Tíminn - 02.07.1976, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 2. júH 1976
Sævar NK-18 fluttur til sjávar. Leiðin var um fjórir kilómetrar.
Ljósmynd: Karl.
Bátasmíði í sveit
KS-Akureyri— Siðastliðinn föstu-
dag var hleypt af stokkunum á
Akureyri tæplega 7 tonna fram-
byggðum bát, sem Baldur Hall-
dórsson á Hliöarcnda og synir
hans höfðu smiðaö. Er þetta 45.
báturinn, sem Baidur smiöar.
Bátnum var gefið nafnið Sævar
og ber einkennisstafina NK-18 og
er eigandi hans Armann Her-
bcrtsson Neskaupstað. Báturinn
gébé Rvik — A fundi verðlagsráös
sjávarútvegsins var ákveðið nýtt
almennt fiskverð, sem gildir frá
1. júli til 30. september 197G.
Einnig voru verðlagöar tvær fisk-
tegundir, sem ekki hafa verið
verölagðar áöur, en það eru hlýri
oglanghali. Þá hefur einnig verið
ákveðið nýtt lágmarksverð á
hörpudiski og rækju, sem gildir
frá 1. júli til 30. september 1976.
Samkomulag varð um eftirfar-
andi breytingar á þvi lágmarks-
fiskverði, sem giiti til 30. júni: og
hækkar hver tegund frá þvi veröi
sem hér segir: Þorskur um 8,8%,
Ýsa um 9,2%, stór ufsi og milli-
ufsi um 13.0%, smár ufsi um
9,2%, steinbitur um 11,7%, keila
um 9,2%, lúða um 9,2.grálúða um
37,4%, skata, skötuselur og háfur
mun halda til heimahafnar ein-
hvern næstu daga og þegar hefja
linu og handfæraveiöar.
Sævar er vel búinn að tækjum
m.a. eru i honum talstöð ör-
bylgjustöð, radar, dýptarmælir,
vökvaspil og 6 rafknúnar hand-
færarúllur auk venjulegs öryggis-
útbúnaðar. Hli'öarendi er um 4
kflómetra frá sjó og var báturinn
um 9,2%, en verð á löngu er ó-
breytt.
Lágmarksverð á hlyra veröur
kr. 20,- slægður ogkr. 16,- óslægð-
ur. Langhali var verðlagður á kr.
25.-. Þá var gerö sú breyting á
greiðslu uppbótar á linufisk, að
séu þær fiskteg., sem uppbót
er greidd á, isaöar I kassa i veiði-
skipi, greiðist 12% álag á hið al-
menna verð i stað 8% ella. Fram-
angreindar veröhækkanir byggj-
astá þvi, aö Rfldssjóður ábyrgist
viðmiðunarverð Verðjöfnunar-
sjóðs fiskiðnaðarins á frystum
fiskafuröum.
Hörpudiskur
Yfirnefnd Verölagsráðs sjávar-
útvegsins ákvaö eftirfarandi
Framhald á bls. 19.
settur á vagn sem siðan var dreg-
inn af stórum vörubil til sjávar.
Mun það örugglega sjaldgæft ef
ekki einsdæmi að bátar séu smið-
aðir i sveit þetta langt frá sjó.
Aðspurður um næstu verkefni i
bátasmiðinni sagði Baldur að allt
værióvistum þauogenginn bátur
væri i pöntun hjá sér sem stæði,
en vonandi væri þetta timabundiö
ástand og menn færu aftur að
stunda trilluútgerð i auknum
mæli.
1 ...I
Upplýsinga-
miðstöð fyrir
Vestur-
(slendinga
gébé Rvik — Meðan hinn
stóri hópur Vestur-lslend-
inga dvelur hér á landi, verð-
ur starfrækt upplýsingamið-
stöð i Hljómskálanum i
Reykjavik frá kl. 13:30 til
16:00 alla virka daga. Þar
getur fólk fengið skrá yfir
Vestur-lslendingana, hvar
þeir búa o.s.frv. og einnig er
Vestur-lslendingunum sjálf-
um bent á, að þeir geta kom-
ið i Hljómskálann og fengið
allar nauðsynlegar upplýs-
ingar og hjálp meðan þeir
dvelja hér.
Verð á langhala og
hlýra í fyrsta sinn
Rólega farið i
veiðiskapinn i
Laxá i Dölum,
Góð veiði i
Þverá i Borgarfirði
— Þaö eru komnir rúmlega
350 laxar á land r.úna, sagði
Rikharð Kristjánsson i gær,
þegar VEIÐIHORNIÐ innti
hann eftir hvernig veiðin hefði
gengið. A siðustu tveim dögum
hafa komiö um eitt hundraö lax-
ar á land, svosegja má að mikill
fjörkippur sé kominn i veiöina.
— Laxinn er að visu miklu
smærri núna en I upphafi veiöi-
timans, sagði Rikharð, og veiö-
ast allt niöur i sex til átta punda
laxar. Jón Ingvarsson úr
Reykjavik veiddi þann, sem
þyngstur hefur fengizt enn úr
Þverá, en sá reyndist vera 19
pund og var veiddur á flugu.
Laxveiðimennirnir eru farnir að
nota töluvert af flugu núna,
enda sagt að það sé miklu meira
„sport” i þvi. — Vatnið er mjög
gott i Þverá núna og vel tært.
Á annað hundrað
laxár úr Laxá
á Ásum
Kristján Sigfússon sagði i
gær, að þann 29. júní s.l. hefðu
veriö komnir á land eitthundrað
og sextiu laxar. Þetta er mun
minni veiði en á sama tima i
fyrra. Þyngsti laxinn reyndist
vera átján pund, en þyngd lax-
annaerfrá4til 12 pund. Einnog
einn veiðimaður fær þó mjög
góöa veiði, t.d. einn, sem er
mjög kunnugur ánni, hann fékk
tólf laxa einn daginn.
Eins og kunnugt er, er aðeins
veitt á tvær stangir i Laxá á As-
um ogerleyfiðbundiö við aöhá-
mark sé að veiða 20 laxa á stöng
á dag. Enginn hefur þó náð þvi
ennþá, en á siðastliðnu sumri
var það algengt að menn þurftu
jafnvel að hætta veiði um há-
degi, þar eð að þeir höfðu þá
veitt tuttugu laxa.
Krislján Sigfússon sagði, að
það værienn sama gamla sagan
hjá laxveiðimönnum, sem veið-
ar stunda i Laxá á Asum, þeir
eru eitthvað latir og tregir við
aö skila veiðikortunum, og þvi
er mjög erfitt að fá upp ná-
kvæma og rétta tölu yfir þann
fjölda laxa og stærð þeirra, sem
veiðzt hefur. Hér meö eru þeir
enn einu sinni áminntir um að
skila kortum sinum, strax og
þeir hætta veiði i ánni.
Eins og undanfarin sumur,
eru það Bandarikjamenn sem
leig ja ána, en veiði þar má hefj-
ast 20. júni, þó Bandaríkja-
mennirnir byrji yfirleitt aldrei
það snemma. VEIÐIHORNIÐ
ræddi við Gunnar matsvein i
veiðihúsinu við ána i gær, og
sagði hann, að aðeinsheföi verið
veittá einastöng frá 27. júni en
alls er leyfilegt að hafa sjö
stangir i ánni. A land eru þvi
ekki komnir margir laxar, eða
aðeins þrir og voru þeir 10, 11,
ogl2pund. Gunnar sagðisteiga
von á fyrsta hollinu eftir tvær
vikur.
Vatnið er mjög mikið i Laxá i
Dölum eins og er, enda hefur
rignt þarmikið siðustu 2-3daga,
og einnig er vatnið mjög grugg-
ugt. Samt taldi Gunnar að þó
nokkuð af laxi væri komið i ána,
en að það vantaöi bara flugu-
veður, en Bandarikjamennirnir
veiða eingöngu á flugu sem
kunnugt er.
—gébé —
Landsbankinn
90 ára
Landsbanki tslands átti niutiu
ára afmæli I gær, stofnaður 1. júli
1886. Bankinn var I húsnæði hjá
Sigurði Kristjánssyni við Bakara-
stlg, sem þá hét, en seinna nefnd-
ist Bankastræti, og hafði þar áður
veriö prentsmiðja.
Svo var fyrirlagt, að bankinn
skyldi opinn tvo daga i viku, tvo
klukkutima samfleytt, og „fram-
kvæmdastjórinn” var raunar em-
bættismaður I fullu starfi, annars
staðar, Lárus E. Sveinbjörnsson
vfirdómari. Gæzlustjórarnir sem
voru eins konar eftirlitsmenn,'
i gær
með fjárreiðum banka, voru
einnig embættismenn, Eirikur
Briem prestaskólakennari og Jón
Pétursson dómstjóri.
Sérstakur gjaldkeri og bókari
voru i bankanum, og fram-
kvæmdastjórinn, Lárus Svein-
björnsson, hafði brugðið sér til
Danmerkur haustið 1885, til þess
að huga að þvi, hvernig banka-
rekstur færi fram.
Eins og kunnugt er varð
Tryggvi Gunnarsson fljótlega
bankastjóri, og var það siðan
mjög lengi.
Hús Landsbanka islands kemur fiestum islendingum kunnuglega
fyrir sjónir.
15 ÁRA PILTUR
BEIÐ BANA
— er dráttarvél valt yfir hann
—hs—Rvik. Enn eitt hörmulegt
dróttarvélarslysið varð við bæinn
Þverá I Fnjóskadal á þriðjudags-
kvöld, en þar lét lifið 15 ára piltur
úr Kópavogi, er vélin valt yfir
hann. Mun hann hafa látizt sam-
stundis. Hann hét Arnór Stefáns-
son.
Pilturinn, sem var i sumarvist
á bænum, var að aka dráttarvél-
inni ihlaðbrekkunni, þegar slysið
varð. Fór vélin afturábak fram af
vegkantinumogvaltheilan hring.
Dráttarvélin var gömul og án
öryggisgrindar.
Þess má geta, að allar vinnu-
vélar til búreksturs eru undan-
þegnar hvers konar öryggiseftir-
liti, og enn munutalsvert margar
dráttarvélar, sem ekki eru búnar
öryggisgrind, vera i notkun viða
um land.
Verkfræðirtgar fá
ekki borguð laun
— Reykjavíkurborg sökuð um verkfallsbrot
gébé Rvik-----Ég held að þetta
sé I fyrsta sinn sem borgin fer út á
þann hála is, að gera tilraun til að
brjóta löglega boðað verkfall,
sgði Gunnar H. Gunnarsson,
formaður samninganefndar
verkfræðinga hjá Reykjavikur-
borg. Þeir hafa vitað um þetta
verkfall nú i tvær vikur, og hafa
ekki kært það, svo það verður að
álita að þeir telji það löglegt. Þá
er þaö bara önnur tilraun til verk-
fallsbrots að benda fólki á að
koma teikn. til byggingafull-
trúa um visst pósthóif. Gunnar
sagði einnig, að borgin sýndi
tregðu viðað greiða verkfræðing-
unum laun sin, en þeir höfðu ekki
fengið þau borguð seinni hluta
dags i gær. Sagði hann, að einum
verkfræöingnum hefði þá verið
nóg boöið og hann hefði skrifað
uppsgnarbréf.
— Heföin er sú, að aldrei sé
gengið istörfverkfallsmanna, þvi
að ef það er gert, þá er verkfalls-
rétturinn einskis nýtur, sagöi
Gunnar. Okkur finnst margar rök
semdir lögmanna borgarinnar
heldur hæpnar og þetta var
ekkert annað en sviösetning hjá
þeim, þegar lögreglan kom á
skrifstofurnar og hindruðu verk-
fallsverðina i starfi, þannig að
það tókst aö afhenda nokkrar
teikningar til byggingarfull-
trúans. Bæði lögreglan og vinnu-
málafulltrúinn voru þá með hót-
anir við verkfallsverðina, sem
létu undan pressunni. Hins vegar
hefur allt verið rólegt i dag, sagði
Gunnar.
Meðan blm. Timans ræddi við
Gunnar, var hann kallaöur i sim-
ann, en það var sáttasemjari
rfldsins, sem var aö boða til
samningafundar i dag, svo for-
vitnilegt verður að vita hvort þar
gerist eitthvað. A siðasta fundi
sögðu deiluaðilar hins vegar, að
hvorugur þeirra myndi óska eftir
fundi,fyrr en hinn aðilinn mildaði
að einhverju leyti tilboð sitt.
Að lokum sagði Gunnar, aö
venjulega fengju verkfræðing-
arnir útborguð laun sin, annað
hvort siðasta dag mánaðar eða þá
þann fyrsta, en seint i gærdag
höfðu þeir engin laun fengið, og
var þvi borið viö að tölvan, sem
reiknarút launin, væri biluð. Hins
vegar, sagði Gunnar, hafa allir
aðrir hópar, sem vinna hjá borg-
inni, fengið laun sin greidd. Við
erum þvi' eini hópurinn sem ekki
hefur fengið launing greidd, og
þetta fyllti mælinn hjá einum
verkfræðingnum, sem skrifaði
uppsagnarbréf i hvelli.