Tíminn - 25.05.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Þriöjudagur 25. mal 1976.
i
I
Almannavarnir ríkisins setja á svið
Flugslys á Reykjavíkurflugvelli
46 slasaðir eða látnir
Starfsmcnn slökkviliöanna, og Flugfélagsins bera farþcga úr
vélinni.
SJ—Reykjavik. Helztu agnú-
arnir, sem komu i ljós á al-
manna varnaæfingunni á
Reykjavikurflugvelli á laugar-
daginn voru þeir, að fjarskipti
milli flugturns og lögreglu voru
ekki nógu góð, ennfremur
fannst okkur greiningarlæknir
koma nokkuð seint á staðinn,
sagði Guðjón Petersen fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
rikisins Timanum.
— Fyrra atriðið var greini-
lega brostinn hlekkur, en hvað
við kemur siðara atriðinu, ligg-
ur ekki ljóst fyrir hver orsökin
var. Það tók lækninn 25 minútur
að komast á staðinn. A þeim
tima var tilkynnt um slysið til
Borgarspitalans og sendur bill
eftir lækninum. Læknirinn
A þessari mynd eru þrlr læknar, Jón Sigurösson fyrrverandi borgarlæknir, en hann var fyrstur
lækna á staöinn og flýtti mikiö fyrir sjúkdómsgreiningu (t.v.), ólafur ólafsson landlæknir (t.h.) og
sá þriöji á hvitum sloppi.
þurfti að búast til farar og e.t.v.
koma af sér sjúklingi, sem hann
var að fást við. — Þess ber þó að
geta, að á sama tima var verið
að ná fólkinu úr vélinni úti á
flugvelli svo enginn timi fór til
ónýtis. Það er heldur ekki
sannað mál að það geti tekið
styttri tima að læknirinn komi.
Hann kom aö vísu skjótar f mai
i fyrra, þegar sett var á svið 108
manna slys við Hliðaskóla, en
þá var vegalengdin, sem hann
þurfti að fara lika styttri.
Að þessu sinni var sett á svið
flugslys á Reykjavikurflugvelli.
Akveðið var að hafa þetta eins
eðlilegt og kostur væri. 48 menn
tóku að sér hlutverk farþega og
voru þeir sminkaðir eins og um
stórslys væri aö ræða. Þeim var
komið fyrir i Fokker Friendship
flugvél, sem ekið var eftir vell-
inum og beðið var um flugtaks-
heimild alveg eins og um raun-
veruleika væri að ræða.
Skömmu áður en vélin hefði átt
að fara i loftið tilkynnti flug-
maðurinn að sprenging hefði
orðið i vinstri mótor.
Að svo búnu var.allt sett I gang
samkvæmt áætlun, sem gerð
hefur verið fyrir Reykjavik, um
hvernig bregðast skuli við i
ýmsum neyðartilfellum, svo
sem ef hópslys verður, stór-
bruni, mengun, jarðskjálfti,
eldgos eða ofsaveður. Þessi
áætlun hefur þegar verið kynnt
öllum þeim stofnunum, og aðil-
um, sem að æfingunni á Reykja-
vikurflugvelli á laugardag
stóðu, en þaö voru slökkviliðin i
Reykjavik og á Reykjavikur-
flugvelli, lögreglan, flugvallar-
starfsmenn, sjúkrahúsin þrjú,
björgunarsveitirnar þrjár i
Reykjavik, Rauði krossinn i
Reykjavik, Flugmálastjórn,
Flugstjórinn gægist út um gluggann, en hann var ekki borinn út
strax, þar sem hann átti aö vera látinn, en gat samt ekki stillt sig
um aö fylgjast meö. A jöröunni sést slökkvifroöan.