Tíminn - 02.07.1976, Page 9
Föstudagur 2. júli 1976
TÍMINN
9
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús-
inu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I
Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug-
iýsingaslmi 19523. Verö I lausasölu kr. 50.00. Áskriftar-
gjald kr. 1000.00 á mánuði. Blaöaprent h.f.
Aukin framleiðsla er
rétta svarið við
gjaldeyrisskortinum
Mjög er nú rætt um gjaldeyrisskort og svartan
gjaldeyrismarkað i sambandi við hann. Skýring
hans er augljóslega sú, að kaupgetan er meiri en
gjaldeyrisöflunin. Undir slikum kringumstæðum
greip viðreisnarstjórnin til gengisfellinga til að
draga úr kaupgetunni, en fyrri stjórnir beittu mjög
ströngu og jafnvel stundum nánasarlegu gjald-
eyriseftirliti, eins og árunum 1947-1949, þegar m.a.
var skömmtun á ýmsum vörum. Hvorug leiðin
reyndist einhlit. Undir þeim kringumstæðum, sem
nú eru, er sjálfsagt að herða eftirlit með gjaldeyris-
skilum allra hinna stærri aðila, eins og viðskipta-
málaráðherra hefur nýlega bent á i blaðaviðtali, en
hæpið er að gera harða og kostnaðarsama hrið að
hinum mörgu smáu aðilum. Leiðin til lausnar, eins
og nú standa sakir, er hvorki gengisfelling eða viða-
mikið og strangt gjaldeyriseftirlit, heldur að auka
sem mest gjaldeyristekjurnar, sem bæði má gera
með þvi að auka útflutning og draga úr innflutningi,
með auknum iðnaði fyrir heimamarkaðinn. í
stjórnmálaályktun aðalfundar miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins, sem haldin var i maibyrjun siðast-
liðinn, var lögð höfuð áherzla á þetta, ásamt skipu-
legri og markvissari þjóðarbúskap. Þar segir á
þessa leið:
„1. Að rikisbúskapurinn sé greiðsluhallalaus og
skuldir rikissjóðs, sem myndazt hafa á undanförn-
um árum, séu greiddar hæfilega niður.
2. Að sem bezt sé vandað til vals þeirra fram-
kvæmda, sem ráðizt er i, og að rikisvaldið hafi það
styrka forystu i samvinnu við atvinnusamtökin að
þær framkvæmdir sitji fyrir sem arðbærar eru
þjóðarbúskapnum. Fundurinn lýsir stuðningi við
það, að árlega sé gerð lánsfjáráætlun, sem sé
stefnumarkandi um framkvæmdir þjóðarinnar á
hverjum tima. 1 þvi sambandi telur fundurinn, að
takmarka verði erlendar lántökur við fjármögnun
þeirra framkvæmda, sem á lánstimanum afla eða
spara þann gjaldeyri, sem nægir fyrir fjármagns-
kostnaðinum.
3. Að efld sé sérhver framleiðslugrein, sem getur
eða hefur haslað sér völl á erlendum mörkuðum og
nýjar greinar á slikum sviðum studdar af alefli.
Sérstaklega þarf að auka hagnýtingu innlendra
hráefna og leita nýrra, þ.a m. fiskstofna, sem ekki
eru fullnýttir. Þá minnir fundurinn á mikla þýðingu
matvælaframleiðslu landbúnaðarins og iðnað úr
framleiðslu hans, svo og fóðurvöruiðnað úr grasi.
4. Að bætt sé samkeppnisaðstaða islenzkra fram-
leiðslugreina við erlendan varning á innlendum og
erlendum mörkuðum. Fundurinn bendir á, að inn-
lend framleiðsla, sem keppir við innflutning, þurfi
að greiða tolla og söluskatt af hráefni, hærra orku-
verð, hærri f jármagnskostnað og búi á margan hátt
við erfiðari aðstöðu en samkeppnisaðilinn. Þetta
þarf að leiðrétta, og beina jafnframt fjármagni
þjóðarinnar i vaxandi mæli til aukningar innlendri
framleiðslu.”
Eins og hér kemur fram, leggur Framsóknar-
flokkurinn höfuð áherzlu á eflingu framleiðslunnar
og markvissari fjármálastjórn sem megin úrræði
til að sigrast á efnahagsvandanum. Með aukinni
framleiðslu er ekki aðeins unnið gegn gjaldeyris-
skortinum og skuldasöfnuninni, heldur skapast
jafnframt miklu betri aðstaða til að draga úr verð-
bólgunni.
ERLENT YFIRLIT
Steel og Pardoe
heyja harða keppni
Henni er veitt mikil athygli í Bretlandi
UM ÞESSAR mundir beinist
áhugi þeirra, sem fylgjast
með stjórnmálum i Bretlandi,
að fáu meira en formanns-
kosningunni I Frjálslynda
flokknum. Þótt Frjálslyndi
flokkurinn hafi ekki nema 13
menn i neðri málstofu þings-
ins og þyki ekki liklegur til aö
auka fylgi sitt þar, hefur hann
haft mikil áhrif i stjórnmála-
heimi Breta. Astæöan er sú, aö
hann hefur aö baki sér miklu
meira kjósendafylgi en þing-
mannatala hans gefur til
kynna. Þannig fékk hann i
febrúarkosningunum 1974
rúmlega 19% greiddra at-
kvæða, þótt hann fengi ekki
nema 14 þingmenn kjörna. I
sömu kosningum fékk Ihalds-
flokkurinn um 38% greiddra
atkvæða, eöa tæplega helm-
ingi fleiri atkvæöi en Frjáls-
lyndi flokkurinn. Ihaldsflokk-
urinn fékk hins vegar 296 þing-
menn kjörna meðan Frjáls-
lyndi flokkurinn fékk ekki
nema 14 þingmenn. Þetta sýn-
ir glöggt, hve ranglátt kosn-
ingafy rirkomulag ein-
menningskjördæmin geta
reynzt, ef ekki fylgja þeim
uppbótarsæti til að bæta úr
þessum ágalla þess.
Sökum hins mikla kjósenda-
fylgis Frjálslynda flokksins,
leggja báöir aðalflokkarnir,
Ihaldsflokkurinn og Verka-
mannaflokkurinn, kapp á aö
ná fylgi kjósenda hans i þing-
kosningum. Þeir taka þá
gjarnan upp ýmiss mál, sem
Frjálslyndi flokkurinn hefur
verið fyrstur til aö beita sér
fyrir. Þvi hefur oft veriö sagt,
að Frjálslyndi flokkurinn væri
sá brezki stjórnmálaflokkur-
inn, sem hafi haft málefnalega
mest áhrif eftir siöari heim-
styrjöldina, enda þótt hann
hafi aldrei átt fulltrúa i rikis-
stjórn á þeim tima. Það er
vafalitiö þessi vitneskja um
hin óbeinu áhrif Frjálslynda
flokksins, sem á mikinn' þátt i
þvi að márgir kjósendur hafa
haldið tryggö við hann, jafn-
framt þvi aö þeir hafa ekki
getað fellt sig við stefnu og
forystu aðalflokkanna
tveggja.
FORMANNSKJÖRIÐ hjá
Frjálslynda flokknum fer nú
fram með sérstökum hætti og
er ekki óliklegt, að það eigi
eftir að hafa áhrif, hvernig
stóru flokkarnir haga for-
mannskjöri hjá sér I framtið-
inni. Hingaö til hafa formenn
flokkanna verið kjörnir i viö-
komandi þingflokki og óbeinir
kjósendur þvi ekki getað haft
áhrif á það hvaða maöur veld-
ist til þess aö vera aðalleiðtogi
viökomandi flokks, likt og á
John Pardoe.
David Steel.
sér stað viðast annars staðar I
lýðræðisrikjum. Þessi tilhög-
un hefur sætt vaxandi gagn-
rýni i Bretlandi að undan-
förnu. Frjálslyndi flokkurinn
hefur nú tekið upp það fyrir-
komulag, að þingflokkurinn
greiöir fyrst atkvæði um for-
mannsefnin, en siöan fer fram
kosning i flokksfélögunum um
þá, sem fá tilskiliö fylgi viö
kosninguna i þingflokkunum.
Aö þessu sinni hlutu aðeins
tveir þingmenn tilskilið fylgi
til aö geta komizt i framboð
hjá flokksfélögunum eða þeir
David Steel, sem fékk 5 at-
kvæði, og John Pardoe, sem
fékk 3. Fleiri freistuðu að
komast i framboð, en fengu
ekki tilskilið fylgi.
Astæðan til formannskjörs-
ins nú er sú, að Jeremy
Thorpe, sem hefur verið for-
maður flokksins siðustu niu
árin, sagði af sér formennsk-
unni. Hann hafði verið sakað-
ur um kynvillu og tókst honum
ekki að kveöa þann orðróm
niður, enda þótt hann bæri á
móti honum og heimilidirnar
væru i mesta lagi vafasamar.
Thorpe haföi sem formaöur
flokksins unnið sér miklar vin-
sældir um skeið og var fyrir
þingkosningarnar I febrúar
1974 vinsælasti stjórnmála-
leiðtogi Bretlands, enda næst-
um þrefaldaöi Frjálslyndi
flokkurinn þá fylgi sitt.
Thorpe tókst ekki aö halda
fylgisaukningu áfram i þing-
kosningunum, sem fóru fram
sjö mánuðum siöar, en
flokkurinn fékk þó 18,3%
greiddra atkvæöa, en ekki
nema 13 þingmenn, i stað
19,4% greiddra atkvæða i mai
kosningunum og 14 kjörna
þingmenn. Siöan hefur hallaö
undan fæti hjá Thorpe. Þegar
hann sagði af sér formennsk-
unni i vor, tók Jo Grimond við
formennskunni til bráða-
birgða en hann haföi verið for-
maöur flokksins á undan
Thorpe og unnið sér mikiö álit.
Þá var oft sagt um Grimond,
að hann væri bezta forsætis-
ráðherraefni Bretlands.
ÞEIR, sem nú keppa um
formennskuna, en báðir til-
tölulega ungir. David Steel er
38 ára gamall, en hefur þó set-
ið á þingi i 11 ár. John Pardoe
er 41 árs og hefur átt sæti á
þingi i 10 ára. Báðir eiga þeir
frækilegan stjórnmálaferil að
baki. Steel er lögfræðingur frá
Edinborgarháskóla, vann sem
sjónvarpsfréttamaður um
skeið, og bauð sig svo fram til
þings i skozku kjördæmi, þar
sem thaldsflokkurinn hafði
haft 9.500 atkvæða meirihluta.
Hann náði kosningu og hefur
aukið fylgi sitt stööugt siðan. í
siðustu kosningum hafði hann
um 9000 atkvæöa meirihluta.
Pardoe stundaði fyrst laga-
nám við Cambridgeháskóla,
en hvarf siðan að námi I enskri
tungu. Faðir hans var ein-
dreginn fylgismaður Ihalds-
flokksins, og mun Pardoe hafa
fylgt honum að málum i upp-
vextinum . Arið 1956 gekk hann
i Verkamannaflokkinn, þvi að
hann var andstæður stefnu
thaldsflokksins i Súezdeilunni.
Fáum árum siðar fekk hann I
Frjálslynda flokkinn sökum
eindregins stuðnings hans við
aðild Breta að Efnahags-
bandalaginu. Ariö 1964 fór
hann i framboð fyrir Frjáls-
lynda flokkinn i kjördæmi
Margretar Thatchers og tókst
honum að minnka meirihluta
hennar úr 16.200 i 8800 atkvæði
- Tveim árum siðar náöi hann
kosningu i Cornwall North og
hefur verið endurkjörinn þar
siðan.
Þeir Steel óg Pardoe eru
báðir i miklu áliti. Steel mun
þó i meira áliti I þinginu, eins
og ráða má af þvi, að hann átti
manna mestan þátt i þvi aö
koma fram umdeildum lögum
um fóstureyðingu. Hann þykir
lika stefnufastari en Pardoe,
sem hefur það orö á sér að
vera tækifærissinni. Pardoe,
er hins vegar enn meiri
mælskugarpur, sennilega sá
mesti, sem nú á sæti I neðri
málstofunni. Hann er að sumu
leyti róttækari en Steel. Hann
þykir liklegur til að vekja
meiri styr sem flokksformað-
ur en Steel og gæti t.d. oröiö
Verkamannaflokknum skæður
keppinautur. Steel þykir hins
vegar liklegri til að vera
traustari og rasa siður um ráö
fram. Úrslitin i kosningunum
þykja óviss en fleiri virðast þó
spá Steel sigri. þ.þ.
Þ.Þ.