My Love”
„Witchy Woman”
G.G.
★ ★ ★ ★ +
Eagles-Greates Hits 1971—1975
Asylum 7E — 1052
5TATK)ðrrOSTATK>NDAVlDBOWI
FYRIR RÚMU ári kom út plata
frá brezka söngvaranum David.
Bowie, sem bar heitið Young
Americans. Platan markaði
þáttaskii i tónlist David Bowies
að þvi lcyti til, að tónlistarstill-
inn var annar cn á fyrri plötum,
jafnframt þvi sem söngstill
bans hafði gjörbreytzt.
Tónlistin flokkaðist undir
rokk-soul (Tónlist Bowies er að
visu það persónuleg, að þessi
flokkun segir varla hálfa sögu)
og það var i fyrsta skipti kem
soultónlistin heyrðist frá Bowie.
A þessari nýju plötu tekur
Bowie upp þráðinn þar sem frá
var horfiö á Young Americans
meö þeirri undantekningu þó,
að soul-tónlistin er ekki jafn á-
berandi. Notkun hljóðfæra er
hins vegar nánast sú sama, og
sömu sögu er að segja um söng-
stilinn.
Séu þessar tvær plötur bornar
saman. veröur að segjast, að
Station to Station er mun heil-
steyptari og þar af leiðandi á-
hrifameiri. llins vegar nær okk-
ert laganna þvi að jafnast á viö
lagið „Young Americans” hvað
gæði snertir.
Bowie sannar hér enn einu
sinni, hversu mikill yfirburða-
maður hann er i tóníist, þó svo
ég eigi von á enn betri plötu frá
honum næst. Tónlistin er nokk-
uð „þung” en þegar maður er
búinn að hlusta nokkrum sinn-
um. — hlustar maður aftur og
aftur og aftur..
Beztu lög:
Station to Station
Word on a Wing.
G.S.
HUOMPLOTUDOMAR
NÚ-TÍMANS
David Bowie — Station to Stati-
on
RCA-APL-1327/F ACO