Tíminn - 02.07.1976, Page 6
6
TÍMINN
Föstudagur 2. júll 1976
Gegn „Aronskunni"
Með breytingum, sem gerðar voru á kosn-
ingu til stjórnar SUF þá kemur framkvæmda-
stjórnin saman til funda fjórum til fimm sinn-
um á ári, þess á milli starfar dagleg fram-
kvæmdastjórn i Rvk. Um siðustu helgi þingaði
stjórn SUF á Akureyri. Þar var samþykkt ein-
örð ályktun gegn „Aronskunni”. Fram-
kvæmdastjórnin mótmælti harðlega öilum
sjónarmiðum af þessu tagi eins og kemur fram
i ályktuninni, sem birtist á öðrum stað hér á
siðunni.
Þeir hópar manna, sem vilja hafa tekjur af
varnarliðinu, skiptast i tvo flokka. Það eru
þeir, sem vilja leigja þeim land og selja þeim
allt hvað heitir, og hins vegar þeir, sem telja
það réttlætismál, að herliðið greiði gjöld á ís-
landi til jafns við Islendinga, og ef til vill má
telja þriðja hópinn, sem telur að herliðið kaupi
þjónustu af íslendingum á lægra verði en
landsmenn þurfa sjálfir að borga, og vilja að
þessu verði breytt. Á skoðunum þessara hópa
er að visu töluverður munur, en eitt er þeim
sameiginlegt, að þeir gera ráð fyrir herliðinu á
þessu landi enn um langa hrið. Viðhorf her-
námssinnanna eru auðskilin, en þeir, sem and-
stæðir eru hersetunni i hjarta sinu, virðast
sumir vera að gefast upp. Vist er það rétt, að
litið hefur þokað, en sá dagur kemur vissulega,
að ísland verður herlaust land. Alltaf eru til
staðar úrtölumenn. Þegar sjálfstæðisbarátta
íslendinga var háð hve harðast um siðustu
aldamót, þá fór þvi fjarri að allir íslendingar
vildu aðskilnað frá Dönum. Barátta þjóðhollra
Islendinga var löng, og þeir unnu sigur. Vopn
þjóðarinnar i sjálfstæðisbaráttu sinni hefur
löngum verið þrautseigjan og svo er enn.
Ef til vill á stuðningur fólks við
„Aronskuna”, að einhverju leyti rót sina að
rekja til vantrúar á islenzku efnahagskerfi, og
efa um það að við getum stjórnað efnahags-
málum okkar sjálfir svo vit sé i. Ekki er að
undra, þótt þessi linnulausi barlómur islenzkra
stjórnmálamanna smjúgi inn i vitund fólks.
Ástæða er samt til þess að spyrja, ef efnahags-
lifið er i þvilikum ólestri og haldið er fram, og
einnig að við íslendingar höfum aldrei náð
valdi á þvi, hver er þá orsökin fyrir þvi, að við
erum ein af rikustu þjóðum veraldar og al-
menn velsæld hér sambærileg við það bezta
sem gerist. Það er ábyrgðarhluti að vera póli-
tiskur leiðtogi. HlutverK hans er ekki fyrst og
fremst að viðhalda sjálfum sér og stöðu sinni,
heldur að reyna með skynsamlegum vinnu-
brögðum og hugsun að efla trú fólksins á land-
inu og tilveru þjóðarinnar.
T>eir stjórnmálamenn, sem draga skipulega
og þrotlaust úr tiltrú almennings á þvi að við
getum verð áfram sjálfstæð þjóð, eru sjálfir
kjarklausir og án sjálfsvitundar forystu-
mannsins. Dæmigerðir foringjar af þessu tagi
eru ýmsir framámenn sjálfstæðisflokksins,
sem alltaf finna tilefni til undansláttar við út-
lendinga, samanber erlendar varnir, erlend
stóriðja. Þetta land er erfitt og rýrt af auðlind-
um ef miðað er við ýmis önnur þjóðlönd. Til
þess að byggja land eins og Island þarf vinnu-
samt fólk með kjark og sjálfsvirðingu. I dag
erum við auðug þjóð vegna þess að forverar
okkar höfðu þessa kosti til að bera. pE
Umsjónarmaður:
Pétúr Einarsson
SUF þing á Laugar-
vatni í haust
Um siðustu helgi var
haldinn á Akureyri
stjórnarfundur i fram-
kvæmdastjórn SUF.
Þessir fundir eru haldn-
ir 4 til 5 sinnum á ári.
Þeir eru á vissan hátt
pólitiskt stefnumark-
andi fyrir samtökin, þvi
þá er vettvangur til þess
að taka afstöðu til ým-
issa mála, sem upp
koma á grundvelli
stefnu SUF.
Framkvæmdastjórnin sam-
þykkti haröa ályktun gegn
Aronskunni og var þaö i anda
stefnu ungra framsóknarmanna.
Mörg mál voru rædd á þessum
fundi og ákveöinn var undirbún-
ingur aö þingi SUF á næsta
hausti. Samþykkt var aö þingiö
skyldi haldiö aö Laugarvatni
fyrstu helgina i september.
Akveöiö var, aö einbeita kröftum
þingsins aö ákveönum málaflokk-
um og valdir voru einstakir menn
til þess aö leiöa undirbúning
þeirra.
Þessa málaflokka á aö undir-
búa fyrir þingiö:
Almenn stjórnmálaályktun,
umsj. Magnús Ólafsson. Verka-
lýösmál, umsj. Ingvar Baldurs-
son. Verkmenntun, umsj. Gestur
Kristinsson. Húsnæöismál, umsj.
Helgi H. Jónsson. Skipulagsmál
umsj. Pétur Th. Pétursson.
Akveöiövarað þessir lykju störf-
um fyrir miðjan ágúst og drög að
ályktunum yröu þá send út um
landiö til athugunar
Ennfremur var kosin nefnd til
undirbúnings að uppstillingu en
hanaskipa: Halldór Asgrimsson,
Sævar Þ. Sigurgeirsson, Haukur
Halldórsson, Dagbjört Höskulds-
dóttir og Friðrik Georgsson.
Þessi nefnd skal ljúka tillögugerö
fyrir SUF þing. Gestur Kristins-
son veröur starfandi sem erind-
reki SUF i sumar, og mun hann
feröast um landiö og undirbúa
þingiö i haust.
Miklar umræður uröu um utan-
rikissamskipti SUF, en þau hafa
aukizt mikiö á siðasta ári.
Anægja er almennt meö hvernig
til hefur tekizt, þótt ýmsir agnúar
hafi komiö á daginn, og þarf aö
færa til betri vegar. Þessi fundur
var væntanlega sá siðasti fyrir
þingiö i haust.
Ályktun fram-
kvæmdastjórnar
SUF um
„Aronskuna"
Framkvæmdastjórn S.U.F. samþykkir:
Stefna S.U.F. er að bandaríski herinn hverfi brott
af íslandi. Framkvæmdastjórnin lysir sterkri and-
stöðu sinni gegn því að leiga verði tekin fyrir að-
stöðu bandaríska hersins hér á landi. Allt frekara
fjármagnsstreymi frá hernum er fyr'st og fremst
til þess f allið, að treysta sess hans í íslenzku þjóðfé-
lagi og leggja grunn að áframhaldandi veru hans á
íslandi.
Framkvæmdastjórn S.U.F. lýsir andstyggð á öll-
um hernaðarumsvif um og telur ekki rétt siðgæði að
af la þjóðinni tekna með einum eða neinum afskipt-
um af vígbúnaði herþjóðanna.
Því mótmælum við harðlega „Aronskunni".
Akureyri, 26. júní, 1976.
Húsnæði
í sveit
óskast sem fyrst.
Sími 99-84909.
Varadekk í hanskahólfi!
PUNCTURE PILOT
UNDRAEFNIÐ — sem þeir bíl-
stjórar nota, sem vilja vera lausir
við að skipta um dekk þótt springi á
bílnum. — Fyrirhafnarlaus skyndi-
viðgerð. Loftfylling og viðgerð í
einum brúsa. Islenzkur leiðarvísir
fáanlegur með hverjum brúsa.
m
ARMULA 7 - SIMt 84450