Tíminn - 25.05.1976, Page 21
Þriðjudagur 25. mai 1976.
TÍMINN
21
Einar Sigurfinnsson:
frRit sem vert er að vekja
athyglimannaog kvennaá"
Blik heitir ársrit eitt, sem gef-
ið er út á íslandi. A Islandi, já,
þótt Vestmannaeyjar hafi verið
aö mestu leyti vettvangur þess
og efnissvið. Þó djúpt og ókyrrt
sævarsund sé milli lands og eyja
eru þær samislenzkar að eðli og
tign, sem aðrir landshlutar. —
tsland óg Vestmannaeyjar var
þó sagt og mun sjást ritað.
„Blik” var upphaflega litiö
„ársrit gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja” hafið og haldiö
uppi af skólastjóranum Þor-
steini Þ, Viglundssyni, þeim
manni sem sá góði skóli á eink-
um að þakka tilveru sina og
vaxandi gengi. 1 rúmlega þrjá-
tiu ár hefur þetta rit komið út og
heitir nú „Ársrit Vestmanna-
eyja” og hefur „fyrrverandi”
skólastjóri, Þorsteinn Þ. Vig-
lundsson, annazt útkomu þess
og efivi á eigin kostnað.
Ég á þetta rit, „Blik”, frá ár-
inu 1956, eða siðan ég varð Ey-
verji. Þaö er vissulega marg-
þætt og merkilegt safn, mynda-
auðugt skemmti- og fræðirit,
mest snertandi Vestmannaeyj-
ar og menn, sem þar hafa dvalið
og starfaö og koma þar furöan-
lega margir við sögu. Einatt
byrjar hver árgangur á „hug-
leiðingu” við skólasetningu eöa
skólaslit, fluttri af skólastjóra
eða sóknarpresti. Þá eru margs
konar skrár og skýrslur um
skólann og námsfólk. Nöfn og
fjöldi, heimili og foreldrar ný-
nema, furðu margþættur fróö-
leikur með ævarandi gildi. Þar
er og „þættir nemenda”, frá-
sagnir eða hugðarmál þeirra,
skemmtilega skrifaðir smá-
pistlar, sem nokkuð glöggt sýna
hugi höfundanna ungu, sem
flestir uröu starfandi borgarar i
þessum fósturbæ sinum.
Já, það var árið 1956 sem ég
kynntist og eignaðist „Blik”
fyrst.Þaðertalinn 17. árgangur
þessa rits. Hefst það með mynd-
um frá heimsókn forseta Is-
lands, herra Asgeirs Ásgeirs-
sonar, og frúar hans til Eyja.
Þar er og glögg og góð ritgerð
um kirkjur i Vestmannaeyjum
frá kristnitöku til vorra tlma,
eftir sr. Jens A. Gislason, þáttur
og myndir af gamla athafna-
svæðinu við höfnina, gömul
skjöl og margt fleira.
í næsta árgangi, 1957, er
meðal annars bygging og lýsing
Strandakirkju, sem er með elztu
steinkirkjum landsins, byggð af
óvenjulegum stórhug. Ritgerð
er um baráttu við „ginklofa”
sem var alvarleg drepsótt, eink-
um i Eyjum.
Um þessar mundir var að risa
sú mikla skólahússbygging,
sem setur sinn tignarsvip á efri
hluta bæjarins. Mikla baráttu
og erfiði kostaði þessi bygging
og þaö sem þessum skóla kemur
við, og segir „Blik” allmarga
þættium það efni, á við og dreif,
allsögulega og næsta ótrúlega
andúð, sem við var að etja á
ýmsan hátt.
Marga sögulega þætti hefur
ritið fiutt um leiklist i Eyjum,
iþróttastarfsemi og ýmsan ann-
an félagsskap, með fjölda góðra
og greinilegra mynda. Um land-
búnað og sjávarsókn, fuglaveið-
ar og fleira, sem við kemur at-
vinnuháttum ýmissa tima og
alls staðar eru myndir til
skýringa.
Vi'ða eru þættir um ýmsa ein-
staka menn, sem að einhverju
koma við sögu Eyjanna, eða
hafa átt þar lengri eða skemmri
dvöl. Greinilegar umsagnir eru
um utanþjóðkirkjusöfnuðina og
þeirra störf, og svo framvegis.
Þótt meginhluti „Bliks” sé
samið eöa safnað af útgefenda
þess, eru margir höfundar þar,
með ágætar greinar. Má þar til
dæmis nefna Arna simritara
Arnason, fjölfróðan sagnaþul.
Ýmsir rita þar um atvinnu-
rekstur og margs konar samtök
af eigin raun, skýrar myndir
með af mönnum og mannvirkj-
um, til glöggvunar.
Og nú, þegar ég er að pára
þessar linur, færir pósturinn
mér nýtt „Blik”, 32. árgang,
1976. Enn eitt merki tryggðar og
vináttu útgefandans, Þorsteins
Þ. Viglundssonar, og konu hans.
Ekki lét ég lengi dragast að
opna ritið, fletta blöðum þess og
skoðamyndir, margar og glögg-
ar. Og svo hef ég farið yfir efni
þess, sem er allfjölbreytt og
skemmtilega skráð.
Nefna má til dæmis Um sam-
vinnufélagstilraunir I Eyjum og
stofnarnir i þeim greinum, skrá
um muni byggðasafns Vest-
mannaeyja, hvort tveggja
framhald frá fyrra ársriti.
Byggðasafnið er að mestu leyti
verk Þorsteins og er það I um-
sjón hans og umönnun. Þá er
„Bréf til vinar mfiis og frænda”
— hófst einnig I siðasta hefti —
„Æviþáttur”, sem er löng og
margslungin frásögn, ótrúleg en
svo góðum rökum studd að
óhrekjanlegt mun vera.
Vélbátarnir eiga þar og sinn
þátt, með mörgum myndum.
Margir þættir eru I þessu nýja
„Bliki” til gamans og gagns.
Það er eigulegt og læsilegt eins
og hin fyrri. Þróttmikið, is-
lenzkt mál er ein þess höfuö-
prýði.
Þökkum „Blikið” Þorsteinn.
Mættum viö fá meira að heyra.
Einar Sigurfinnsson
Hveragerði
Reiður skattgreiðandi:
,,En, hvílík afgreiðsla!"
Reiður skattgreiðandi i Kópa-
vogi ritaði blaðinu og vildi koma
eftirfarandi á framfæri:
Ég þurfti að gegna erindi á
bæjarskrifstofunni i Kópavogi
nýlega, sem ekki er I frásögur
færandi. En þvíllk afgreiðsla!
Eða réttara sagt, það var engin
afgreiösla á staðnum! Þegar ég
kom inn, biöu fjórar eða fimm
hræður eftir afgreiðslu, og röltu
um skrifstofuna i reiðuleysi.
Hvar var afgreiöslufólkið sem
við skattborgararborgum laun?
Jú,einn maöur fyrir innan borö-
ið var að tala I simann við kunn-
ingja sinn, hitt fólkið var annað
hvort að rabba saman, ekki við,
eöa að snúast um sjálft sig. Af
fólkinusem fyrir framan borðiö
var, skipti sér enginn né þóttist
sjá það.
Eftir að hafa beðiö I hálfa
klukkustund hætti áðurnefndur
maöur loksinsislmanum, en fór
siöan að huga aö einhverjum
plöggum á boröi sinu. Ég spuröi
þá loks, þvi lengur gat ég ekki á
mér setiö, hvar afgreiöslufólk
skrifstofunnar væri, og hvort
væri ekki hægt að fá að ljúka er-
indi sinu fyrir lokunartima. Jú,
afgreislufólkið á að vera hérna
einhvers staöar, sagði maður-
inn, sem virtíst hálfhissa á að
einhver þarna fyrir framan
boröið gæti talað. Ég skamm-
aðist yfir þessari þjónustu, sem
virtistþó litil áhrif hafa á mann-
inn. En ég spyr, við sem borgum
mikla skatta, sem að hluta eru
notaöir til að greiöa fólki þessu
laun, eigum við ekki heimtingu
á að viö fáum afgreiöslu á opin-
berum skrifstofum?
Telur þú, að nú sé tlmi til þess að semja við
— Telur þú, að nú sé tími til þess að semja við
Breta?
fengið uppgjöf á sinni sekt, þeir eru látnir hirast inni og taka út
sinn dóm. Viö getum ekki gefið eftir, þvi við höfum engan fisk til
handa þeim. En það er kannski ætlun þeirra að hiröa skikann
með öllu saman?
Þóra Haraldsdóttir, verzlunarstjóri:
— Ails ekki. Það á alls ekki að semja við Breta.
Jón Sæmundsson, blikksmiður:
— Aö minum dómi á alls ekki aö semja við þá. Þeir hafa sýnt
okkur fádæma yfirgang og frekju — en ætla svo sjálfir að færa út
eigin landhelgi.
Stefán Vilhjáinisson, starfar á hvalbát:
— Nei, þaðer alls ekki timabært. Viðhöfum ekkert um aö semja,
enda fyrirsjáanlegt aö það verði að leggja fiskiskipaflota okkar
sjálfra meira eða minna, vegna þess hvernig ástand fiskistofn-
Ómar Karlsson, bátsmaður á varðskipinu Ver:
— Nei alls ekki. Það er enginn grundvöllur fyrir samningum við
Breta. Senn veröa samþykkt alþjóðalög um 200 milna fiskveiði-
lögsögu, auk þess sem framferði þeirra hefur veriö þannig, að
ómögulegt er að semja við þá.