Tíminn - 11.06.1976, Page 10
10
TÍMINN
Föstudagur 11. júnl 1976.
Vor í borg og bæ
,,A vorin skartar skógarbjörk
iskikkju grænna laufa. Ég leita
inn I laufsalinn, i limi syngur
þrösturinn”. Þaö er alltaf létt
yfir björkinni og nú er hún nýút-
sprungin ljósgræn og æsku-
fögur. Hvitir blómsveipir sjást á
fyrstu reyniviðartrjánum i
byrjun júni — og ribsrunnarnir
eru viða þaktir sinum gulgrænu
blómklösum. „Litið orð af
fegurð fer, mér finnst á móti
vega — að blómin þroskast — að
blómin þroskast i blóðrauð ber,
sem bragðast prýðilega”.
Gaman er að virða fyrir sér vor-
liti i laufi, litbrigðin eru furðu
mörg i raun og veru: Fagur-
græn, ljósgræn, dökkgræn,
daufgræn, gljáandi græn, silfur-
grá, ljósrauðleit o.s.frv. Hlynur
og silfurreynir fara sér hægt og
gljáviöirinn er naumast farinn
aö bæra á sér i júnibyrjun i
Reykjavik. Nú gengur gróður-
setningartimi sumarblómanna I
garð um hvitasunnuleytið i
hinum veðursælli héruðum
landsins a.m.k. Og allmargar
tegundir eru á markaði i garð-
yrkjustöðvunum, aðallega
gamalkunnar vinsælar
tegundir, en fátt nýrra held ég.
Sum blóm er hægt að fá I jurta-
pottum til að flytja beint út I
garðinn. En vitanlega eru þessi
pottablóm dýrari en önnur sömu
tegundar. Jurtirnar eiga að
vera „hertar” þ.e. búið að venja
þær við svala útiloftið áður en
þær eru boðnar til sölu. Ekki er
hætt við að viðbrigðin úr hlýju
gróðurhúsi eða sólreit undir
gleri — og úti i garð — verði of
mikil.
Algeng sumarblóm, sem
viðast þrífast vel eru t.d.
stjúpur, morgunfrú, paradisar-
blóm, fiðrildablóm (Nemesiur),
fagurfífill (Bellis), kornblóm,
ljónsmunnur, flauelsblóm,
garðanál (Elysium), brúðar-
auga (Lobelia), ilmskúfur
(Levkoj) og margar tegundir af
tryggðablómi (Chrysanth-
emum), fjölbreytileg mjög bæði
að lit og stærð. Og sérhvert
blóm hefur sina fegurð til að
bera: „Stjúpan min hefur ótal
andlit — afar blómsæl, hörku-
góð. — Hún er enginn bölvaður
„bandit”, blessuð dis á vorri
slóð. Mér hefur snúizt margt i
vil, menn hafa búið hana til”.
Satt er orðið hin stóru nær alla-
vega litu stjúpublóm, sem við
ræktum og dáumst að, hafa
verið framleidd með jurtakyn-
bótum og úrvali. Menn hafa
æxlað saman þrenningarfjólur
og aörar fjólutegundir.
Þannig er þaö með ýmis
skrautblóm o.fl. ræktaðar
jurtir. „Morgunfrúin mjúk og
fin, máski brosir hlýtt til þin.
Hún er feit og fifilrjóð, finnur
náð hjá margri þjóð”.
Það er reisn yfir rauöum,
hvitum eða gulum ljónsmunn-
anum og nafnið lýsir honum vel.
Takið með gætni i varirnar og
opnið ginið á honum til að sann-
færast. Neðri vörin er
lendingarpallur fyrir skordýrin.
Kornblómið einæra þolir vel
bæði vind og skugga enda vex
það vel úti á ökrum erlendis
innan um korniö-
Meðan rúgur var fluttur inn ó-
malaður leituðu mörg börn að
fræjum I honum og fundu m.a.
fræ kornblómsins og sáðu þvi
inni.
Hið sérkennilega fagurbláa
kornblóm er sannarlega fallegt
og skemmtilegt sumarblóm.
Paradisarblómin bera óvenju
skæra og margvislega liti, sem
hvarvetna vekja aðdáun.
Þrífast vel I skjóli á móti sól,
svipað og fiðrildablómin, sem
einnig bera marga liti.
Garðanálin myndar lágar
breiður snjóhvitar og fjólu-
bláar eftir afbrigðum.
Flauelsblómin bera marga
gula og rauða liti.
Af Crysantehmum sumar-
blómum má nefna hina lit-
skrúðugu friggjarbrá (Chr.
carinatum) og hina rauðgulu
njarðarbrá sem dæmi.
Tilbreyting er góð, eitthvað
sem verulega stingur i stúf við
annað. Skal hér nefndur silfur-
kambur (Senecio cineraria),
sem ber allstór hærð, fjaður-
skipt blöð, silfurgrá að lit. Fer
hinn grái litur blaðanna mjög
vel við margar litsterkar
blómategundir, t.d. i jaðri beða
eða dálitil silfurgrá breiða inni i
miðjum stórum blómareit.
Hér hafa aðeins verið nefnd
nokkur dæmi um fremur auð-
ræktuð fögur sumarblóm.
Margar fleiri tegundir getið þið
séð i görðum og blómræktar-
stöðvum — og athugað hvernig
ykkur lizt á þær. Ef þið viljið
reyna eitthvað fáránlegt, sem
ekki er nefnt i blómræktar-
bókum, þá setjið bara niður gul-
rófu i rúmgott horn i garðinum!
Setjið hana ekki dýpra en svo að
sjái á hana, eða hún fari aðeins I
kaf. Upp mun spretta hár,
greinóttur stöngull, sem ber
mesta fjölda af fagurgulum
blómum — og kannski fræ að
hausti. Þetta er i raun og veru
mikilfengleg jurt, sem mikið
ber á I blómi.
Inni getið þiö sáð appelsinu —
eða sitrónukjörnum og fengið
úpp af þeim allra snotrustu
jurtir með sigræn og gljáandi
blöð á trékenndum stönglum.
Börn hafa gaman af að sá t.d.
matbaunum i jurtapott og
fylgjast með hröðum vexti
þeirra — sjá þær vefja grip-
þráðum sinum um mjóan tein
og klifra upp eftir honum.
Nú skarta túlipanarnir
fögrum litum og hvita sunnu-
liljan lætur ljós sitt skina, hvit
með gula stjörnu I miðjunni.
Börnin.eru farin aö tina sól-
eyjar, músareyra og lamba-
gras.
Islenzkir tómatar nýkomnir I
hátiðarmatinn.
Víöir með blomskúfum (kvenreklum).
Blómgaður reyniviður — 30. mal 1976.
Reynir aö Lindargötu 6 — 30. maí 1976.