Tíminn - 25.05.1976, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 25. mai 1976.
TÍMINN
5
1
llllll
1
llllllll
n
iíj
a
Öfgunum hafnað
Fróölegt hefur verið að
fylgjast með skrifum Þjtíðvilj-
ans vegna ummæla Einars
Agústssonar utanrikisráö-
herra á ráöherrafundi At-
iantshafsbandalagsins i Osló.
M.a. er þvi haldið frami leiö-
ara blaðsins s.l. laugardag, að
Einar Agústsson hafi sagt við
biaðamenn, ,,að eitt megin-
verkefni fslenzkra stjórnvalda
væri að halda islandi i
NATÓ”.
Hér er um að ræða eina af
þessum grófu föisunum, sem
svo mjög einkenna málflutn-
ing Þjóöviijans. A blaða-
mannafundinum i Osltí aðvar-
aði utanrikisráðherra þvert á
móti bandalagsþjóðir okkar,
og benti á, að þeirri skoðun
ykist fylgi á islandi, að island
segöi sig úr bandalaginu, ef
hernaðarofbeldi Breta innan
200 milna fiskveiðilögsögunn-
ar linnti ekki. Þessa skoöun
sina sagði hann umbúðalausi,
ogkom þetta greinilega fram I
fréttatima Sjónvarpsins s.l.
sunnudagskvöld, þegar sýnt
var frá biaðamannafundinum
I Osló.
Einar Agústsson utanrfkisráð-
herra.
1 Osló sagði Einar Agústs-
son ennfremur, að islendingar
kysu sér enga varnaraðila
aðra en Bandarikjamenn, og
má hafa mjög frjótt imyndun-
arafl tii að misskilja þessi orð
ráðherrans, sem einfaldlega
þýða það, aö ef um einhverjar
varnarstöðvar verður áfram
að ræða á islandi, þá kysu is-
lendingar, að þaö væru
Bandarikjamenn sem önnuð-
ust þær. Fari hins vegar svo.að
varnarstöðinni á KeOavikur-
fiugvelli verði lokað, kemur
ekki tilgreina, aðneinar aðrar
þjóðir taki að sér hlutverk
Bandarikjamanna þar.
Ekki cr laust við, að Mbl.
hafi einnig mistúlkað þessi
ummæli utanrikisráðherra,
enda oft skammt á milli öfg-
anna. En I þessum efnum túlk-
aði Einar Agústsson einarö-
lega vilja meirihluta islenzku
þjtíðarinnar, sem vill gjarnan
halda góðri samvinnu við
þjtíðir Atlantshafsbandalags-
ins, en kaupir hana ekki hvaða
verði sem er. A tfmum sem
þessum er nauðsynlegt að
sýna fulla festu, en um ieið að
foröast öfgaöfiin. Einari
Agústssyni ttíkst tvimælalaust
aö sýna þá festu, sem nauö-
synleg er, á ráðherrafundin-
um I Osló, og ætti bandamönn-
um okkar I Atlantshafsbanda-
laginu að vera ljtíst nú frekar
en áður, hvað er i húfi, takist
þeim ekki að beita auknum
þrýstingi á Breta f fiskveiði-
deilunni.
—a.þ.
Fyrstu stúdentarnir frá
Menntaskólanum í Kópavogi
Fyrstu stúdentarnir útskrifuð-
ust frá Menntaskólanum i Kópa-
vogi 22. mai s.l. 53 að tölu, 31 pilt-
ur og 22 stúlkur. Fór skólaslitaat-
höfnin fram i Kópavogskirkju.
Fjölmenni var við athöfnina m.a.
menntamálaráðherra Vilhjálmur
Hjálmarsson og frú.
Skólameistari, Ingólfur A. Þor-
kelsson, flutti skólaslitaræðuna,
afhenti stúdentum skirteini sin og
verðlaun fyrir ágætan árangur i
einstökum greinum.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Kristin Hallgrimsdóttir 4 M,
máladeild 8,4.
Hæstu einkunnir, sem gefnar
voru i skólanum, hlutu Aslaug
Guðmundsdóttir 2 X 9,2, Helga
Þorvaldsdóttir 2 X 9,2, Sigurður
E. Hjaltason 2 Y 9,0.
Skólakórinn söng undir stjórn
Sigriðar Ellu Magnúsdóttur,
óperusöngkonu. Einn stúdenta,
Árni Harðarson, lék einleik á
slaghörpu. Menntamálaráðherra
flutti ávarp og afhenti skóla-
meistara bréf varðandi lóð undir
nýja byggingu fyrir starfsemi
skólans. Auk hans töluðu Jóhann
H. Jónsson, forseti bæjarstjórnar
og Richard Björgvinsson, vara-
form. skólanefndar.
t tilefni dagsins afhenti hann
stúdentum gjöf frá skólanefnd,
málmmerki, er á var letrað stúd-
ent 1976. Ingólfur Gislason flutti
ávarp fyrir hönd stúdenta og árn-
aði skólanum heilla i framtiðinni.
Þá ávarpaði skólameistari stúd-
enta, óskaði þeim velfarnaðar og
sleit siðan skólanum. Að loknum
skólaslitum bauð skólameistari
stúdentum, gestum og kennurum
til kaffidrykkju.
185 STUDENTAR BRAUT-
SKRÁÐIR FRÁ M.R.
Menntaskólanum í Reykjavik
var sagt upp laugardaginn 22.
mai og brautskráðust þá 185
stúdentar frá skólanum. Skóla-
slitaathöfnin fór fram i
Háskólabiói, svo sem verið hefur
s.l. 12 ár og var húsið þéttsetið,
enda afmælisstúdentar margir
Undir próf upp úr þremur neðri
bekkjum skólans gengu 540 nem-
endur og stóðust 62% þeirra próf
athugasemdalaust, en um 30%
þurftu að endurtaka próf i ein-
stökum greinum. Um 8% féllu.
Hæstu einkunn á ársprófi hlaut
Agúst Lúðviksson i 4. bekk,
ágætiseinkunn 9.50, og var það
jafnframt hæsta einkunn yfir all-
an skólann. Næst hæstu einkunn i
skólanum hlaut bekkjarbróðir
Agústs, Skúli Sigurðsson, árg.
eink. 9.33. Undir stúdentspróf
gengu 186, 183 innanskóla og 3
utanskóla. Einn utanskólamanna
gat ekki lokið prófi vegna veik-
inda. Þvi brautskráðust frá
skólanum 185 stúdentar, 64 úr
máladeildum, 36 úr eðlisfræði-
deild og 85 úr náttúrufræðideild.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Ragnheiður Bragadóttir úr
fornmáladeild, ág. eink. 9.18, en
næst hæsta einkunn hlaut Gunnar
Baldvinsson úr eðlisfræðideild, I.
eink. 8.90. Við skólaslit voru við-
staddir margir afmælisstúdentar
og færðu þeir skólanum rausnar-
legar gjafir I Sögusjóð. Ræður
fluttu frú Anna Bjarnadóttir, 60
ára stúdent, séra Óskar J. Þor-
láksson, 50 ára stúdent, og loks
flutti 25 ára stúdent, dr. Björn
Sigurbjörnsson, ræðu fyrir hönd
allra annarra gefenda. Guðni
Guðmundsson rektor þakkaði af-
mælisstúdentum hlýhug þeirra og
ræktarsemi i garð sins gamla
skóla.
Síðustu skólaslit Mennta-
skólans við Tjörnina
Menntaskólanum við Tjörnina
var slitið i sjöunda sinn föstudag-
inn 21. mai 1976. Rektor skólans,
Björn Bjarnason, flutti skóla-
slitaræðu við brautskráningu i
Háskólabiói. Þar kom m.a. fram,
að i vetur stunduðu 814 nemendur
nám við skólann, en vorpróf
þreyttu 790. I 1. bekk luku 219
nemendur prófi, i 2. bekk 218
nemendur en i þriðja bekk 194.
Heildarniðurstöður millibekkja-
prófa urðu þær, að 69% nemenda
stóöust allar prófkröfur, 21% eiga
kost á endurtekt til að standast
próf, en 10% hafa ekki náð lág-
marks fullnaðareinkunn.
162 hófu stúdentspróf, 160 luku
þvi og stóðust.þar af 4 utanskóla.
A málakjörsviði brautskráðust
58 stúdentar, 3 á félagssviði og 3 á
tónlistarkjörsviði. A náttúru-
fræðisviði brautskráðust 56
stúdentar og á eðlisfræðisviði 40
stúdentar.
Hæstu einkunn á málakjörsviði,
hlaut Guðrún Sigriður Birgisdótt-
ir 8.7. A náttúrufræðikjörsviði
hlaut Páll Helgi Hannesson hæstu
einkunn 7.7. Á eðlisfræðikjörsviði
hlaut Friðrik Már Baldursson
hæstu einkunn 8.9, sem jafnframt
var hæsta einkunn á stúdentsprófi
að þessu sinni.
Rektor gat þess i skólaslita-
ræðu, að þetta væru siðustu
skólaslit frá Menntaskólanum við
Tjörnina, þvi i háust mun allt
skólastarf flytjast i skólahúsnæð-
ið við Gnoðarvog en þar var s.l.
vetur 1. og 2. bekk kennt. Þriðji og
fjórði bekkur var aftur á móti til
húsa við Tjörnina, en það húsnæði
mun nú verða tekið til annarra
nota.
Skodsborgarstóllinn
Hdtt sæti. Hdir armar, höfuðpúði og
íhvolft bak fyrir góða hvíld.
Ný stóltegund hönnuð fyrir þá, sem erfitt eiga með aðrisa upp úr
djúpu sæti, þurfa góðan stuðning og þægilega hvíldarstellingu.
Stóllinn er framleiddur fyrir áeggjan forstöðumanna elli- og
endurhæfingarstofnana hér á landi.
Nafnið gáfum við honum án nokkurrar hugmvndar um hvort svo
góður stóll sé til á þvi fræga hvildarsetri.
'Wkjörgarði SÍMII
16975 SMIDJUVEGl 6 SIMI44544
Opið til kl. 22
föstudag og
laugardag.
UTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i lagningu dreifikerfis i Keflavik 1.
áfanga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja, Vesturbraut 10 A,
Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Álftamýri 9, Reykjavik gegn 10.000 kr
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja miðvikudaginn 9. júni kl.
14.00.
A
Kópavogur
Félagsmálastofnun Kópavogs óskar að
ráða fólk til starfa við sumarbúðirnar i
Kópaseli.
A. Forstöðumann.
B. Starfsfólk við barnagæzlu og i eldhús.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
Félagsmálastofnuninni, Áifhólsvegi 32 og
þar eru veittar nánari upplýsingar i sima
4-15-70.
Umsóknarfrestur rennur út 31. mai n.k.
Fyrirhuguð eru 4 námskeið i sumar á
timabilinu 21. júni til 31. júli og stendur
hvert námskeið 10 daga. Daggjöld kr.
900.00.
Systkinaafsláttur veittur.
Félagsmálastofnun Kópavogs.