Tíminn - 02.07.1976, Blaðsíða 1
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 27122 — 11422
Leiguflug—Neyöarflug
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
HÁÞRÝSTIVÖRUR
okkar sterka hlið
HffiQSMinSH
Síðumúla 21
, Sími 8-44-43
Mörg íslenzk skip föluð til
fiskveiða við Af ríkustrendur
og áhugi fyrir því, að Islendingar smíði skip og leiðbeini um uppbyggingu fiskiðnaðar
-hs-Rvik. Það dylst engum,
sem eitthvaö þekkir til út-
gerðar, að hún gegur heldur
erfiðlega um þessar mundir
og er jafnvel rekin með tapi,
auk þess sem eitthvað af
skipum er verkefnalaust.
Þegar við bætist, að margir
eru uggandi um, að þorsk-
stofninn hér við land sé of-
veiddur, þá er ef til vill ekki
svo undarlegt þótt upp komi sú
hugmynd að fá eitthvaö af
skipunum til veiða við Afriku-
strendur. En það er nú einmitt
það, sem Timinn hefur
fregnaö, að erlendir aðilar
hafi áhuga á að gera.
Upphaflega mun norskur
aöili hafa leitað eftir leigutöku
á 10 skuttogurum af stærri
gerðinni, þ.e. 750 tonn og þar
yfir, til veiða við strendur
Afriku og átti aö landa afl-
anum I móðurskip. Ætlunin
var sú, samkvæmt þessari
fyrstu málaleitan, að is-
lenzkar áhafnir yrðu á skip-
unum, að öllu leyti fyrst um
sinn, en innfæddir tækju siöan
smátt og smátt við, eftir þvi
sem þeirlærðu handbrögðin. 1
framhaldi af þessu yrðu skipin
siðan seld, eftir svo sem árs-
leigu, en það er hins vegar
hugmynd, sem allir eru lik-
lega ekki sammála um að sé
æskileg.
Samkvæmt upplýsingum
Timans, er þessi skipaieiga
eða -kaup að einhverju leyti
fyrir tilstilli Sameinuöu þjóð-
anna, og Alþjóðabankinn mun
eiga að tryggja greiðslur. Er
hugmyndin liður I þeirri við-
leitni, að fyrirbyggja frekari
matvælaskort, sérstaklega þó
eggjahvituskort, sem hrjáir
Ibúa margra Afrikuríkja.
Umboðsmanni þessara aöila
hér á landi mun svo hafa
borizt bréf, með nánari út-
listunum á þvi, hvers konar
skip væru æskileg. t bréfinu
var ekki minnzt einu oröi á
skuttogara, heldur var falazt
eftirleiguá 10 bátum af stærð-
inni 105 tonn eða þar um bil og
öðrum 10 I kringum 300 tonn.
Leigan skyldi vara til eins árs,
Islenzkar áhafnir kenndu inn-
fæddum mönnum veiðarnar,
er siðan fengju þá skipin
keypt, ef vel gengi. Skipin
skyldi nota til rækju- og tún-
fiskveiða út af Filabeins-
ströndinni.
Timinn hafði i gær samband
við þann mann, sem nefndur
hafði verið sem umboðsmaður
Karfa loftbelgsins skellur á girð-
inguna í flugtaki. — Timamyndir:
GE.
Jötunn dugir til olíukönnunar:
Sléttan ekki
líklegust
erlendu aðilanna. Hann
neitaði ekki þessum fregnum,
en vildi sem minnst um þær
ræða, þvi að enn væri máliö
tæpast komiö á umræðu stig.
Hann játti þvi, aö norskur aöili
heföi haft samband við sig
tvisvar sinnum, en hann vildi
ekki tjá sig frekar um málið
að svo stöddu.
Eftir klukkan 8 I gærkvöldi
höfðum við samband við
fyrrn. umboðsmann sem ann-
ast milligöngu I þessu máli og
var hann þá nýbúinn að tala
viö einn af erlendu aðilunum,
sem að þessu standa. Sagði
hann, að það sem hér að ofan
er nefnt væri aðeins lkill angi
af öllu saman, þvi aö hann hafi
veriöbeðinn um að kanna, auk
áöurnefndra atriða, hvort hér
væri hægt að fá smiðuð fiski-
skip, 105 lestir og 300 lestir og
skuttogaray alls 10-30 skip.
Ennfremur var beðið um is-
lenzkar hugmyndir að þvi,
hvernig bezt yrði staðið að
matvælaöflun, t.d. stærð og
gerð frysúhúsa og skipa.
Nánar veröur sagt frá þessu
máli siðar og þá gefið upp
nafniö á umboðsmanninum is-
lenzka, en hann óskaði eftir að
þvi yröi haldið leyndu fyrst
um sinn.
Ómar Ragnarsson og félagar hans koma á vettvang — en andartaki of
seint. Þeir ráðslaga um, hvaö gera skuii, og fangaráöið var að fara á
loft I flugvél Ómars og sækja Holberg á lendingarstað.
Langanesströnd, Vopnafjörður og Hérað
álitlegri, segir Guðmundur Pálmason
Lending und-
/r Hafnarfjalli
Gsal-Reykjavik — Það sem eink-
um skortir á eru upplýsingar um
það, hvar setlögin liggja, sem
koma að landgrunni tslands, og
hvort þau liggi eitthvað undir
landið. Botnlandslagið fyrir
Noröausturlandi gefur enga vis-
bendingu um þetta, og upplýsing-
ar um setlagahrygginn, sem
kemur frá Jan Mayen að land-
grunni ísl., eru engar frá land-
grunni aðlandi. Já, þaðer rétt að
við höfum rætt um það sem
möguleika, að kanna framhald
setlagahryggsins og athuga hvað
er að finna á þriggja til fjögurra
kfiómetra dýpi á Noröaustur-
landi.
Þannig fórust orð Guðmundi
Pálmasyni, forstööumanni jarð-
hitadeildar Orkustofnunar, i viö-
tali við Timann, en eins og öllum
er kunnugt, hafa hugsanlegar
oliuauðlindir við Island verið
mikið til umræðu siðustu daga.
Jötunn, bor Orkustofnunar,
getur borað niður á 3,5 km með
góðu móti, og jafnvel eitthvaö
lengra aö sögn Guömundar, og
ætti þvi að geta svarað spurning-
um um það, hvort oliusetlög sé að
finna á Islandi.
Einkum hefur verið rætt um
Melrakkasléttu i sambandi við
oliuauöinn, og þar væri að finna
setlög. Guðmundur dró I efa, aö
Melrakkaslétta væri liklegasta
svæðið, einkum vegna þess hve
það væri nálægt gosbelti. Hann
sagði hins vegar að liklegra væri
að setlög væru fyrir sunnan
Langanes, i Vopnafirði, eða jafn-
vel sunnar, á Héraði.
Guðmundur tók þó skýrt fram,
að vegna skorts á upplýsingum
væri ekkert hægt að staöhæfa i
þessu sambandi, en sagðist þó
telja meö ólikindum, að oliusetlög
fyndust nálægt gosbeltum.
Að lokum sagði Guðmundur,
um hugsanlega athugun á setlög-
unum við Isiand, að um það hefði
verið rætt innan Orkustofnunar
en á þessu stigi þó ekki i alvöru,
til þess væri of margt óljóst.
Loftbelgur
Holbergs
AAássonar
JH—Reykjavik. — Vestmannaey-
ingurinn Holberg Másson er
gamalkunnugur lesendum Tim-
ans siðan á menntaskólaárum
hans f Reykjavik, er hann bjó sér
til loftbelg og gerði hvað eftir
annað tilraunir til þess að komast
á loft i honum. Siðan eru eitthvaö
um fjögur ár, og alta stund siðan
hefur hálfur hugur hans eða
meira verið bundinn viö loftbelgi.
Hann hefur eignazt sinn loftbelg,
sem ber einkennisstafina
TF-HOT, og hefur öðlazt islenzk
og bandarisk réttindi til þess að
fljúga honum.
— Þið sögðuð frá þvi, þegar ég
lenti hjá Halakoti i Hraungerðis-
hreppi um daginn, sagði Holberg,
er hann hringdi til Timans i gær,
og nú skulum þið bara koma út á
Alftanes, þar sem ég fer á loft og
flýg yfir Reykjavik.
Við rukum til, og um klukkan
fjögurfyllti Holberg belginn heitu
lofti, sem lyfti honum. Hann steig
þó ekki nógu hátt strax, þvi að
karfan rakst i giröingu og lagði
hana út af. Það varö þó ekki til
trafala. Loftbelgurinn barst út
yfir Seyluna og siöan til norðaust-
urs inn yfir Seltjarnarnes og út
yfir Hvalfjörð. Holberg var einn i
körfunni, þvi að Ómar Ragnars-
son og tveir menn aðrir, sem ætl-
uðu að fara meö honum, komu of
seint á vettvang.
Heita loftið i belgnum endist til
þriggja klukkustunda flugs, og
vissu menn ekki um tima, hvert
hann hefði borið. En Holberg sá
sér farborða eins og fyrri daginn.
Framhald á bls. 19.
/
Loftbelgurinn yfir forsetasetrinu á Bessastöðuni.