Tíminn - 02.07.1976, Blaðsíða 15
Föstudagur 2. júli 1976
TÍMINN
15
Lesendur
segja:
Ólafur Þ. Kristjdnsson:
Tillögur stórstúkuþings
í ófengiskaupamálum
1 dálkinum „Lesendur
segja.” i Timanum i dag er
grein merkt stöfunum HV.
Aöalefni hennar er aö mótmæla
— og mér liggur viö aö segja
hneykslastá—samþykktum frá
nýafstöönu Stórstúkuþingi,
einkum einni.
Annars er viöa komiö viö i
greininni. Sumt er þar dagsatt,
eins og t.d. þetta um samtök
bindindismanna (og þar á HV
viö góötemplararegluna, þótt
önnur bindindissamtök séu hér
einnig til): „Stefna samtökin aö
þvl aö eyöa meö öllu neyzlu
drykkjanna (þ.e. áfengra
drykkja) sem og annarra fikni-
efna, sem þau hafa látiö til sin
taka um i vaxandi mæli undan-
farin ár.”
Sumt I greininni er aö nokkru
leyti rétt, einkum sé þaö slitiö úr
samhengi viöannaö i þjóölifinu.
Og sumt er aö minu áliti hrein
fjarstæöa.
En hvaö sem um þetta er þá
gefur greinin fullt tilefni til þess
aö ræöa nokkuö tíllögurnar frá
stórstúkþinginu. Veröur látiö
nægja aö tala um eina tillögu i
dag, hvaö sem siöar kann aö
veröa.
Stórstúkuþingiö samþykktí
áskorun þess efnis, aö áfengis-
kaup manna i Afengisverzlun
rikisins veröi skráö á nafn. Aö
visu á þingiö ekki heiöurinn aö
þvi aö vera upphafsmaöur aö
þessari tillögu. Landssam-
bandiö gegn áfengisbölinu hefur
á ársþingum sinum undanfariö
gert áskoranir i sömu átt.
Ástæöurnar eru einkum tvær:
Samkvæmt landslögum hafa
unglingar innan 20 ára aldurs
ekki leyfi til áfengiskaupa.
Framvisun nafnskirteinis og
skráning kaupanna á nafn eiga
aö tryggja aö þetta ákvæöi sé
ekki brotíö.
Þaö er vitaö aö talsverö ólög-
leg áfengissala á sér staö, meira
aö segja til unglinga allt niöur
aö eöa niöur fyrir fermingar-
aldur. Ég hef engan mann heyrt
mæla þeirrisölu bót. Hins vegar
hefúr oft reynzt erfitt aö hafa
hendur I hári slikra lögbrjóta og
sanna á þá verknaöinn. Oft eöa
oftast hafa þeir keypt áfengiö I
áfengisverzluninni, og þá
stundum sjálfsagt allmikiö i
einu. Skrásetning áfengiskaupa
á nafn mundi gera rannsókn
leynivinsölumála auöveldari og
vera leynivinsölum aöhald. Ef
svo þaö skyldi bætast viö, aö
einhverjir borgarar skyldu ekki
kunna viö aö láta nafnsittkoma
afgreiösluseöla áfengis-
verzlunarinnar, sizt oft eöa fyrir
miklu magni áfengis og keyptu
þvi minna áfengi en ella, þá tei
ég ástæöu til aö fagna þvi, bæöi
vegna mannanna sjálfra og
annarra.
Ég biö lesendur aö hugleiöa
og gjarnan ræöa sin á milli þaö
sem hér hefur veriö sagt um
ástæöurnar fyrir áskorun Stór-
stúkuþingsins nú og annarra
áöur um aö áfengiskaup i
Áfengisverzlun rikisins veröi
skráö á nafn. Ekki kæmi mér á
óvart, þótt þeir yröu nokkuö
margir, sem vildu taka undir
áskorunina, lika I rööum þeirra
manna, sem' ekki eru bind-
indismenn sjálfir.
Þetta veröur aö nægja I dag.
Hafnarfiröi 29. júni 1976
Ólafur Þ.Kristjánsson
Sjónvarpið færi barna-
tímann af sunnudögum
Nú er sjónvarpiö aö fara 1
sumarleyfi, og geta þá bæöi
börn og fullorönir fariö út og
suöur án þess aö óttast aö missa
af einhverju skemmtilegu I
þessu ómissandi skemmtítæki.
En sjónvarpiö tekur aftur til
starfa i ágúst, og nú langar mig
til þess aö koma á framfæri viö
forráöamenn þess tilmælum
varöandi barnatimann.
A sumrin hefur sá háttur
veriö haföur á, aö barnatiminn
á miövikudögum er felldur
niöur, eöa ef til vill mætti
fremur oröa þaö svo, aö sunnu-
dagsþátturinn hefur veriö
felldur niöur, og þess i staö
hefur efni, svipaö þvi sem á
veturna er á miövikudögum,
veriö fært yfir á sunnudagana.
Sunnudagar eru þeir dagar,
sem fólk fer helztaöheiman, og
þá gjarnan meö börn sin meö
sér. í barnafjölskyldum skapast
mikiö vandamál, þegar klukkan
fer aö nálgast sex, ef fjöl-
skyldan er ekki farin aö nálgast
heimaslóöir, svo öruggt sé, aö
börnin geti horft á þetta efni,
sem er reyndar þaö eina, sem
sérstaklega er ætlaö fyrir þau.
Veröur þetta þvi oft á tiöum til
þess, aö fjölskyldan veröur aö
flýta sér heim úr sveitaferö, eöa
göngutúr miklu fyrr en ella til
þess eins aö horfa á sjónvarpiö.
Vilja nú ekki sjónvarpsmenn
ihuga þann möguleika aö hafa
Yfir á virka daga með barnatimann —segir fjögurra barna móöir
barnaefniö á miövikudögum i
staö þess aö hafa það á sunnu-
dögum. Þá eru flest börn heima,
og fjölskyldan öll, og enginn
þarf aö óttast aö hann missi af
sjónvarpsefni barnanna.
Ef til vill segir nú einhver, aö
þaö séu ekki allir, sem fara út úr
bænum. Vist er þaö rétt, en
þrátt fyrir það held ég, aö þau
börn ættu jafnt aö geta notíö
sjónvarpsefnisins á miöviku-
dögum, og sunnudagarnir yröu
þeim ekkert lengri en miöviku-
dagurinn heföi annars oröiö.
Sjónvarpsmenn ættu aö
gleðjast yfir þvi, aö vita, aö
barnatimarnir skuli vera svo
vinsælir, aö ekki megi af þeim
missa, og ættu þvi aö geta fært
þá ýfir á virkan dag yfir
sumariö, og mesta sumarleyfis-
timann, til þessaö stuöla þannig
aö þvi, aö fjölskyldan geti notiö
sunnudaganna I friö og ró, án
þess aö barnsaugun séu flóandi I
tárum yfir þvi aö missa af
myndinni um Lassie eöa ein-
hverju ööru, sem vissulega
heldur huganum föngnum á
meöan á er horft og jafnvel
lengur. Fjögurra barna móöir.
HRINGiÐ í SIMA 18300
MILU KLUKKAN 11 — 12
r
TIMA- spurningin
— Er það tilhlökkunarefni eða ylli það þér kvíða, ef
olíulindir fyndust á Norðausturlandi eða út af
ströndum þess?
Lára Ingólfsdóttir húsmóöir: — Þaö yrði mér tilhlökkunarefni,
þá tækist okkur ef til vill aö greiöa eitthvaö af skuldunum.
Már Elisson, fiskimálastjóri: — Eins og tæknimálum er háttað i
dag þá ylli þaö mér kviöa. En tækninni fleygir fram og innan
skamms veröur mögulegt að bora án allrar hættu á djúpu vatni.
Alice Larsen, húsmóöir: — Við þyrftum ekkert aö óttast þó svo
olia iyndist. Þaö er alltaf að koma ný og betri tækni sem kemur i
veg fyrir alla mengun.
Guömundur Magnússon byggingarmeistari: —Ahrif af oliufundi
yrðu auövitaö bæöi góö og slæm. Viö fengjum bæöi mengun og
mikla peninga. Ætli menn horföu ekki meira á gróöann?
Pétur Erlendsson, bankastarfsmaöur: — Þaö myndi valda mér
kviöa ef olia fyndist, þvi fundur hennar myndi setja allt efna-
hagslifiö á annan endann, nema stjórnvöld gættu þess að treysta
lika á aðra hluti.