Tíminn - 25.05.1976, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriftjudagur 25. maí 1976.
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall
haf a meira saman við hann að sælda, en þér haf ið ekkert
stolt! Það er greinilegt, að þér svífist einskis til að ná
honum aftur!
— Svo það haldið þér, spurði hún rólegri röddu. — Þá
viljið þér kannski aðvara Venetiu, þegar þér borðið með
henni í kvöld. Það eina, sem er rétt h já yður, er að það er
ekki hægt að flýja ástina, bætti hún við lágri röddu. —
Það veit ég núna. — Ég mundi vilja selja sál mína til að
geta það núna, bætti hún beizklega við og hvarf fram
fyrir.
23. kafli
Uppsagnarfresturinn var nákvæmlega f jórar vikur,
fjórar stuttar vikur, áður en hún sneri baki við St.
Georges sjúkrahúsi. Það var allt of stuttur tími til að
venjast tilhugsgninni um að lifa og starfa án þess að sjá
Mark, hugsaði Myra í örvæntingu. París væri ekki lengur
tengd Brent í huga hennar, heldur Mark. Hún vissi, að
hún yrði að fara héðan. Það eina sem var fyrir hana að
gera, var að fara heim og hef ja störf hjá föður sínum.
Gæti hún nokkurn tíma orðið hamingjusöm í lífinu án
Marks? En stoltið bannaði henni að fara til hans og biðja
um að fá að segja honum sannleikann. Næstu daga hitti
hún hann aldrei einan. Alltaf voru aðrir læknar viðstadd-
ir hjúkrunarkonur eða sjúklingar. Og tíminn leið... brátt
yfirgæfi hún sjúkrahúsið fyrir fullt og allt.
Hún fengi aldrei að sjá Mark aftur.
Hvernig var hægt að elska einn mann svona heitt og
það mann, sem var svo þrjózkur og skilningssljór? Hann
trúði aðeins því, sem hann vildi trúa. En hvers vegna
vildi hann endilega trúa því, að hún elskaði Brent ennþá,
væri meira að segja í leynilegu ástarsambandi við hann?
Myra velti því fyrir sér, en komst ekki að niðurstöðu.
Greinilegt var, aðsamúð Marks var öll í garð Venetiu...
samúð? Hafði Venetiu ef til vill tekizt að veiða hann líka
og gera hann ástfanginn af sér?
Þessi hugsun olli svo miklum sársauka, að Myra ýtti
henni f rá sér. Ef það var satt, kæmist hún að því. Ef til
vill var gott, að hún var að fara, þá fengi hún ekki að
vita, hvernig málin þróuðust.
Jafnframt því, sem henni var sagt upp við sjúkra-
húsið, var ákveðið, að enski ballettinn héldi áfram
sýningum sínum í Óperunni um óákveðinn tíma. Venetia
hafði heillað Parísarbúa og fólk vildi, að hún framlengdi
heimsókn sína.
Það var Brent sem sagði Myru það. Hann kom inn einn
morguninn, sem hún sat fyrir hjá Símoni í vinnu-
stofunni. Hún hafði ekki sagt neinum, að hún væri að
fara, en þó hafði hún fengið Símon til að flýta því að
mála hana. Hún vissi, að það skipti Símon miklu máli og
ef myndin tækist vel, yrði það til að gjörbreyta öllu fyrir
gamla manninum.
Vinnustofan var björt og rúmgóð og afgangurinn af
ibúðinni gat rúmað heila fjölskyldu, hugsaði Myra og
hún sagði það við Brent, þegar þau sátu og drukku kaff i
meðan Sfmon málaði. Hún skildi ekki, hvers vegna hann
roðnaði og leit undan.
— Sagði ég einhver ja vitleysu? spurði hún brosandi. —
En hvers vegna? Þið Venetia ætlið að gifta ykkur, er það
ekki? Hvers vegna gerið þið það ekki strax, þegar þið
hafið þessa íbúð?
Hún sagði þetta í léttum tón, en hann vissi, að henni
var alvara. Símon leit á þau, en hélt svo áf ram að mála.
— Ég er sammála, drengur minn.
— Ég líka, viðurkenndi Brent — en Venetia er á
annarri skoðun.
— Líkar henni ekki íbúðin? spurði Myra.
— Hún hefur ekki séð hana.
Hugsa sér ef það væri ég, sem hefði fengið tækifæri til
að búa hérna, hugsaði Myra og skugga brá á andlit
hennar, þegar hún hugsaði um að hún færi brátt frá
París. Brent sá það og f lýtti sér að spyr ja:
— Er eitthvað að, Myra?
Gamli maðurinn gekk að legubekk í hinum enda
herbergisins og lagðist þar niður, utan heyrnarmáls. —
Ekkert, svaraði Myra. — Hvers vegna spyrðu?
— Þú ert eitthvað svo föl, hefur verið það í marga
daga, alveg síðan við f luttum hingað við Símon. Þú hef ur
einhvern veginn ekki verið þú sjálf. Þú ert svo æst...
gerir þér upp gott skap... eins og þú sért að reyna að
dylja eitthvað.
— Ég vissi ekki að þú værir svona skarpskyggn, Brent,
sagði hún og reyndi að vera létt í máli.
— Þú lítur bara á mig eins og sá sem ég var, en ekki
eins og þann, sem ég er núna, sagði hann alvarlegur.
ÞRIÐJUDAGUR
25. mai
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikrimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Sigurðard' les
söguna . „Þegar Friðbjörn
Brandsson minnkaði” eftir
Inger Sandberg (6). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Hin gömlu
kynni kl. 10.25: Valborg
Bentsdóttir sér um þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Mi°issagan: „Mynd-
in af Dorian Gray” eftir
Oscar Wiide Sigurður
Einarsson þýddi. Valdimar
Lárusson byrjar lesturinn.
15.00 Mi°istónleikar St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitin leikur Concerto
grossoop. 6nr. 6eftir Hand-
el, Neville Marriner stjórn-
ar. Jost Michaels Kammer-
sveitin i Munchen og Ingrid
Heiler leika Konsert fyrir
klarinettu, strengjasveit og
sembal i B-dúr eftir
Stamitz, Carl Grovin stjórn-
ar. Fritz Henker og
Kammersveit útvarpsins i
Saar leika Fagottkonsert i
B-dúr eftir Johann Christian
Bach, Karl Ristenpart
stjórnar.
16.00 Fréttir Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
17.30 „Sagan af Serjoza” eftir
Veru Panovu Geir Krist-
jánsson les þýðingu sina,
söguiok (10).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Trú og þekking Erindi
eftir Aasmund Brynildsen
rithöfund og gagnrýnanda i
Noregi. Þýðandinn,
Matthias Eggertsson
bændaskólakennari, flytur
síðari hluta.
20.00 Lög unga fólksins Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 Að tafli Ingvar As-
mundsson flytur skákþátt.
21.30 Franski tónlistarflokkur-
inn Ars AntiquaGuðmundur
Jónsson pianóleikari kynn-
ir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”,
ævisaga Harlads Björns-
sonar.Höfundurinn Njörður
P Njarðvik les (24).
22.40 Harmonikulög Veikko
Ahvenainen leikur.
23.00 A hijóðbergi A þjóðveg-
*num til Kantaraborgar
Peggy Ashcroft og Stanley
Holloway lesa úr Kantara-
í!r?“
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ónvarp
Þriðjudagur
25. mai
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þjóðarskútan Þáttur um
störf alþingis, sem lýsir
annrikinu undir þinglokin.
Umsjónarmenn Björn
Teitsson og Björn Þor-
steinsson. Stjórn upptöku
Sigurður Sverrir Pálsson.
21.20 Columbo Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Vinur i raun Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
22.50 i skugga kjarnorkunnar
Bandarisk fræðslumynd um
ógnir kjarnorkunnar á
styrjaldartimum og þær
hættur, sem notkun hennar
fy'gja. jafnvel á friðartim-
um. Þýðandi og þulur Ellert
Sigurbjörnsson.
23.40 Dagskrárlok