Tíminn - 11.06.1976, Side 23
Föstudagur 11. júni 1976.
TtMINN
23
11
Q|H
sSSlffll
Almennir stjórnmálafundir í
Norðurlands
kjördæmi
vestra
Þingmenn Framsóknarflokksins i Norðurlandi vestra halda
stjórnmálafundi sem hér segir:
Hvammstangi: föstudag 11. júni kl. 21.
Blönduós: jlaugardag 12. júni kl- 14.
Argerði, Lýtingsstaðahreppur: mánudag 14. júni kl. 15.
Sauðárkrókur: mánudag 14. júni kl. 20.30.
Siglufjörður Alþýðuhúsinu: þriðjudag 15. júni kl. 21.
^ Hofsós: miðvikudag 16. júni kl. 20.30.___________________
-----------------------------
Leiðarþing í
Austurlands
kjördæmi
Alþingismennirnir Halldór Asgrímsson og Tómas Arnason halda
leiðarþing i Austurlandskjördæmi sem hér segir:
13.júni Hof i öræfum kl. 4e.h.
13. júni Hrolllaugsstaðir i Suðursveit — 9 —
14. júni HoltáMýrum —4 —
14. júni Nesjaskóla —9 —
15, júni Fundarhúsið.Lóni —4 —
lð.júni Höfn —Sindrabæ —9 —
18-júni Reyðarfjörður —Skólanum —9 —
19. júni Eskifjörður — Valhöll —9 —
20. júni Neskaupstað —9 —
21. júni Búðir — Skrúöur —9 —
22. júni Stöðvarfjörður — 9 —
23. júni Breiðdal — Staðarborg — 9 —
24. júni Beruneshreppur—Hamraborg —4 —
24. júni Djúpavogi — Skólanum —9 —
25. júnl Geithellnahreppi — Múla —4 —
Allir eru velkomnir á Leiðarþingin.
Alþingismennirnir Ingvar Gislason og Stefán Valgeirsson halda
fund i Tjarnarborg, ólafsfirði, föstudaginn 11. júni kl. 21.
Almennir stjórnmálafundir
Kjördæmissamband framsóknarmannai Vesturlandskjördæmi
efnir til almennra stjórnmálafunda sem hér segir:
Borgarnes: (samkomuhúsinu) föstudaginn 11. júni kl. 21. Ræðu-
menn: Halldór E. Sigurðsson ráðherra, Dagbjört Höskuldsdóttir
stjórnarmaður SUF og Steinþór Þorsteinsson form. kjördæmis-
sambandsins.
Hellissandur: (Röst) föstudaginn 11. júni kl. 21. Ræöumenn:
Asgeir Bjarnason forseti Alþingis, Alexander Stefánsson oddviti
ólafsvik: (félagsheimilinu) laugardaginn 12. júni kl. 14, Ræðu-
menn: Halldór E. Sigurðsson, Dagbjört Höskudsdóttir
Grundarfjörður: (samkomuhúsinu) laugardaginn 12. júni kl. 14
Ræðumenn: Ásgeir Bjarnason, Alexander Stefánsson og
Steinþór Þorsteiiisson.
Búðardalur: sunnudaginn 13. júni kl. 14. Meðal ræðumanna:
Halldór E. Sigurðsson ráðherra.
Breiðablik, Snæfellsnesi: sunnudaginn 13. júni kl. 14. Meðal
ræðumanna: Ásgeir Bjarnason forseti Alþingis.
Logaland Borgarfiröi: sunnudaginn 13. júni kl. 14. Meöal ræðu-
manna: Alexander Stefánsson oddviti.
VÉLSKÓLA ÍSLANDS SLITIÐ
Í60.SINN
1 vetur stunduðu 420 nemendur
nám i skólanum, þar af ein
stúlka, i 22bekkjardeildum, flest-
ir i Reykjavik eða 350, en samtals
70 I vélskóladeildum á Akureyri,
Siglufirði, Isafirði og I Vest-
mannaeyjum.
Samtals útskrifuöust nú 336 vél-
stjórar úr hinum ýmsu stigum
skólans, þar af luku 52 nemendur
4. stigs vélstjóraprófi úr efsta
bekk skólans. Aö loknu vélskóla-
námi fara þeir flestir á samning I
smiðju I tæp tvö ár en þreyta sið-
an sveinspróf i vélvirkjun, en nú
veitir Vélskólinn einnig iðnrétt-
indi vélvirkja.
Hæstir á vélstjóraprófi 1. stigs
voru: örn Ingólfsson, Beiðdals-
vik, 9,09, Konráö Breiðfjörö
Pálmason, Hafnarfiröi, 8,79 og
Sigurður Jónsson, Stykkishólmi,
8,77.
Hæstir á vélstjóraprófi 2. stigs
voru: Þorsteinn Sverrisson,
Reykjavik, 8,80, Guðný Lára
Petersen, Reykjavik, 8,79 og Jón
Ragnar Guðmundsson, Hafnarf.,
8,70.
Hæstir á vélstjóraprófi 3. stigs
voru: Grétar Hartmannsson,
Fljótum, Skagaf., 8,70, Jón Sigur-
björnsson, Akureyri, 8,69 og Jón
Traustason, Akranesi, 8,31.
Hæstir á vélstjóraprófi 4. stigs
voru: Tómas Hansson, Akureyri,
8,85, Guðfinnur Grétar Johnsen,
Vestmannaeyjum, 8,53 og Asgeir
Albertsson, Reykjavik, 8,26.
Aðsókn að skólanum hefur f arið
ört vaxandi á undanförnum árum
og er nú svo komið aö til vand-
ræða horfir vegna tækjaskorts og
vöntunar á viöbótarhúsnæði, en fé
til þessara hluta hefur veriö mjög
naumt skammtað. I skólaslita-
ræðu sinni sagði skólastjóri að
vonandi þyrfti samt ekki aö neita
neinum um skólavist næsta vetur
af þessum sökum.
Nýmæli I skólastarfinu i vetur
var svonefnd starfs- og kynning-
arvika, en þá heimsóttu nemend-
ur ýmsa vinnustaöi og stofnanir
undir leiðsögn kennara sinna, svo
sem landhelgisgæzluna, vélaum-
boð, rannsóknastofnanir, þjóð-
minjasafn, listasöfn, leikhús,
kyndistöð Hitaveitu Reykjavikur,
en þar voru gerðar mæÚngar á
kötlum ogloks fiskiskip i höfn, en
Verkalýðsfélag
Norðfirðinga
mótmælir
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi:
„Stjórn Verkalýðsfélags Norð-
firðinga mótmælir harðlega öll-
um samningum við Breta um
fiskveiðiheimildir i islenzkri lög-
sögu á þeim samningsgrundvelli
sem nú liggur fyrir.
Sú staðreynd að fiskistofnar við
ísland eru nær uppurnir og nægja
ekki íslendingum sjálfum til
framfærslu, ætti að vera næg á-
bending til stjórnvalda um það að
um ekkert er að semja við útlend-
inga án þess að stór skerða um
leið kjör verkafólksogsjómanna i
landinu.
Sú staðreynd að Bretar hafa
beitt okkur Islendinga hernaðar-
ofbeldi og itrekað reyntr að drepa
varðskipsmenn okkar ætti einnig
að vera næg ástæða fyrir islenzk
stjórnvöld til að semja ekki við
Breta.
Sú staðreynd að innan skamms
tima verður 200 milna fiskveiilög-
saga alþjóðleg regla, sem of-
beldisþjóðir eins og Bretar og
Vestur-Þjóðverjar verða að sætta
sig við, ætti að vera næg ástæða
fyrir islenzk stórnvöld til að
semja ekki við Breta.
StjórnVerkalýðsfélags Norð-
firðinga krefst þess að samning-
unum við Vestur-Þjóðverja verði
þegar sagt upp þar sem Þjóðverj-
ar hafa ekki staðið við sinn hluta
samningsins.
Stjórn Verkalýðsfélags Norð-
firðinga skorar á öll verkalýðsfé-
lög i landinu að mótmæla kröftug-
lega öllum úndanslætti rikis-
stjórnarinnar i stærsta kjaramáli
islenzkrar alþýðu — landhelgis-
málinu.”
þar var reiknuð út raforkuþörf
þeirra með tilliti til þess aö fá raf-
magn úr landi.
Þá unnu nemendur aö sérstök-
um verkefnum i skólanum, 3.
stigs nemendur skoðuðu Se-
mentsverksmiðju rikisins, en
nemendur 4. stigs fóru i náms- og
kynnisferð til Danmerkur,
Þýzkalands og Sviss og skoðuðu
vélaverksmiðjur. Nemendur öfl-
uðu sjálfir fjár til utanlandsferð-
arinnar m.a. með þvi að taka aö
sér að breyta brennslukerfi ms.
Akraborgar fyrir svartoliu, eins
og fram hefur komið I fréttum.
Haldnir voru fyrirlestrar um
sérhæfð efni, nemendur sóttu
námskeið I skyndihjálp hjá
Rauöa krossinum, námskeið i
eldvörnum hjá Slökkviliði
Reykjavikur og námskeið I meö-
ferð gúmmibjörgunarbáta hjá
Slysavarnarfélagi Islands.
Þessi fyrsta starfs- og kynning-
arvika skólans þótti takast vel og
verður væntanlega fastur liður i
skólastarfinu.
I ráði er að stofna vélskóla-
deildir á Akranesi, Neskaupstað
og i Keflavflc ef næg þátttaka
fæst, og verður kennslan þá i
tengslum við iönskólana á þess-
um stöðum, eins og I vélskóla-
deildunum sem nú. starfa utan
Reykjavikur.
Bókaverðlaun voru veitt af
sendiráðum Danmerkur og Vest-
ur-Þýzkalands fyrir beztan ár-
angur i dönsku og þýzku. Úr
minningarsjóöi um Steingrim
Pálsson cand. mag. voru veitt
bókaverðlaun fyrir beztan árang-
ur I Islenzku.
Nemendur útskrifaöir úr raf-
magnsdeild 1965 veittu verðlaun
fyrir beztan árangur I vélfræöi-
fögum. Nemendur útskr. 1966
stofnuðu Framtakssjóð vélskófa-
nema til aðstyrkja einn nemanda
til framhaldsnáms
Nemendur úrskrifaöir fyrir 25
árum færðu skólanum að gjöf
málverk af Júliusi Björnssyni
rafmagnsverkfræðingi sem starf-
að hefur við skólann I rösk 30 ár
sem kennari og prófdómari.
Þórður Runólfsson fýrrverandi
öryggismálastjóri flutti kveðju
frá nemendum sem útskrifuðust
fyrir 55 árum, en hann hefur nú
starfað við skólann sem kennari
og prófdómari i 27 ár.
Vélasölufyrirtækið Fjalar hf. gaf
silfurbikar sem sá hlýtur er bezt-
um árangri nær i vélfr. i 3. stigi
og er þaö farandbikar sem af-
hentur verður á Sjómannadaginn
13. júni ásamt silfurpeningi til
eignar.
Skólastjóri þakkaöi gjafir er
skólanum höfðu verið færöar,
óskaði nemendum heilla og sagði
skólanum slitið.
Kennarar
Við Alþýðuskólann á Eiðum eru iausar
kennarastöður.
Kennslugreinar m.a. islenzka, stærðfræði,
eðlis- og efnafræði.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Kristinn
Kristjánsson.
Útboð
Tilboð óskast i holræsihreinsibúnaö fyrir Vélamiðstöð
Reykjavikurborgar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 13. júli, kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirlcjuvegi 3 — Sími 25800
Fiskvinnsluskólinn
Umsóknarfrestur um skólavist er til 15.
júni.
Inntökuskilyrði eru að nemandi hafi stað-
ist landspróf eða gagnfræðapróf. Ljósrit
af prófskirteini fylgi umsóknum, sem
sendist til Fiskvinnsluskólans, Trönu-
hrauni 8, Hafnarfirði.
Skólastjóri.
Útboð
Bæjarstjórinn á Eskifirði óskar eftir til-
boðum i að steypa 1. hæð grunnskóla Eski-
fjarðar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjarsjóðs Eskifjarðar og hjá verkfræði-
stofunni Hönnun h.f., Höfðabakka 9,
Reykjavik gegn 10.000.- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð hjá bæjarstjóranum á
Eskifirði þann 24. júni n.k. kl. 14.00.
Bæjarstjórinn á Eskifirði.