Tíminn - 02.07.1976, Síða 7
Föstudagur 2, jiílí 1976
TÍMINN
7
Mikil aukning veltu
hjá tryggingafélög-
um samvinnumanna
AÐALFUNDUR Samvinnu-
trygginga g.t., Liftryggingafé-
iagsins Andvöku og Endur-
tryggingaféiags Samvinnu-
trygginga h.f., voru haldnir aö
Kirkjubæjarklaustri föstu-
daginn 25. júni s.I. Fundinn sátu
18 fulltrúar viös vegar af
landinu auk stjórnar félaganna,
framkvæmdastjóra og nokk-
urra starfsmanna. Meöal
fulltrúa voru 2 fulltrúar starfs-
manna tryggingafélaganna, er
kosnir höföu veriö til þess á
fundi starfsmannafélagsins.
Fundarstjóri var kjörinn Jón
Helgason, Seglbúðum, en fund-
arritari Hreinn Bergsveinsson,
Reykjavik, Bjarni Pétursson,
Reykjavik og Bragi Lárusson,
Kópavogi.
Erlendur Einarsson, forstjóri,
flutti skýrslu stjórnarinnar, en
Hallgrimur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri, skýrði reikninga
Samvinnutrygginga og Jón
Rafn Guömundsson, fram-
kvæmdastjóri, reikninga Lif-
tryggingafélagsins Andvöku og
Endurtryggingafélags Sam-
vinnutrygginga h.f.
í reikningum Samvinnutrygg-
inga kom fram, að iögjöld árs-
ins hjá félaginu námu kr. 1.364.9
millj. á árinu 1975 og höfðu auk-
izt um kr. 376.5 millj. frá árinu
áður.
Iðgjöld ársins hjá Liftrygg-
ingafélaginu Andvöku námu
árið 1975 kr. 49.1 millj. og höfðu
aukizt um kr. 36.8 millj. frá
árinu áður.
Iðgjöld ársins hjá Endur-
tryggingafélagi Samvinnu-
trygginga h.f. námu árið 1975
kr. 499.4 millj., en voru áriö 1974
kr. 314.7 millj., og nemur aukn-
ing þeirra kr. 184.7 millj.
Heildariögjöld ársins hjá öll-
um félögunum námu þvi sam-
tals á árinu 1975 kr. 1.913.4 millj.
á móti kr. 1.315.4 millj. árið 1974
Hallgrimur Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga
Jón Rafn Guömundsson, fram-
kvæmdastjóri Andvöku
og höfðu aukizt um kr. 598,-
millj. eða um 45.4%.
Heildartjón Samvinnutrygg-
inga árið 1975, greidd og áætluð
ógreidd, námu samtals kr.
1.461.0 millj.
Nettóbóta- og iögjaldasjóðir
voru i árslok 860 millj. króna.
Rekstrarafkoma ársins er
halli að upphæð 55.5. millj.
króna. Hallinn stafar fyrst og
fremst af tapi á fiskiskipatrygg-
ingum að upphæð kr. 45 millj.,
og tapi á gömlum endurtrygg-'
ingarsamningum, en á árinu
komu fram ógreidd erlend tjón
vegna þessara samninga að
upphæð kr. 41.2 millj. króna.
Heildarliftryggingastofn And-
vöku nam i byrjun ársins 1975
samtals 3.897 millj. króna, en i
árslok 6.521 millj. króna og haföi
þvi aukizt um 67% á árinu. Lif-
tryggingagjöld ársins námu 21.9
millj, króna ,en slysa- og
sjúkratryggingaiðgjöld ársins
námu 27.2 millj. króna.
1 bónussjóö Andvöku voru
lagðar á árinu kr. 3 millj, og
rekstrarafgangur nam kr.
444.000.-
Nettóbóta- og iðgjaldasjóðir
Endurtryggingafélags Sam-
vinnutrygginga h/f námu i lok
ársins 369.3 millj, og höfðu auk-
izt um 128.1 milljón króna.
Rekstrarafgangur félagsins
varð kr. 3.585.000,-
Fjöldi mála er varöa félagið
og starfsemi þess voru rædd á
fundinum. M.a. kom fram, að
Samvinnutryggingar hafa ný-
lega keypt hlut Sambands is-
lenzkra samvinnufélaga I Ar-
múla 3, Reykjavik.
Samþykkt var aö heimila
aukningu á hlutafé Endurtrygg-
ingafélags Samvinnutrygg-
inga úr 20 f 40 millj. króna.
Endurkosnir voru I stjórnir
félaganna Erlendur Einarsson,
forstjóri, Ingólfur Ólafsson,
kaupfélagsstjóri og Ragnar
Guðleifsson kennari.
UNDIRBÚNINGUR AÐ VAR-
ANLEGRI GATNAGERÐ
í STYKKISHÓLMI
ASK-Reykjavlk,—Við höfum hér
verið að skipta um jarðveg I
tveimur götupörtum, en gert er
ráð fyrir að steypa þær I sumar
eða haust, sa gði Halldór Jónasson
starfsmaður hreppsskrifstof-
unnar I Stykkishólmi, er Tíminn
ræddi viö hann í gær. — Hins
vegar verður ekki allt steypt,
heldur beðið með hluta af föt-
unum þar til næsta sumar. Þá er
reiknað með aö lögð verði ollu-
möl.
Yfirlýsing
Þjóðleikhúsráö vill að
ge&iu tilefni, vegna skrifa I
blaði yðar, lýsa yfir þvi, að
það telur æskilegt, að sá
maður, sem gegnir embætti
þjóðleikhússtjóra, sé leik-
listarmaður, sem fær sé um
að taka virkan þátt I listrænu
starfi leikhússins.
Þau leikstjórnarverkefni,
sem þjóöleikhússtjóri hefur
tekið að sér innan og utan
stofnunarinnar, hafa verið
unnin meö fullu samþykki
þjóðleikhúsráös.
Reykjavlk 30,júni 1976
Vilhjálmur Þ.GIslason,
Kristbjörg Kjeld,
Hörður Bjarnason,
GylfiÞ.Glslason,
GunnarEyjólfsson.
Aö sögn Halldórs er langt
komið með að skipta um jarðveg i
Austur- og Hafnargötu, en jarð-
vegsskipting átti sér staö i Aöal-
götu s.l. sumar. Þetta er um 700
metra kafli sem gera á i sumar og
hljóðar kostnaðaráætlunin upp á
16milljónir. En HaUdór kvað þaö
óllklegtað sú áætlun stæöist, enda
hafi hún verið gerð á liðnu ári.
1 Stykkishólmi er nú I smiðum
fjölbýlishús með átta Ibúöum.
Þær voru nýlega gerðar fok-
heldar, og verða tvær ibúðanna
afhentar I október, en hinar i
febrúar á næsta ári. Um er að
ræöa ibúðir, sem byggöar eru
samkvæmt leiguibúða-áætlun
rikisstjórnarinnar, en þó verða
tvær þeirra seldar. Hinar koma
til með að vera áfram I eigu
sveitarfélagsins. Aöspurður hvort
um húsnæöisskort væri að ræða I
Stykkishdlmi, sagöi Halldór svo
vera. Þrátt fyrir að nokkur ein-
býlishús væru I smiðum, stæði
húsnæðisskorturinn sumum
fyrirtækjum staöarins fyrir
þrifum.
Skelfiskveiði hófst i Stykkis-
hólmi um s.l. helgi, og stunda sex
bátar þá veiði. Einn bátur er á
linu og annar á rækju.en tveir eru
á handfærum. Nokkurs atvinnu-
leysis gætti meðal húsmæöra og
unglinga áður en skelfiskveiðin
hófst, en að sögn Halldórs er at-
vinnuleysi nú hverfandi litið.
Ný bók urti málvísindi
Komin er út á vegum
Rannsóknastofnunar I norrænum
málvisindum við Háskóla tslands
bókin OLD ICELANDIC HEITI
IN MODERN ICELANDIC
EFTIR Halldór Halldórsson pró-
fessor, og er þetta þriðja bókin i
ritröð þeirri, er málvisindastofn-
unin hefur gefiö út undanfarin ár.
1 fyrri hluta bókar sinnar rann-
sakar höfundur hugtakið heiti i
fornum ritum, einkum Snorra-
Eddu, og kemst að þeirri niður-
stöðu, aö Snorri muni hafa þekkt
latnesk rit um mælskulist oe I
Skáldskaparmálum Snorra-Eddu
sé um áhrif frá klassiskri
mælskulist að ræða. í seinni hluta
bókarinnar fjallar höfundur um
notkun heita eöa skáldamálsoröa
i siðari tima islenzku og sýnir
fram á, að fjöldi þeirra lifir enn I
lausu máli og á vörum alþýöu,
t.d. iorðtökum og talsháttum, svo
og i margs konar semsetningum
við önnur orð. Bókin er 83 bls. aö
stærð, prentuð hjá Fr. Bagges
Kgl. Hofbogtrykkeri i Khöfn.
Bókaverzlun Snæbjarnar Jóns-
sonar sér um dreifingu og söiu.
Ráðsmaður
Maður um fimmtugt óskar eftir ráðs-
manns- eða umsjónarmannsstöðu. — Er
ekki búfræðingur.
Tilboð sendist afgreiðslu Timans, Aðal-
stræti 7, Reykjavik, merkt Ráðsmaður
1483.
Smábýli til sölu
Langholt III i Hraungerðishreppi á Árnes-
sýslu (nálægt Selfossi) er til sölu.
Upplýsingar á staðnum. Simi um Selfoss.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Cherokee og
Bronco, er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 6. júli kl. 12-3. — Tilboð verða
opnuð á skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna.
Frá þroskaþjálfa-
skóla íslands
Umsóknarfrestur um skólavist næsta
haust er til 15. júli n.k.
Þeir, sem þegar hafa skilað umsóknum
eru beðnir að staðfesta þær fyrir þann
tima.
Umsóknir eiga að berast til skólastjóra i
Kópavogshæli.
Kópavogshælið, 1. júli 1976.
Skólastjóri